Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 9 FRETTIR Héraðsdómur Vestfjarða dæmir 76 ára mann i fangelsi Gaf drengjum sælgæti og misnotaði einn þeirra HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur dæmt 76 ára mann til 10 mánaða fangelsisvistar, þar af 7 mánuði skilorðsbundið, fyrir kynferðisbrot gegn 8 ára dreng. Brotin voru fram- in á heimili mannsins á Patreksfirði í nokkur skipti á síðasta ári að við- stöddum drengjum sem nú eru 4 og 5 ára. Maðurinn hafði á árinu 1990 verið kærður fyrri að hafa lokkað inn á heimili sitt 4 ára telpu, gefið henni sælgæti og fengið hana til að snerta kynfæri sín. Maðurinn þvertók fyrir sakargiftir en játaði að gefa börnum sem heimsæktu sig sælgæti og taldi ríkissaksóknari ekki tilefni til ákæru á grundvelli rannsóknarinnar. Sumarið 1993 vöknuðu á ný grunsemdir um kynferðislega mis- notkun mannsins á börnum. Fyrir dómi bar kona um að sonur manns- ins hefði komið á hennar fund mið- ur sín eftir að hafa komið að föður sínum halfnöktum með litlum dreng. Eftir að konan sagði samstarfs- konu sinni af frásögn sonar manns- ins hófst rannsókn málsins á ætl- aðri misnotkun hans á þremur drengjum sem þá voru 3, 4, og 7 ára gamlir. Samhljóða framburður Framburður drengjanna var fenginn í viðtali hjá sálfræðing, sem komst að þeirri niðurstöðu að ljóst væri að maðurinn hefði dregið drengina heim til sín með því að bjóða þeim sælgæti og síðan fengið þá inn í svefnherbergi til sín 'og stundum læst að sér, afklæðst, sýnt drengjunum kynfæri sín og stund- um fengið þá tii að snerta þau eða gæla við þau. Maðurinn neitaði öllum sakar- giftum en í dómi Jónasar Jóhanns- sonar héraðsdómara segir að fram- burður drengjanna sé samhljóða í veigamiklum atriðum. Ekkert í málinu hnekki sönnunargildi frá- sagna þeirra eða veiki þær verulega og verði trauðla séð hvernig svo ungir drengir gætu borið með jafn- líkum hætti um slík atvik sem mál- ið snúist um ef þeir ekki byggðu frásögn sína á eigin reynsluheimi. Fram kemur að ekki hafi verið boðaður fulltrúi til að gæta hags- muna mannsins er grunnur var lagður að ákæru í málinu með við- tölum sálfræðings við drengina og sé það metið honum í hag að viðtöl- in hafi hvorki verið hljóðrituð né tekin upp á myndband. Þeir gallar breyti þó engu um þá niðurstöðu málsins að maðurinn teljist sannur að sök. Hæfileg refsing var talin fangelsi í 10 mánuði en eftir atvik- um taldi dómarinn mega skilorðs- binda 7 mánuði til 3 ára. Skólaslit hjá Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna Nemendur 147 frá upphafi SEXTÁNDA starfsári Jarðhita- skóla Sameinuðu þjóðanna er lokið. Nemendurnir voru 15, frá 11 löndum, og hafa aldrei verið fleiri að sögn Ingvars B. Frið- leifssonar forstöðumanns skól- ans. Nemendur fengu hálfs árs þjálfun í forðafræði jarðhita, jarðefnafræði, borholumæling- um og borholujarðfræði. Jarðhitaskólinn er rekinn inn- an Orkustofnunar og eru flestir kennarar sérfræðingar hjá jarð- FRÁ skólaslitum Jarðhitaskóla SÞ. Morgunblaðið/Kristinn hitadeild stofnunarinnar en kennarar koma einnig frá Há- skóla Isiands og verkfræðistof- um. Á sextán ára starfsferli skól- ans hafa 147 sérfræðingar frá 29 löndum lokið námi. Útbob ríkisvíxla til 3 mánaba fer fram mibvikudaginn 19. október. Nýtt útbob á ríkisvíxlum fer fram á morgun. Um er að ræða 20. fl. 1994 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til 3 mánaba meb gjalddaga 20. janúar 1995. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboö samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er 5 milljónir kr. og lágmarkstilboð í meöalverð samþykktra tilboða er 1 milljón kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Abrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilbobsgerb fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa ab hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miövikudaginn 19. október. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70. Athygli er vakin á því að 21. október er gjalddagi á 14. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 22. júlí 1994. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæb, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. október KATRÍN FJELDSTED hefur opnað kosningaskrifstofu í Ingólfsstræti 5. Símar 22360, 22366 og 22144. Allir stuðningsmenn velkomnir. = Opið virka dagafrá kl. 16-21 | og um helgar frá kl. 13-18. Katrínii í fremstu röö! SABRINA Nýkomið glæsilegl úrval af hinum vinsælu Sabrina rúmfötum. iVý mynstur og litir W Verið velkomin. Póstsendum Njálsgötu 86, sími 20978. Úrval af frönskum reiðbuxum í haustlitum TESSvbí 1 X sínii «22230 Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 Silkislœður Frönsku t\f\a l I r o v silkislœðumar komnar aftur í öllum litum. Frábært verð. (SNYRTIVÖRUVÉRSLUNIN GLÆSÍÆ íA/z/ sencCinfj af samkyœ-miskjótum titSÖL'U og LfElQU. Á sama stað tií íeigu IgóCföt og smókingar ^Bhiðarkjó/fí/rígf fyém Suðurlandsbraut 46 v/Faxafen, 2. hæð, sími 682560. LOGSUÐUTÆKI MARGAR GERÐIR I ; -»«/ ■ í' v ___ argon- og propangas- mælar súr- og gasmælar, tvöfaldar slöngur, kveikjur, logsuðugleraugu, einstreymislokar, logsuðutæki í settum, súr- og gaskútar. Varahlutaþjónusta. ÁRVÍK HF. ÁRMÚL11 - PÓSTHÓLF 8000 -128 REYKJAVlK • SlMI 687222 - TELEX 3012 - TELEFAX 687295
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.