Morgunblaðið - 21.04.1994, Síða 68
m
HEWLETT
PACKARD
H P Á ÍSLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykiavík, síwi (91) 671000
Frá mugulcika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
YERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Björk á
tónleikum
hér á landi
í sumar
SMEKKLEYSA hyggst í sam-
vinnu við íþrótta- og tómstunda-
ráð og Þjóðhátíðarnefnd standa
að tónleikum Bjarkar Guð-
mundsdóttur í Laugardalshöll
19. júní næstkomandi.
Aðstandendum tónleikanna barst
í gær staðfesting frá Björk um að
eini dagurinn sem hún er laus til
tónleikahalds hérlendis sé 19. júní,
vegna breyttra áætlana hennar.
Hingað kemur Björk með hljóm-
sveit sinni og bresku danshljóm-
sveitinni Underworld. Upphaflega
stóð til að Listahátíð Reykjavíkur
yrði aðili að tónleikunum ásamt
enska umboðsfyrirtækinu TKO en
Björk kaus að vinna alfarið með
íslenskum aðilum, auk þess sem hún
er einn eigenda Smekkleysu. Lista-
hátíð í Reykjavík og TKO eiga
Laugardalshöll frátekna til tón-
leikahalds 18. júní og hefur Morg-
unblaðið heimildir fyrir því að
samningaviðræður við bandarísku
rokkhljómsveitina Spin Doctors
standi yfir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
*
Atta hundruð börn keppa
ANDRÉSAR andarleikarnir voru settir á Akureyri í gærkvöldi. Metþátttaka er á leikunum að þessu sinni,
en um 800 6-12 ára börn eru skráð til leiks. Á myndinni sést lið Seyðfirðinga ganga til setningarathafnar.
Guðmundur Magnússon prófessor ákveður að segja sig úr bankaráði Seðlabankans
Ráðagerð um aðstoðarbanka-
stíóra vegna skipunarinnar nú
Þjóðhátíð-
arbúning-
ur fyrir
karlmenn
í TILEFNI 50 ára afmælis íslenska
lýðveldisins hefur verið ákveðið
að efna til samkeppni um þjóðhá-
tíðarbúning fyrir íslenska karl-
menn. Tíu bestu búningarnir
verða saumaðir og þeir sýndir 5.
júní næstkomandi á Hótel Borg.
Leitað er eftir stílhreinum og
þægilegum alklæðnaði sem geti í
senn verið viðhafnarbúningur, sam-
bærilegur þjóðbúningi íslenskra
kvenna. Óskað er eftir vinnuteikn-
ingum auk upplýsinga um höfuðfat
og fylgihluti ef um slíkt er að ræða.
Sævar Karl Ólason klæðskeri er
formaður dómnefndar, sem velur
tíu bestu teikningarnar. Verðlaun
fyrir besta búning eru 200 þús.
krónur auk ferðar til Lundúna, þar
sem bestu búningarnir verða til
sýnis á íslenskri hönnunarsýningu
í Design Museum í London í júní.
Það er Þjóðræknisfélag íslend-
inga í samvinnu við Myndlistar- og
handíðaskólann, Iðnskólann í
Reykjavík, Þjóðminjasafnið, menn-
ingardeild utanríkisráðuneytisins
og RÚV, sem standa að samkeppn-
inni. Öllu áhugafólki er heimil þátt-
taka og skal tillögum skilað í lok-
uðu umslagi merktu Þjóðræknisfé-
lagi íslendinga, Geysishúsinu, Aðal-
stræti 2, 101 Reykjavík, fyrir kl.
12 á hádegi 24. maí næstkomandi.
GUÐMUNDUR Magnússon prófessor hefur ákveðið að segja sig úr
bankaráði Seðlabankans í mótmælaskyni við ákvörðun Sighvats Björg-
vinssonar viðskiptaráðherra um skipun í tvær stöður Seðlabankastjóra.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var lagt á ráðin fyrir fund banka-
ráðsins sl. föstudag um skipun í tvær aðstoðarseðlabankasljórastöður
í tengslum við skipun Steingríms Hermannssonar og Eiríks Guðnasonar
í stöður Seðlabankastjóra. Þannig sé ætlunin að Már Guðmundsson,
forstöðumaður hagfræðideildar Seðlabankans og fyrrv. efnahagsráð-
gjafi Ólafs Ragnars Grímssonar í fjármálaráðherratíð hans, fái stöðu
Bjarna Braga Jónssonar aðstoðarbankastjóra en hún losni hugsanlega
í haust. Jafnframt hafi Bjarna Braga, sem er að ná rétti til eftirlauna
við bankann, verið boðin staða fulltrúa íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins til næstu fimm ára. Þá sé ráðgert að Yngvi Örn Kristinsson,
forstöðumaður tölfræðideildar Seðlabankans, fái aðstoðarbankastjóra-
stöðu Eiríks Guðnasonar, sem losnar um næstu mánaðamót.
Atkvæðagreiðslan í bankaráðinu
um umsækjendur var leynileg en
nú er talið næsta víst að Steingrím-
ur Hermannsson hafi fengið at-
fcvæði fulltrúa Framsóknarflokks og
Alþýðubandalagsins. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hætti
Davíð Scheving Thorsteinsson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks, við að styðja
Steingrím þegar hann frétti að búið
væri að tryggja honum tvö atkvæði
í bankaráðinu.
Fundur var haldinn í bankaráði
Seðlabankans í gær og að sögn
Ólafs B. Thors, starfandi formanns
bankaráðs, urðu engar umræður á
fundinum um ráðningu aðstoð'ar-
bankastjóra, en hann kvaðst eiga
von á að ákvörðun í því efni bíði
þar til bankastjórn Seðlabankans
verður fullskipuð eftir næstu mán-
aðamót. Bankastjómin tekur
ákvarðanir um skipan aðstoð-
arbankastjóra en ráðning þeirra er
háð samþykki bankaráðs.
Guðmundur Magnússon segist
fara úr bankaráðinu þar sem val
hankastjóra byggist á steinrunnu
kerfi stjórnmálanna. Hann hafi
heimildir fyrir að formenn flokk-
anna hafí haft afskipti af atkvæða-
greiðslu bankaráðsins og ákveðið
hafi verið fyrirfram hveijir hlytu
stöðurnar. „Mér finnst það furðuleg-
ast fyrir Sjálfstæðisflokkinn í þessu
máli að í raun og veru ræður stjórn-
arandstaðan báðum stöðunum,"
sagði Guðmundur.
Guðmundur segist vera sann-
færður um að það hafi verið útilok-
að fyrirfram að hann hlyti stöðu
Seðlabankastjóra þar sem hann
væri sjálfstæðismaður. Pólitískt
kvótakerfi réði því hveijir hlytu
stöðurnar og Sjálfstæðisflokkurinn
hefði fengið sitt sæti með skipun
Birgis ísleifs Gunnarssonar á sínum
tíma. „Ég hef bara ekki geð í mér
að vera þarna við þessar aðstæður
og vil hafa frelsi til að taka afstöðu
og tel óeðlilegt að sitja þarna, skip-
aður af Sjálfstæðisflokknum og vera
jafnframt að gagnrýna flokkinn,"
sagði hann.
Gagnrýnt var á þingflokksfundi
í Alþýðubandalaginu í gær að Gunn-
ar R. Magnússon, fulltrúi flokksins
i bankaráðinu, skyldi ekki hafa far-
ið að tilmælum flokksins og setið
hjá við atkvæðagreiðsluna á föstu-
dag. Gunnar sagðist í samtali við
Morgunblaðið aldrei hafa verið boð-
aður á flokksfund í Alþýðubanda-
laginu vegna setu sinnar í bankaráð-
inu. „Ég lýsti því yfir á fyrsta fundi
sem ég sat í bankaráðinu að ég
myndi greiða atkvæði eftir minni
eigin samvisku en ekki annarra,"
sagði hann.
SÍS undir-
býr nauða-
samninga
SAMBAND íslenskra sam-
vinnufélaga býr sig nú undir
að leita nauðasamninga við
lánardrottna sína, en skuldir
SÍS eru nú áætlaðar um 300
milljónir króna.
Kröfuhafar eru orðnir mjög
fáir, en Sigurður Markússon
stjórnarformaður SÍS vill ekki
greina frá hveijir eru þar á
meðal.
Sjá nánar bls. B1
Samkeppnisstofnun úrskurðar samkomulag banka og kaupmanna ógilt
Bankar sækja um undanþágu
SAMKOMULAG banka og sparisjóða við kaupmenn um skiptingu kostn-
aðar vegna debetkortaviðskipta er ógilt samkvæmt samkeppnislögum.
Svohljóðandi úrskurður Samkeppnisstofnunar var birtur forsvarsmönn-
um bankastofnana í gær, og gildir meðan undanþága hefur ekki verið
veitt. Samkeppnisstofnun mælist jafnframt til þess að bankar og spari-
sjóðir láti af hvers konar samráði sem stríðir gegn bannákvæðum sam-
keppnislaga; samningur viðskiptabanka og sparisjóða um framkvæmd
debetkortakerfisins verði lagaður að ákvæðum samkeppnislaga; sam-
starfshópar sem viðskiptabankar og sparisjóðir hafa komið á fót og
fjalla um atriði er lúta að verðlagningu verði lagðir niður og að sam-
eiginlegri kynningu viðskiptabanka og sparisjóða þar sem fram koma
upplýsingar um verð og kostnað verði hætt.
Stofnunin mælist ennfemur til
þess að nokkur ákvæði í sameigin-
legum reglum og skilmálum banka,
sparisjóða og greiðslukortafyrir-
tækja sem lúta að formi gjalda sem
korthafar inna af hendi falli niður.
Hver bankastofnun fyrir sig taki
ákvörðun um hvaða gjöld korthafar
eiga að inna af hendi og að
ákvarðanir banka og sparisjóða um
að tengja gjaldtöku fyrir tékkavið-
skipti við gjaldtöku vegna debet-
korta verði endurskoðaðar.
„Við teljum okkur ekki hafa brot-
ið samkeppnislög i einu né neinu,
nema e.t.v. vegna samkomulagsins
frá því á þriðjudaginn,“ segir Hall-
dór Guðbjarnason, bankastjóri
Landsbanka og formaður RAS-
nefndar, og bendir á að skoða verði
forsögu málsins. „Ef að einhver er
þvingaður út í viðræður vegna þess
að slíkar aðstæður hafa verið búnar
til, er hæpið að koma síðan að hon-
um og hundskamma fyrir eins og
sökudólg," segir Halldór. „Ef að
einhver sökudólgur er í málinu, eru
þeir að minnsta kosti tveir, ef ekki
fleiri." Hann segir að sótt verði um
undanþágu frá samkeppnislögunum
samkvæmt 16. grein þeirra á morg-
un eða strax eftir helgi.
Bjarni Finnsson, formaður Kaup-
mannasamtaka Islands, segir að
niðurstaða Samkeppnisstofnunar
komi sér mjög á óvart. Hann segist
þó ekki sjá við fyrstu sýn að þetta
snerti kaupmenn.
Ábending ekki borist
í tilkynningu stofnunar segir að
„Samkeppnisstofnun hafði bent
bankastofnunum á að samstarf
þeirra í samningagerð við greiðslu-
viðtakendur samræmdist ekki
ákvæðum samkeppnislaga". Hall-
dór segir að slík ábending hafi aldr-
ei borist bankastofnunum.
Sjá fréttir á bls. 4.