Morgunblaðið - 18.10.1994, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einar Krístinn Guðfinnsson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
EINAR Kristinn Guðfinnsson
alþingismaður varð efstur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
á Vestfjörðum sem fram fór um
heigina. Hlaut hann 960 atkvæði í
það sæti, eða 56% gildra atkvæða í
það sæti en 1.466 atkvæði alls í
prófkjörinu sem er 86% atkvæða.
Helsti keppinautur hans, Einar Odd-
ur Kristjánsson, fékk 623 atkvæði í
fyrsta sætið. Hann varð í öðru sæti,
hlaut 1.071 atkvæði í tvö efstu sæt-
in og 1.363 atkvæði alls sem er 80%
gildra atkvæða.
Guðjón Arnar Kristjánsson varð í
þriðja sætinu í prófkjöri flokksins,
hlaut 561 atkvæði í efstu þrjú sætin
og 818 atkvæði alls. Ólafur Hanni-
balsson kom næstur að atkvæðum
í þriðja sætið, var með 529 atkvæði
í það eða 32 atkvæðum minna en
Guðjón Arnar. Ólafur fékk flest at-
kvæði í fjórða sætið, 766. Næst
honum var Hildigunnur Lóa Högna-
dóttir með 604 atkvæði. Niðurstaða
prófkjörsins í heild er birt í meðfylgj-
andi töflu.
500 fleiri þátttakendur
A kjörskrá í prófkjörinu voru
2.050. Þar af voru 910 kjósendur
sem ekki eru flokksbundnir en undir-
rituðu stuðningsyfírlýsingu við
flokkinn. 1.783 greiddu atkvæði eða
87% þeirra sem voru á kjörskrá. Þar
af voru 77 seðlar auðir og ógildir
og gild atkvæði því 1.706. Til þess
að fá bindandi kosningu urðu fram-
bjóðendur að fá helming gildra at-
kvæða og náðu aðeins tveir efstu
menn því marki.
500 fleiri tóku þátt í prófkjörinu
nú en í prófkjöri vestfírskra sjálf-
stæðismanna fyrir síðustu alþingis-
kosningar er 1.282 kusu en þá var
einnig hart barist um efstu sætin.
Þá má geta þess að Sjálfstæðisflokk-
urinn fékk 1.966 atkvæði í síðustu
kosningum í Vestfjarðakjördæmi
þannig að aðeins vantar 183 upp á
að jafn margir hafi tekið þátt í þessu
prófkjöri og studdu flokkinn í kosn-
ingunum.
í prófkjörinu fyrir fjórum árum
fékk Matthías Bjarnason flest at-
kvæði í 1. sætið eða 515 atkvæði
sem er 41% af gildum atkvæðum.
Til samanburðar má geta þess að
Einar Kristinn fékk 56% gildra at-
kvæða í það sæti nú. Einar K., Þor-
valdur Garðar Kristjánsson og Guð-
jón A. fengu yfir 100 atkvæði í fyrsta
sætið fyrir fjórum árum. Einar Krist-
inn varð þá í öðru sæti, Guðjón Am-
ar í þriðja og Þorvaldur Garðar sem
þá var alþingismaður í fjórða sæti.
Einar Kristinn hlaut mestan stuðn-
Eínar Oddur ætlar að
skípa 2. sæti listans
Einar K. Guðfinnsson
o g Einar Oddur Krist-
jánsson hlutu bindandi
kosningu í tvö efstu
sæti framboðslista sjálf-
stæðismanna á Vest-
fjörðum í prófkjöri um
helgina. Einar Oddur
sagði við Morgunblaðið
í gær að hann tæki nið-
urstöðunni og mundi
skipa 2. sætið listans.
ing í heild, eða 84% gildra atkvæða,
en Matthías og Guðjón A. voru með
rúm 73% atkvæða í fjögur efstu
sætin.
„Finn tíl mikillar ábyrgðar"
„Ég er mjög ánægður með þennan
góða stuðning og þá afdráttarlausu
kosningu sem ég fékk,“ sagði Einar
Einar Kristinn Einar Oddur
Guðfínnsson Kristjánsson
Guðjón A.
Kristjánsson
Hannibalsson
Kristinn Guðfínnsson í samtali við
Morgunblaðið. Sagðist hann vilja
þakka öllum sem hefðu stutt sig,
ekki síst þeim tugum manna úti um
allt kjördæmið sem lagt hefðu á sig
ómetanlega vinnu við undirbúning
prófkjörsbaráttunnar.
„Ég fínn á þessari stundu til mik-
illar ábyrgðar við að leiða listann,
ekki síst vegna þess að á undan mér
hefur setið í 1. sætinu Matthías
Bjamason og staðið sig með sóma
og sanni. Ég vona hins vegar að
með hjálp góðra manna á Vestfjörð-
um rísi ég undir skyldum og þeim
væntingum sem til mín eru gerðar,"
sagði Einar Kristinn.
Hann sagðist ekki vera farinn að
velta fyrir sér hveija hann vildi helst
hafa með sér á framboðslistanum.
Nægur tími væri til þess að huga
að því og komast að skynsamlegri
niðurstöðu. „Ég fagna alveg sérstak-
lega þátttöku Einars Odds Kristjáns-
sonar í þessu prófkjöri og að hann
skuli vera kominn inn í stjórnmála-
baráttuna með þessum hætti. Ég tel
að það sé mikill liðsauki í því fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Vestfirði,"
sagði Einar.
„Skípa annað sætið“
Einar Oddur Kristjánsson segist
munu skipa annað sætið á lista
flokksins við alþingiskosningar í vor.
„Ég vil nota tækifærið til að koma
á framfæri innilegu þakklæti til
minna mörgu og góðu vina, sem
studdu mig svo eindregið í þessu
prófkjöri. Þessi niðurstaða er ákaf-
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
Hlutfall af
Röð frambjóðenda_____________Atkv.alls í sæti_Atkv.alls__________gildum atkv.
1. 1.-2. 1.-3. 1.-4.
1. Einar Kristinn Guðfinnsson 960 1.466 86%
2. Einar Oddur Kristjánsson 623 1071 1.363 80%
3. Guðjón Arnar Kristjánsson 30 308 561 818 48%
4. Ólafur Hannibalsson 27 218 529 766 45%
5. Hildigunnur Lóa Högmadóttir 20 229 420 604 35%
6. Gísli Ólafsson 15 118 370 496 29%
7. Ásgeir Þór Jónsson 14 77 174 485 28%
8. Kolbrún Halldórsdóttir 11 75 263 475 28%
9. Sigríður Hrönn Elíasdóttir 6 53 153 351 21%
2.050 voru á kjörskrá, 1.783 greiddu atkvæði eða 87%. Auðir og ógildir seðlar voru 77.
lega skýr. Einar Kristinn var kosinn
í fyrsta sætið og ég hlaut annað
sætið. Báðir hlutum við bindandi
kosningu. Ég dreg enga dul á það,
að ég sóttist eftir fyrsta sætinu og
barðist fyrir því eins og ég gat. Þess
vegna er því ekki að neita að ég lít
á þessa niðurstöðu sem ákveðna
höfnun. Ég þekki sjálfan mig og
veit að ég hef ávallt viljað vera for-
inginn. En þetta varð niðurstaðan
og það þýðir ekkert að gráta hana,
úr því sem orðið er. Nafni minn
vann þessa baráttu og við munum
eiga gott samstarf, enda hefur aldr-
ei fallið skuggi á það,“ sagði Einar
Oddur í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Einar Oddur sagði að miðað við
allar aðstæður, þá leyfðist honum
ekki „að vera í einhverri fýlu. Slík
afstaða gengur bara ekki upp og
þess vegna tek ég niðurstöðunni og
mun skipa annað sæti Iista Sjálf-
stæðisflokksins hér fyrir vestan í
komandi alþingiskosningum og ég
mun beijast í kosningabaráttunni
með oddi og egg. Það þarf enginn
að efast um það,“ sagði Einar Oddur
jafnframt.
„Ég veit að ég sótti þetta fylgi
mitt fyrst og síðast niður á bryggjur
Vestfjarða og ég hef verk að vinna,
sem ég mun gera af fullri einurð,"
sagði Einar Oddur Kristjánsson.
„Tveir sterkir að slást“
Guðjón Arnar Kristjánsson sagð-
ist vera sáttur við niðurstöðu próf-
kjörsins. Hann var í þriðja sæti list-
ans við síðustu kosningar og sóttist
eftir öðru sætinu nú. „Þarna voru
tveir sterkir menn að slást um fyrsta
sætið. Það hlaut að fara þannig að
sá sem ekki næði því færðist í annað
sætið,“ sagði Guðjón Arnar. Þessi
niðurstaða hefði því ekki komið sér-
staklega á óvart.
Guðjón Arnar hlaut ekki bindandi
kosningu í þriðja sætið. Hann sagð-
ist þó sækjast eftir því að skipa það
sæti á framboðslistanum.
„Sæmilega ánægður“
„Ég held að ég geti verið sæmi-
lega ánægður með minn hlut í þessu
prófkjöri," sagði Ólafur Hannibals-
son, sem lenti í fjórða sætinu. „Ég
hefði að vísu viljað fá nokkrum tug-
um atkvæðum fleira, þannig að ég
hefði tryggt mér þriðja sætið, en
miðað við það, að þarna var við vara-
þingmann flokksins að etja, þá held
ég að ég megi una nokkuð glaður
með minn hlut, því raunar er ekki
á okkur marktækur munur,“ sagði
Ólafur Hannibalsson.
Framboðsmál vegna alþingiskosninga
Andlát
D-listi á Austurlandi
Níu efstu
sæti réðust í
/ iu ••• •
protkjori
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi var sam-
þykktur á aðalfundi kjördæmisráðs
flokksins sem haldinn var á Egiis-
stöðum um helgina. Níu efstu sæti
listans eru skipuð í samræmi við
niðurstöður prófkjörs sem haldið var
fyrir rúmri viku.
Listinn er þannig skipaður: 1.
Egill Jónsson alþingismaður á Selja-
völlum, 2. Arnbjörg Pétursdóttir
fjármálastjóri á Seyðisfirði, 3. Krist-
inn Pétursson fískverkandi á Bakka-
fírði, 4. Sigurður Eymundsson um-
dæmisstjóri RARIK á Egilsstöðum,
5. Ólafur Áki Ragnarsson sveitar-
stjóri á Djúpavogi, 6. Jóhanna Hall-
grímsdóttir leikskólastjóri á Reyðar-
fírði, 7. Skúli Sigurðsson verkstjóri
á Eskifirði, 8. Magnús Brandsson
skrifstofustjóri á Neskaupstað, 9.
Ásmundur Ásmundsson skipstjóri á
Reyðarfirði og 10. Hrafnkell A.
Jónsson skrifstofumaður á Eskifirði.
Á fundinum var' Hrafnkell A.
Jónsson kosinn formaður kjördæ-
misráðsins.
Framsóknarflokkur
Prófkjör á Vest-
fjörðum- upp-
stilling á Vest-
urlandi
FRAMSÓKNARMENN á Vestfjörð-
um ákváðu á kjördæmisþingi um
helgina að efna til prófkjörs vegna
uppröðunar á framboðslista fyrir
alþingiskosningar. Framsóknar-
menn á Vesturlandi ákváðu að kalla
saman útvíkkað kjördæmisþing til
að raða á listann. Prófkjör framsókn-
armanna á Vestfjörðum verður opið
flokksbundnum og þeim sem undir-
rita stuðningsyfírlýsingu við flokk-
inn. Stefnt er að því að prófkjörið
verði 3.-4. desember.
Á þinginu lýstu Pétur Bjarnason
varaþingmaður og Sigurður Krist-
jánsson fv. kaupfélagsstjóri yfir
framboði. Þá var lesið upp bréf Sig-
mars B. Haukssonar þar sem hann
gaf kost á sér.
Kjördæmisráðsþing framsóknar-
manna á Vesturlandi samþykkti að
kalla saman útvíkkað kjördæmisþing
um miðjan nóvember til að greiða
atkvæði milli frambjóðenda við upp-
röðun á lista. Til þingsins verður
boðið þreföldum fjölda fulltrúa.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingis-
maður sagðist í gær gefa kost á sér
áfram í fyrsta sæti listans. Á fund-
inum kom það einnig fram að Sig-
urður Þórólfsson í Innri-Fagradal,
sem síðast skipaði annað sæti list-
ans, myndi gefa kost á sér.
A-listi á Vesturlandi
Listi valinn í
opnu prófkjöri
OPIÐ prófkjör Alþýðuflokks á Vest-
urlandi verður haldið 19. nóvember
nk. Framboðsfrestur rennur út 24.
október. Þetta var ákveðið á kjördæ-
misráðsfundi á laugardag.
Að sögn Böðvars Björgvinssonar
formanns kjördæmisráðs verður
prófkjörið með svipuðu sniði og fyr-
ir síðustu kosningar og opið öllum
sem ekki eru flokksbundnir í öðrum
flokkum. Gísli Einarsson alþingis-
maður sækist eftir fyrsta sæti og
búist er við framboði Sveins Þórs
Elínbergssonar í Ólafsvík og Sveins
G. Hálfdánarsonar í Borgarnesi en
þeir voru í baráttu ásamt Gísla fyrir
síðustu kosningar. Þá hefur Helgi
Daníelsson sýnt áhuga á framboði.
GUÐBRANDUR
MAGNÚSSON
Guðbrandur
Magnússon
Guðbrandur varð
aftur kennari við gagn-
fræðiskólann á Siglu-
firði 1947 og skóla-
stjóri 1956-57 og yfír-
kennari við skólann til
1976 er hann lét af
störfum.
Guðbrandur var for-
maður skólanefndar á
Siglufirði í fjögur ár,
vann mörg sumur við
tollgæslu, lögreglustörf
og í ÁTVR á Siglufirði.
Hann var meðhjálpari
og kirkjuvörður á
Siglufírði 1958-82 og
vann í mörg ár við bók-
GUÐBRANDUR
Magnússon, kennari á
Siglufirði, lést 15.
október sl. Guðbrand-
ur var fæddur að Hól-
um í Steingrímsfirði
24. ágúst 1907. For-
eldrar hans voru
Magnús Steingríms-
son og Kristín Áma-
dóttir.
Guðbrandur varð
gagnfræðingur frá
Akureyri 1928 oglauk
kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands
1935. Hann stundaði
enskunám í Pulteney
Institute í London
1937-1938. Guðbrandur var kenn-
ari við bændaskólann á Hvanneyri
1935-36, við Austurbæjarskóla í
Reykjavík 1936-37, skólastjóri á
Hofsósi 1938, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Steingrímsfjarðar á
Hólmavík 1939-41, kennari við
gagnfræðiskólann á Siglufirði
1941-46 og skólastjóri gagnfræði-
skólans á Akranesi 1946-47.
band og skrautskrift.
Guðbrandur skrifaði fjölda blaða-
og tímaritsgreina, einkum um nátt-
úrufræði. Hann vann við gerð
gróðurkorts af Skagafjarðarsýslu
um árabil og var kjörfélagi Hins
íslenska náttúrufræðifélags og
sæmdur gullmerki þess.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
brands er Anna Júlía Magnúsdótt-
ir. Þau eignuðust átta börn.