Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
41
ATVINNUAUGÍVS/NGAÍ?
Hjúkrunarfræðingar
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi, auglýsir hér
með eftir hjúkrunarfræðingi til starfa frá
júní-júlí að telja.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 93-12500.
Leikarar - dansarar
Viltu vera með í nýrri uppsetningu á
LIGHT NIGHTS í sumar?
Umsækjendur þurfa að hafa góðar hreyfing-
ar og geta tjáð sig í þöglum leik.
Komið til viðtals í Tjarnarbíói milli kl. 17.00
og 19.00 í dag eða á morgun milli
kl. 20.00 og 21.00.
Ferðaleikhúsið.
DHLauglýsir eftir
bílstjóra
Óskum eftir að ráða bílstjóra.
Þarf að hafa til brunns að bera:
Góða enskukunnáttu, tölvuþekkingu og vera
bæði snyrtilegur og reglusamur.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun, aldur og fyrri störf, ásamt mynd,
sendist til DHL, Faxafeni 9, merktar:
„Bílstjóri“, fyrir 27. apríl 1994.
WORLDW/DE EXPRESS«
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
DHL HRAÐFLUTNINGAR H F, Faxafen 9- I 08 Reykjavík
Simi (91)689822 -Fax (91)689865
FJQLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS
Frá Fjölbrautaskóla Suðurlands
á Selfossi
Við skólann eru lausar til umsóknar eftirtaldar
kennarastöður vegna skólaársins 1994-95:
Danska (2h starfs), málmiðnaðargreinar (fullt
starf), stærðfræði (2 störf), tölvufræði (2/3
starfs), vélritun (V2 starf), viðskiptagreinar
(V2 starf). Auk þess stundakennsla í eðlis-
fræði, ferðamálagreinum og samskiptum og
tjáningu.
Ennfremur er laus til umsóknar staða
skólasafnvarðar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu hafa borist skólanum í
síðasta lagi 18. maí nk.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Sigur-
sveinsson, skólameistari, í síma 98-22111.
Ferðastyrkurtil rithöfundar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns sam-
starfs í fjárlögum 1994 verði varið 90 þúsund-
um kr. til að styrkja rithöfund til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsókn um styrk þennan skal hafa bor-
ist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 15. maí nk.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvern-
ig umsækjandi hyggst verja styrknum.
Menntamálaráðuneytið, 20. apríl 1994.
Aðalfundur
Skagstrendings
verður haldinn f Fellsborg, Skagaströnd,
30. apríl 1994 og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 11. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórn-
arinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir
aðalfund.
Stjórn Skagstrendings hf.
Núpaá - ódýr laxveiði
Til sölu veiðileyfi í Núpaá á Snæfellsnesi.
Reglulega er sleppt í ána villtum hafbeitar-
laxi. í fyrra veiddust um 250 laxar. Silungs-
veiði, gott veiðihús, þrjár stangir. Verð per
stöng aðeins kr. 7.500. Bókið í tíma.
Upplýsingar og bókanir í símum 667288,
36167 og 811051.
Laxveiðiá til leigu
Tilboð óskast í laxveiðisvæðið í Hafralónsá frá
og með 1995. Gera má tilboð í hluta af veiði-
tímanum, sem er frá 21. júní til 20. sept.
Tilboð í innsigluðu bréfi berist til hreppstjóra
Þórshafnarhrepps, Syðra Lóni, fyrir 30. júní
1994.
Stjórn veiðifélagsins opnar tilboðin kl. 13.00
sunnudaginn 3. júlí. Réttur áskilinn til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar gefa Marinó í síma 96-81257
og Sigurður í síma 96-81269.
'AUGL YSINGAR
Framboðsfrestur
til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 28. maí
1994 rennur út laugardaginn 30. apríl nk.
kl. 12.00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum
þann dag kl. 10.00 til 12.00 í fundarsal borg-
arráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11.
Reykjavík, 15. apríl 1994.
Yfirkjörstjórn Reykja víkur.
Jón Steinar Gunnlaugsson,
Gísli Baldur Garðarsson,
Eiríkur Tómasson.
.
.
Uppboð á lausafé
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Gjald-
heimtunnar í Reykjavík, ýmissa lögmanna,
banka og stofnana, fer fram uppboð laugar-
daginn 23. apríl 1994 kl. 13.30 í uppboðssal
í tollhúsinu við Tryggvagötu (hafnarmegin).
Eftir kröfu tollstjóra: Benz vörubíll árg. 1985,
Volvo-vörubíll árg. 1985, Fiat Ducato árg.
1983, mótorhjól UZ-ET2-250, Suzuki mótor-
hjól árg. 1987, bifreiðar og hjólin innfl. not-
uð, bifreiðavarahlutir, vinkilstál, stangajárn,
stálplötur, stálvír, stálrör, stálpípur, innrétt-
ingar, vír-standar, húsgögn, umbúðir, teppa-
rúllur, sápa, innréttingar f. verslun, rusla-
gámur, allskonar varahlutir, lausfrystir, fisk-
vinnsluvél, önglar, hreinsitæki, net, allskonar
fatnaður, filt, skófatnaður, bragðefni, töskur,
2 gámar vörur, bómullarvörur, lampar, fros-
inn þorskur, þorskanet, skermar, hurðir,
ferðabelti, newsprint-offcuts, neutra-rust,
cutlery, skothylki, straumbreytar, Ijósabún-
aður, vefnaður, myndatökuvélar, varahlutir í
myndavélar, linsur, filmur, frumrafhlöður og
margt fleira.
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar, ýmissa lög-
manna, banka og stofnana: Allskonar hús-
munir, sjónvarpstæki, myndbandstæki,
hljómflutningstæki, ísblöndunarvél, ísvél,
áleggshnífur, tölvuvog, dýna í vatnsrúm king
size, allskonar húsgögn, skrifstofuáhöld,
fatnaður, allskonar munir úr dánar- og
þrotabúum og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar nema með sam-
þykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
í gamla góða miðbænum
124 fm verslunarhúsnæði til leigu á góðum
stað við Laugaveg.
Upplýsingar í síma 672121 á skrifstofutíma.
Spjallfundur Óðins
um atvinnumál
Spjallfundur Óðins um atvinnumál verður í
Óðinsherberginu í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
laugardaginn 23. apríl kl. 10.00.
Gestur fundarins veröur Jóna Gróa Sigurð-
ardóttir, formaður atvinnumálanefndar
Reykjavíkurborgar.
Kaffi á könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Landssamband
sjálfstæðiskvenna
L.S. heldur 4. stjórnarfund sinn föstudaginn 22. apríl á Hótel Holiday
Inn, Sigtúni 38, kl. 17.00.
Opinn fundur kl. 19.00. Léttur kvöldverður.
Setning:
Arndís Jónsdóttir, formaður L.S. Kynning kvenframbjóðenda fyrir
komandi sveitarstjórnakosningar.
Stutt framsöguerindi.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri:
Anna Kristjánsdóttir, formaður Hvatar.
Hvetjum allt sjálfstæðisfólk til að mæta og taka með sér gesti.
Stjórn Landssambands sjálfstæöiskvenna.
MetsöhMad á hverjum degi!