Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 27
AÐSEMPAR GREIMAR
„Sofa urtubörn
á útskerjum“
Svar til borgarstjóra
FYRIR nokkru skrifaði ég sutta
grein um dagvistarvanda barna
eftir viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu
borgarstjóra og mér finnst ekki
birta mjög yfir stöðu smábarna
eftir svargrein borgarstjórans. Ég
nenni ekki að fara að elta lið fyrir
lið úrtölufjas Ingibjargar Sólrúnar
- en ég skal gera það ef hún vill,
enda tel ég mig þekkja þessi mál
mun betur en hún eftir 40 ára starf
mitt í greininni.
Ingibjörg Sólrún
taíar um að þessi hús
hafi ekki getað risið á
5 mánuðum til að leysa
þennan vanda. Ég
krafðist þess aldrei að
það væri búið að leysa
þennan vanda, heldur
var ég að lýsa von-
brigðum mínum og
áhyggjum, því ég bjóst
við meiri stórhug og
bjartsýni en kemur
fram hjá borgarstjóra
eftir að hafa hlustað á
ræðurnar fyrir kosn-
ingar og milli kosn-
inga. Aðallega skýtur borgarstjóri
sér á bak við fjárhagsáætlun fyrri
meirihluta - þetta fjárhagsáætl-
anatal! Hvað hefur það verið lengi
afsökun valdhafa?
En í síðari grein Ingibjargar
Sólrúnar kemur fram að manni
skilst, að eitthvað verði að bæta
fjárhagsáætlun næsta árs. Af
hvetju talaði borgarstjóri og sam-
starfsfólk hennar aldrei áður um
fjárhagsáætlunarvanda? En nú er
sama talið og úrræðaleysið komið
og enn einn starfshópurinn!
Börnin sem hafa orðið
útundan eru þau, segir
Elín Torfadóttir, sem
hafa verið svo ólánsöm
að foreldrarnir hafa
gift sig eða viðurkennt
sambúð.
Dagvistun barna í Reykjavík
hefur sett ákveðna hópa foreldra i
forgangshóp. það sem ég var að
vona, og fjölmargir aðrir, að nú
kæmi djörf áætlun fyrir vanda
þeirra barna sem útundan hafa
verið. Hver eru þau? Börn sem
hafa verið svo „ólánsöm" að for-
eldrar þeirra hafa gift sig eða viður-
kennt sambúð sína. Það er óskráð-
ur svartur listi.
Hvað er forgangslistinn? Númer
eitt háskólafólk án tillits til að-
stæðna eða fjárhags. Nr. 2 einstæð-
ir foreldrar. Hluti þessara einstæðu
mæðra eru ákaflega illa settur og
á rétt á forgangi og er sannarlega
ekki öfundsverður af stöðu sinni.
En ótrúlega eru þar margar sem
eru „einstæðar“ og í ónefndri sam-
búð með ágætan ijárhag. Þeir for-
eldrar hafa margsagt mér að þetta
heiti sjálfsbjargarviðleitni! Eftirlit
er ekkert og það er mjög erfitt að
segja satt á Dagvistun barna - þá
ferðu nefnilega á svarta listann eða
réttara sagt á engan lista.
Nú er það svo að fólk sem kem-
ur utan af landi og lætur skrá sig
í Reykjavík og hefur skrásetningu
í Háskóla íslands kemst strax á
skrá og oft inn á leikskóla næstum
því næsta dag. Ekki hefur það fólk
greitt til samneyslunnar í höfuð-
borginni. Slík staða skapast vegna
skortsins. Ég hef stjórnað leik-
skóla, þar sem Dagvist hefur sent
mér barn „einstæðrar" móður í
Háskóla íslands. Við lentum í smá-
þrasi um vorið, því hún vildi fá
plássið að hausti án þess að borga
sumarið eins og reglur sögðu til
um. Ástæða hennar var sú að hún
þurfti að skreppa til Mexíkó í u.þ.b.
sex vikur til að hvíla sig eftir próf.
Þessi stúlka átti góða verslun úti
á landi og hafði fengið aðseturs-
skipti örfáum dögum áður en barn-
ið kom til okkar og þarna var líka
sambýlismaður til
staðar. Svona dæmi
gæti ég komið með
utan endi á sama tíma
og börn bláfátækra
hjóna eða sambýlis-
fólks komust ekki á
skrá. Þetta kalla ég
myrkviði smábarna-
foreldra - og ekki má
gleyma rétti barnsins
samkvæmt lögum.
Ingibjörg Sólrún tal-
ar um tæpa 2 milljarða
sem þurfi í byggingar
- þá er hún komin í
það fen sem ég er að
vara hana við. Það að
byggja hús á því verði sem ég kall-
aði arkitektaminnisvarða. Léttar
byggingar geta verið allt að því
eins hlýlegar og góðar að ég tali
nú ekki um heimilislegar. Kaup á
húsum eða notað húsnæði í eigu
borgarinnar er einn þátturinn.
Þetta verður aldrei leyst með
þínum 100 milljóna króna bygging-
um. Ég styð þó hugmyndir þínar
um styrk til einkarekinna leikskóla.
Mér sýnist þú vera föst, Ingibjörg
Sólrún, í gömlum, stöðnuðum hug-
myndum og lausnum og ég er
hrædd um að starfshópurinn þinn
sé það líka.
Nú er ekki lengur hægt að skýla
á bak við að þetta sé íhaldinu að
kenna, nú verðið þið sjálf að sýna
þor og hug til að koma með nýjar
hugmyndir og lausnir - það hefur
því miður ekki komið fram ennþá,
Ingibjörg Sólrún!
Það þýðir ekki fyrir þig að tala
við mig með þeim hroka sem var
í grein þinni. Ég fullyrði að ég
þekki miklu betur en þú vanda
þeSsara litlu barna.
Að endingu. Ég spurði þig hvern-
ig þið ætluðuð að leysa vandann
með starfsfólk, þar sem nú er um
65-70% starfsfólksins svokallað
ófaglært fólk, sem þýðir bara að
það hefur ekki lokið námi í Fóstur-
skóla íslands í Reykjavík. Fóstur-
skóli íslands er ekki heilög stofn-
un. Gæti ekki verið fósturskóli á
Akureyri? ég veit það að ekki eru
slakari kennarar þar en hér. Af
hveiju þurfa allir nemendur að
koma til Reykjavíkur til að nema
í fósturskóla og þannig hefur það
verið í 45 ár? En auðvitað veit ég
að þau mál eru ekki þín „sök“ eða
R-listans.
Mikið lifandi ósköp eigum við
því fólki mikið að þakka sem hefur
unnið í leikskólum með fóstrum og
komið á móts við þörfina á starfs-
liði.
Að lokum, þessi R-listi verður
sjálfur að finna lausnir, koma þeim
í framkvæmd til þess þarf kannski
algjört endurskipulag Dagvistunar
barna, það þarf frjóar lausnir og
mannúðlegar, minnug þess að það
sem börn þurfa helst er öryggi og
alúð.
Gakktu með stórhug í að leysa
þennan vanda, Ingibjörg Sólrún,
en gerðu ekki fólk svartsýnt með
greinaskrifum þínum og viðtölum.
Boðaðu lausnir og betra líf fyrir
börn og foreldra þeirra - og stattu
þig í því!
Elín Torfadóttir
NOATUN
UNGNAUTAKJOT UN1
Nautagúllash
799.-“
Nautafille
1.599.-
Nautasnitzel
899.-B
Sun Glory
<00% Hreinn ávaxtasafi
appels/nu • .9 eplasVfi
TILBOÐ
VIKUNNAR!
Rauðvínslegmr
lambahryggir
629.-
Hamborgarar
4stk.
með brauði
199.-
12 rúllur
hvítur WC pappír
239.-
Uppþvottalögur
Forúla 7
1 Itr. 49.-
J*a«Wntoshs
konfekt 2 kg.
1-989..
Kókosmjöl
200gr
36:
’ 49,-
OÖKUNAR
ILB0Ð
Jólasmiörið
500gr
122:
Lakkrís
konfekt 1 kg.
399.-
Strá>
tykiir
Wónu
•tertuhíúput
3000*
Amerískt
hágæðahveiti
shop-rite
2,3 kg.
99.' 89.-
7 kg.
55,
4S,
279, 50%
59,
NOATUN
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456,
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062, Þverholti 6, Mos. - S 666656,
JL-húsinu vestur í bæ - S. 28511, Kleifarseli 18 - S. 670900
Höfundur er fóstra.