Morgunblaðið - 18.10.1994, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
■ ÍSLENSKI KILJUKL ÚBB-
URINN hefur sent frá sér þijár
nýjar bækur. Grænmetisréttir af
gnægtaborði jarðar hefur að
geyma sígildar uppskriftir frá öllum
heimshornum sem Robert Budwig
hefur safnað og myndskreytt. í
bókinni eru 120 klassískar upp-
skriftir af súpum og forréttum, sal-
ati og aðalréttum frá Ítalíu, Frakk-
landi, Man-okkó, Tælandi og Ind-
landi, auk þess sem fjallað er á al-
mennan hátt um matargerð á
hveiju svæði. Helga Guðmunds-
dóttir þýddi. Bókin er 192 bls., lit-
prentuð og í stóru broti.
■ MEIRI BJÓR er spennusaga
eftir þýska höfundinn Jakob Aijo-
uni. Fjórir meðlimir umhverfis-
verndarsamtaka eru ákærðir fyrir
morð á forstjóra efnaverksmiðju.
Veijandi þeirra ræður einkaspæjar-
ann Kemal Kayankaya til að kom-
ast að hinu sanna í málinu. Höfund-
ur bókarinnar er líkt og söguper-
sóna hans af tyrkneskum ættum
og hafa sakamálasögur hans notið
mikilla vinsælda í þýskumælandi
löndum undanfarin ár. Kristín
Hjálmtýsdóttir þýddi bókina sem
er 168 bls.
■ FYRSTA BÓK Guðbergs
Bergssonar, Músin sem læðist,
er nú komin út í endurskoðaðri
gerð á vegum íslenska kiljuklúbbs-
ins í samvinnu við Forlagið. Músin
sem læðist kom fyrst út árið 1961
og voru gagnrýnendur á einu máli
um að sagan væri framúrskarandi
byijandaverk. Músin sem læðist
hefur verið ófáanleg í áratugi. Bók-
in er 189 bls. í kiljubroti og kostar
898 kr.
» hummé!
SPORTBÚÐIN
Ármula 40 ■ Slmi 813555 oq 813655
Þögnin rofin
LEIKLIST
Alhcimslcikhúsið
1 Illaövarpanum
EITTHVAÐ ÓSAGT
Höfundur: Tennessee Williams.
Þýðandi: Vilborg Halldórsdóttir.
Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir.
14. október.
Það er óhætt að segja að Kaffi-
leikhúsið í Hlaðvarpanum fari af
stað með krafti, því með viku milli-
bili hafa verið frumsýnd þar tvö
leikrit. Leikhópurinn Alheimsleik-
húsið varð til á Listasumri á Akur-
eyri í sumar, þar sem „Eitthvað
ósagt“ var á fjölunum en er nú
komið suður yfir heiðar til að vera
á fjölum Kaffileikhússins í Hlað-
varpanum.
Leikurinn á sér stað við morgun-
verðarborðið á heimili fröken Scott,
sem bíður eftir niðurstöðum úr for-
mannskjöri í stórum kvennasam-
tökum, sem hún er meðlimur í. Hún
vill verða formaður. Einkaritari
hennar til 15 ára, Grace, er að
hjálpa henni að bíða og þótt ljóst
sé að spennan eftir fréttum af for-
mannskjörinu sé mikil, er spennan
milli frökenarinnar og einkaritar-
ans ekki minni.
Það er sitthvað ósagt milli þeirra
tveggja og fröken Scott reynir hvað
eftir annað að segja það. Hún ger-
ir þráfaldlega tilraunir til að nefna
hlutina sínum réttu nöfnum en
Grace verst hetjulega.
Það eru þær Steinunn Ólafsdótt-
ir og Anna Elísabet Borg sem leika
fröken Scott og Grace. Samleikur
þeirra er alveg sérlega góður og
hvor um sig skapar mjög sterka
persónu. Steinunn leikur töluvert
upp fyrir sig í aldri í hlutverki hinn-
ar auðugu og hégómlegu frökenar
Scott og ferst það ótrúlega vel úr
hendi. Þrátt fyrir tilraunir frö-
kenarinnar til að tala hreint út um
samband sitt við Grace, er síður
en svo að hún geti kallað hlutina
sínum réttu nöfnum, þegar kemur
að því að ræða framapot hennar
innan hreyfíngarinnar. Tvöfeldni
hennar er mjög skýr, sem og valda-
þörf; þegar hún fer að átta sig á
að veraldargengið er eitthvað fall-
valt, undirstrikar hún vald sitt yfir
Grace. Steinunn lék óaðfinnanlega
á þessa strengi. Hún er sterk og
vönduð leikkona og í rauninni
finnst mér undarlegt hversu lítið
hefur sést af henni í „stóru“ leik-
húsunum hér.
Anna Elísabet Borg leikur
Grace. Þetta er dálítið staðlað hlut-
verk undirlægjunnar, sem þó hefur
undirtökin vegna veikleika þess
sem valdið hefur. Leikur Önnu er
mjög góður í þessu hlutverki. Hún
nær að skapa mikla spennu í
varnarleiknum sem Grace leikur
gegn yfirboðara sínum; slakar á
þegar málefni kvennasamtakanna
ber á góma, flýr inn í heim tónlist-
arinnar þegar umræðuefnið fer að
nálgast hana sjálfa og Anna túlkar
mjög vel skelfinguna sem grípur
Grace* þegar eitthvað ósagt er h
sagt. L
Hlín Agnarsdóttir skilar sinni ^
vinnu mjög vel; hreyfingin í sýning- 9
unni er mikil, þagnir nákvæmar,
persónumar vel unnar og það er
mikil spenna í sýningunni á þessu
verki, sem virðist ósköp einfalt á
yfírborðinu.
Eftir að hafa séð tvær fyrstu
sýningarnar í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum er ekki hægt annað
en óska aðstandendum til hamingju P
og vona að þetta sé leikhús sem á |)
framtíðina fyrir sér. w
Súsanna Svavarsdóttir "
Leyniþræðir
og draumórar
MYNPLIST
Listhúsiö Úmbra
GRAFÍK
MAGÐALENA MARGRÉT
Opið daglega frá 14-18.
Lokað mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
MAGÐALENA Margrét Kjart-
ansdóttir er á leið með að skapa
sér nokkra sérstöðu í íslenzkri
grafík, sé tekið mið af verkum
hennar í listhúsinu Úmbru þessa
dagana.
Hún virðist vera að fjarlægjast
hestaformið, sem var að verða ein-
kenni hennar og satt að segja
nokkuð ágengt, og þó þess fínni
stað í einstaka mynd er það minna
áberandi, en þá er það frekar til
að draga úr heildaráhrifunum.
Jafnframt minnti það mann að
nokkru á að hér væri um að ræða
litlu systur Magnúsar Kjartans-
sonar í listinni, því hún lagði mun
seinna á listabrautina, þótt hún
sé að öðru leyti eldri að árum!
Það eru einungis sjö myndir á
sýningunni, en allar stórar, eða
metri á langveginn og sjötíu senti-
metrar á þverveginn. En ekki er
það fyrir stærðina eina að þessar
myndir hafa meiri áhrif á rýninn
en það sem hann hefur áður séð
frá hendi Magðalenu, heldur dul-
rænn krafturinn og áhrifaríkari
samspil forma.
Sýningin kom satt að segja á
óvart, því að hér er um að ræða
umtalsverða breytingu á mynd-
málinu, þótt stutt sé í ýmis fyrri
tákn og þá hestaformið um leið.
Þannig þótti mér eitt andartak
myndin „Ofinn leyniþráður“ eitt
kröftugasta verkið á sýningunni,
en kom svo auga á nokkra litla
hesta við enda leyniþráðanna, þar
sem ég hélt að væri óhlutlægt
tákn og það raskaði sjónskynjun
mína. En svo það verði ekki mis-
skilið, skal tekið fram að í sjálfu
sér er ég ekkert á móti þessu sér-
staka formi, en það er einfaldlega
orðið dálítið útjaskað í þessari sí-
bylju.
Það voru myndimar „Feluleik-
ur“ (3) og „Draumórar" (7) sem
höfðuðu sterkast til mín fyrir dul-
úðugan og upphafínn tjákraft
ásamt „Vængslætti“ (7), en allar
eru þessar myndir einfaldar og
ögrandi. Láta skoðandann ekki í
friði, en án þess að hneyksla. Það
eru einmitt þessi viðbrögð sem eru
svo mikilvæg í listinni, vegna þess
að það er hið myndræna sem ögr-
ar, en ekki einhver hugmynda-
fræði eða sóðaskapur á myndræn
form og tilvísanir á afbrigðilegar
athafnir. Menn eru orðnir lang-
þreyttir á slíku og biðja frekar um
hrifrík átök á sjálfum myndfletin-
um.
Það er einmitt þetta sem er að
gerast í myndlist Magðalenu Mar-
grétar og maður bíður spenntur
eftir framhaldinu.
Bragi Ásgeirsson
Frú Emilía
frumsýnir
Kirsuberja- Jj
garðinn *
FRÚ Emilía frumsýnir Kirsubeija-
garðinn, gamanleik Antons Tsjekovs
sunnudaginn 23. október kl. 20.
Kirsubeijargarðurinn er síðasta leik-
rit Tsjekovs.
í fréttatilkynningu segir: „Okkur
birtist fýndið fólk, sem segir eitt og
gerir annað, sem reynir að róa sjálft
sig með því að tala um nágrann- P
anna, um veikindi sín, um gamla p
daga og fjarlæg lönd - og þráast
við að opna augu sín fyrir sannleik-
anum.“
Kristbjörg Kjeld leikur frú
Ranevskaju, aðalhlutverk leiksins.
Aðrir leikarar eru Jón Guðrún Jóns-
dóttir, Edda Heiðrún Backman,
Þröstur Guðbjartsson, Ingvar E. Sig-
urðsson, Steinn Ármann Magnússon,
Harpa Amardóttir, Kjartan Bjarg-
mundsson, Eggert Þorleifsson, Helga
Braga Jónsdóttir, Árni Tryggvason |
og Valgeir Skagfjörð. Kristbjörg ®
Kjeld og Ingvar E. Sigurðsson eru
fastráðnir leikarar Þjóðleikhússins.
Leikstjóri er Guðjón Pedersen, leik-
mynd er eftir Gretar Reynisson og
búninga annast Elín Edda Ámadótt-
ir. Hljómsveitin „Skárra en ekkert“
tekur þátt í sýningunni.
Maður þarfnú ekki
jólaföt til að fara
til Ljósmyndarans!
TILBOÐSVERÐ í OKTÓBER
" Nýir "
Ijósmyndarar
Nína
Lára
LJOSMYNDARINN
I MJODDINNI SIMI 79550
Ljóðsaga eftir
Þorstein Stefánsson
KOMIN er út bókin
Þú, sem komst Ijóð-
saga eftir Þorstein
Stefánsson rithöfund,
sem lengi hefur verið
búsettur í Danmörku.
Þorsteinn er þekktur
rithöfundur og hefur
hlotið verðlaun og við-
urkenningar fyrir verk
sín. Bækur hans hafa
verið þýddar og gefnar
út í mörgum löndum.
Efni Þú, sem komst
er persónusaga skálds-
ins og besta vinar í
þessu lífí Rigmor Birg-
itte Hövring, sem lést
langt um aldur fram. Hún var bóka-
safnsfræðingur og stofnaði bókaút-
gáfuna Birgitte Hövring Biblio-
teksforlag 1975 í þágu
íslenskra bókmennta í
Danmörku. Fram að
þessu hefur útgáfan
gefið út á þriðja tug
íslenskra bóka í þýð-
ingum. Nú gefur
skáldið út ljóðsöguna á
móðurmálinu. Á næsta
ári er væntanlegt á ís-
lensku 2. bindi ljóðsög-
unnar: Ég kyssti fót-
spor þín.
Þú, sem komst er gefin
út af Birgitte Hövrings
Biblioteksforlag. Bók-
inn er 224 bls. að
stærð. Prentun og
band er unnið í Prent-
smiðjunni Odda. Bókin er gefín úr
í mjög takmörkuðu upplagi og kost-
ar 2.380 krónur.
Þorsteinn
Stefánsson
I
I
i
I