Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 27 AÐSENDAR GREINAR Siðbótarherferð fjölmiðla á hendur Alþýðuflokknum Vonandi fá aðrir stj órnmálaflokkar sömu meðferð ÞEIRRI stefnu fjölmiðla á íslandi að grafa upp vafasamar embættis- færslur stjórnmálamanna að und- anfomu ber að fagna. Það var mik- ið að blaðamenn fóru að upplýsa almenning um hversu langt sumir stjórnmálamenn ganga í að sóa fé almennings og í hvað þeir sóa pen- ingunum. Rétt er einnig að fylgjast vel og vandlega með öllu einkalífi stjómmálamanna og komast að því hvort þeir veiji óeðlilega miklum tíma með fjölskyldunni þegar þeir eiga að vera að gæta hags okkar kjósenda. Blaða- og fréttamenn hafa að undanförnu lagt sig í líma við að grafa upp hvert eitt og einasta, að segja má, embættisverk Guðmund- ar Árna Stefánssonar félagsmála- ráðherra. Guðmundur er vondur maður. Það má glöggt lesa út úr því sem að sumir fjölmiðlamenn vilja láta okkur trúa. Ekki bara vondur, heldur vondur krati. Þeir fjölmiðlar sem hvað harðast hafa gengið fram í árásum á félagsmála- ráðherra eru Pressan, Stöð 2 og Dagblaðið. Ég segi árásir því að hvað annað er það þegar dregnar eru upp jafn fáránleg dæmi og ráðn- ing gangavarðar í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði og það að hafa dirfst að fara með litlu drengina sína á handboltaleik í staðinn fyrir að mæta á fund með hagsmunaaðilum í deilunni um leikskóla sjúkrahús- anna? Ráðning gangavarðarins var alls ekki á könnu Guðmundar Áma, eins og Magnús Baldursson skóla- fulltrúi segir í yfirlýsingu dagsettri 22. september. Einhver lítt greindur blaðamaður hefur sér til mikillar ánægju komist að því að þessi tiltekni gangavörður var tengdur Guðmundi og því var það gefið mál að hann hefði með pólítískum þrýstingi fengið það fram að hann fengi starfið. Það var ekki kannað að þessi maður var búin að starfa þarna lausráðinn um nokkurn tíma. Að gagnrýna það að fara með drengina sína á handbolta- leik er svo fáránleg umræða að engu tali tekur. Þessum áðurnefndu fjölmiðlum fannst ekki taka að minnast á það að Guðmundur Árni fór á fjölmarga fundi með þessu fólki, fyrir og eftir umræddan hand- boltaleik, og málið fékk farsæla niðurstöðu. Nei, það er aukaatriði. Guðmundur Árni hélt svo blaða- mannafund á dögunum þar sem hann fór yfir þau mál sem fjöimiðl- ar hafa verið að grafa upp um hann og hans störf, bæði sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og síðar sem heilbrigð- isráðherra. Sú fjölmiðlaumræða sem hefur verið í kringum Guðmund Árna að undanförnu, er örugglega einstök í íslensku samfélagi. Margir verða n o í Friðrik K. Jónsson eflaust til að mótmæla þessari fullyrðingu og benda sjálfsagt á mál Hrafns Gunnlaugsson- ar því til staðfestingar og það fjölmiðlafár sem því fylgdi. Þar voru þeir bornir þungum sökum, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra. Það mál var borðleggj- andi fyrir pólítíska greiðasemi og mikla valdníðslu af hálfu ráð- herra á útvarpsstjóra, séra Heimi Steinssyni. Þegar Davíð Odds- son fór í það að tryggja æskuvini sínum, Hrafni, áframhaldandi vinnu með því að Ólafur G. skipaði hann framkvæmdastjóra sjónvarpsins, þrátt fyrir að búið væri að reka manninn. Atgangur blaðamanna og fjölmiðla varð þó aldrei svo mikill að það hafi komið til tals að Davíð eða Ólafur G. Einarsson segði af sér. Ekkert var spurt um það af hálfu fjölmiðla hvort þessir menn ætluðu að segja af sér. Þó tísti eitt- hvað í Svavari Gestssyni, þing- manni Alþýðubandalagsins, um það, en ekkert meira en venjulega. Margt og raunar flest af því sem Guðmundur Árni er sakaður um nú kemst ekki í hálfkvisti við mál Hrafns Gunnlaugssonar. Eini mun- urinn á þessum tveimur málum er sá að í máli Hrafns voru staðreynd- irnar á borðinu og allir vissu mála- vexti. í máli Guðmundar Árna er meira og minna byggt á sögusögn- um og heimildum jafn áreiðanlegra fjölmiðla og Pressunnar sálugu. Annað sem Guðmundur Árni hefur verið gagnrýndur mikið fyrir er að hafa farið tæpa tvo milljarða króna fram úr fjárlögum þá sex mánuði sem hann sat þar. Ja, öðru- vísi mér áður brá. Án þess að ég sé neitt að gera lítið úr því að menn haldi sig innan fjárlaga, þá er ég ansi hræddur um að ráðherraskipti hér áður fyrr hefðu verið mjög ör ef alltaf hefði átt að skipta um ráð- herra í hvert skipti sem þeir fóru fram úr fjárlögum. En það er stað- reynd að fyrir daga þessarar ríkis- stjórnar var það frekar regla en undantekning að menn færu fram úr fjárlögum. Aldrei var spurt hvort þessir menn ætluðu að segja af sér. Annað sem hefur verið rætt um er að Guðmundur hafi skilið bæjar- sjóð Hafnaríjarðar eftir í molum og svo gjörsamlega tóman að bær- inn sé nánast gjaldþrota. Meirihluti bæjarstjómar Hafnarfjarðar segir að skuldir bæjarins séu 3,2 milljarð- ar ef skuldir húsnæðisnefndar eru ekki taldar með. Ef við deilum þess- ari upphæð í íbúatölu Hafnarijarðar sem er 15.000, þá fáum við út töluna 213 þúsund króna skuld á hvern íbúa. Mikið, já ekki spurning. En þá langar mig að segja lesendum frá skulda- stöðunni í bænum sem ég bý í, nefnilega Keflavík, Njarðvík og Hafnir. Þar eru heild- arskuldir bæjarfélags- ins 2,1 milljarður. Deilum því í íbúafjöld- an, sem er 10.000, þá fáum við út töluna 210 þúsund. Hneyksli og blaðamatur, nei ekki ennþá að minnsta kosti. Þetta skuldar bærinn minn, og þrátt fyrir að þar hafi ekkert verið framkvæmt, engar byggingar eða raunhæfar úrlausnir í atvinnu- málum, en atvinnuleysi er hér með því mesta á landinu. í Hafnarfirði er þó mikið búið að gera og ljótur draugabær er orðinn að einum fal- legasta og öflugasta bæ á landinu. Nú talar fólk á landsbyggðinni sem er að hugsa um að flytjast á höfuð- borgarsvæðið, ekki lengur um að flytjast til Reykjavíkur, heldur til Hafnarfjarðar. Mál Bjöms Önund- arsonar er einnig talið mjög alvar- legt. Ef menn kynna sér það mál, þá komast menn að því að málið fékk mjög farsælan endi. Sama hvað menn rífast um þetta mál þá er það staðreynd að ef Björn hefði verið rekinn hefði hann getað kraf- ið ríkisstjóð um fleiri tugi milljóna í skaðabætur vegna þess að hann braut ekkert af sér í starfi, þó að VAKORTALISTI Dags. 18.10/94.NR. 169 5414 8300 0310 5102 5414 8300 3163 0113 5414 8300 3164 7117 5414 8301 0494 0100 5422 4129 7979 7650 5221 0010 9115 1423 5413 0312 3386 5018 Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF„ Ármúla 28, 108 Reykjavík, sími 685499 t) I S M V • N N \ í [( F. V K J \V I K o (; 0 K Bjöms Bjamasonar er að Hverfisgötu 6. Opið viifca daga 14-22 og 11-18 laug. og sunn.' “ 611378 * 611379 * 611352 Síniar BlÖRN BlARNASON ÁFRAMl^SCn Fjölmiðlar virðast leggja kapp á að koma höggum á Guðmund Árna Stefánsson, segir Friðrik K. Jónsson, og hunsa alla skýringar sem frá honum koma. hann hefði svikið undan skatti. Sú leið að reka Bjöm hefði eflaust afl- að Guðmundi meiri vinsælda, en hann sparaði ríkissjóði mikla pen- inga með þessum málalyktum. Aðalatriði þessarar umfjöllunar fjölmiðla virðist vera það að koma höggi á Guðmund Árna og hundsa allar þær skýringar sem hann kem- ur fram með, helst afgreiða þær sem lygi. Allt þetta upphlaup, öll þessi umræða, er farin að vera í meira lagi einkennileg. Að sjálfsögðu á Guðmundur Árni að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa kjósendur um efnisatriði þeirra ásakana sem á hann hafa verið bornar. Málið er, að það hefur hann gert og oftar en einu sinni. í viðtali hjá Rás 2, Stöð 2 og ríkis- sjónvarpinu hefur hann reynt að gera hreint fyrir sínum dyrum. Og nú síðast með blaðamannafundin- um á mánudaginn. Með ítarlegri greinargerð hefur hann útskýrt þessi mál. Samt sem áður er haldið áfram að spyija hann sömu spurn- inganna um sömu málin aftur og aftur. Við verðum að gera þá kröfu að hann útskýri mál sitt, en hversu oft? Með greinargerðinni á blaða- mannafundinum útskýrði Guð- mundur Árni að mínu mati eins vel og hann gat málavexti í flestum þeim málum sem hann hefur verið sakaður um og játaði á sig mistök í tveimur. Hvað er hægt að fara fram á meira? Það er einfalt að beija sér á bijóst og þykjast vita betur og saka ráðherrann um að ljúga. En þar með eru blaðamenn komnir út á hálan ís. Þeirra hlut- verk er ekki að beija svo á mannin- um, hamra stöðugt á sömu málun- um þó að ráðherrann hafi gert sitt besta til að útskýra þau, að hann eigi sér ekki viðreisnar von eftir það. Með öðrum orðum að jarða ráðherrann. Ef það er ætlan þeirra blaðamanna sem hvað mest hafa fjallað um þetta, þá er eitthvað að og von að menn spyiji sig hvort þetta sé skipulögð aðför. Það er alveg ljóst að Guðmundur Ámi Stefánsson hefur gert ýmis mistök í starfi sínu sem bæjarstjóri og ráðherra, en hefur almenningur efni á þvi að gera þær kröfur á stjórnmálamenn að þeir séu okkur hinum það æðri að þeir megi ekki gera mistök? Svoleiðis fólk kallast guðir í okkar samfélagi og það er ég alveg viss um að Guðmundur Árni er ekki. Ég ætla bara að vona að fjölmiðl- ar hætti ekki hér, heldur haldi áfram að grafa upp vafasamar embættisfærslur stjórnmálamanna,; líka annarra stjórmálamanna en krata. Með siðareglum Alþýðu- flokksins hefur hann sýnt frum-* kvæði og nú er að sjá hvort athugul- ir íjölmiðlamenn, t.d. þeir á Stöð 2 sem virðast þefa það uppi ef maður sem einhver heldur að sé krati, fær vinnu einhvers staðar, hafi líka lykt- arskyn fyrir „vafasömum manna- ráðningum" eða embættisfærslum annarra stjórnmálamanna en krata.: Ég hef þó mínar efasemdir um að þeir hafi áhuga á eða nenni að grafai svoleiðis upp. Höfundur er útvarps- og blaðamaður. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA Morgunverðarfundur föstudaginn 21. október 1994 í Skóla, Hótel Sögu, frá kl. 8.00 til 9.30 Notkun lífsstílsrannsókna við markaðssetningu Margrét Guðmundsdóttir FVH boðar til tundar um notkun lifsstilsrannsókna við markaðs- sotningu. Margrót Guðmundsdótttir, framkvæmdastjóri sölusviðs Kuwait Petroleum (Q8) i Danmörku, fjallar um hvernig fyrirtækið hefur notað þessa aðfarð við markaðssetningu í Danmörku. Lifsstílsrannsóknir eru mjög útbreiddar í Evrópu meöal fyrirtækja, sem hafa sterk vörumerki. í Danmörku má nefna fyrirtæki eíns og Carlsberg, Bang & Olufsen, Beriinske Tidende, Shell og Q8, sem beitt hafa þessari aöferö meö góöum árangri. Á fundinum mun Margrét meöal annars fjalla um: • Hvaö eru I !f ss t í I s r a n n s ó kn i r ? • Skiptingu neytenda f félagslegar einingar eftir gildismati O Hvaö eru „trend setters"? • Áhrif lífsstílsrannsókna á auglýsingar Fundargjald með morgunverði er kr. 1.200 - skuidlausir féiagsmenn greiða kr. 900 Félagsmenn eru hvnttir til oð mæta og hefja vinnudaginn með faglegri umræðu um þettn óhugaverða mólefni. Opinn fundur — gestir velkomnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.