Morgunblaðið - 03.11.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Málþing um Skula
fógeta og störf hans
REYKJAVIKURBORG efnir til mál-
þings í Viðeyjarstofu á laugardag í
tilefni af 200. ártið Skúla Magnús-
sonar landfógeta. Forseti borgar-
stjórnar, Guðrún Ágústsdóttir,
stjórnar málþinginu og henni til að-
stoðar verður sr. Þórir Stephensen,
staðarhaldari í Viðey. Aðgangur er
öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri setur þingið og ávarpar þátt-
takendur þess kl. 10.15, en haldið
verður úr Sundahöfn með Viðeyjar-
ferju kl. 9.30. Fimm erindi verða
flutt á þinginu og verða stundar-
fjórðungslangar umræður í kjölfar
hvers þeirra.
Erindi Lýðs Björnssonar sagn-
fræðings nefnist Skúli Magnússon,
maður mikilla sæva, og erindi Svein-
björns Rafnssonar prófessors heitir
„Þau íslensku hissugheit." Skúli
Magnússon og íslensk föðurlandsást
á 18. öld.
Að þessum tveimur erindum lokn-
um verður snæddur léttur hádegis-
verður og síðan flytur tónlistarhóp-
urinn Musica Antiqua lög frá 18. öld.
Þriðja erindið flytur Hrefna Ró-
bertsdóttir sagnfræðingur. Það kall-
ar hún Ullarvefsmiðjur Innrétting-
anna: Iðnskóli 18. aldar? Eftir kaffi-
hlé flytja Gísli Gunnarsson dósent
og Þorleifur Óskarsson sagnfræð-
ingur tvö síðustu erindin. Erindi
Gísla heitir Framfarahugmyndir
Skúla Magnússonar og aiþjóðlegar
rætur þeirra og erindi Þorleifs „Hvað
komst það höfuð langt í Reykjavík?"
Myndun höfuðstaðar 1750-1786.
Þingslit eru áætluð um kl. 17 og
verður þá haldið til lands. Þinggjöld
eru engin en fyrir veitingar greiða
þátttakendur 1.000 krónur og feiju-
tollur er 400 krónur. Fari svo að
veður hamli bátsferðum til Viðeyjar
þennan dag verður málþingið haldið
í Tjarnarsal Ráðhússins.
Fundað um bótaábyrgð
heilbrigðisstétta
MÁLÞING um bótaábyrgð heilbrigð-
isstétta og sjúkrastofnana verður
haldið laugardaginn 5. nóvember i
Háskólabíói. Að málþinginu standa
Félag forstöðumanna sjúkrahúsa,
Félag um heilbrigðislöggjöf, Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lands-
samband sjúkrahúsa, Læknafélag
íslands og Lögmannafélag íslands.
Tilefni málþingsins er síaukin
umræða um bótaábyrgð heilbrigðis-
stétta vegna meintra mistaka í starfi
og umfjöllun í fjölmiðlun síðustu
misseri um dómsmál, sem rekin hafa
verið vegna einstakra tjónsatburða.
Markmið málþingsins er að ieiða
saman ýmsar heilbrigðisstéttir, svo
og lögfræðinga, til að skapa faglega
umræðu um þessi mál og skiptast á
skoðunum og hugmyndum.
Arnljótur Björnsson, lagaprófess-
or, ijallar um réttarheimildir og meg-
inreglur um bótaábyrgð, Logi Guð-
brandsson, framkvæmdastjóri
Landakots, um tengsl bótaábyrgðar
heilbrigðisstétta og sjúkrahúsa og
Guðmundur Sigurðsson, læknir, og
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, klínísk-
ur sérfræðingur í hjúkrun, gera grein
fyrir viðhorfum einstakra stétta til
bótaábyrgðar og réttarstöðu þeirra.
Þá gera Tómas Zoéga, læknir og
Ásta Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, grein
fyrir þróuninni í heilbrigðisvísindum
og áhrifum hennar á siðfræðileg við-
horf heilbrigðisstéttanna.
Sigurður Björnsson, læknir, Helga
Jónsdóttir, lektor í námsbraut í
hjúkrunarfræði, og Þórunn Guð-
mundsdóttir, hrl., fjalla um upplýs-
ingamiðlun til sjúklinga og samþykki
þeirra og Gunnlaugur Claessen,
hæstaréttardómari, Matthías Hall-
dórsson, aðstoðarlandlæknir, og Jón
Steinar Gunnlaugsson, hrl., um með-
ferð bótamála innan stjórnkerfisins
og fyrir dómstólum. Loks munu
Kristján Guðjónsson, deildarstjóri í
Tryggingastofnun og Ingvar Svein-
björnsson, hrl., ijalla um trygginga-
þáttinn í slíkum málum.
Ráðstefna um nám og kennslu í lagadeild
Frumkvæði nema
að framförum
LAGANEMAR við lagadeild Háskól-
ans gangast fyrir ráðstefnu í Nor-
ræna húsinu á morgun um nám og
kennslu (lagadeild. Þar verða kynnt-
ar niðurstöður úr ýmsum verkefnum
sem iaganemar hafa unnið, fram-
söguerindl verða fiutt, pailborðsum*
ræður, unnið verður ( hópum o.fl.
óttar Pálsson, laganemi á 3. ári,
sem sseti á í framfaranefnd Orators,
félags laganema, segir að ráðstefnan
sé liður í fjölþættri vinnu laganema
sem staðið hafi í nokkra mánuði og
um fimmtungur allra laganema á
2.-5. ári hafi tekið þátt í. Sem dæmi
nefnir Óttar að nokkrir laganemar
hafi farið utan í sumar og kynnt sér
lagakennslu við nokkra háskóla í
Evrópu, tveir sálfræðingar við fé-
lagsvísindadeild hafi kannað próf 1.,
2. og 3. árs nema í lagadeild síðustu
fímm árin og að kennarar við laga-
deild hafi fengið senda spurninga-
lista. Niðurstöður þessara verkefna
verða kynntar á ráðstefnunni.
Þá hefur hópur laganema unnið
■ KEPPNI í drengja- og telpna-
flokki (fædd 1979 og síðar) í skák
verður dagana 4.-6. nóvember nk.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi og er umhugsunartími
40 mín. á skák fyrir keppenda. Teflt
verður að Faxafeni 12 í Reykjavík.
Þátttökugjald er 800 kr. Innritun fer
fram á skákstað föstudaginn 4. nóv-
ember kl. 18.30-18.55.
(tarlegar verklagsreglur sem Óttar
segist vona að fáist samþykktar
meðal laganema sem krafa þeirra
um að málum verði háttað í sam-
ræmi vlð þær (frumtlðinni, Þær taka
tll þess m.a. að iaganemar hafi að-
gang að upplýslngum á einum stað,
regina um próftökur, skilafrestl o.fl.
Minnispróf þykja úrelt
Annar stór hluti ráðstefnunnar
lýtur að kennslufræðilegum þáttum.
Kennsla í lagadeild fer að mestu leyti
fram í fyrirlestraformi og í prófum
eru dæmi þess að spurt sé spurning-
ar, sem gildir 100% af prófi, en bygg-
ir á aðeins 5% námsefnis og að náms-
mat úr heilsárs námskeiði fari fram
með einu prófi. Óttar segir að þegar
þannig sé staðið að málum sé í raun
bara heppni hver fái hæstu einkunn-
ina. Þessi aðferð sé hvergi viðhöfð í
lagaháskólum í Evrópu. Laganemar
vilji að þessir hlutir fari að breytast.
Ráðstefnan hefst með erindum
laganema. Niðurstöður prófakönn-
unar verða kynntar og þvinæst taka
vinnuhópar til starfa. Stefán Már
Stefánsson, forseti lagadeildar, held-
ur framsöguerindi um stöðu deildar-
innar og að því ioknu verða pallborðs-
umræður, sem Stefán Eiríksson,
fyrrverandi formaður Orators, stýrir.
Áð síðustu kynna Arnljótur Björns-
son, formaður námsnefndar laga-
deildar, og Kristín Edwald, formaður
Orators, niðurstöður ráðstefnunnar.
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 43
STEINAR WAAGE
Rúskinnshanskar
fyrir dömur
Brúnir, svartir,
drappaðir og vínrauðir
St: 6| - 8
Verð: 1.495
Leðurhanskar
fyrir dömur
Brúnir og svartir
St: 7-81
Verð: 2.495
Leðurhanskar
fyrir herra
Brúnir og svartír
St: 10-12
Verð: 2.495
Barnalúffur
Bláar og bleikar
St: 3-6
Verð: 695
Skíðahanskar unglinga
Bláir og fjólubláir
St: S-M-L
Verð: 995
Skíðahanskar dömu
Bleikir/bláir
St: S-M-L
Verð: 1.295
Skíðahanskar herra
Fjólubláir/grænir/
bláir
St: S-M-L
Verð: 1.295
Hermannahanskar
í felulitum
St: 7-11
Verð: 995
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLU AFSLATTU R
STEINAR WAAGE
SKOVERSL U N
Ioppskó
VEITUSUKD! ■ ÚM
nnn
StMt: 21212
V!Ð IKGÓÍ.FST0R6
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN
„Ég óska eftir stuðningi
þínum í 1. sœti listans.
Tr)’ggjum góða þátttöku og
veljum sterkan lista í
þrófkjörinu á laugaráag. “
Zj. 2,
vissum aðgerðum ríkisstjómarinnar hefur náðst mikill árangur á sviði efnaliagsmála á kjörtímabilinu.
Verðbólga er í lágmarki, viðskiptajöfnuður hagstæður þriðja árið í röð og vextir hafa farið lækkandi. Á sama
tíma hafa ríkisútgjöld verið lækkuð, kaupmáttur farið vaxandi og erlendar skuldir hafa verið greiddar niður
um 23 milljarða. Ekkert af þessu er sjálfsagt. Með setu sinni í ríkisstjóm hefur Ólafur G. Einarsson lagt sitt af
mörkum til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar til framtfðar.
í prófkjörinu 5. nóvember veljum við forystu fyrir sjálfstæðismenn í Reykjanesi. TVyggjum Ólafi G. Einarssyni
góða kosningu í fyrsta sæti listans.
Stuðningsmenn
Kosningaskrifstofa Kirkjulundi 19. Símar 659022, 659023 og 659026.
- kjarni málsins!