Morgunblaðið - 03.11.1994, Side 44

Morgunblaðið - 03.11.1994, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens f AFHVERXJ VlLTlfmkl T \FAf£A UTMÉÐ MÉH, L/WA1 ] 'iftjj /o-r BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reylg'avík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Misskilningur varðandi kosn- ingalagaskrif Frá Þorkeli Helgasyni: VALGARÐUR Guðjónsson ritar í þennan dálk hinn 28. okt. sl. at- hugasemd við fyrstu grein mína af þremur um gildandi kosningalög sem birtist í Mbl. fímm dögum fyrr. Andmælir hann tveimur full- yrðingum sem hann telur vera í grein minni. Andmælin byggjast á misskilningi bréfritarans. Það sem farið hefur fram hjá Valgarði er að greinar mínar snúast um kosn- ingalög á grundvelli núverandi stjómarskrárákvæða einvörðungu. Þetta er kirfilega tekið fram í inn- gangi greinarinnar og síðan klifað á því víðar í greininni svo og þeim greinum sem á eftir koma. Mis- skilningur bréfritarans sýnir því að bréf hans er meir ritað af kappi en forsjá. Rökstuðningur þegar birtur Valgarður segir mig fullyrða „að úthlutunarákvæði geti ekki í senn verið sanngjöm og einföld", nokk- uð sem megi hrekja með því að benda á þá einföldu leið að hafa iandið eitt kjördæmi og úthluta sætum með reglu d’Hondts. Enn á ný: Ég er aðeins að fullyrða að innan hins gefna ramma stjórn- arskrárinnar um misstór kjördæmi með innbyggðu misvægi atkvæða en engu að síður kröfu um jöfnun milli flokka geti kosningalög ekki í senn verið sanngjörn og einföld. Rökstuðningur fyrir þessari full- yrðingu birtist í grein í Mbl. hinn 30. okt., þ.e.a.s. eftir að bréf Val- garðs birtist! Bréfritari hefði mátt bíða eftir rökunum áður en hann hóf gagnrýnina. Vissulega er gagndæmi Valgarðs einfalt en slíkt fyrirkomulag er ekki til umræðu í grein minni, eins og yfirvegaður lestur hefði leitt í ljós. Las ekki greinina i samhengi í öðru lagi telur Valgarður mig fullyrða að regla d’Hondts sé „vilhallari atkvæðamestu list- um en aðrar aðferðir" og þar með sé ég „að gefa í skyn að hún sé ósanngjörn". Enn les Valgarð- ur grein mína ekki í samhengi. Tilvitnunin er úr umfjöllun um úthlutun kjördæmasæta og þar er skýrt hví þessi ummæli eru viðhöfð. Skömmu síðar í grein- inni segir hins vegar að í kosn- ingalögunum sé „viðurkenndur sá skilningur . .. að d’Hondts- regla sé viðhlítandi mælikvarði á það hvort samræmi sé milli þing- mannatölu og heildaratkvæða- tölu hvers þingflokks. Til að hnykkja enn frekar á þessum skilningi tók löggjafinn af öll tvímæli um . . . að þeirri reglu skyldi beitt við uppgjör í sveitar- stjórnarkosningum . . .“ Löggjaf- inn var þannig ekki í vafa um sanngirnismælikvarða þann sem felst í d’Hondts-reglu og geri ég þá skoðun að minni. Vangaveltur um tilgang í niðurlagi bréfsins er bréfrit- ari með vangaveltur um tilgang minn með ritun umræddra fróð- leiksgreina. Er því tilefni til að árétta þennan tilgang: Hann er sá að vekja athygli á því að ekki megi vænta neinna töfralausna varðandi einfaldleika og sann- girni við úthlutun þingsæta svo lengi sem krafist er jafnaðar á milli flokka en um leið viðhaldið kjördæmaskipan sem felur í sér misvægi atkvæða eftir búsetu. Að vísu má einfalda núgildandi kosningalög nokkuð, eins og vik- ið verður að í seinustu grein minni, en full sanngirni verður ekki tryggð um leið. Frekari umræða um úthlutun þingsæta hlýtur því að verða að snúast um allróttækar breytingar. ÞORKELL HELGASON, Strönd, Bessastaðahreppi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt t upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.