Morgunblaðið - 18.10.1994, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Frelsi ríkisútvarpsins
og ábyrgð
áhorfendum fyllstu til-
litssemi. Löggjafinn
hefur ætlað Ríkisút-
varpinu að vera gangr-
áður talaðra orða í
landinu og vettvangur
fyrir allan íslenzkan
veruleika. Ekkert er
þar undan dregið. Rík-
isútvarpið fer daglega
höndum um uppistöð-
una í lífi þjóðarinnar
og ívafið, eins og það
leggur sig. Þetta er
hlutverk Ríkisútvarps-
ins, hvorki meira né
minna. Þannig hefur
málum verið háttað í
64 ár. Og þótt margt hafi breytzt
í fjölmiðlun undangengna áratugi
eru skyldur Ríkisútvarpsins í þessu
tilliti öldungis hinar sömu og í ár-
daga.
I 15 grein Útvarpslaga segir:
„Ríkisútvarpið skal halda í heiðri
lýðræðislegar grundvallarreglur og
mannréttindi og frelsi til orðs og
skoðana." Hér er gripið á kviku
Ríkisútvarpsins, og hún er hin sama
og kvikan í lífi alþjóðar: Lýðræðis-
legar grundvallarreglur og mann-
réttindi og frelsi til orðs og skoðana
eru hornsteinar íslenzka lýðveldis-
ins, bundnir í stjórnarskránni. Það
sýnir mætavel, hvert verkefni hið
háa Alþingi ætlar Ríkisútvarpinu,
að slík orð skuli vera að finna nær
upphafi markmiðsgreinar laga um
stofnunina.
Ríkisútvarpið hefur ætíð kapp-
kostað að virða þetta frelsisákvæði
í verki og gerir enn. Hér er reyndar
ekki einungis um að ræða ákvæði
í lögum, heldur þelið í brjósti sér-
hvers íslendings. Ríkisútvarpið hef-
ur á hverjum tíma staðið opið upp
á gátt og heimilt öllum þeim, sem
eitthvað hafa fram að færa lands-
mönnum til heilla, gagnrýni og
glöggvunar. Hvers konar stjórn-
mála- og trúarskoðanir hafa t.d.
átt greiðan aðgang að Islendingum
um rásir Ríkisútvarpsins. Þegar
kemur að framkvæmd þeirrar
reglna, sem stjórn-
málalíf í landinu lýtur,/
hefur Ríkisútvarpið
ævinlega gætt þess
svo sem framast mátti
verða, að hveijum að-
ila væri ætlað sitt rými
í dagskránni. Þessi við-
leitni Ríkisútvarpsins
kemur berlega í ljós,
þegar líður að almenn-
um kosningum, en læt-
ur sín vissulega með
nokkrum hætti getið í
sérhvern tíma annan.
Þannig rækir Ríkisút-
varpið hinn gullna
draum kynslóðanna -
frelsið - eftir fremsta megni.
Enn skal vitnað í 15. grein Út-
varpslaga. Þar segir um Ríkisút-
varpið: „Það skal gæta fýllstu óhlut-
drægni í frásögn, túlkun og dag-
skrárgerð." Hér birtist hinn óhjá-
Ríkisútvarpinu er ekki
aðeins ætlað að standa-
vörð um frelsið, segir
Heimir Steinsson,
heldur jafnframt feta
hinn gnllna meðalveg
óhlutdrægninnar.
kvæmilegi förunautur frelsisins, -
ábyrgðin. Ef frelsið á ekki að snú-
ast upp í glundroða og ráðleysi,
verða menn jafnan að gæta ábyrgð-
ar við framkvæmd þess.
Ríkisútvarpinu er ekki aðeins
ætlað að standa vörð um frelsið.
Það skal jafnframt feta hinn gullna
meðalveg óhlutdrægninnar. Einnig
þessa skyldu hefur löggjafinn lagt
Ríkisútvarpinu á herðar.
Ríkisútvarpið kappkostar að
framkvæma ákvæðið um óhlut-
drægni á fjölmarga vegu. Hér mun
ég nú nefna eina leið. Ríkisútvarpið
Heimir Steinsson
Kveðjupistill
til Sigurðar G.
Tómassonar
RÍKISÚTVARPIÐ er umsvifa-
mesti fjölmiðill hér á landi. Ríkisút-
varpið nær ekki eyrum margra ís-
lendinga og augum, eins og t.d.
DV og rásir íslenzka útvarpsfélags-
ins, né heldur flestra íslendinga,
eins og t.d. Morgunblaðið. Ríkisút-
varpið nær augum allra íslendinga
og eyrum. Rödd Ríkisútvarpsins og
mynd berast inn á hvert heimili, til
innstu dala og yztu nesja og um
þéttbýlið allt í sveit og við sjó. Jafn-
vel á miðum úti leitast Ríkisútvarp-
ið við að ná til þeirra, sem þar velkj-
ast á seltu, þótt á ýmsu gangi um
árangurinn. 116. grein Útvarpslaga
segir: „Ríkisútvarpið skal senda út
til alls landsins og næstu miða tvær
hljóðvarpsdagskrár og minnst eina
sjónvarpsdagskrá árið um kring.“
Ljósvakamiðill, sem slíkum
skyldum er bundinn, hlýtur að leit-
ast við að sýna hlustendum og
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 4934
4507 4500 0021 1919
4507 4500 0021 6009
4507 4500 0022 0316
4543 3718 0006 3233
4548 9018 0034 2321
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Afgreiösiufólk vinsamlegast takiö ofangreind
kwt úf umferð og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VEHBLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og visa á vágest.
m^m VlSA ISLAND
Álfabakka 16-109 Reykjavfk
Sími 91-671700
KÆRI Sigurður.
Nú myndi ég segja: „Sárt ertu
leikinn, Sámur fóstri" - ef það
gæti bara verið á hreinu hvor okkar
væri Gunnar og hvor hundurinn
væni; sennilega verðskuldum við
hvorugt og altént værum við báðir
feigir. Því segi ég aðeins: ósköp er
leiðinlegt að sjá þig þurfa að reka
erindi Elvu Bjarkar og svartasta
hlutans af íhaldinu eins og hver
annar hvolpur.
Við skulum ekki sóa tímanum í
aukaatriði. Við vitum báðir að það
var ekki að þínu frumkvæði sem
ég var rekinn frá Rás tvö; við vitum
jafn vel að það var heldur ekki með
þínum vilja. Gerðu bara eitt fyrir
mig - ekki ljúga. Ekki reyna að
halda því fram að þér finnist allt í
einu að ég hafi „gengið of langt“
eða „verið of persónulegur“ í mínum
pistlum. Ekki reyna að halda því
fram að þú hafir gert athugasemd-
ir um það við mig - það vitum við
báðir að þú hefur aldrei gert. Aldr-
ei. Við vitum líka báðir hver er hin
raunverulega ástæða fyrir því að
þú lætur undan þrýstingi Elvu
Bjarkar um að segja mér upp, þótt
þú sem yfirmaður Rásar tvö eigir
auðvitað að standa með þínu fólki.
Þú ert smeykur, Sigurður. Smeykur
um þína eigin stöðu. Þú ert smeyk-
ur vegna þess að þú gerðir líklega
Við vitum báðir, Sigurð-
ur, að það var ekki að
þínu frumkvæði að ég
var rekinn, segir Illugi
Jökulsson, gerðu bara
eitt fyrir mig, ekki ljúga!
slæm mistök í vor þegar borgar-
stjórnarkosningar stóðu fyrir dyr-
um í Reykjavík.
Þú skrifaðir undir stuðningsyfir-
lýsingu við R-listann - þú, fastráð-
inn yfirmaður við Ríkisútvarpið.
Það var sennilega brot á fyrirmæl-
um útvarpsstjóra um að starfsmenn
hvetur þá, sem tjá sig á rásum
þess, til að gæta hófs í orði og
málflutningi öllum. „Hóf er bezt,
hafðu á öllu máta,“ segir í gamalli
vísú. „Hófstilling" er ánnar draum-
ur kynslóðanna og fylgispakur
frelsisdrauminum á öllum öldum.
Ríkisútvarpið heiðrar hugsjón hóf-
stillingarinnar til jafns við leiðarljós
frelsisins.
Fyrir nokkrum árum tók Ríkisút-
varpið til við að iðka ákvæðið um
frelsi á nýjan hátt: Svonefndum
„pistlahöfundum" var falið að segja
skoðun sína á rásum Ríkisútvarps-
ins. Hér var reyndar einnig á ferð
framhald fyrri hátta: Þátturinn
„Um daginn og veginn" var þannig
gott dæmi um „pistil“ frá öndverðu,
og fleira mætti nefna. En fram-
kvæmdin var ný. Um var að ræða
heillandi aðferð, sem mönnum upp
til hópa þótti fengur að og þykir
enn. Frelsið hafði eignazt enn einn
farveginn um æðar Ríkisútvarpsins.
Þessum nýju frelsisháttum fylgdi
að sjálfsögðu sama ábyrgðin og
allri annarri iðkun Iýðræðisreglunn-
ar. Pistlahöfundum er skylt að
beygja sig fyrir kröfunni um hóf-
semi og sanngirni í málflutningi
rétt eins og öðrum. Ef þeim fatast
í þessu efni, er óhjákvæmilegt að
bera fram athugasemdir við hátt-
semi þeirra, jafnvel gera hlé á máli
þeirra, unz um skipast fyrir þeim.
Ef Ríkisútvarpið ekki gætti þessara
sjónarmiða í umgengni sinni við
pistlahöfunda, gæti það sem hæg-
ast lent í að bijóta ákvæði Útvarps-
Iaga um óhlutdrægni.
Nýlega lét dagskrárstjóri Rásar
2 tvo pistlahöfunda hætta að flytja
mál sitt á rásinni. Rétt er að minna
á að pistlahöfundar eru ekki í hópi
fastráðinna starfsmanna Ríkisút-
varpsins, heldur verktakar. Hér var
því ekki um að ræða „uppsögn“ í
venjulegum skilningi, sízt af öllu
„brottrekstur". Einnig hefur komið
fram, að ákvörðunin var tímabund-
in. Líklegt er, að báðir pistlahöfund-
arnir verði boðnir velkomnir til
sömu starfa á Rás 2 síðar. Þá er
það einnig Ijóst, að báðum munu
nú þegar heimil önnur viðfangsefni
á rásum Ríkisútvarpsins eftir því,
sem um kann að semjast. Hvor um
sig eru þeir þekktir útvarpsmenn
og vel að margs konar verkefnum
komnir.
Annar pistlahöfundurinn var lát-
inn hætta af því að hann hafði
a.m.k. einu sinni farið langt út fyr-
ir þau mörk hófsemdar og tillits-
semi, er að framan greinir. Líklegt
þótti, að honum kynni enn að verða
hið sama á. Aðstæður í íslenzku
mannfélagi gerðu það að verkum,
að ástæðulaust var talið að eiga
slíkt yfir höfði sér að sinni.
Hinn pistlahöfundurinn var bein-
línis látinn hætta vegna reglunnar
um óhlutdrægni. Álitið var óeðli-
legt, að hann héldi áfram pistla-
flutningi, meðan starfsbróður hans
ekki nyti við á Rás 2. Þar af leið-
andi voru báðir kvaddir að svo
stöddu.
Ég var með í ráðum um að hinn
fyrr nefndi pistlahöfundurinn hyrfi
frá um stund. Hafði enda birt hon-
um mjög eindregna viðvörun í bréfi
fyrir meira en fjórum mánuðum.
Framkvæmdastjóri Útvarpsins
hafði þar einnig bein afskipti af,
hefur og gert ýtarlega grein fyrir
rökum sínum, og fellst ég á þá
greinargerð fullkomlega. Dagskrár-
stjóri Rásar 2 var einn um fram-
kvæmd alls þessa máls. Hann tók
og upp á sitt eindæmi ákvörðun um
að láta síðari pistlahöfundinn hætta
í bili. Ég geri hins vegar engan
ágreining við dagskrárstjórann
hvorki um framkvæmd hans né
ákvörðun. Sama máli gegnir um
framkvæmdastjóra Útvarpsins.
Þannig eru þeir yfirmenn Ríkisút-
varpsins, sem málið varðar einhuga
um efnistök í veigamestu greinum.
Það er engan veginn auðvelt að
bera ábyrgð á ákvæðum Útvarps-
laga um frelsi og óhlutdrægni og á
framkvæmd þeirra ákvæða. Þessa
byrði ber yfirstjórn Ríkisútvarpsins
á hverri tíð. „Allt orkar tvímælis,
þá gert er,“ og svo er jafnan um
þessa framkvæmd. Hitt er þó óhjá-
kvæmilegt, að yfirstjórnin axli
ábyrgðina, taki ákvarðanir sam-
kvæmt samvizku sinni og beztu
vitund og standi við þær ákvarðan-
ir, hversu mjög sem um hana kann
að blása. Það hefur verið gert í
þessu tilviki og verður vonandi
framvegis á hveiju sem gengur.
Hinu skal allsendis vísað á bug,
að útvarpsstjóri og samverkamenn
hans láti stjórnast af þrýstingi vald-
hafa við framkvæmd reglunnar um
lýðræði og óhlutdrægni. Sennilega
þyrftu þeir, sem halda slíku fram,
öðru fremur að læra að feta hinn
gullna meðalveg hófstillingarinnar
í málsmeðferð sjálfir.
Höfundur er útvarpssijóri.
RÚV skyldu gæta
hlutleysis í hvívetna
fyrir kosningarnar.
Þetta olli, skal ég segja
þér, gífurlegri reiði í
þinn garð innan Ríkis-
útvarpsins þar sem
nærri öllum starsf-
mönnum fannst að
með þessu væri dregið
stórlega úr trúverðug-
leika og hlutlausri
ásýnd RUV fyrir kosn-
ingarnar. (Ekki fara
að tala um minn pistil
þá. Við vitum báðir að
þér fannst, réttilega,
ekkert athugavert við
hann.) Þú varðst nátt-
úrulega lítið var við reiðina í þinn
garð, af því þú stökkst til útlanda
strax og þú varst búinn að skrifa
undir listann, en þessi reiði var
mjög mikil. Aðeins einn starfsmað-
ur RÚV svo ég heyrði til reyndi að
halda uppi nokkrum vörnum fyrir
þig, með þeim rökum að mannrétt-
indi þín til að skrifa undir stuðn-
ingsyfirlýsingu við stjórnmálasam-
tök hlytu að vera æðri fyrirmælum
útvarpsstjóra ef tryggt væri að
stuðningur þinn við R-listann kæmi
ekki fram í sjálfu starfi Rásar tvö.
Þessi rök bitu Jítið á reiðina í þinn
garð innan RÚV en þessi starfs-
maður var reyndar ég sjálfur.
Hafi sem sé einhver starfsmaður
Rásar tvö „gengið of langt“ eða
„brotið starfsreglur“ fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor, þá var
það ekki ég, heldur þú sjálfur. En
síðan ert þú í veikri stöðu gagnvart
máttarvöldunum, það vitum við
báðir. Ef þér er skipað að reka mig
- svo ég verði ekki
nöldrandi út í ríkis-
stjórnina í heilan kosn-
ingavetur - þá gerir
þú það, af því staða
þín er veik. Ekki nóg
með pólitíkina, heldur
vitum við báðir að ekki
ríkir einróma ánægja
með störf þín sem yfir-
maður Rásar tvö. Þú
hefur séð að hin æðri
máttarvöld sem ráðsk-
ast með hlut Ríkisút-
varpsins þessi misserin
skirrast ekki við að
reka fólk sem þeim lík-
ar ekki við; hví skyldu
þau skirrast við að
reka þig, sem gafst á þér þvílíkan
höggstað með undirskriftinni í vor?
Svo þú gerir eins og þér er sagt.
Þetta vitum við báðir að er
ástæðan fyrir brottrekstri mínum.
Ekki reyna að halda öðru fram,
ekki heldur flækja þig enn frekar
í vef hins sérkennilega fram-
kvæmdastjóra. Ekki varstu að
hugsa um almenna hlustendur Rík-
isútvarpsins og ekki voru markaðs-
lögmálin þér heldur ofarlega í huga
- nema þá hvað snertir framboð
og eftirspurn á þér sjálfum. Þú
varst bara að hugsa um að fá laun-
in þín áfram.
Kannski ég segi það þá eftir allt
saman: „Sárt ertu leikinn, Sámur
fóstri."
Með kveðju og þökk fyrir sam-
starf sem hingað til hefur aldrei
fallið skuggi á.
Höfundur er fyrrv. pistlahöfundur
á RAs 2.
Illugi Jökulsson