Morgunblaðið - 18.10.1994, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Spurningin
Hvað er svona
gott við
Gevalia kaffi?
Sparibolli frúarinnar:
Ilmanin er svo hárfín.
Plastbolli
íslenskukcnnarans:
Það fer svo vel í málinu.
Kanna piparsveinsins:
Keimurinn er svo makalaus.
BoIIi skíðamannsins:
Það rennur svo vel niður.
BoIIi fýlupokans:
Það er svo mátulega súrt.
GEVALIA
- það er kaffið!
______AÐSENPAR GREIIMAR_
Afskipti fjölmiðils
af dómsvaldi
SIÐASTLIÐINN laug-
ardag birti Morgunblaðið
forystugrein undir fyr-
irsögninni „Ofríki stéttar-
félaga“. Þar er fjallað um
kjaradeilu Félags ís-
lenskra atvinnuflug-
manna, FÍA, og flug-
manna við Flugfélagið
Atlanta hf. Svo virðist
sem höfundur greinarinn-
ar hafi aðeins kynnt sér
málið eins og það lítur
út frá sjónarhorni flugfé-
lagsins og bergmálar
málflutning þess fyrir
Félagsdómi. Því er meðal
annars haldið fram, að
FÍA hafí ekki viljað taka tillit til
sérhagsmuna Atlanta, talað um
aðför að félagafrelsi og að Atlanta
kunni að hrekjast úr landi.
Staðreyndir málsins eru þessar.
FÍA hefur frá því á árinu 1994 leit-
ast við að gera kjarasamning við
Atlanta, meðal annars af gefnu til-
efni frá flugmönnum félagsins og
í samstarfi við þá.
Flugfélagið hefur þverskallast
við gerð kjarasamnings og komið
sér hjá greiðslu launatengdra
gjalda, svo sem lífeyrissjóðsið-
gjalda, tryggingagjalds og félags-
og sjúkrasjóðsgjalds. Jafnræði hef-
ur ekki verið milli íslenskra flug-
rekstraraðila að þessu leyti og um
fleiri kjaraatriði og hefur Atlanta
náð yfir helmingi af leiguflugi til
og frá íslandi.
Ég gæti trúað að útgefendur
Morgunblaðsins sættu sig illa við
að launakostnaður samkeppnisaðila
væri Iægri sem svaraði 20 til 30%.
Er gerð sú krafa til stéttarfélaga,
að atvinnurekendum sé ekki mis-
munað í kjarasamningum.
Hvorki gekk né rak í viðræðum
við Atlanta og var deilunni því vís-
að til ríkissáttasemjara. Fyrsti
fundur hjá honum var haldinn að
morgni 30. ágúst 1994. Þar rædd-
ust aðilar við og FÍA lagði fram
kröfugerð í formi kjarasamnings
þar sem að ýmsu leyti var tekið
tillit til sérþarfa Atlanta og lýsti
FÍA sig reiðubúið að taka tillit til
þeirra eins og kostur væri og lög
leyfðu. Þess skal getið, að FÍA hef-
ur áður gert samninga um leigu-
flug. Viðbrögð forsvarsmanna Atl-
anta voru þau, að strax að afloknum
fundinum sendu þeir símbréf til
allra flugmanna félagsins. í sím-
bréfinu er tekið
fram, að FÍA sé í
fullum rétti varðandi
kröfur um samning
fyrir sína félags-
menn, en Atlanta
vilji semja beint við
flugmenn. Þá er lýst
þeirri skoðun, að
með hugsanlegri
vinnustöðvun _ séu
félagsmenn FÍA að
skjóta sig í fótinn,
eins og það er orðað.
Loks fer Atlanta
þess á leit, að flug-
menn félagsins skipi
hið fyrsta þriggja
manna nefnd til þess að taka málið
'upp að nýju við flugfélagið. Atlanta-
menn sáu ekki ástæðu til að láta
FÍA vita af tilmælunum. Þessi við-
brögð og fleiri ónefnd eru andstæð
4. gr. laga nr. 80/1938 um stéttar-
félög og vinnudeilur, sem banna það
að atvinnurekandi hafi áhrif á af-
skipti starfsmanna af stéttarfélög-
um eða kjaradeilum. Lesendur
Morgunblaðsins geta sjálfir lagt
mat á siðferði slíkra vinnubragða.
Fjórir fundir voru haldnir til við-
bótar hjá ríkissáttasemjara þar sem
forsvarsmenn Atlanta fóru undan í
flæmingi, mættu illa til funda og
gáfu ekki skýr svör. Gaf það tilefni
til mótmæla FÍA með sérstakri bók-
un hjá ríkissáttasemjara. Tals-
mönnum FÍA varð síðar ljóst hvern-
ig stóð á þessum töfum og seina-
gangi Atlantamanna. Forsvars-
menn Atlanta náðu fram vilja sínum
með samningum beint við hluta
flugmanna sinna, sem kusu að
stofna nýtt félag flugmanna. Það
skal upplýst, að fyrir stofnun þessa
nýja félags voru 23 flugmenn hjá
Atlanta félagsmenn FÍA. Af þeim
sögðu 13 sig úr FÍA. Einhver hluti
flugmannanna virðist hafa kosið að
vera í báðum félögunum, en sex
flugmenn héldu tryggð við FÍA og
gengu ekki í hið nýja félag. Þessum
flugmönnum eru tryggð réttindi að
mannréttindasáttmálum og lögum.
Þeim er tryggt félagafrelsi og rétt-
ur til að semja um kaup og kjör.
Þeim verður ekki boiað burt með
samningum sem Atlanta hefur gert
við hluta flugmanna. Svokallað for-
gangsréttarákvæði í samningum
hins nýja félags getur ekki haft
afturvirk áhrif. Það er niðurstaða
Mannréttindadómstóls Evrópu í
Kjaradeila FÍA og Atl-
anta, segir Atli Gísla-
son, snýst um heilindi í
samskiptum á vinnu-
markaði.
máli þriggja breskra jámbraut-
arstarfsmanna gegn Bretlandi frá
árinu 1981. Þrátt fyrir þessi skýru
réttindi hefur Atlanta tekið um-
rædda flugmenn af áhafnaskrám
leiguflugs til og frá íslandi eftir
verkfallsboðunina og látið þá gjalda
fjárhagslega fyrir skoðanir sínar og
afstöðu til stéttarfélags síns.
Til glöggvunar um sérþarfir
Flugfélagsins Atlanta vil ég upp-
lýsa, að í samningi félagsins við hið
nýja flugmannafélag eru atriði sem
fela að mínu mati í sér lögbrot og
önnur eru þess eðlis, að samningur-
inn verður marklítill. í samningnum
er ákvæði um að uppsagnarfrestur
skuli vera einn mánuður. Það er
andstætt lögum nr. 19/1979 sem
áskilja allt að þriggja mánaða upp-
sagnarfrest. Þá er samið um að
flugmenn eigi fijálst val um lífeyris-
sjóð. Það er andstætt lögum nr.
55/1980 sem skylda launafólk til
aðildar að lífeyrissjóði viðkomandi
starfsstéttar og atvinnurekanda til
að greiða til hans, enda starfi lífeyr-
issjóðurinn samkvæmt sérstökum
lögum eða reglugerð, sem staðfest
hefur verið af fjármálaráðuneytinu.
í forgangsréttarákvæðinu heimilast
Atlanta að ráða flugmenn gegnum
áhafnaleigur eftir þörfum. Þar með
er atvinnuöryggi félaga hins nýja
flugmannafélags fyrir borð borið.
Þá er samið um 6% lífeyrissjóðs-
tillag Atlanta í stað 16% hjá öðrum
flugrekstraraðilum, en flugmenn
verða, eins og kunnugt er að hætta
störfum 63 ára. Fleiri atriði mætti
nefna, en FÍA er ómögulegt að
semja um sérþarfir Atlanta sem
fela í sér lögbrot eða ganga þvert
á atvinnuöryggi flugmanna og líf-
eyrisréttindi. Um allt annað hefur
FIA verið reiðubúið að semja, en
Atlanta hefur ítrekað vikið sér und-
an samningum. Er illt að FÍA sé
legið á hálsi að vilja ekki semja um
sérþarfír þegar svo er í pottinn
búið. Má benda á, að samningur
Atlanta við nýja flugmannafélagið
byggir á kjarasamningstillögu FIA
að frátöldum þeim atriðum sem
nefnd hafa verið og nokkrum öðrum
sem skipta minna máli.
Á kjaradeilu FÍA og Atlanta eru
margar hliðar. Það veldur vonbrigð-
um, að Morgunblaðið skuli taka
afstöðu án þess að hafa kynnt sér
málstað beggja aðila. Málið snýst
einna minnst um stofnun nýrra
stéttarfélaga heldur um heilindi í
samskiptum á vinnumarkaði og að
nýtt stéttarfélag geti ekki svipt fé-
lagsmenn annars stéttarfélags
þeirra mannréttindum og lífsviður-
væri. Það er einnig gagnrýnisvert
að fjölmiðill hafi afskipti af dóms-
valdi með leiðaraskrifum rétt í þann
mund sem dómarar eru að reyna
að koma sér saman um niðurstöðu.
Höfundur er lögmnúur FÍA.
Tiilvuíax
og motald
Innbyggð, utanáliggjandi, PCMCIA
frá kr. 10.000,-
^éBOÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
v_____________________/
Atli Gíslason
Spurningin
Hvað er svona
gott við
Gevalia kaffi?
Boili prestsmaddöniunnar:
Það er svo ótrúlega
himneskt.
.&UXM-.XW)-!'■1 !i > V'' 5 ’HJ 'li <iL' W LcH* LJWJWW Í
Bolli listamannsins:
Það gefur svo mikinn
innblástur.
Fantur hörkutólsins:
Það er svo ljúft og milt.
‘W ................. .....
Boili tannlæknisins:
Það hefur svo ríka fyllingu.
Bolli bölsýnismannsins:
Ég hef ekki séð það
svartara og betra.
GEVALÍJ
- það er kaffið!