Morgunblaðið - 18.10.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 19
ERLENT
Jean-Bertrand Aristide forseta fagnað við heimkomuna til Haítí
Hvatti til sátta við
valdaræningjana
Port-au-Prince, Washington. Reuter.
ÍEAN-Bertrand Aristide, forseti Haítí, kom til
íeimalands síns úr útlegð á laugardag. í ræðu
;inni við komuna, hvatti hann til sátta og að
indir yrði bundinn á blóðbaðið á Haítí. Lands-
nenn og ráðamenn víða um heim fögnuðu endur-
omu Aristide og aflétti öryggisráð Sameinuðu
Jóðanna viðskiptabanni á landið á sunnudag.
Sama dag gerðu öryggisverðir við forsetahöllina
handsprengjur, sem fundust í bíl yfirmanns
Haítí-hers, Jean-Claude Duperval, upptækar.
Bandaríkjaher neitaði því að hann hefði ætlað
að sýna forsetanum banatilræði.
Aristide kom til Haítí í fylgd Warrens Chri-
stophers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og
blökkumannaleiðtogans Jesse Jacksons. Sagðist
Christopher vona að endurkoma Aristide yrði
leiðtogum valdaránsins þörf áminning. Ekki að-
eins Bandaríkin, heldur öll heimsbyggðin væri
reiðubúin að verja lýðræðið.
Hvatt til samstarfs við herinn
Þúsundir fögnuðu Aristide við heimkomunaj
en þeir voru þó færri en búist hafði verið við. I
ræðu sinni við heimkomuna sleppti Aristide hvítri
dúfu og lýsti þeirri von sinni að blóðbaðinu í
landinu væri nú lokið. „Okkur þyrstir öll í frið,“
sagði Aristide, þar sem hann stóð á bak við
skothelt gler. „Þaggið niður í vopnunum.“ Þá
hvatti forsetinn til sátta við valdaræningjana,
og sló á ótta þeirra sem töldu að hann hygði á.
hefndir. „Afneitum ofbeldi, afneitum hefndar-
þorsta, biðjum um sættir.“
Undirtektir voru hins vegar litlar er forsetinn
hvatti til samstarfs við Haítíher, að Haítíbúar
gengju hönd í hönd með hermönnum sem vildu
Handsprengjur teknar
af yfirmanni hersins við
forsetahöllina
frið. Ósk hans um gott samstarf við bandaríska
herinn var hins vegar fagnað ákaflega.
Aristide tilkynnti að hann myndi fljótlega út-
nefna nýjan forsætisráðherra í stað Roberts
Malvals, sem sagði af sér á síðasta ári eftir að
herinn hafði komið í veg fyrir tilraunir hans til
að stjórna landinu.
Viðskiptabanni aflétt
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fagnaði um
helgina endurkomu Aristide og samþykktu 14
aðildarríki af 15 að aflétta viðskiptabanni frá
og með miðnætti, aðfaranótt sunnudags. Brasil-
íumenn sátu hjá, þar sem samþykktin fól í sér
að SÞ myndu senda gæslulið til Haítí til að taka
við af Bandaríkjaher þegar SÞ teldu að öryggi
og stöðugleika hefði verið komið á. Sögðu Brasil-
íumenn að samþykkt SÞ fæli í sér viðurkenningu
á hernaðarafskiptum Bandaríkjamanna, sem
Brasilía og fleiri Ameríkuríki voru mótfallin.
Sprengjur í bíl yfirmanns hersins
Duperval undirhershöfðingi var á leið til for-
setahallarinnar á sunnudag er öryggisverðir
fundu handsprengjur í bíl hans. Fullyrti heimild-
armaður Reuters að spengjurnar hefðu verið
ætlaðar í sprengjuvörpu. Þær voru gerðar upp-
tækar en hershöfðingjanum leyft að fara inn í
höllina.
Bandaríkjamenn fullyrtu að ekkert óvenjulegt
Reuter
ARISTIDE, forseti Haítí, hlýðir á söngv-
ara, sem speglast í skotheldu glerinu
umhverfis forsetann, við athöfn þar sem
heimkomu hans var fagnað.
væri við vopnaburð Dupeivals, hann væri vana-
lega vopnaður slíkum sprengjum og hefði ekki
ætlað að ráða forsetann af dögum.
Sögusagnir þess efnis að Aristide hefði verið
sýnt banatilræði, breiddust hins vegar út með
eldingarhraða í höfuðborginni og safnaðist
mannfjöldi saman fyrir framan forsetahöllina til
að veita Aristide vemd, yrði á hann ráðist. Hróp-
aði mannfjöldinn ókvæðisorð um herinn og Du-
perval og krafðist þess að fá að eta hann.
Friðsamlegt hefur verið að mestu á Haítí frá
komu Aristides en á sunnudag fundust lík
tveggja stuðningsmanna forsetans í fátækra-
hverfi því þar sem mestur stuðningur er við hann.
Drengir
drepa
fiinm ára
stúlku
Ósló. Reuter.
FIMM ára stúlka var drepin í Þránd-
heimi af jafnaldra leikfélögum sínum
í fyrsta vetrarsnjónum í Noregi um
helgina.
Lögreglan vildi ekki veita frekari
upplýsingar um málið, en dagbiaðið
Verdens Gang sagði að drengir á
sama reki hefðu traðkað á stúlkunni
og slegið hana með gijóti nálægt
íbúðarhverfi í Þrándheimi.
Blaðið sagði að þrír drengir hefðu
tekið þátt í árásinni og einn þeirra
hefði sagt að þeir hefðu beðið stúlk-
una að afklæða sig, sem hún hefði
gert. Síðan hefðu þeir skipst á um
að hoppa á henni. Einn drengjanna
hefði náð í gijót sem hefði verið
notað til að slá hana í höfuðið og
líkamann.
„Við drápum ekki mömmu henn-
ar, við erum of ungir til þess,“ á
einn drengurinn að hafa sagt við
foreldra sína og lögregluna, að sögn
Verdens Gang.
Lögreglan yfirheyrði drengina og
sagði að rannsókninni væri að mestu
lokið. Norskir fjölmiðlar líktu árás-
inni við morðið á James Bulger,
tveggja ára breskan dreng sem tveir
tíu ára piltar börðu til bana í Liver-
pool í fyrra.
Faðir stúlkunnar setti kerti, bréf,
rauða rós og mynd af henni þar sem
hún fannst á sunnudagskvöld.
„Þakka þér fyrir allt. Hvíldu í friði.
Minningin um þig verður alltaf með
okkur,“ sagði í bréfinu, sem var und-
irritað af foreldrum stúlkunnar, bróð-
ur og systur.
Tónlistarrað Islands heldur viðhafnardansleik á degi íslenskrar tónlistar, laugardaginn
22. október kl. 19:00 í Perlunni, til sty rktar Samtökum unt Tónlistarhús.
Þríréttaður kvöldverður.
Sinfóníuhljómsveit Islands undir stjórn Bernharðs Wilkinssonar leikur fyrir dansi.
Kór islensku óperunnar og einsöngvarar flyfja perlur úr þekktum óperum við undirleik Sinfóníuhljómsveitar íslands
Islenski dansflokkurinn kemur fram.
Atján manna Stórsveit Reykjavikur undir stjórn Sæbjarnar Jónssonar leikur fyrir gesti.
Aggi Slæ og l amlasveitið kemur fram ásamt fleiri uppákoinum.
Miðaverð: 5.700 kr.
Miðasaia í Perluhni inilli 17:00 og 19:00 frá miðvikudeginum 19. októbcr.
Tónlistarráð Islands
• 101 Reykjtwik • Si'mi 91-62 92 77 • F/tx 9