Morgunblaðið - 29.05.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1994 21
Sala á Hyundai og Lada frá 1992
Seldir bílar Markaðshlutdeild
mumÆ
423
1
LADA
mmwm
10,6%
271
178
I
LADA
4,9%
'92 '93
’92 ’93
'92 ’93
Bifreiðar & landbúnaðarvélar hafa flutt inn
bíla frá Sovétríkjunum og Rússlandi 140
ár. Ladan hefur verið einna vinsælust þeirra
og árið 1987 keypti rúmlega 1% þjóðarinn-
ar slíkan bíl. Árið 1992 hófst innflutningur
á Hyundai, sem hefur aðeins á tveimur árum
náð 7% hlutdeild á bílamarkaðinum.
il og margir þyrfu að endurnýja
en geta það ekki.
— Heldurðu að þetta ár verði
svipað og í fyrra?
„Ég býst við samdrætti. í fyrra
dróst heildarsalan á bílum saman
um 22% og fyrstu fjóra mánuði
ársins hefur samdrátturinn verið
15%. Ég tel að mikið þurfi að
breytast ef hann á ekki að haldast
út árið og þá er heildarsalan kom-
in niður fyrir 5.000 bíla.“
Ekki greitt í wonum
Erna segir að innkaupsverð
hafi ekki hækkað mikið frá því
innflutningur hófst og því sé verð
á bílunum nánast óbreytt. Það sem
helst hafi áhrif á verðlagið sé inn-
lent gengissig og -fellingar.
í Kóreu er mikill uppgangur og
þykir hagvöxtur lítill sé hann inn-
an við 8% á ári. Uppbyggingin er
mikil, svo og verðbólga, enda hef-
ur verðlag hækkað mikið þar á
undanförnum árum. Þegar Erna
er spurð hvort gengisbreytingar
hafi verið miklar í wonum, sem
er gjaldmiðill Kóreu bendir hún á
að innkaupin fari ekki fram í þeim
gjaldmiðli. „Vegna samkeppninn-
ar hefur alltaf verið töluvert leynd-
armál hjá bifreiðaumboðunum í
hvaða gjaldmiðli þau greiða,“ seg-
ir hún. „Umboðin hafa sveiflast á
milli gjaldmiðla, kannski úr jenum
yfir í mörk og þaðan yfir í doll-
ara. Það hefur sjaldnast verið al-
veg fast.“
Mér leikur forvitni á að vita
hvernig Kórumenn tóku henni
þegar hún fór þangað fyrst. „Þeim
leist ekkert sérstaklega vel á mig,“
svarar hún. „Þeim fannst ég ung
og reynslulítil. Hins vegar hafði
faðir minn, sem ég fór með utan,
mikla reynslu af samningaviðræð-
um og alþjóðlegum viðskiptum.
Áður en ég fór út þurfti ég að
læra heilmikið af tækniorðum á
ensku, þekkja mismuninn á bílun-
um, hvað væri innifalið hér í verði
bíla almennt, þannig að heiman-
ámið var töluvert. Auk þess sem
við kynntum okkur menningu og
sögu Kóreu. Aftur á móti hafa
þeir verið mjög ánægðir s’ðan,
einkum með markaðshlutdeildina
sem er há rniðað við annars staðar
í Evrópu.“
— Fannst þeim einkennilegt að
sjá kvenmann koma til samninga-
viðræðna?
— Já. Þeir höfðu ekki beint orð
á því en við fengum öðruvísi með-
höndlun eða athygli en aðrir.
Þannig var okkur feðginunum boð-
ið tvívegis út að borða með einum
æðsta yfirmanni fyrirtækisins.
Konur í Kóreu eiga ennþá eftir
að ganga í gegnum þá kvennabar-
áttu sem við höfum gert og því
er ekki algengt að sjá þær í stjórn-
unarstöðum.“
Erna segir að íslenskir karl-
menn í greininni hafi tekið sér
vel, enda hafi hún kynnst mörgum
þeirra gegnum árin og að því leyti
sé hún ekki ný í greininni. Hún
segist í rauninni ekki sjá mikinn
mun á því að selja bíla eða aðrar
fjárfrekar vörur. „Mestu máli
skiptir að þekkja vöruna og hvað
samkeppnisaðilinn hefur upp á að
bjóða.“
IÐNNAM
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Vélsmíði — Rafvirkjun — Húsasmíði
Snyrtifræði — Rennismíði
Grunnnám
FB þegar þú velur verknám
Fjölbrautaskólinn
Breiðholti
SONGLEIKJADEILD
SÖNGSMIÐJUNNAR
iiuglýsir sumarnám, þar sem kenndur verður
jgur, leiklist og dans. Stefnt er að því að
. setja upp söngleikinn „G|ŒASE".
ÁRIÐ UM KRING
Sigling á nýjasta skemmtiskipi heimsins,
FASCINATION 21. okt.
Hópferð - síðustu sætin. Einstakar brottfarir í hverri viku.
Fyrirvari minnst tveir mánuðir, hægt að tengja siglingu
við ódýra lúxusdvöl í Dominicana á einni
fegurstu eyju heimsins!
Puerto Plata - allt innifalið.
Punta Cana - algjör uppgötvun.
Svítugisting, háift fæði, fegursta ströndin!
FERÐASKRIFSTOFAN
rí
' ■■'bA 5:
Umboð: Carnival Cruises,
skemmtilegustu ferðirnar.
PRjAÁA?
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
AUSTURSTRÆTI17,4. hæð 101 REYKJAVIK-SIMI620400-FAX 626564
Upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans,
Skipholti 25 og í síma 61 24 55.
Um leið og við þökkum mjög góð viðbrögð
við hreinsunardögunum viljum við minna á
gámastöðvar Sorpu. Opnunartími gámastöðva Sorpu
frá 15. maí til 15. ágúst er sem hér segir:
Opnunartími gámastöðva
Virkir dagar Um helgar
Ánanaust móts við Mýrargötu ki. 09,00 - 21,00 ki.12.30 - 21,00
Sævarhöfða norðan við Maibikunarstöð ki. 09,00-21,00 ki.12,30 - 21,00
Gylfaflöt austan Strandvegar ki. 12,30 - 21,00 ki.12,30- 21,00
Jafnarsel í Breiðholti ki. 12,30 - 21,00 ki.12,30 - 21,00
okkar hreíiinl!
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeiid
SORPENÐ ING
HÖFUÐ BORGARSVÆÐ ISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77