Morgunblaðið - 21.04.1994, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
Að kaupa þyrlu eða
að þyrla upp ryki
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Sumardagurinn
fyrsti
Sumardagurinn fyrsti er
séríslenzkur hátíðisdag-
ur, sem rekur rætur allt til
landnámsaldar. Hann er gró-
inn þjóðinni í merg og bein.
Enginn dagur ársins hefur átt
jafn rík ítök í hugum og hjört-
um kynslóðanna og þessi dag-
ur, fyrsti fimmtudagur eftir
18. apríl. Skýringin er nær-
tæk. Með honum hófst harpa,
fyrsti sumarmánuðurinn að
fomu tímatali. Þjóð, sem
þurfti að þreyja þorrann og
góuna, oft við þröngan kost,
langa, dimma og kalda vetur,
fagnaði sól og sumri, vakn-
andi gróðri, komandi bjarg-
ræðistíma til sjávar og sveita,
sem afkoma hennar byggðist
á.
Bjargræðisvegir kynslóð-
anna, sem byggðu þetta land,
landbúnaður og sjávarútveg-
ur, voru alfarið háðir árferði,
áður en tækni nútímans kom
til sögunnar. Þeir eru það í
ríkum mæli enn í dag, „þótt
margt hafi breytzt frá því
byggð var hér reist“. Og það
var vissan um vorið og sumar-
ið, vissan um gæftir og gró-
anda, handan þorra og góu,
sem gerði líf eyþjóðarinnar,
yzt í veraldarútsæ, bærilegt í
skammdegi og veðraham vetr-
ar. Þessvegna var sumardag-
urinn fyrsti einskonar þjóðhá-
tíð í aldanna rás.
Sumarkoman hafði ekki
einungis efnahagsleg áhrif í
erfíðri lífsbaráttu lands-
manna. Hún snerti og trúar-
legan streng í bijóstum þeirra.
Það var trú kynslóðanna, sem
landið byggðu, að skapari
himins og jarðar talaði til
þeirra í sköpunarverki sínu.
Þær litu á árvisst kraftaverk
í náttúru landsins, sem ól þær
við bijóst sín, þegar hækkandi
sól og vaxandi birta vöktu
gróðurríkið til nýs lífs af vetr-
arsvefni, sem táknmál, tákn
um sigur lífsins yfir dauðan-
um.
Skáldið og náttúrufræðing-
urinn Jónas Hallgrímsson leit
á tilveruna sem óumdeilanlega
sköpun guðs og náttúruna og
líf mannsins sem merki um
nálægð hans. Hann vafði vís-
indahyggju sína inn í sjald-
gæfa, einlæga guðstrú, sem
honum var í blóð borin. Þessi
trú kemur berlega fram í Sól-
setursljóði, sem er einskonar
þýðing eða endursögn í anda
Jónasar á erlendum skáld-
skap:
Blessuð, margblessuð,
ó blíða sól!
blessaður margfalt
þinn beztur skapari!
fyrir gott allt
sem gjört þú hefur
uppgönp frá
og að enda dags.
Síðar í ljóðinu segir skáldið
að geislar sólarinnar veki
mynd guðs hins máttka. Og í
ljóðinu Ad amicum, Til vinar,
segir:
Ár var alda
þá er endurborin
fold in fjallsetta
í fyrstra sinn
veítast tók völ
um vegu ókunna
að orði alvalds
sem allt um skóp.
Leitin að guði og leitin að
sannleikanum runnu saman í
eitt í skáldskap Jónasar, með
og ásamt ástinni á ættjörð-
inni. í Saknaðarljóði eftir
frænda sinn segir skáldið:
Brann þér í bijósti,
bjó þér í anda,
ást á ættjörðu,
ást á sannleika.
Og í Kveðju til Uppsala-
fundarins, 1843, sem er eins-
konar hvöt til samstöðu nor-
rænna manna, talar skáldið
enn um sannleika og trú í
sömu hendingunum:
sigri sannindi,
o,g samheldni.
Ast pðs öllum hlífí.
í hugleiðingum J.P. Mynst-
ers, sem Jónas snaraði á ís-
lenzku ásamt félögum sínum,
er lögð áherzla á Guð Föður
sem „opinberar sig í náttúr-
unni“ og leiðir manneskjuna
á rétta vegu. Ef til vill er
„kristindómur hækkandi sól-
ar“, sem er einhvers konar
séríslenzk trúartilfinning,
hliðstæða slíkra viðhorfa. Guð
vorsins og kærleikans, guð
sumardagsins fyrsta, á enn
sem áður rík ítök í hugum
íslendinga.
Það er boðskapur þess trú-
arlega táknmáls, sem sumar-
dagurinn fyrsti er til marks
um, að við eigum að láta sól
Krists, sem er vegurinn, sann-
leikurinn og lífið, rísa í hugum
okkar og vekja þar til nýs lífs
kærleika, réttsýni og góðvilja
til allra manna. Þessvegna er
sumardagurinn fyrsti ekki
aðeins íslenzk þjóðhátíð held-
ur og þjóðhelgur dagur.
Morgunblaðið óskar lesend-
um sínum og landsmönnum
öllum gleðilegs og sólríjís
sumars.
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
Ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd
að undanförnu fyrir seinagang í
ákvörðun um kaup á nýrri björgunar-
þyrlu fyrir íslensku þjóðina. Draga
hefur mátt þá ályktun af umræðum
um þyrlukaupamálið að þyrlubjörgun-
armál hérlendis væru í algerum
ólesstri eða að nú væru síðustu forvöð
að taka einhveiju kostatilboði. Sann-
leikurinn er sá að óvíða í heiminum
eru jafn margar vel búnar björgunar-
þyrlur til reiðu miðað við fólksfjölda.
Um það ríkir almenn samstaða að
skipan björgunarmála hér á landi
verði með sem tryggilegustum hætti.
Þessi samstaða endurspeglast m.a. í
yfirlýstum vilja Alþingis, ríkisstjórnar
og félagasamtaka til að íslensk stjórn-
völd eignist öfluga og fullbúna björg-
unarþyrlu. Undirbúningur að kaupum
á nýrri björgunarþyrlu fyrir Land-
helgisgæsluna hefur nú staðið um
nokkurt skeið, en eðlilega hafa stjórn-
völd viljað fara að öllu með gát þar
sem um verulega fjárfestingu er að
ræða.
Breyttar forsendur
Dr. William Perry, núverandi varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, setti
fram þá hugmynd í heimsókn sinni
til íslands 4. janúar sl. að íslensk
stjórnvöld öxluðu meiri ábyrgð í
þyrlubjörgunarmálum og yfirtækju
jafnvel þyrlubjörgunarþjónustu varn-
arliðsins. Þetta óvænta frumkvæði
Dr. Perrys hefur breytt forsendum í
fyrirhuguðum þyrlukaupum lands-
manna. Alveg er ljóst að íslensk
stjórnyöld tækju ekki ábyrga ákvörð-
un í ,málinu ef ákveðið yrði að ráð-
stafa tæpum einum milljarði króna
til kaupa á notaðri Super Puma þyrlu
án þess að fullkannað væri, hvort
grundvöllur er fyrir mun víðtækara
samstarfi við bandarísk stjórnvöld á
þessu sviði.
í kjölfar heimsóknar Dr. Perrys
hófust óformlegar könnunarviðræður
embættismanna ríkjanna tveggja um
útfærslu þeirrar bókunar sem sam-
eftirÁrna Sigfússon
Frambjóðeridur R-listans hafa
gegn betri vitund reynt að halda því
fram í kosningaáróðri sínum að und-
anförnu, að teflt hafi verið á tæp-
asta varð í fjármálum borgarinnar
undir stjóm sjálfstæðismanna á yfir-
standandi kjörtímabili. Staðreynd-
imar tala hér allt öðra máli og þetta
er því enn eitt dæmið um þá blekk-
ingaráráttu, sem einkennir málatil-
búnað hinna sundurleitu aðstand-
enda listans. Það er eins og blekking-
in sé það eina, sem þeir geta samein-
ast um.
Öllum, sem til þekkja, ber saman
um, að fjárhagsstaða Reykjavíkur-
borgar sé sterk. Sú skoðun er byggð
á eftirtöldum staðreyndum:
1. Hlutfall heildarskulda af eign-
færðum fastafjármunum Reykja-
víkurborgar var um 10,8% um
síðustu áramót. Eignir umfram
skuldir á hvern íbúa eru meiri en
hjá nokkru öðm sveitarfélagi hér-
lendis.
2. Reiknað er með, að hlutfall nettó-
skulda borgarsjóðs af reglulegum
árstekjum hafi verið innan við
36% um síðustu áramót, en það
er víðs fjarri hættumörkum sem
almennt eru tahn Iiggja a buinu
þykkt var á þeim fundi. Ríkisstjórnin
skipaði starfshóp um málið 1. febr-
úar. Fyrir liggur að ekki er verið að
ræða um beina yfirtöku íslenskra
stjórnvalda á tækjum og búnaði þyrlu-
björgunarsveitar varnarliðsins íslend-
ingum að kostnaðarlausu. Könnunar-
viðræðurnar hafa hinsvegar leitt í ljós
vilja Bandaríkjamanna til þess að
selja íslenskum stjórnvöldum þyrlur
fyrir milligöngu sölukerfis bandaríska
varnarmálaráðuneytisins, í þeim til-
gangi að annast verktöku á björgun-
arsviðinu fyrir bandaríska heraflann
á íslandi og umhverfis landið.
Margra kosta völ
Ákvörðun liggur ekki fyrir um
samstarf við bandarísk stjórnvöld um
rekstur þyrlubjörgunarsveitarinnar
sem byggist á verktöku íslenskra
stjórnvalda, enda hefur ekki verið
tekin um það ákvörðun af hálfu ríkis-
stjórnarinnar hvort óska skuli eftir
formlegum samningaviðræðum við
Bandaríkjamenn. Þannig hafa upplýs-
ingar frá bandarískum stjórnvöldum
um verð á einstökum þyrlutegundum
ekki verið settar fram sem tilboð,
heldur sem vísbending um helstu val-
kosti sem til greina kæmu, ef viðræð-
ur hæfust.
Ef nýta á sölukerfi bandaríska
varnarmálaráðuneytisins felur það í
sér að fylgt verði ákveðnu ferli. Eitt
fyrsta skrefið yrði heimsókn banda-
rísks sérfræðingahóps til þess að
ræða tæknilega útfærslu og skilmála.
Þá þarf að liggja fyrir að bandarísk
stjórnvöld samþykki í grundvallaratr-
iðum samstarf um rekstur þyrlubjörg-
unarsveitarinnar sem byggist á verk-
töku íslenskra stjómvalda. Eins og
komið hefur fram í fréttum hefur
verið óskað eftir því að Bandaríkja-
menn staðfestu þetta fyrir lok fyrstu
viku maímánaðar.
Vonir standa til að bandarísk
stjórnvöld bregðist þannig við ósk
íslenskra stjórnvalda að það skýrist
innan skamms, hvort grundvöllur sé
til samningaviðræðna um kaup á
tækjum og búnaði með verktöku í
huga.
„Af framansögðu er
ljóst, að dylgjur fulltrúa
þeirra flokka og fiokks-
brota, sem nú reyna
hver sem betur getur að
breiða yfir fortíð sína
undir regnhlíf R-listans,
eiga ekki við rök að
styðjast.“
80-100%. Með nettóskuldum er
hér átt við heildarskuldir að frá-
dregnum útistandandi heildar-
kröfum. Önnur skilgreining á
hugtakinu nettóskuldir er sú að
miða við heildarskuldir að frá-
dregnum veltufjármunum og
samkvæmt því yrði hlutfall nettó-
skulda eða peningalegrar stöðu
rétt um 46%, sem einnig er víðs
íjarri hættumörkum.
3. Eignfærðir fastafjármunir borg-
arsjóðs jukust um tæplega 10,5
milljarða á tímabilinu 1990-
1993, en heildarskuldir borgar-
sjóðs hækkuðu um tæplega 5,5
milljarða króna á sama tíma.
Eignamyndun varð þyí um 5 millj-
“aroa kroná' umnram laritöku nja
Formlegar samningaviðræður
Nýleg niðurstaða þyrlukaupa-
nefndar, sem hæstvirtur dómsmála-
ráðherra hefur vitnað til, er háð aug-
ljósum fyrirvara. Nefndin tók einvörð-
ungu afstöðu til þeirra tilboða sem
borist höfðu nefndinni með formleg-
um hætti. Þetta þýðir að nefndin fjall-
aði ekki um - og gat ekki tekið af-
stöðu til - upplýsinga frá bandarísk-
um stjórnvöldum í tengslum við hugs-
anlegt samstarf í þyrlubjörgunarmál-
um, enda hafa engin formieg tilboð
borist enn sem komið er, heldur ein-
ungis óformlegar og óbindandi hug-
myndir um þyrlukost og verð.
Af þessum sökum verða ekki
dregnar neinar ályktanir af niður-
stöðu nefndarinnar um forkönnun þá
er nú stendur yfir á möguleikum þess
að ísland yfirtaki störf þyrlubjörgun-
arsveitarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Mikilvægt er að slá þennan varnagla
þegar rætt er um síðustu niðurstöður
þyriukaupanefndar.
Ásakanir um að utanríkisráðherra
hafi hlutast til um mál sem væm á
verksviði dómsmálaráðherra eiga
ekki við rök að styðjast. Bókun Is-
lands og Bandaríkjanna við varnar-
samninginn, sem undirrituð var í
Reykjavík 4. janúar sl., var gerð að
undangengnu nánu samráði utanrík-
isráðherra og forsætisráðherra og á
ábyrgð allrar ríkisstjórnarinnar. í
kjölfar þessarar bókunar hefur utan-
ríkisráðherra gengið eftir efndum af
hálfu Bandaríkjanna á ákvæði hennar
um hugsanlega yfirtöku íslendinga á
þyrlubjörgunarþjónustu varnarliðsins
- einnig á ábyrgð og í umboði allrar
ríkisstjórnarinnar. í ljósi þeirrar um-
ræðu sem átt hefur sér stað um þyrlu-
kaup fyrir Landhelgisgæsluna að
undanförnu hefur utanríkisráðherra
lagt áherslu á að málinu yrði hraðað
eftir föngum.
Kæmi í ljós að það hentaði íslend-
ingum að yfirtaka þyrlubjörgunar-
þjónustu varnarliðsins í samstarfi við
Bandaríkin, væri leitt til þess að vita
ef íslensk stjórnvöld hefðu bundið sig
fyrirfram við eitt ákveðið kauptilboð
í notaða franska þyrlu og þannig
Árni Sigfússon
borgarsjóði á umræddu tímabili.
4. Fyrirtæki Reykjavíkurborgar
standa í heild mjög vel og hjá
þeim jukust eignfærðir fastafjár-
munir um ríflega 4,2 milljarða
en heildarskuldir þeirra hækkuðu
um 350 milljónir króna á sama
tíhia. L
Staðreyndir um sterki
hagsstöðu Reykjavíkui