Morgunblaðið - 21.04.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
43
af víði má lækka sprotann frá því
í /yrrasumar niður í 15-20 senti-
metra.
Brátt líður að því að ýmsar fjöl-
ærar jurtir fari að sýna lífsmark.
Gott er að skera ofan af þeim kal-
stönglana áður en blöð fara að vaxa
að ráði, en sjálfsagt er að skýla
þeim enn um sinn með einhverju
sem til fellur, t.d. kalstönglunum
skrælnuðu ttjálaufi og ýmsu fleiru
sem vitanlega fer í safnhauginn
þegar hiýna tekur fyrir alvöru. Af-
skornar grenigreinar eru mjög
heppilegar til skjóls.
Þá er að lokum vert að vara við
sniglinum sem ekki er vanur að
láta á sér standa með vorkomunni,
getur orðið æði djai-ftækur til ný-
græðingsins og valdið á honum
spjöllum. Til að koma í veg fyrir
það að rétt að sáldra ögn af snigla-
eitri fyrr en síðar á þá staði þar sem
hans er helst von. En það sem
mest veltur á er að komast sem
allra fyrst í vor- og ræktunarskap
— eftir vetur óralangan — og horfa
björtum augum til komandi sumars
sem við vonum að verði landsmönn-
um öllum frjósamt og gott og gleði-
legt á allan handa máta.
------♦ ♦ ♦-------
Styrktartón-
leikar KFUM
og KFUK
KFUM og KFUK í Reykjavík
munu á föstudags- og laugar-
dagskvöld halda styrktartón-
leika í nýjum aðalstöðvum fé-
laganna við Holtaveg. Bygging
hússins er langt komin og eru
tónleikarnir liður í því að safna
fé til byggingarinnar og kaupa
á hljóðkerfi sem sett verður upp
í aðalsamkomusalnum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 bæði
kvöldin. Á föstudagskvöld munu
koma fram m.a. hljómsveitin Góðu
fréttirnar, kvartettinn Með kaff-
inu, Miriam Óskarsdóttir, Helga
Vilborg og Agla Marta Siguijóns-
dóttir.
Á laugardagskvöld munu
syngja m.a. Magnús Baldvinsson
óperusöngvari, Elsa Waage söng-
kona, Laufey Geirlaugsdóttir,
RARÚ og Gospelkórinn.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Systir Lovísa ásamt félögum í foreldrafélaginu og leikskólabörnum.
Leikskóli St. Fransiskussystra
Foreldrafélag stofnað
Stykkishólmi.
UM FJÖLDA ára hafa St. Fransiskussystur í Stykkishólmi rekið hér
leikskóla með ágætri aðstöðu bæði úti og inni og er þetta mikil þjón-
usta við Stykkishólmsbúa. Systir Lovísa hefur ætíð verið stjórnandi
skólans eða skólastjóri og haft með sér gott lið.
Nú hefur foreldrafélag verið stofn-
að um skólann sem bæði leggur hon-
um lið og hefur undanfarið séð um
sýningu bamanna á ýmsum verkefn-
um sem börnin hafa unnið að á vetr-
inum og eru þau fjölbreytileg.
Laugardaginn 16. apríl sl. var efnt
til sýningar og sölu á munum barn-
anna og allt sem inn kom var notað
til smáferðalaga barnanna til að
kynna þeim nálæga staði. Stóð for-
eldrafélagið ásamt systur Lovísu að
þessari sýningu sem þótti með ágæt-
um og margir komu og skoðuðu.
I vetur voru 84 börn innan við 7-8
ára í skólanum og fer þeim fjölgandi
ár frá ári.
- Árni.
ÞAÐ BORGAR SIGAÐ PANTA
KÍKTUÁ VERÐIÐ!
Dömubolir bls. 135, 145,
8 litir, stærðir 10-20,
verð kr. 1.303,-
Barnabolir bls. 368,
3 í pk., kr. 1.449,-
Barnagaliar bls. 407,
2 í pk., kr. 1.884,-
Herrabolir, stærðir s-xxl,
frá kr. 796,-
Yfir 1000 síður af vörum
á góðu verði.
Fullt af tilboðum.
Lúxusferð til London
fyrirtvo o.fl.
PÖNTUNARSÍMI 52866
R|U| B. MAGNÚSSON HF.
Hólshrauni 2, Hafnarfirði
Sjóferð um sundin
í SUMAR verður boðið upp á stuttar sjóferðir út á Kollafjörð á
hverju kvöldi þegar sjóðveður leyfir.
Farið verður kl. 21 frá Suður- fimmtudagskvöld, kl. 21 úr Suður-
bugt, bryggju neðst við Hafnarbúð- bugtinni með farþegabátnum
ir. Fyrsta ferðin verður farin í kvöld, Skúlaskeiði.
Verður
íriðhaldinu
í sumar
sinnt
samkvæmt
byggingar-
reglugerð?
Hefur þú, húseigandi
hugleitt eftirfarandi:
1. Að samkvæmt byggingarreglugerð er viðhaldsvinna
tilkynningarskyld.
2. Að hjá iðnmeisturum er mesta reynslan.
3. Að viðhaldsvinnu er best borgið í höndum fagmanna.
4. Að iðnmeistarar eru þeir einu, sem eru ábyrgir gagnvart
byggingaryfirvöldum.
5. Að við sölu fasteignar getur það ráðið úrslitum hver hefur
framkvæmt viðhaldsvinnuna.
6. Að meistarafélögin í Reykjavík veita alla þá tækniþjónustu
sem með þarf varðandi viðhald og endurbætur á fast-
eignum, sem og nýsmíði, og alla þá þjónustu
er þarf vegna útboðs.
7. Þessa þjónustu getið þið fengið hjá Meistaraafli hf.,
Skipholti 70, Reykjavík í síma 36282.
kaumboð á Islandi fyrir sænsku Formenta fánastangirnar.
Dæmi um verö á íslenska fánanum:
150 sm. kostar kr. 3.392-
175 sm. kostar kr. 3.995-
200 sm. kostar kr. 5.030-
Formenta fánastöngin hefur fyrir löngu
sannað ágæti sitt viö íslenskar aðstæður,
enda sérstaklega styrkt fyrir okkar markað
Láttu eftir þér að eignast eina vinsælustu
fánastöng síðustu ára - Formenta.
ELLINGSEN
Grandagarði 2, Rvík. sími 28855, grænt númer 99-6288.