Morgunblaðið - 18.10.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 18.10.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór Tveir á slysadeiid eftir árekstur Vatnavextirnir í Svarfaðardal Aurskriður ollu hundruð þúsunda tjóni á túnum Meirihluti bæjarráðs samþykkir leikskóla- nefnd MEIRIHLUTI bæjarráðs Akureyrar samþykkti tillögu Sigfríðar Þor- steinsdóttur um stofnun leikskóla- nefndar á fundi á fimmtudag. Bæjarstjórn mun kjósa fimm full- trúa í nefndina og aðra fímm til vara á næsta fundi sem verður á þriðjudag. Á fundi bæjarráðs óskaði Sigríð- ur Stefánsdóttir eftir að eftirfarandi yrði bókað: „í stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins fyrir bæjarstjórnar- kosningar sl. vor voru settar fram ákveðnar tillögur um breytingar á nefndakerfí bæjarins. Þar kom m.a. fram eftirfarandi stefna: „Skóla- nefnd sjái um málefni grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla." Ég er sammála því að færa málefni leik- skóla frá félagsmálaráði, en hefði talið ofangreinda leið betri, m.a. til að tengja saman og fá heildarsýn á málefni leikskólans og grunnskól- ans.“ Sigurður J. Sigurðsson óskaði eftir að eftirfarandi yrði bókað: „í samræmi við stefnumál sjálfstæðis- manna tel ég að fela ætti skóla- nefnd grunnskóianna stjómun leik- skólamála í stað þess að stofna nýja nefnd til þess að sinna þessu verkefni. ----» ♦ ♦--- Skólanefnd tón- listarskólans verði lögð niður Á FUNDI bæjarráðs kom frá tillaga frá Sigríði Stefánsdóttur um að fela grunnskólanefnd málefni tón- listarskólans, en skólanefnd tónlist- arskólans verði lögð niður og taki breytingin gildi um næstu áramót. Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. í greinargerð með tillögunni seg- ir að verksvið skólanefndar tón- listarskólans sé mjög takmarkað en falli jafnframt vel að verkefnum skólanefndar grunnskóla. ÖKUMENN tveggja fólksbíla voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri eftir harðan árekstur laust eftir hádegi í gær. Óhappið varð við Lónsbakka, rétt norðan við bæjarmörk Akureyrar og Glæsibæjarhrepps. Annar bíllinn var á leið í bæinn þegar bifreið sem ekið er úr suðurátt frá bænum var TUTTUGU og fimm ára gamall maður á Akureyri var í Héraðs- dómi Norðurlands eystra dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeig- andi stofnun og til að greiða 200 þúsund krónur í miskabætur konu sem hann braust inn til og þröng- beygt í veg fyrir hann inn á hliðar- veg. Að sögn varðstjóra lögreglunn- ar á Akureyri var talið að ökumenn hefðu sloppið vel miðað við aðkomu á slysstað, en annar þeirra skarst í andliti og hinn meiddist í baki. Bílarnir eru báðir mikið skemmdir og voru fluttir af slysstað með að- stoð kranabíls. vaði með ofbeldi til holdlegs sam- ræðis. Maðurinn hefur átt við al- varlegan geðsjúkdóm að stríða og þarf að mati geðlækna á reglu- bundinni geðlæknismeðferð að halda og félagslegan stuðning. Atburðurinn átti sér stað í apríl síðastliðnum þegar maðurinn kom á heimili konunnar sem er á sjö- tugsaldri og er öryrki. Hann var drukkinn og þekkti lítt til konunn- ar, hafði komið þar tvívegis áður. Hann bguð konunni greiðslu fyrir að hafa við sig samfarir en hún TJÓN, sem varð á túnum við bæ- inn Hreiðarstaðakot í Svarfaðardal þegar aurskriða féll á þau, nemur hundruð þúsunda króna að sögn Ævars Hjartarssonar, ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Eyfjarðar, en hann skoðaði verksummerki. Skriðan fór yfir veginn og niður á túnið í miklu vatnsveðri sem varð á fimmtudaginn var. Þá fór einnig vegurinn í sundur við brú yfir að fremsta bænum í dalnum, að Koti, og sagði Sigurður Odds- son hjá Vegagerð ríkisins á Akur- eyri að búið væri að laga veginn að mestu leyti, en ekki væri enn vitað hversu mikið tjónið væri í peningum talið. Hann taldi að bet- ur hefði farið en á horfðist og að undirverktakar hefðu verið sendir á vettvang strax til að fylla upp í skarðið sem myndaðist í veginn. Mun taka 2-3 ár að græða tún og haga aftur Ævarr Hjartarsson sagði að skriðan hefði farið yfir um 4-5 aftók slíkt með öllu og reyndi að koma manninum út úr íbúð sinni jafnframt því að kalla eftir hjálp nágranna. Réðst maðurinn að henni og fékk vilja sínum fram- gengt. Maðurinn var sem fyrr segir dæmdur til að sæta öruggri vistun á viðeigandi stofnun og mun áfrýj- un ekki fresta áhrifum þess dóms- ákvæðis. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 200 þúsund krónur í miskabætur. Ólafur Ólafsson héraðsdómari kvað upp dóminn. hektara túns og svipaða stærð bitahaga sem hann sagði að taka myndi 2-3 ár að gróa aftur. Frost hefði verið norðan heiða síðustu daga og því væri beðið eftir þíðu svo hægt yrði að hreinsa. ------♦ ♦—♦---- Sjálfstæðisflokkur á Norðurlandi eystra Efstu sæti óbreytt FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi eystra fyr- ir alþingiskosningarnar næsta vor var samþykktur á fundi kjör- dæmisráðs flokksins á Húsavík á sunnudaginn var með fyrirvara um samþykki miðstjórnar flokksins. Halldór efstur, Tómas annar, Svanhildur þriðja í fyrsta sæti verður Halldór Blöndal, landbúnaðar- og sam- gönguráðherra, í öðru sæti Tómas Ingi Olrich, alþingismaður, Akur- eyri, í þriðja Svanhildur Árnadótt- ir, Dalvík, Jón Helgi Björnsson, Laxamýri, S-Þingeyjarsýslu, í fjórða sæti, Anna Blöndal, Akur- eyri, í fimmta sæti, Gunnlaugur J. Magnússon, Ólafsfirði, í sjötta sæti, Rúnar Þórarinsson, Sand- fellshaga, Öxarfirði, í sjöunda sæti, Sæunn Axels, Ólafsfirði, í áttunda sæti, Sædís Guðmundsdóttir, Húsavík, í níunda sæti, Andri Teitsson, Akureyri, í tíunda sæti, Þorsteinn Vilhelmsson, Akureyri, í ellefta sæti og Ingvar Þórarins- son, Húsavík, í því tólfta. Halldóra Bjarnadóttir, formaður Tóbaksvarnanefndar, lýsti því yfir fyrir rúmri viku að hún gæfi ekki kost á sér á listann og var því ekki í framboði í 4. sætið á kjördæmis- ráðsfundinum um helgina, eins og fram kom í frétt hér í blaðinu um helgina. Héraðsdómur Norðurlands eystra í máli 25 ára gamals manns Dæmdur til öryggisvist- unar fyrir nauðgun Til sölu nýtt 44fm heilsárs sumarhús með 20 fm svefnlofti og 12 fm verönd. Húsið er svo til l_ fullklárað og tilbúið til flutnings. Verð 2.300 þús. Ath. skipti á bíl, einnig góðan staðgreiðsluafsl. Húsið er til sýnis á staðnum. Bílasalan Hraun, Kaplahrauni 2 - 4, Hfj. s: 652727 Tryggvagata - „stúdíó“-íbúð Frábær kjör Ca 30 fm glæsileg „stúdíó“-íbúð á 3. hæð með frá- bæru útsýni yfir höfnina. Parket. Nýtt eldhús. Mögulegt er að lána helming íbúðarverðs til 6-8 ára og einnig að taka bíl uppí sem greiðslu. Verð 2,8 millj. Hafið samband. 700. Gimli, fasteignasala, Þórsgötu 26, sími 25099. 94026 Word námskeið Tölvu- og verkfræöibjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16-© 68 80 90 Endurbættar lyflækn- ingadeildir LYFLÆKNINGADEILDIR Fjórðungssjúkrahúsins á Akur- eyri hafa verið endurbættar og efnt til kynningar á starfsemi deildanna af því tilefni. Lyflækn- ingadeild hefur verið starfrækt við FSA frá árinu 1953, en svo- kölluð lyflækningadeild II var stofnuð árið 1989. Deildirnar veita alla alhliða þjónustu í ly- flækningum og hjúkrun ásamt sérfræðiþjónustu í hjartasjúk- dómum, lungnasjúkdómum og meltingafærasjúkdómum. Sér- fræðingur í krabbameinslækn- ingum kemur einu sinni í mánuði frá Landspítala. Hjúkrunarfræð- ingar og sjúkraliðar starfa á þrí- skiptum vöktum, þá starfa sjúkraþjálfari við deildina. FSA er kennslusjúkrahús þannig að þar eru iðulega margir hjúkrun- ar- sjúkraliðar og læknanemar að störfum. Lyfjadeild I rúmar 23 sjúklinga en lyfjadeild II19 sjúklinga og er markmiðið að veita sjúklingum bestu mögulega meðferð á sviði lyflækninga og hjúkrunar. Á kynningunni var sýnt mynd- band af hjartaþræðingu og Morgunblaöið/Rúnar Þór hjartaómskoðun og margvísleg- ar upplýsingar um starfsemina lágu frammi og eins og vera ber í tilefni dagsins var gestum boðið upp á ríkulegar veitingar sem þeir nutu óspart.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.