Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D
270. TBL. 82. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 25. NÓYEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dregur saman með fylkingunum í Noregi
Ætla ekki að virða
nauman já-meirihluta
Ósló. Morgunblaðið
ENN dregur saman með fylkingum
stuðningsmanna og andstæðinga
aðildar Noregs að Evrópusamband-
inu. Þegar tekið er meðaltal niður-
staðna þriggja skoðanakannana,
sem birtar voru í gær, bæta stuðn-
ingsmennirnir enn við sig einu pró-
sentustigi og eru nú 47% þeirra,
sem afstöðu taka, en andstæðing-
arnir eru 53%. Óákvéðnum hefur
fækkað jafnt og þétt og eru þeir
rúmlega 10%.
Eftir því sem líkurnar aukast á
að já-menn gætu orðið ofan á í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni á mánudag,
færist harka í umræður um það
hvort Stórþingið eigi að virða mjög
lítinn meirihluta aðild í vii. I um-
ræðuþætti TV2 í gærkvöldi, þar
sem málið var á dagskrá, var allt
á suðupunkti og stjórnendurnir
urðu að biðja menn að halda kyrru
fyrir í sætum sínum.
Þingmenn Sósíalíska vinstri-
flokksins og Miðflokksins segjast
munu greiða atkvæði gegn aðildar-
samningnum þótt þjóðin segi já með
litlum mun.
Útilokar ekki
slj órnarskr árbr eytingu
Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðherra segist ekki útiloka að
breyta stjórnarskránni þannig að
ijúfa megi þing, efna til kosninga
og freista þess að nýtt þing sam-
þykki aðild, haldi nei-flokkarnir við
afstöðu sína. Slíka breytingu þyrfti
aðeins að samþykkja með tveimur
þriðju hlutum atkvæða og væru
flokkarnir tveir ekki í aðstöðu til
að hindra hána.
í gærkvöldi lýsti Kjell Magne
Bondevik, formaður Kristilega þjóð-
arflokksins, því hins vegar yfir að
flokkur hans myndi ekki styðja
stjórnarskrárbreytingu, en án til-
styrks kristilegra hlýtur hún ekki
samþykki.
■ Brundtland útilokar ekki/19
Reuter
A-Tímorar
til Portúgals
TUTTUGU og níu námsmenn
frá Austur-Tímor, sem hafa
haldið til á lóð bandaríska sendi-
ráðsins í Jakarta og mótmælt
yfirráðum Indónesa í landi sínu,
héldu í gær til Portúgals. Hafa
þeir fengið pólitískt hæli þar i
landi en A-Tímor var áður port-
úgölsk nýlenda. Háskólastúd-
entar í Dili, höfuðborg A-Tímor,
börðust í gær við öryggisverði
en mótmælaaðgerðir hafa verið
tíðar að undanförnu. f yfirlýs-
ingu, sem Amnesty Internation-
al hefur látið frá sér fara, er
lýst áhyggjum af afdrifum 200
námsmanna, sem tóku þátt i
mótmælunum í Dili og Jakarta,
og haft er eftir heimildum á
A-Tímor, að ekkert hafi spurst
til 35 námsmanna, sem hand-
teknir voru vegna mómælanna
á lóð bandaríska sendiráðsins.
Sprengju-
tilræði í
Amsterdam
HOLLENSKIR lögreglumenn
kanna aðstæður eftir að
sprengja sprakk í bíl lista-
mannsins Robs Scholte í mið-
borg Amsterdam í gær og særði
hann lífshættulega. Lögreglan
segist ekki hafa neina skýringu
á tilræðinu. Nokkur sprengjutil-
ræði hafa verið framin í helstu
borgum Hollands á undanförn-
um tveimur mánuðum, sem eng-
in skýring hefur fundist á.
----» ♦ ■«-
Ráðherra
afskrifar
stjórnina
Róm, New York. Reuter.
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, heyr nú harða baráttu
fyrir því að halda lífi í ríkisstjórn
sinni en einn af ráðherrum hans,
vinnumálaráðherrann Clemente
Mastella, sagði í gær að hún væri
því sem næst búin að vera.
Mastella, sem er í Kristilega
miðdemókrataflokknum, lýsti
þessu yfir fyrir fyrsta ríkisstjórnar-
fundinn sem haldinn er eftir að
Berlusconi var tilkynnt að rann-
saka ætti fyrirtæki hans vegna
ásakana um spillingu. Sagði Mast-
ella stjórnina ekki lengur til, hún
gæti ekki stjórnað með þeim litla
meirihluta sem hún hefði og að
ástandið versnaði með degi hveij-
um.
Ekkert sameiginlegt
Ástæðuna segir hann vera þá
að stjórnmálamennirnir úr suðri
og norðri eigi ekkert sameiginlegt,
algjör klofningur sé á milli flokks-
manna Norðursambandsins, sem
Umberto Bossi fer fyrir, og ann-
arra flokka.
Reuter
Bretland
Stjórnin
hótar
kosningum
BRESKA stjórnin ætlar að standa
eða falla með frumvarpi um aukin
framlög til Evrópusambandsins,
ESB, þegar það verður tekið fyrir á
þingi á mánudag. ESB-andstæðing-
ar í íhaldsflokknum hóta að fella
það en þá hyggst John Major forsæt-
isráðherra ijúfa þing og boða til
nýrra kosninga.
Major og ríkisstjórnin reiða sig
á, að ESB-andstæðingarnir í flokkn-
um muni heldur beygja sig og sam-
þykkja frumvarpið en bera ábyrgð
á því „sameiginlega sjálfsmorði",
sem Bill Cash, einn helsti Evrópu-
andstæðingurinn, kaiiaði hugsanleg-
ar kosningar nú.
■ Uppgjör ámánudag/18
Reynt að afstýra því að Bihac-borg í Bosníu falli í hendur Serbum
Major segir hættu á að
sveitir SÞ yfirgefi Bosníu
Sarajevo, Brussel. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, varaði við því í gær að
hætta væri á því að friðargæslulið-
ar Sameinuðu þjóðanna yrðu að
yfirgefa Bosníu ef allsheijarstyijöld
brytist þar út á ný eða þá ef vopna-
sölubannið á Bosníu félli úr gildi.
Lét Major þessa skoðun í ljós í
bréfi til leiðtoga Bandaríkjanna,
Rússlands, Frakklands og Þýska-
lands til að ítreka mikilvægi
Bosníudeilunnar áður en utanríkis-
ráðherrar ríkjanna hittast í Brussel
þann 2. desember nk.
Sir Michael Rose, yfirmaður frið-
argæsluliðsins í Bosníu, sagði að
hermenn Bosníu-Serba hefðu
stöðvað 55 kanadíska hermenn á
vegum Sameinuðu þjóðanna í
grennd við Sarajevo. Auk þess
væru um 200 franskir og úkrainsk-
ir hermenn, er gæta þungavopna
sem tekin hafa verið af Serbum, í
herkví serbneskra hermanna.
„Þeir óttast að við förum í burtu
um miðja nótt og síðan eigi þeir
loftárásir yfir höfði sér,“ sagði
Rose. „Þeir vilja að við verðum
kyrrir. Það er einskonar líftrygging
fyrir þá.“
Serbar héldu í gær áfram sókn
sinni inn á griðasvæðið í kringum
borgina Bihae. Hart var barist á
svæðinu og er talið hugsanlegt að
Serbar nái brátt öllu griðasvæðinu
á sitt vald.
Vilja stækka griðasvæðið
Sendiherrar NATO-ríkjanna
náðu ekki samkomulagi á fundi í
Brussel í gær um tillögur Banda-
ríkjastjórnar um að stækka „griða-
svæðið" í Bihac, og krefjast þess
að Serbar fari þaðan, ella verði
gerðar íoftárásir á þá. Múslimskum
hersveitum yrði einnig gert að fara
af svæðinu, samkvæmt tillögunni.
Heimildamenn segja helstu
ástæðu þess, að ekki hafi náðst
samstaða um þessar tillögur, hafa
verið ágreining um hvaða ríki ættu
að leggja til sveitir á jörðu niðri til
að tryggja öryggi á stækkuðu
griðasvæði við Bihac.
Á meðal annarra tillagna sem
rætt er um til að binda enda á átök-
in í grennd við Bihac-borg er hug-
myndin um að banna flug yfir
svæðum í Króatíu sem liggja að
Bihac.
Rose sagði að bardögunum í
grennd við Bihac-borg hefði linnt
í gær meðan embættismenn Sam-
einuðu þjóðanna reyndu að fá leið-
toga Serba til að fallast á vopnahlé
svo hægt yrði að koma á vopnlausu
svæði umhverfis borgina.