Morgunblaðið - 21.04.1994, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
I
n
n
fi
d
n
«
N
n
N
n
«
Stórmyndin
FÍLADELFÍA
Tom Hanks hlaut Gold-
en Globe- og Óskars-
verðlaunin fyrir leik
sinn í myndinni. Að auki
fékk lag Bruce
Springsteen, Streets Of
Philadelphia, Óskar sem
besta frumsamda lagið.
Leikstjóri: Jonathan Demme.
Sýnd í A-sal kl. 4.40, 6.50,
9 og 11.20.
Miðaverð 550 kr.
★ ★★ Mbl. ★★★ Rúv.
★ ★★ DV.
H
fl
9
A
WntONVÍ ÍOPKiW
rhe. Ottaíun tyHci
-J-V-• *V " i: W-'- v
Remai
OFTHEr
DREGGJAR
DAGSINS
★ ★★★ G.B. DV.
★ ★★★ AI.MBL.
★ ★★★ Eintak
★ ★ ★ ★ Pressan
Sýnd kl. 4.35,
6.50 og 9.05.
M0RÐGÁTA Á MANHATTAN
Nýjasta mynd Woody Allen.
Sýnd kl. 11.30.
Takið liátt í spennandi kvikmyndagetraun á
Stjsrniibís-línunni í síma 991065. í verðlaun
eru Fíladeltía belir, geislaplstur og boðsmiðar
á myndir Stjsrnubíss. Verð kr. 39,90 mínútan.
9lr-T.T.T.XT.T.T.T.T.T.T-T.T-T.T-T.T.T-T.T.T.T.T.XMHnBHnB
Luke Perry í hlutverki sínu sem Lane Frost.
8 sekúndur í
Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýningar á
myndinni 8 sekúndur, eða „8 seconds". Þetta
er mynd byggð á sannri sögu um Lane
Frost sem var amerískur nautreiðakappi.
Lane varð ríkur og frægur og var líkt við
James Dean.
Konur elskuðu hann, menn öfunduðu hann
og enginn gat sigrað hann. Lane Frost var
fæddur til að sitja á nautsbaki og var ekki
hræddur við að horfast í augu við dauðann er
hann fór í ródeóhringinn í hverri keppninni á
fætur annarri, þar sem hann setti oft heims-
met. Hann var gæddur lífkrafti æskunnar, því
harðari sem keppnin var, því meira lagði hann
á sig. Metnaður hans var að sitja á baki nauts-
ins Red Rock sem enginn gat setið á lengur en
8 sekúndur, nema Lane.
Það er Luke Perry sem leikur Lane Frost
og leikstjóri er John Avildsen.
Ráðstefna
um votlendi
RÁÐSTEFNA um íslensk votlendi — nýt-
ingu og verndun, verður haldin á vegum
Fuglaverndarfélags íslands og Líffræðifé-
lags íslands á Holiday Inn og hefst kl. 13
föstudaginn 22. apríl. Ráðstefnunni verður
fram haldið laugardaginn 23. apríl kl. 9
og lýkur kl. 17.
í fréttatilkynningu segir: „Markmið ráð-
stefnunnar er annars vegar að skýra frá þekk-
ingu okkar á votlendi á íslandi og hins vegar
að ræða áform um nýtingu og verndun vot-
lenda á komandi árum. Haldin verða rúmlega
20 erindi og ráðherrar umhverfis- og landbún-
aðar ávarpa ráðstefnugesti. Auk þess verður
skýrt frá niðurstöðum rannsókna á veggspjöld-
um.
Erindin skiptast í þijá flokka. Á fyrsta hluta
ráðstefnunnar, á föstudeginum, verður flallað
um íslensk votlendi, vatnafræði og flokkun
mýra, vötn, sjávarfitjar og laugasvæði.
Annar hluti ráðstefnunnar, fyrir hádegi á
laugardegi, ijallar um rannsóknir á votlendi.
M.a. þeirra viðfangsefna sem skýrt verður frá
eru röskun á votlendi á Suðurlandi og Mýrum,
þýðingu votlendis fyrir fugla, flórgoðastofninn
og áhrif kísilgúrnáms á flórgoða á Mývatni.
Þriðji og síðasti hluti ráðstefnunnar eftir
hádegi á laugardegi verður helgaður áformum
um nýtingu og verndun votlendis. Þar verður
íjallað um framræslu mýra vegna hefðbundins
landbúnaðar og skógræktar, röskun á votlend-
um vegna orkuvinnslu, verndargildi votlenda
og alþjóðlegar skuldbindingar íslendinga í
tengslum við votlendisvernd.“
#
LÁGMMtKS OFNEEMl
ENGIN ILMEFNI
tYKIK UNUUNGA
MEÐ HÚÐVANDAMÁL
ÚTSÖLUSTAÐIR: Akranes Apðtek, Akureyrar Apótek, Apótek Austurbæ|ar. Apóteklð Ólafeflrðl, Árbæjar Apótek. Blönduós Apótek, Borgar
Apótek, Borgarnes Apótek, Garðabæ|ar Apótek, Garðs Apótek, Háaleltis Apótek, Hafnar Apótek, Hafnarflarðar Apótek, Heba Slglufirðl,
Holts Apótek. Hraunbergs Apótek. Húsavfkur Apótek, Hygea Reykjavlk. Ingólfs Apótek, lsaf)arðar Apótek, Kópavogs Apótek, Laugarnes-
apótek, Nesapótek Esklfirði, Lyfsala Hólmavlkur, Lyfsalan Stöðvarflrði, Nesapótek Neskaupsstað, Nes Apðtek Seltjarnarn.. Norðurbæjar
Apótek, Ólafsvfkur Apótek, Sauðárkróks Apótek, Silla Hveragerðl, Stykklshólms Apótek. Vestmannaeyja Apótek, Vesturbæjar Apótek.
Atnði ur myndmm IP 5 sem Regnbogmn sýnir.
Franska myndin IP 5
sýnd í Regnboganum
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á frönsku kvikmyndinni IP
5 eftir leikstjórann Jean-Jaques
Beineix, sem sló í gegn með kvik-
myndinni Betty Blue.
Tony og Jockey eru á þeysireið
um Frakkland í gömlum sendiferða-
bíl með farm af dvergstyttum innan-
borðs. Tony er ungur „graffiti“-lista-
maður. Vin hans Jockey, sem er
hálfumkomulaus blökkudrengur,
dreymir um að sjá fjöll og snjó. Tony
getur ekki gleymt hjúkrunarkonunni
Gloríu og kvalinn af ást afræður
hann að segja skilið við sendibílinn
og dvergana og taka stefnu til heima-
borgar Gloríu. Þeir félagar stela bíl
en skömmu seinna vaknar gamall
maður í aftursætinu. Hann er á dul-
arfullu ferðalagi með bakpoka, kort
og gamla skammbyssu hlaðna aðeins
tveimur kúlum. Hveijum eru kúlurn-
ar ætlaðar? Jockey og Tony fylgja
gamla manninum í gegnum skóginn
án þess að gera sér grein fyrir út á
hvað ferðin gengur.
Atriði úr myndinni Fingralangur faðir.
Sambíóm sýna mynd-
ina Fingralammr faðir
SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga
gamanmyndina Fingralangur fað-
ir eða „Father Hood“ með Patrick
Swayze í aðalhlutverki.
Swayze leikur hér smákrimmann
Jack Charles sem er að brugga með
sér nýjan og fullkominn glæp, þegar
hann verður fyrir óvæntri truflun.
Börnin hans tvö sem hann á með
vanhæfri móður hafa sloppið út af
munaðarleysingjahæli og vilja njóta
samvistar við föður sinn. í fyrstu
vill Jack ekkert með börnin hafa en
smátt og smátt fer honum að þykja
vænt um afkvæmi sín. Hann leggur
upp í langferð með börnin sín en þá
vill svo illa til að hann er eftirlýstur
sem barnaræningi fyrir að stela sín-
um eigin börnum.
Auk Swayze leika í myndinni
Halle Berry, Diane Ladd og Sabrina
Lloyd. Leikstjóri er Darril James
Roodt.