Morgunblaðið - 21.04.1994, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
t
Elskulegur bróðir okkar,
GUÐMUNDUR HERMANN GÍSLASON,
Erikfeldsgatan 74b,
Malmö,
er látinn.
Systkini hins látna.
Móðir okkar,
GUÐMUNDA GÍSLADÓTTIR,
Sólvallagötu 21,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriöjudaginn 19. apríl.
Sigríður Guðbjörnsdóttir,
Gyða Guðbjörnsdóttir,
Siguriaug Guðbjörnsdóttir.
t
Maðurinn minn,
ELLERT FINNBOGASON,
Kastalagerði 9,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að morgni 20. apríl.
Hólmfríður Jóhannesdóttir.
t
Ástkœr faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BOLLI GUNNARSSON,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 20. apríl.
Einar Gunnar Bollason, Sigrún Ingólfsdóttir,
Bolli Þór Bollason, Halla Lárusdóttir,
Arthur Björgvin Bollason, Svala Arnardóttir,
Linda Sigrún Bolladóttir, Michael W. Thomas,
Erla Bolladóttir, Hartmann Guðmundsson,
Helga Bolladóttir, Hjalti Gunnlaugsson,
Lilja Bolladóttir, Valur Ragnar Jóhannsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐRÁÐUR JÓHANN GRÍMUR
SIGURÐSSON
skipstjóri,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést í Landspítalanum hinn 18. apríl sl.
Rannveig Hjartardóttir,
Ragnheiður Guðríður Guðráðsdóttir, Þorsteinn Laufkvist,
Hulda Guðrún Guðráðsdóttir, Garðar Sigurðsson,
Sigrún Gréta Guðráðsdóttir, Sigurjón Agústsson,
Sigrfður Erla Guðráðsdóttir, Jónas Blöndal,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
MAGNÚS INDRIÐASON
frá Bryðjuholti,
Hlévangi,
Faxabraut 13,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 23. apríl
kl. 13.30.
Rósa Sigurðardóttir,
Sigurður Jakob Magnússon, Kristborg Nfelsdóttir,
Guðlaug Rósa Sigurðardóttir, Magnús Níels Sigurðsson.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 14. apríl sl.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey.
Sverrir Sigurösson,
Áslaug Sverrisdóttir, Vilhjálmur Lúðvíksson,
Ingibjörg Hilmarsdóttir,
Berglind Hilmarsdóttir,
Ingibjörg Sunna Vilhjálmsdóttir,
Arndfs Vilhjálmsdóttir.
Minning
Anna Kjartansdóttir
fv. yfirhjúkrunarkona
Fædd 12. júní 1899
Dáin 12. apríl 1994
Anna frænka er dáin. Blessuð
sé minning hennar. Eftir tæplega
tveggja mánaða sjúkralegu þá lést
hún hinn 12. apríl síðastliðinn og
átti þá eftir rétta tvo mánuði í níu-
tíu og fimm ára afmæli sitt.
Anna fæddist 12. júní í Presthús-
um í Reynishverfi í Mýrdal árið
1899 og var elst níu systkina. Var
hún dóttir hjónanna Kjartans Finn-
bogasonar söðlasmiðs og Ingibjarg-
ar J.óhannsdóttur. Eftirlifandi syst-
ur Önnu frænku eru Sigríður og
Ásdís, eða Sigga og Dísa eins og
þær eru alltaf kallaðar.
Anna er elst upp í Presthúsum
en fljótt stefndi hugur hennar til
hjúkrunarstarfa, því hún mátti ekk-
ert aumt sjá. Um átján ára aldur
fer hún til Vestmannaeyja og hóf
þar hjúkrunamám og var við nám
á hinum ýmsu hjúkrunarhúsum
landsins. Árið 1926 tekur hún svo
próf hjá Sæmundi Bjarnhéðinssyni
yfirlækni. Var hún síðan hjúkrunar-
kona við Farsóttahúsið í Reykjavík
frá 1. apríl 1926 og til loka síns
starfsaldurs, allt til 1965.
Mínar fyrstu minningar um Önnu
frænku eru, þegar við bræður og
foreldrar komum í heimsókn til
hennar í Farsóttahúsið. Bjó hún á
efstu hæð hússins og er við komum,
þá var hún oft að hjúkra litlum
fuglum, þröstum og dúfum sem að
hún hafði fundið lasna úti við.
Hændust þessir fuglar svo að henni,
að ávallt voru margir fuglar og
fallegur fuglasöngur á svölúnum
hennar.
Var Anna mikill dýravinur og
náttúruunnandi og þótti mjög vænt
um sveitina sína fyrir austan. Um
1960 kaupir hún lítið hús í Reynis-
hverfinu skammt frá Presthúsum
sem að heitir Harðivöllur. Var það
hennar líf og yndi á efri árum að
snúast í kringum þessa litlu para-
dís sína og eiga nágrannar hennar
í sveitinni miklar þakkir skildar
fyrir hjálpsemi þeirra við hana. Hún
stækkaði húsið um 1970 og varð
það til þess að fleiri gátu notið
gestrisni hennar í Harðavelli. Á ég
margar góðar minningar þaðan að
austan sem og fjöldi annarra.
Hefur hún nú fengið sína hinstu
hvíld, en ég veit að Anna frænka
mun alltaf lifa í minningu minni.
Síðustu æviárin bjó Anna með
systrum sínum, Siggu og Dísu, í
Selvogsgrunni 11 í Reykjavík.
Baldur Ö. Kjartansson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
síðast til heimilis
á Hrafnistu í Reykjavík,
sem andaðist 16. þ.m., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
22. apríl kl. 10.30.
Hilmar Adolfsson, Svava Hauksdóttir,
Gylfi Adolfsson, Vilborg Geirsdóttir,
Hildigunnur Adolfsdóttir Dixon, Louis Dixon,
Adolf Þráinsson, Aðalheiður Pálmadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför
JÓNS V. HJALTALÍN
frá Brokey,
fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 23. apríl kl. 13.30.
Jarðsett verður að Narfeyri, Skógarströnd, sama dag.
Ingibjörg P. Hjaltali'n,
Vigfús J. Hjaltalín Margrét Ásgeirsdóttir,
Páll J. Hjaltalín, Ásta Jónsdóttir,
Bergur J. Hjaltalin, Ásdís Herrý Ásmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMANN HÖGNASON,
Skerseyrarvegi 7,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víöstaðakirkju föstudaginn 22. apríl
kl. 13.30.
Jenný Sigmundsdóttir,
synir, tengdadætur, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir minn og afi,
AGNAR STEFÁN STEFÁNSSON,
sem lést 3. aprll, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 22. apríl
kl. 13.30.
Arnheiður Guðrún Agnarsdóttir,
John Lindsay,
Paulette Lindsay.
Föðursystir mín, Anna Kjartans-
dóttir, fv. yfirhjúkrunarkona á Far-
sóttaheimili Reykjavíkur, er látin.
Anna mín, þegar ég minnist þín
þá koma í huga mér þær stundir
er ég heimsótti þig á Farsótt sem
barn. Ég man enn lyktina sem fylgdi
því húsi, sambland af grænsápu og
klóróformi, brakið í hvítskúruðum
gólffjölunum og þú á ferð og flugi
talandi við lækna á göngunum og
stjórnandi öðni starfsliði með þínum
einstæða skörungsskap.
Ég, krakkinn, gerði mér aldrei
grein fyrir því að þetta var þín at-
vinna. Mér fannst bara að þú ættir
þarna heima, enda var og svo. Þú
tókst ætíð vel á móti mér og fannst
mér ég aldrei vera að trufla þig frá
vinnu. Þú leiddir mig niður í eldhús,
færðir mér hnausþykkt súkkulaði
með rjóma og lagkökur. Síðan varst
þú horfin til þinna starfa. Mér þótti
þetta ósköp eðiilegt því ég vissi að
þú kæmir von bráðar aftur að ná í
mig. Þarna sat ég svo og raðaði í
mig góðgætinu og fylgdist með
starfsfólki í eldhúsinu. Mér er minn-
isstæð ein gömul kona sem vann
þarna, e.t.v. var hún ekki svo göm-
ul, hún var kölluð Dísa að mig
minnir, hölt var hún og ég vor-
kenndi henni alltaf. Mér fannst þú
oft á tíðum svolítið hryssingsleg við
þessa konu. Eitt sinn heyri ég hana
tuldra við sjálfa sig eftir einhveijar
ákúrur frá þér: „Það er aldeilis
gangur á henni núna.“ Seinna lærð-
ist mér að þú varst þessari sömu
konu betri en nokkur annar.
Ég minnist þess að hafa beðið
þarna þolinmóð í eldhúsinu þar til
þú komst aftur, rakst rétt höfuðið
inn í gættina, gafst nokkrar skipan-
ir og sagðist siðan <við mig: „Jæja,
ía, nú skulum við koma upp smá-
stund.“ í leiðinni litum við sem
snöggvast inn hjá Maríu heitinni
Maack, þá forstöðukonu Farsóttar,
og þú sagðir: „María, hún er hérna
stelpan hans Jóa.“ Mér fannst mik-
ið til þeirra koma, varð ætíð að
þiggja súkkulaði og bijóstsykur og
skiptast á nokkrum orðum. Síðan
héldum við saman upp á efri hæðina
þar sem þú bjóst. Ég man óljóst
eftir herberginu, sem mér fannst
lítið, en það sem vakti mesta at-
hygli mína var gríðarstórt heima-
smíðað fuglabúr úti á litlum svölum
með hænsnaneti fyrir og þar voru
vinir þínir. Aðallega skógarþrestir,
stundum einstaka hrafn og dúfa.
Þú hændir að þér þessa litlu vini
þína, gerðir að sárum þeirra og sum-
ir voru svo hændir að þér að þeir
sátu á öxl þér. Á bak við harða
skelina var hlý og góðhjörtuð kona
sem mátti ekkert aumt sjá, hvort
sem var hjá mönnum eða málleys-
ingjum. Þitt líf var að hjúkra og
hlúa að.
Stöku sinnum gafst þú þér tíma
til að ganga með mér út og yfir
Spítalastíginn þar sem þú hafðir á
leigu að mig minnir stórt herbergi.
Ég man ekki eftir að þar væri eld-
hús eða bað, aðeins þetta eina stóra
herbergi er mér minnisstætt, hlaðið
fallegu mununum þínum sem þú
hafðir eignast um ævina og sýndir
mér stolt.
Árin liðu og ég minnist þín á efri
árunum, flutt þá inn á Selvogsgrunn
til systra þinna Dísu og Siggu, þá
komin á eftirlaun. Þó ellin væri far-
in að segja til sín lést þú ekki af
stjórnseminni, vildir fá að fylgjast
með öllu fram á síðasta dag. Það