Morgunblaðið - 18.10.1994, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR UIMGLINGA / FIMLEIKAR
Gerplustúlkur bestar
í trompfimleikum
STÚLKURNAR ítrompfimleika-
hópi hjá Gerplu segjast vera
þær bestu á landinu í sinni
grein og það er fátt sem mælir
gegn því. Þær hafa orðið ís-
landsmeistarar síðustu tvö ár-
in og hafa verið á sigurþrepi á
síðustu mótum.
Hópurinn er skipaður stúlkum á
aldrinum 16 - 21 árs og þær
munu fara til Finnlands í næsta
mánuði til að keppa á Norðurlanda-
móti félagsliða í trompfimleikum.
Að því tilefni var þessi skemmtilegi
hópur tekinn tali með það að mark-
miði að fræðast um íþróttina og þá
vinnu sem liggur að baki því að
standa sig í trompfimleikum.
Hörkupúl
„Það er búið að keppa í tromp-
fimleikum í sex ár hér á landi en
það virðast ennþá fáir vita um hvað
þessi íþrótt snýst enda hefur um-
fjöllun fjölmiðla verið lítil sem eng-
in. Viðhorfið hjá sumum er að þessi
íþrótt sé fyrir uppgjafarfímleika-
menn og þó við höfum allar verið
í áhaldafimleikunum þá getum við
ekki tekið undir það. Það er hörkup-
úl að stunda þessa tegund af fím-
leikum og sem betur fer er áhuginn
að aukast. Margir tromphópar eru
starfandi hjá Gerplu og mótin eru
vel sótt af áhorfendum og þá sér-
staklega íslandsmótið. Stemmingin
er líka mikil á mótum, þau hafa
yfir sér yfírbragð sýningar, ganga
'hratt fyrir sig og eru að því leyti
ólík mótum í áhaldafímleikum."
Hópurinn hefur undanfarið æft
mismunandi stökk og dansa en ein-
kunnir dómara byggja að mestu á
mati á samæfíngu og að tímasetn-
ingar séu réttar í dönsum og eftir
því hversu erfið stökk eru leyst af
hendi.
Meðalaldur hópsins er um nítján
ár og það segir sína spgu um aldur-
inn í íslenskum fímleikum að hópur-
inn er elsti tromphópurinn sem
keppir á mótum hér á landi.
„Margir stelpur í fimleikum
hætta alltof snemma, þrettán til
fjórtán ára. Sumar halda áfram í
Tromphópur Gerplu sem æfir
stíft fyrir Norðurlandamót fé-
laga sem fram fer í Finnlandi.
Frá vinstri: Sunna Guðný
Pálmadóttir, Guðný Guðlaugs-
dóttir, Helga Bára Jónsdóttir,
Arna Þórey Þorsteinsdóttir,
Hildur Pála Gunnarsdóttir, Auð-
ur Inga Þorsteinsdóttir og Íris
Ösp Ingjaldsdóttir. Aftast eru
þær Svetlana stökkþjálfari og
Elín Hrönn Jónasdóttir.
trompfímleikum þar sem samvinn-
an er meiri en samkeppnin minni.“
Þrátt fyrir að vera elsti hópurinn
hér á landi verður hópurinn líklega
sá yngsti á Norðurlandamótinu í
Finnlandi.
Stúlkurnar hafa verið iðnar við
það að undanfömu að safna upp í
ferðina með sölu á ýmsum vamingi
en auk þess mæta þær á 5 - 6
æfíngar í hverri viku.
Drengirnir sem æfa fyrir Norðurlandamótið í áhaldafimleikum sextán ára og yngri sem haldið
verður í Danmörku.
Tromphópur
Gerplu
Arna Þórey Þorsteinsdóttir.17
Auður Inga Þorsteinsdóttir (16)
Elín Hrönn Jónasdóttir (18)
Guðný Guðlaugsdóttir (20)
Heiða Steinunn Ólafsdóttir (16)
Helga Bára Jónsdóttir (21)
Hildur Pála Gunnarsdóttir (18)
Jóhanna R. Ágústsdóttir (19)
Sunna Guðný Pálmadóttir (19)
íris Ösp Ingjaldsdóttir (19)
■Hópurinn keppir á NM fé-
lagsliða í Trompfimleikum sem
fram fer í Abo í Finnlandi í
næsta mánuði. Hrund Þorgeirs-
dóttir er aðalþjálfari hópsins.
Svetlana Makarycheva er
stökkþjálfari. (Aldur keppenda
í sviga)
Piltalands-
liðið 16 ára
og yngri
Þórir A. Garðarsson.Ármanni
Ómar Örn Ólafsson....Gerplu
Axe! Ó. Þórhannesson, Ármanni
Daði Hannesson.....Ármanni
Dýri Kristjánsson..Gerplu
Birgir Björnsson...Ármanni
Gísli Kristjánsson.Ármanni
■Mótið er haldið 5.-6. nóvem-
ber. Þjálfari liðsins er Jan Cer-
ven. Elsa Jónsdóttir fararstjóri
og Bjöm M. Pétursson og Heim-
ir J. Gunnarsson verða með í
för sem dómarar.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Óvenjuleg verðlaunaafhending fyrir þá yngstu
ÓHÆTT er að segja að verðlaunaafhending í Hólmaborg- Hólmaborg sem sigldi út miðjan Eskifjörð. Þar sá skip-
armóti sjöunda flokks í knattspyrnu sem fram fór á stjórinn Þorsteinn Kristjánsson um að afhenda verðlaun.
Eskifírði síðla sumars hafi verið með sérstökum hætti. Á myndinni má sjá drengi frá Austra taka við verðlaun-
Mótið var styrkt á áhöfn Hólmaborgar, útgerð skipsins um sínum en félagið sigraði hjá bæði A- og B-liðum
og Landsbankans. Þegar keppni lauk var hinum ungu eftir harða keppni við Þrótt Neskaupstað og Hött.
keppendum boðið upp á veitingar og síðan um borð í B.J. Eskifirði
Fullskipað piltalið
á NM í Danmörku
Sjö piltar keppa um sex sæti
ÍSLENSKT piltalandslið verður
sent á Norðurlandamót ungl-
inga sextán ára og yngri í fim-
leikum sem haldið verður í
Danmörku. Það er í fyrsta
skipti í mörg ár sem íslending-
ar senda fullt lið á Norður-
landamót í þessum aldurs-
flokki. Reiknað er með að sex
piltar fari á mótið sem fram fer
fyrstu helgi næsta mánaðar en
aðeins einn íslenskur keppandi
tók þátt í mótinu í fyrra.
Við verðum ekki í baráttunni í
samanlögðu en ég vonast eftir
því að við eigum möguleika á að
komast í úrslit á einstökum áhöld-
um,“ segir Heimir Jón Gunnarsson,
þjálfari hjá Gerplu sem aðstoðað
hefur Jan Cerven aðalþjálfara liðs-
ins.
Sjö drengir voru valdir í landsl-
iðshópinn í haust og þeir hafa að
undanförnu æft fyrir Norðurlanda-
mótið og hafíð fjársöfnun fyrir ferð-
ina en Fimleikasambandið greiðar
um þriðjung. Ljóst er að einn þeirra
situr heima en hópurinn er skipaður
fimm drengjum úr Ármanni og
tveimur frá Gerplu.
Fyrsta mótið erlendis
„Söfnunin gengur ágætlega og
flestir taka okkur vel,“_sögðu þeir
Axel Þórhannesson úr Ármanni og
Dýri Kristjánsson úr Gerplu þegar
þeir voru spurðir um hvernig gengi
að afla fjár fyrir ferðina. „Þetta
verður í fyrsta skiptið sem við kepp-
um á erlendri grundu en báðir höf-
um við farið erlendis í æfingabúð-
ir,“ sagði Dýri.
Nöfn féllu niður
í umfjöllun um Handknattleiks-
skóla HSÍ á síðustu unglingasíðu
gleymdist að geta þriggja leik-
manna sem valdir voru í skólann.
Það eru þeir Hreiðar Ævar Jakobs-
son, Baldur Knútsson og Trausti
Ómar Sigurðsson. Þeir leika allir
með Fram. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.