Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 25
Sýningumá
Dpttur Lúsí-
fers að ljúka
NÚ ERU aðeins örfáar sýningar
eftir af einleiknum Dóttur Lúsífers,
sem sýndur hefur verið á Litla sviði
Þjóðieikhússins.
Dóttir Lúsífers fjallar um ævi og
ritverk dönsku skáldkonunnar Kar-
enar Blixen og er brugðið upp
myndum af sérstæðu og litríku lífs-
hlaupi þessarar merku konu.
Það er Bríet Héðinsdóttir sem
leikur Karen Blixen og hefur hún
fengið einróma lof fyrir túlkun sína,
segir í kynningu.
Leikmynd og búninga hannaði
Hlín Gunnardóttir og Ásmundur
Karlsson lýsinguna. Leikstjóri er
Hávar Sigurjónsson.
Dóttir Lúsífers víkur nú af Litla
sviðinu fyrir næsta leikverki, Ole-
anna eftir David Mamet. Síðustu
sýningar eru fyrirhugaðar 25. og
26. nóvember og 1. og 3. desember.
„Hafnarfjörður
fyrr og nú“
LÝÐVELDISNEFND Hafnarfjarðar
og Byggðasafn Hafnaríjarðar standa
fyrir ljósmyndasýningunni „Hafnar-
fjörður fyrr og nú“. Á sýninguni eru
ljósmyndir frá Hafnarfirði, eftir ljós-
myndarana Guðbjart Ásgeirsson og
Herdísi Guðmundsdóttur frá árunum
1920-40 og ljósmyndir eftir Magnús
Hjörleifsson teknar frá sama sjónar-
homi árið 1994.
Sýningin varpar ljósi á þær breyt-
ingar sem hafa orðið á Hafnarfirði
á síðustu 50-70 árum.
Sýningin er í Sverissal Hafnar-
borgar og verður opin frá 26. nóv-
ember til 23. desember.
-----♦ ♦ ♦-----
Kaffi Reykjavík
Norsk djass-
hljómsveit
ÞRIGGJA manna djasshljómsveit
frá Noregi er nú stödd hér á landi,
en hana skipa þeir Olav Daler saxó-
fónleikari, Arild Selm gítarleikari
pg Rolf Presto kontrabassaleikari.
í kvöld föstudagaskvöld munu þeir
svo leika spuna sinn á Kaffi Reykja-
vík kl. 21-23, en þegar líða tekur
á munu í hóp þeirra bætast íslensk-
ir djassleikarar.
Hljómsveitin hefur farið á milli
grunnskóla í Reykjavík og austur á
Hérað. Tónleikaferðin greiðist af
peningagjöf sem Haraldur Noregs-
konungur gaf i tilefni af 50 ára
afmæli lýðveldisins og skyldi renna
til menningarstarfs á íslandi.
----------♦ ♦ ♦-----
Fornar menntir
í TILEFNI af því að út eru komin
þrjú bindi í ritsafni Sigurðar Nor-
dals, sem hafa að geyma ritsmíðar
hans um fornbókmenntir, gengst
Stofnun Signrðar Nordals fyrir dag-
skrá í Norræna húsinu laugardag-
inn 26. nóvember kl. 14.
Þar flytja dr. Jónas Kristjánsson,
fv. forstöðumaður Stofnunar Árna
Magnússonar, dr. Gunnar Karlsson
prófessor og dr. Gunnar Harðarson
lektor erindi um Sigurð, verk hans
og áhrif, og Þorleifur Hauksson
cand. mag. les úr áður óbirtum
drögum að 2. bindi Islenskrar
menningar en það kallaði Sigurður
Fragmenta ultima.
Öllum er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
LISTIR
Tónlist fyrir alla
Skyrgámur
á ensku
VEISTU hver Skyr-gobbler er?
Það er hann Skyrgámur. Jóla-
sveinarnir, Grýla og Leppalúði
mæla á ensku í Leikbrúðulandi
á laugardag, 26. nóvember kl.
15 á Fríkirkjuvegi 11. Aðeins
þessi eina sýning verður á
ensku.
Sunnudaginn 27. nóvember
verða jólasveinarnir aftur farnir
að tala á íslensku og síðustu
sýningarnar að þessu sinni
verða 3. og. 4. desember og hefj-
ast kl. 15 en miðasala er frá kl.
13.
Skyrgámur mun mæla á
ensku í Leikbrúðu-
landi á laugardag.
TÓNLISTARKYNNINGUNNI
undir samheitinu Tónlist fyrir alla
verður haldið áfram og mun Blás-
arakvintett Reykjavíkur heim-
sækja Kópavog og leika á tónleik-
um í Listasafni Kópavogs - Gerð-
arsafni nk. sunnudag, 27. nóvem-
ber, kl. 16.
Tríó, sem þau Martial Nardeau,
Guðrún Birgisdóttir flautuleikarar
og Pétur Jónasson gítarleikari
skipa, fara til Selfoss og þeirra tón-
leikar verða i sal Fjölbrautaskóla
Suðurlands fimmtudaginn 24. nóv-
ember, í dag, kl. 20.30.
Hljómskálakvintettinn, sem
skipaður er fimm málmblásturs-
hljóðfæraleikurum, leikur í Grinda-
víkurkirkju fimmtudaginn 24. nóv-
ember kl. 20.
Til Keflavíkur og Njarðvíkur
kemur Bergþór Pálsson söngvari
og með honum Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari. Þeirra
tónleikar verða í Keflavíkurkirkju
laugardaginn 26. nóvember kl. 17.
Á öllum tónleikunum verða mjög
fjölþættar efnisskrár og það sem
flutt verður kynnt sérstaklega.
Það er Jónas Ingimundarson
píanóleikari sem hefur í samvinnu
við fjölda aðila haft milligöngu um
að koma þessu í kring.
Opið hús laugardag frá kl. 10-18 og sunnudag frá kl. 13-17.
BÚNABARBANKINN
HAFNARFIRÐI
VÍð opnum nýjan banka
í Hafnarfirði!
Opið hús laugardag
frá kl. 10-18 og
sunnudag frákl. 13-17.
Sýning á „Kvöld í Hafnar-
fjarðarborg eftir hálfa öld'
eftir Ásgeir Long.
Sýning á myndverkum
barna í Hafnarfirði.
Verðlaunagetraun.
Veitingar.
Snæfinnur og Snædís
koma i heimsókn.
Næstkomandi laugardag mun Búnaöarbankinn opna
nýjan banka í Hafnarfirði. Bankinn verður í MiÐBÆ,
nýjum verslunar- og þjónustukjarna við Fjarðargötu
sem hefur starfsemi sína um helgina með miklum
hátíðarhöldum. Afgreiðslutími hins nýja banka er
mánudaga til föstudaga frá kl. 9.15 til 16:00.
Sími 65 56 00 - Fax 65 56 01
BARN/\D/\NK]liM
Börnum er gert hátt undir höfði í
hinum nýja banka og fá þau, eins og
aðrir, þjónustu sem sniðin er að
þörfum þeirra.