Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Að óbreyttu verða 280 milljónir afgangs til
framkvæmda hjá borginni 1995, segir borgarstjóri
Samanburður á launum
og fríðindum undirbúinn
Meint ölvun við akstur
’87 ’88 ’89 ’90 ’91 '92 '93
Ölvaðir í
umferðaróhöppum
Hlutfallsleg
íj'ölgun á
milli ára
HLUTFALL ölvaðra ökumanna
í umferðaróhöppum í Reykja-
vík fyrstu níu mánuði ársins er
hærra en á sama tíma í fyrra.
Meint ölvun við akstur hefur
þó heldur minnkað á landinu
öllu síðustu ár, miðað við kærur
lögreglu.
Lögreglan í Reykjavík sendi
603 ökumenn í blóðsýnatöku
fyrstu níu mánuði líðandi árs
vegna gruns um ölvun við akst-
ur. Þetta voru 476 karlar og
127 konur og af þeim reyndist
61 undir viðmiðunarmörkum.
110 voru í óhöppum eða 18,2%.
Þetta hlutfall var heldur
lægra á sama tímabili í fyrra
eða 13,4%. Þá voru 695 öku-
menn sendir í blóðsýnatöku
vegna gruns um ölvun við akst-
ur, 546 karlar og 149 konur.
76 reyndust undir viðmiðunar-
mörkum. 93 lentu í umferðar-
óhöppum eða 13,4% eins og
áður segir.
í nýútkominni skýrslu Um-
ferðarráðs um umferðarslys á
íslandi árið 1993 kemur fram
að tilvikum um meinta ölvun
við akstur hefur fækkað síðustu
ár. Árið 1987 voru skráð 2.664
tilvik á landinu en í fyrra voru
þau 1.955.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði m.a. á borgara-
fundi í gærkvöldi, að sú hugmynd
væri nú á sínu borði að gera saman-
burð á launakjörum, fríðindum,
bílastyrkjum og yfirvinnu hjá Fé-
lagsmálastofnun annars vegar og
hjá embætti borgarverkfræðings
eða einhverri veitustofnananna hins
vegar. Borgarstjóri sagði einnig að
verði rekstrargjöld Reykjavík-
urborgar með svipuðum hætti á
næsta ári og þau hafa verið til þessa
og hvergi gripið til viðbótamiður-
skurðar í fjárhagsáætlun borgar-
innar blasi við að þau aukist í 8,6
milljarða króna. Rekstur og ný-
framkvæmdir við götur og holræsi
yrðu að óbreyttu 1,5 milljarðar og
heildarrekstrarútgjöld borgarsjóðs
10,1 milljarður á árinu 1995 en
tekjur næmu að óbreyttu 10,4 millj-
örðum þannig að aðeins 280 milljón-
ir væru afgangs til allra byggingar-
framkvæmda á næsta ári. Þetta
kom fram í máli Ingibjargar Sólrún-
ar Gísladóttur borgarstjóra á borg-
arafundi Regnbogans, samtaka um
Reykjavíkurlista, í gærkvöldi.
Ingibjörg sagði að ef haldið yrði
áfram á fullum dampi við fram-
kvæmdir án þess að tekjur borgar-
innar ykjust yrðu skuldir Reykjavík-
urborgar komnar í 20 milljarða árið
1998.
Útboðsmál verði tekin
fastari tökum
Fram kom í máli borgarstjóra að
í undirbúningi væri að taka útboðs-
mál hjá borginni fastari tökum.
Borgarendurskoðun væri að safna
upplýsingum frá öllum stofnunum
borgarinnar um innkaup á þjónustu,
vörum og verklegum framkvæmd-
um. Nú þegar væri komið í ljós að
umtalsverður hluti færi framhjá
útboðum og nefndi sem dæmi að á
árinu 1993 hefði Hitaveita Reykja-
víkur gert verksamninga að upphæð
276 milljónir án þess að um útboð
væri að ræða.
Einnig kom fram í máli borgar-
stjóra að viðræður væru nú í gangi
milli embættismanna borgarinnar
og Arkitektafélags íslands um að
koma á ákveðnum verklagsreglum
við val á arkitektum vegna fram-
kvæmda borgarinnar í framtíðinni.
I ræðu sinni fjallaði borgarstjóri
um forkönnun sem gerð hefur verið
á stjórnkerfi borgarinnar og sagði
m.a. nauðsynlegt að breyta starfs-
mannapólitík borgarinnar og setja
endurmenntun og þjálfun stjórn-
enda á oddinn og að mönnum yrði
gefinn kostur á að færa sig milli
stofnana í borgarkerfinu. Þá væri
nauðsynlegt að fjölga konum meðal
stjórnenda borgarinnar og kanna
launamál karla og kvenna hjá borg-
inni.
Kjaradeila
sjúkraliða
Kosning
hefst í dag-
um verk-
fallsboðun
BYRJAÐ verður í dag að senda
út atkvæðaseðla til félaga í
Sjúkraliðafélaginu um hvort
boða skuli til verkfalls sjúkra-
liða þann 10. nóvember næst-
komandi. Atkvæðagreiðslan fer
fram alla þessa viku og lýkur
kl. 19 á laugardag. Hefst taln-
ing strax að atkvæðagreiðslu
lokinni og er gert ráð fyrir að
niðurstaða hennar liggi fyrir á
sunnudag.
Samningafundur var haldinn í
kjaradeilu Sjúkraliðafélags ís-
lands og viðsemjenda þess í
húsnæði ríkissáttasemjara sl.
sunnudag. Annar samninga-
fundur var svo haldinn í gær,
auk funda í starfshópum.
Ekkert hefur þokast í sam-
komulagsátt í viðræðunum
samkvæmt upplýsingum Krist-
ínar Á. Guðmundsdóttur, for-
manns Sjúkraliðafélags íslands.
Næsti samningafundur í deil-
unni hefur verið boðaður á
morgun kl. 10.
Þingflokks-
formenn
funda um
vantraust
ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis-
flokksins komst ekki að niður-
stöðu í gær um það hvernig
bregðast eigi við tillögu stjórn-
arandstöðuflokkanna á Alþingi
um að lýsa vantrausti á hvern
einstakan ráðherra ríkisstjórn-
arinnar. Fundur formanna
þingflokkanna hefur verið
ákveðinn fyrir þingfundi í dag
og verður þar rætt hvenær van-
trauststillagan verður tekin á
dagskrá þingsins.
I upphafi þingfundar í gær
varð umræða um hvenær van-
trauststillagan kæmi á dagskrá
þingsins. Talsmenn stjómar-
andstöðunnar kröfðust um-
ræðna strax, en forseti sagði
forsætisráðherra koma til
landsins á miðvikudag og ætti
þá að vera hægt að koma sér
saman um málið.
Það varð hins vegar að sam-
komulagi að formenn þing-
flokkanna hittast í dag.
Fyrstu
framboðs-
listarnir
FRAMBOÐSLISTAR Sjálf-
stæðisflokksins á Austurlandi
og Norðurlandi eystra voru
samþykktir um helgina og eru
fyrstu framboðslistarnir, sem
ákveðnir eru fyrir næstu al-
þingiskosningar.
Listi Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandi eystra var sam-
þykktur á fundi kjördæmis-
ráðs flokksins á Húsavík á
sunnudaginn með fyrirvara
um samþykki miðstjórnar
flokksins.
Listi flokksins í Austur-
landskjördæmi var samþykkt-
ur á aðalfundi kjördæmisráðs
flokksins sem haldinn var á
Egilsstöðum um helgina.
Listana leiða Halldór Blön-
dal, ráðherra, og Egill Jóns-'
son, alþingismaður.
■ Listar/2-12
Morgunblaðið/Júlíus
ÞESSI mynd var tekin á Suðurbraut á móts við Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði aðfaranótt sunnu-
dags. Ökumaður, sem var grunaður um ölvun við akstur, hvolfdi bílnum eftir að hafa ekið á stólpa
við hraðahindrun en við hana mjókkar gatan. Ökumanninn sakaði ekki.
Lánsfjáraukalög samþykkt á Alþingl þannig að afgreiðsla húsbréfa getur hafist á ný
Seðlabankinn á 25 milljarða
króna í ríkisverðbréfum
LÁNSFJÁRAUKALÖG voru samþykkt frá Al-
þingi í gær og er þar með heimilað að auka
útgáfu húsbréfa um 3,7 milljarða króna frá því
sem var áætlað í iánsfjárlögum, auk þess sem
heimild ríkissjóðs til lántöku var hækkuð um
1.250 milljónir króna. í nefndaráliti minnihluta
efnahags- og viðskiptanefndar kemur fram að
nettóeign Seðlabanka Islands á ríkiverðbréfum
er nú um 25 milljarðar króna og að hann er
kominn í þrot hvað varðar kaup á ríkisverðbréf-
um. Miklar umræður spunnust um vaxtaþróun-
ina og húsbréfakerfið við afgreiðslu frumvarps-
ins og kom meðal annars fram að 60% greiðslu-
erfiðleikalána í húsbréfakerfinu eru í vanskilum.
Frumvarpið fór með sérstökum hraða í gegn-
um þingið vegna fjölda þeirra umsókna um hús-
bréfaián sem bíða afgreiðslu. Bæði stjórn og
stjórnarandstaða lögðu áherslu á að auka þyrfti
heimildir til útgáfu húsbréfa og var sú grein
frumvarpsins samþykkt samhljóða. Stjórnarand-
staðan sat hjá við afgreiðslu frumvarpsins að
öðru leyti og var það samþykkt með 24 atkvæð-
um en 13 sátu hjá.
60% greiðsluerfiðleika-
lána í húsbréfakerfinu
eru nú í vanskilum
Vandi að hlaðast upp
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins mælti fyrir nefndaráliti minnihlut-
ans en í því kemur m.a. fram að fráleitt sé að
hækka nú ábyrgðargjald á húsbréfum um 0,1
prósentustig í 0,35%.
Steingrímur sagði að vaxtablaðran væri
sprungin. Ríkisstjórninni hefði tekist að kaupa
niðuri vextina með aðstoð Seðlabankans, en því
væri lokið nú þar sem bankinn væri kominn í
þrot, en hann hefði haldið að sér höndum að
undanförnu varðandi kaup. Verðbréfaeign bank-
ans hefði stóraukist á undanförnum mánuðum
og skiptist þannig að fjórir milljarðar væru í
húsbréfum, 11,8 milljarðar eða tæpur helmingur
væri í ríkisvíxlum og 8 milljarðar væru í spari-
skírteinum. Vextirnir færu hækkandi og hefði
ávöxtunarkrafa kauptilboða í húsbréf á verð-
bréfamarkaði í gær verið 5,65%.
Átta milljarðar erlendis
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, sagði
að hækkun ábyrgðargjaldsins um 0,1 prósentu-
stig yki greiðslubyrði af einnar milljónar króna
húsbréfaláni um 700 krónur á ári eða sem svar-
aði til 3.500 króna af fimm milljón króna láni.
Hann sagði að margt væri að gerast á markaðn-
um. Gert væri ráð fyrir að fjárfest yrði fyrir
átta milljarða erlendis á þessu ári, meðal annars
vegna framvirkra samninga, en þessi markaður
myndi mettast. Ávöxtunarkrafan réðist af vænt-
ingum manna á markaðnum og það væri ekki
ástæða til að ætla að ávöxtunarkrafán færi veru-
lega upp. Þá benti hann á að almenningur ætti
mest af sínum fjármagnsviðskiptum við banka
og útlánsvextir banka gætu lækkað frá því nú