Morgunblaðið - 03.11.1994, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Viltu Nýstárleg gjafavöruverslun með
vandaða og fallega listmuni.
gefa gler • keramik •
öðruvísi myndir • smíðajárn •
gjöf? Jymíðar &c£l<art -siuJii'í
■. Suðurlandsbraut 52 (bláu húsin) v. Fákafen, simi 81409(1
£DESAS Þvottavélar
Á FRÁBÆRU VERÐI.
- 850 snúningar á múi.
- Tekur 5 kg. af tivotti.
& Aðeins
47.750 kr.
Staðgreltt.
___K DB ÍS
RflFKEKJflUtRZLUfi ISLflNDS If
Skútuvogi 1, 104 Reykjavík,
Sími: 688660 - FAX 680776.
PRÓFXJDR í
REYKJAN ES KJ Ö RDÆMI
N.K. LAUGARDAG KL.9-21 .
,fltg bið um
stuðning þinn
í eitt tifþremur
efstu sætunum
tprqfkjon
Sjálfstæðisflokk-
sins í Reykjanes-
kjördæmi tuk.
laugardag
ARNI M. MATHIESEN
| f EITT AF ÞREMUR EFSTU |
STUÐNINGSMANNASKRIFSTDFA DALSHRAUNI 1 1 • DPIÐ
ALLA DAGA KL.l 0-2 2 • SÍMAR: 65 43 B9 /65 43 92
FRÉTTIR: EVRÓPA
Kostnaður vegna landamæraeftirlits
Oformlegar við-
ræður við ESB
um einföldun
FULLTRÚAR íslenzkra stjórnvalda hafa rætt óformlega við framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins um að landamæraeftirlit sambandsins við innflutn-
ing íslenzkra sjávarafurða verði einfaldað eftir inngöngu annarra EFTA-ríkja
í ESB. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Kristjáns Skarphéðinssonar, sjáv-
arútvegsfulltrúa í Brussel, til sjávarútvegsráðuneytisins.
Landamæraeftirlit hefur verið af-
lagt eða mjög úr því dregið innan
ESB. í hinum EFTA-ríkjunum hafa
útflytjendur metið það sem svo að
samkeppnisstaða útflutnings þeirra
muni batna um 1%, gangi þau í sam-
bandið og losni þannig við óhagræði
og kostnað af landamæraeftirliti.
Yannis Paleokrassas, sem fer með
sjávarútvegsmál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, sagði, er
hann kom í heimsókn til Noregs í
síðasta mánuði, að verið væri að
þróa nýtt kerfi gæðakrafna til fisk-
afurða í ESB, sem orðið gæti til
þess að hamla innflutningi frá EFTA-
ríkjum, sem stæðu utan ESB. Sér-
fræðingar hafa bent á að þetta stand-
ist ekki, því að samkvæmt EES-
samningnum muni EFTA-ríkin taka
upp nýjar reglur ESB um gæði sjáv-
arafurða jafnóðum.
í áðurnefndri skýrslu er komið inn
á þess imál og fjallað um samkeppn-
isstöðu íslendinga gagnvart Norð-
mönnum, fari svo að öll hin EFTA-
ríkin gangi í Evrópusambandið.
Fram kemur í skýrslunni að með
EES-samningnum hafi íslendingar
yfirtekið allar reglur ESB varðandi
eftirlit með framleiðslu og markaðs-
setningu sjávarafurða. Ekki verði séð
nein tormerki á því að reka erindi á
þessu sviði beint við framkvæmda-
stjórn sambandsins, verði Islending-
ar einir eftir. Undirbúningur sé haf-
inn að óformlegum viðræðum um
þessi samskipti, jafnframt þeim við-
ræðum sem átt hafí sér stað um
landamæraeftirlit.
Eldismenn
vilja aðild
• FISKELDISMENN í Noregi
telja aðild að Evrópusambandinu
nauðsynlega fyrir atvinnugrein-
ina. Þetta hefur Aftenposten eftir
Leif Inge Karlsen, forstjóra Hy-
drotech í Kristiansund. Fiskeldið
skilar 30-40% útflutningstekna
Norðmanna af fiski. Nærri 80%
af útfluttum eldisfiski fer á Evr-
ópumarkað. Karlsen segir að EES-
samningurinn hafi ekki tryggt
þann markaðsaðgang fyrir eldis-
lax, sem vonazt var eftir.
• UTANRÍKISMÁLANEFND
finnska þingsins lýsti því yfir í gær
að þingið ætti þegar þar að kemur
að hafa síðasta orðið um hvort
Finnland taki þátt í þriðja og síð-
asta áfanga Efnahags- og mynt-
bandalags Evrópu (EMU). Aðild
Finna að ESB er nú til umfjöliun-
ar i þinginu og er stefnt að því
að ljúka umræðum í næstu viku.
Úrslit nýjustu skoðana-
kannana um stuðning
við ESB-aðild í Svíþjóð
Kosið verður 13. nóvember
Sifo 29. okt. IMU 29. okt.
Veit
ekki
Nei
Temo28.okt. Gallup 28.okt.
Já
Veit
ekki
Þau eiga að sefa
óánægjuna
ÞAÐ hefur vakið nokkra athygli hvaða málaflokka fulltrúar þeirra tveggja
þjóða, sem enn eiga eftir að greiða atkvæði um ESB-aðild, fá í væntan-
legri framkvæmdastjórn, verði aðild samþykkt. Svíinn Anita Gradin mun
fara með jafnréttis-, innflytjenda- og eiturlyfjamál en Norðmaðurinn Thor-
vald Stoltenberg með sjávarútvegsmál.
Því hefur verið
haldið fram að
rneð því að úthluta
þeim þessum
málaflokkum
(ekki síst sjáv-
arútvegsmálun-
um)- sé ESB að
reyna að auka lík-
urnar á að aðildin verði samþykkt.
Jacques Santer, væntanlegur forseti
framkvæmdastjórnarinnar, gaf það
raunar í skyn eftir fundinn þar sem
framkvæmdastjómin skipti með sér
verkum, er hann sagði það vera mjög
mikilvægt fyrir Noreg að fá sjávarút-
vegsmálin.
Jafnréttismál og
sjávarútvegsmál viðkvæm
Anita Gradin hefur m.a. verið við-
skipta- og innflytjendaráðherra í rík-
isstjóm Svíþjóðar. Hún er jafnaðar-
maður. Staða
kvenna innan ESB
hefur verið mikil-
væg röksemd
gegn aðild í Sví-
þjóð, en jafnréttis-
mál hafa löngum
„ , verið Svíum hug-
Stoltenberg leikjn j yjð
Svenska Dagbladet fyrr í vikunni
sagðist hún telja að nú væri naumur
meirihluti fyrir aðild í landinu.
Thorvald Stoltenberg er fyrrum
utanríkisráðherra Noregs og hefur
einnig gegnt alþjóðlegum trúnaðar-
störfum (yfirmaður Flóttamanna-
hjálpar SÞ og málamiðlari í Bosníu-
deilunni). Sjávarútvegsþáttur aðild-
arsamnings Norðmanna er það, sem
óánægja margra beinist að. Stolten-
berg hefur sagst vonast til að geta
mótað sjávarútvegsstefnu ESB í
anda hinnar norsku.