Morgunblaðið - 30.06.1994, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Bjart flæði
Islenskir
jazzdiskar
í deiglunni
JAZZÍS, útgáfusamlag jazzdeildar
Félags íslenskra hljómlistarmanna
og Jazzvakningar, mun á næstu
ámm gefa út þijá til íjóra geisla-
diska á ári með nýrri íslenskri jazz-
tónlist, áður óútkomnu eldra efni og
annarri tónlist sem verið hefur ófáan-
leg. í fréttatilkynningu segir að
áhugamönnum bjóðist að gerast bak-
hjarlar; áskrifendum að diskunum
er sem sagt safnað.
Þegar hafa komið út diskamir
Gengið á lagið með tónlist Sigurðar
Flosasonar og Landsýn Tómasar Ein-
arssonar. Næst er væntanlegur tvö-
faldur minningardiskur um Guð-
mund Ingólfsson (ágúst 1994) og
síðan um jólin diskur með nýrri tón-
list Hilmars Jenssonar.
Næsta vor er ráðgert að gefa út
aftur plötu með Gunnari Ormslev
sem lengi hefur verið ófáanleg.
Haustið 1995 á svo að gefa út disk
Bjöms Thoroddsens með yfirliti ís-
lenskra jazzgítarleikara og um jólin
sama ár er fyrirhugaður diskur sem
nefndur er Útlendingahersveitin -
nýtt vín á gömlum belgjum.
MYNPLIST
Lis t h ú sið Borg
MÁLVERK
Margrét
Björnsdóttir
Opið alla virka daga frá 12-18 og
um helgar 14-18 til 5. júlí.
LISTHÚSIÐ Borg virðist nú aftur
byijað á reglubundnum sýningum
sem er ánægjulegt, en sem fyrr hafa
þær stutta viðdvöl á veggjunum eða
einungis 10 daga.
Á iistamarkaði hefur þó nokkuð
borið á verkum eftir Margréti Soffíu
Björnsdóttir, sem hefur tekið sér
listamannsnafnið „Sossa“ og myndir
hennar hafa m.a. verið sýndar í kynn-
ingarhorni Foldu í Austurstræti ef
ég man rétt. En þetta er þó fýrsta
opinbera einkasýning hennar á mál-
verkum á íslandi, en hún sýndi þar
grafík fyrir 10 ámm. Sossa nam við
MHÍ í tvö ár 1977-79, en seinna í
Skólanum fýrir brúkslist í Kaup-
mannahöfn í 6 ár og loks lauk hún
meistaragráðu í myndlist frá listahá-
skóla í Boston 1992. Þetta telst dijúgt
nám og samfara því hefur hún víða
tekið þátt í samsýningum og haldið
ýmsar einkasýningar, m.a. í Fagur-
listasafninu í Boston 1990.
Það eru 24 olíumálverk á salar-
kynnunum, flest af millistærðinni, en
þó eitt stórt sem setur mikinn svip á
sýninguna.
Einkenni sýningarinnar er annars
tvímælalaust óvenju bjart litaflæði
svo og lausformaðar fígúrur inni í
flæðinu, oftast einungis ein auk þess
að það mótar stundum í kött sem
virðist gegna dijúgu hlutverk í um-
hverfí og hugarheimi listakonunnar.
Að sjálfsögðu má segja að bjartir
litir séu tákn lífsgleðinnar, en á því
er nokkur fyrirvari því í myndlist
komast menn ósjaldan í þá aðstöðu
að meta liti eftir sértækum eiginleik-
um þeirra frekar en að setja þá í
samhengi við almennt mat. Menn
hætta þá t.d. að setja blátt í sam-
hengi við himin og haf og eins og
ég hefí ótal sinnum bent á þá er svart
sums staðar í heiminum tákn gleðinn-
ar en hvítt litur sorgarinnar. Þannig
geta mikil lífsmögn opinberast í dökk-
um litaheildum ekki síður en ljósum,
— slíkt er afstæði litanna.
Auðvitað er hinn guli litur ljóssins
persónugervingur sólarinnar og lífs-
ins eins og hinn rauði getur verið
persónugervingnr ástarinnar en sólin
veldur líka bruna og eyðingu ekki
síður en að halda lífí í gróðri og ást-
in getur verið banvæn, eða í öllu falli
valdið mikilli hryggð svo sem margur
veit.
Þetta er einungis útúrdúr til
glöggvunar og listrýnirinn lítur öðru
fremur til myndbyggingarinnar og
litameðferðarinnar, sem í þessu tilviki
eru meginásar sköpunarferlisins. Hér
er litrænn styrkur ótvírætt mestur í
rauðu myndinni „Sagt með blómi“ (5)
og þá ekki einungis fyrir hinn sterka
lit heldur kraftmikla tjáningu og að
litnum er haldið í skefjum á myndflet-
inum með brögðum listar. A sama
hátt telst stóra myndin „Kötturinn
borðar ekki kristna menn“ (6) veiga-
mesta verkið og ekki fyrir stærð sína
heldur markvissa myndbyggingu.
Myndbyggingin er að mínu mati ekki
nægilega sannfærandi í mörgum
myndanna og sú sposka kímni sem
einkennir fígúrurnar hálf ankanna-
leg. Á stundum eru myndirnar að
leysast upp í algjört litaflæði sbr.
„Eitthvað býr á bak við“ (17), og þar
er tónræn litahrynjandin eftirtektar-
verð, en grámóskulegu andlitinu al-
gjörlega ofaukið. Aðrar myndir sem
ég staðnæmdist helst við fyrir mark-
aða heild voru „Ég sá þau á göngu
(15) og „Ofurkonur" (24).
Bragi Ásgeirsson
NÚMERUM
l.júlí verður sú breyting á
innhringinúmerumJyrir Gagnahólf
og Gagnanet Pósts ogSíma, að úr
gildijalla eftirtalin þtjú númer.
0168
JSg’SftL PÓSTUR OG SÍMI
GAGNANET
PÓSTS OG SlMA
Sumartónleikar í Skálholti
Sónötur fyrir
fiðlu og sembal
Helga Ingólfsdótt- Jaap Schröder
ir semballeikari fiðluleikari
SUMARTÓNLEIKAR
í Skálholtskirkju hefj-
ast um næstu helgi.
Er það tuttugasta
sumarið sem þessi tón-
listarhátíð er haldin. Á
efnisskránni eru alls
sex sónötur J.S. Bachs
fyrir fiðlu og sembal.
Flytjendur að þessu
sinni eru hollenski
fiðluleikarinn Jaap
Schröder og Helga
Ingólfdóttir sembal-
leikari. Sónötumar
urðu til í Köthen um
1720-1723 og eru í
hópi mestu snilldar-
verka Bachs á þessu
sviði. Þær eru yfirleitt
í fúgustíl, nokkur þróttmikil kveðju-
lög koma þó einnig fyrir.
Þekktur barokkfiðluleikari
Jaap Schröder er mjög þekktur
túlkandi á barokkfiðlu og einn af
brautryðjendum upprunatúlkunar á
tónlist 17.-19. aldar. Hann hefur lát-
ið að sér kveða á ýmsum sviðum
tónlistar, m.a. í kvartettum, sem ein-
leikari, konsertmeistari, stjómandi
og kennari. Meðal fyrrum starfs-
manna Schröders eru Frans
Eriiggen, Annes Bylsma og Gustav
Leonardt. Hann stjómaði um tíma
hljómsveitinni Concerto Amsterdam
og stofnaði Quartetto Esterhásy, sem
var fyrsti strengjakvartett upprana-
hljóðfæra. Ásamt þremur Banda-
ríkjamönnum stofnaði hann Smit-
hson Quartet sem leikið hefur víða
og verk eftir Haydn, Mozart og Beet-
hoven inn á hljómþlötur.
Jaap Schröder hefur kánnað fiðlu-
bókmenntir 17. og 18. aldar og hljóð-
ritað þekkt og óþekkt verk þess tíma,
m.a. einleikssónötur Backs, verk
Leclaris og Bibers og sónötur Moz-
arts og Beethovens. Af rómantískum
yerkum hefur hann m.a. leikið sónöt-
ur eftir Schubert og Mendelsohn inn
á hljómplötur ásamt Cristophet
Hogwood. Með Hogwoos stjórnaði
Schröder fyrstu upptökum á öllum
sinfóníum Mozarts sem leiknar voru
á klassísk hljóðfæri og fengu þeir
Gramy tilnefningu fyrir.
Brautryðjendastarf
Helga Ingólfsdótir semballeikari
hefur lagt mikið af mörkum til tón-
listarlífs hér á landi m.a. með ein-
leik, flutningi kammertónlistar, sem
kennari og með stofnun Sumartón-
leika í Skálholtskirkju. Hún hefur
leikið inn á þijár hljómplötur og í
fyrra var hljóðritaður geisladiskur
með Bachs-veitinni í Skálholti. Helga
hlaut Menningarverðlaun Dagblaðs-
ins í vetur og er auk þess nýkomin
frá Kaupmannahöfn þar sem hún
veitti viðtöku bjartsýnisverðlaunum
Bröstes fyrir starf sitt að Skálholts-
tónleikunum. Sónöturnar sex verða
fluttar á tvennum tónleikum kl. 15.
og kl. 17 á laugardaginn, en kl. 15
á sunnudag verða fluttar fjórar af
sónötunum. Kl. 17 verður messa með
þáttum úr tónverkum helgarinnar og
einleik Jaaps Schröders.
Aðgangur er ókeypis og boðin
verður barnapössun á meðan á tón-
leikunum stendur. Veitingar eru á
boðstólum í Skálholtsskóla. Allir vel-
komnir.
LADA SAMARA