Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 39
eftir standa minning um mætan
mann.
F.h. Knattspyrnufélags Akur-
eyrar,
Sigmundur Þórisson.
Mig setti hljóðan þegar sú
hörmulega frétt barst að Sveinn
R. Brynjólfsson hefði látist í bíl-
slysi laugardaginn 19. nóvember
síðastliðinn. Maður á erfitt með að
trúa, að ungur og dugmikill maður
skuli vera horfinn af okkar vett-
vangi í blóma lífsins.
Ég hef þekkt Svein frá barnæsku
þar sem við vorum á svipuðu reki.
Sveinn ólst upp í Ólafsfirði og
dvaldi þar þangað til skólagöngu
lauk. Við leigðum íbúð saman í
einn vetur á Akureyri er við vorum
í skóla þar. Það var einmitt þar sem
hann hitti konuefni sitt, Sigrúnu,
þau fóru að búa þar og eignuðust
íbúð og þrjú börn.
Kynni okkar Sveins eða Denna
eins og ég kallaði hann alltaf voru
náin og áttum við sameiginlegt
áhugamál, þ.e.a.s. knattspymuna.
Denni var ótrúlega ötull og dugleg-
ur að starfa í kringum áhugamál
sitt. Hann var meðal annars for-
maður KA í tvö ár og nú síðustu
tvö árin formaður meistaraflokks-
ráðs KA, auk þess sem hann gegndi
margvíslegum störfum fyrir félag
sitt.
Samskipti félaga em mikil nú
orðið, við hjá Leiftri höfum haft
mjög gott samstarf við KA. Alltaf
var hægt að snúa sér til Denna,
hann var boðinn og búinn að leysa
þau mál sem upp komu, hann hefði
góðar taugar til okkar enda gam-
all Leiftursmaður.
í sumar og í haust hefur íþrótta-
hreyfingin í Olafsfirði verið að und-
irbúa að koma upp félagahúsi fyrir
hreyfinguna. Við leituðum til
Denna um að teikna og hanna
húsið. Hann var ekki lengi að hugsa
sig um að taka þetta að sér. Hann
gjörþekkti allar aðstæður og einnig
hafði hann mikla þekkingu frá því
að KA byggði upp sitt félagahús.
Við Denni áttum langt og gott
samtal föstudagskvöldið 10.
nóvember síðastliðinn en þar var
hann að fylgjast með innanhúss-
knattspyrnu í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri. Denni var nefnilega alltaf
viðstaddur þar sem knattspyrna var
háð. Hann var fullur af orku og
spenntur að fara til Ólafsfjarðar
næsta morgun til að kynna sína
teikningu að húsinu og einnig til
að heimsækja móður sína sem býr
í Ólafsfirði. Því miður éndaði sú
ferð hörmulega.
Við hjá knattspyrnuhreyfingunni
höfum misst mikið, því miður fáum
við ekki að njóta krafta hans meira
en þó er missirinn meiri hjá eigin-
konu, börnum, móður og systrum
sem hafa misst góðan dreng í
blóma lífsins. Hann átti eftir að
framkvæma svo mikið og hafði
fullt að góðum hugmyndum sem
hann ætlaði að framkvæma.
Megi góður guð styrkja þau á
þessum erfiða tíma.
Ég og fj'ölskylda mín sendum
ykkur dýpstu samúðarkveðjur,
megi minning Sveins lifa um ókom-
in ár.
Þorsteinn Þorvaldsson, form.
knattspyrnudeildar Leifturs.
Elsku Sveinn. Þakka þér fyrir
að vera alltaf sá, sem hægt var
að treysta.
Bryiyólfur Sveinn.
Kveðja frá Knattspyrnu-
sambandi íslands
Stór skörð eru nú höggvin með
stuttu millibili í raðir leiðtoga
knattspyrnuhreyfingarinnar á Is-
landi. Einn ötulasti baráttumaður
knattspyrnumála hjá Knattspyrnu-
félagi Akureyrar, Sveinn R. Brynj-
ólfsson, lést í hörmulegu bílslysi
rétt utan Akureyrar síðastliðnn
laugardag. Félagar Sveins í knatt-
spyrnuhreyfingunni voru harmi
slegnir þegar fréttin um hið svip-
lega andlát hans spurðist. Ekki var
MINNINGAR
nema hálfur mánuður í ársþing KSÍ
þar sem við áttum von á að hitta
Svein. Hann hafði nýlokið við að
skila frá sér þremur tillögum til
afgreiðslu á ársþinginu, sem eins
og endranær sýndi að hann var
sívakandi fyrir því sem betur mætti
fara, sérstaklega hjá yngri aldurs-
flokkunum.
Sveinn starfaði mörg undanfarin
ár innan Knattspyrnudeildar KA
og var um skeið formður deildar-
innar. Hann var einn af þessum
ötulu knattspyrnuleiðtogum, sem
eru sívinnandi að þessu áhugamáli
sínu og finnst þeim aldrei leggja
nóg af mörkum. Sveinn var mikill
málafylgjumaður og gat verið
þungur á sínum skoðunum, en hann
var stöðugt að hugsa um nýjar og
betri leiðir til að fara innan knatt-
spyrnunnar. Eitt af stóru baráttu-
málum Sveins, og í reynd hugsjón
hans undanfarin tvö ár, var að sjá
knattspyrnuhús rísa á Akureyri.
Honum var það ljóst að knattspyrn-
an á Akureyri og Eyjarfjarðar-
svæðinu drægist aftur úr yrði að-
staða til vetraræfinga ekki bætt frá
því sem hún er nú. Hafði Sveinn
mjög eindregnar og ákveðnar skoð-
anir í þessu máli, sem án vafa hef-
ur haft sitt að segja um að málið
hefur nú þokast nokkuð áleiðis í
kerfinu.
Knattspyrnuhreyfingin er ekki
söm og áður við að missa slíkan
leiðtoga sem Sveinn var. Leiðtoga,
sem alltaf var reiðubúin að sjá af
tíma fyrir hugsjón sína: fótboltann.
Honum eru að leiðarlokum þökkuð
hans miklu og ómetanlegu störf
innan knattspyrnuhreyfingarinnar
og hans er þar sárt saknað. En
söknuðurinn og missirinn er að
sjálfsögðu mestur hjá eiginkonu og
börnum. Þeim votta ég innilega
samúð knattspyrnuhreyfingarinn-
ar. Eftir standa minningar um mik-
inn drengskaparmann og góðan
félaga. Hafi hann þökk fyrir allt
og allt.
Guð blessi minningu Sveins R.
Brynjólfssonar.
Eggert Magnússon formaður KSÍ.
Kveðja frá Knattspyrnu-
dóraarafélagi Akureyrar
Síðastliðinn laugardag bárust
mér þau válegu tíðindi að Sveinn
Brynjólfsson, varaformaður
Knattpyrnudeildar KA, hefði látist
af slyförum fyrr um daginn. Mér
var illa brugðið við þá hörmungar-
fregn og sat orðlaus og agndofa
langa stund. Hver er tilgangurinn?
Hvert er réttlætið? Slíkar spurning-
ar skjóta upp kollinum þegar ein-
stakur úrvalsmaður í blóma lífsins
er kallaður burt í skyndingu. Það
fer fyrir mér eins og öðrum; ég
finn engin svör.
Kynni okkar Sveins hófust þegar
hann fór að starfa fyrir Knatt-
spyrnufélag Akureyrar fyrir tæp-
um áratug. Hann var fljótlega kjör-
inn í stjórn knattspyrnudeildarinn-
ar, tók síðar við formennsku í deild-
inni og nú síðast var hann varafor-
maður hennar.
Sveinn gerðist snemma tengilið-
ur okkur knattspyrnudómaranna
við stjórn Knattspyrnudeildar KA.
Við bárum okkar mál undir hann
og oftast fengu þau þær undirtekt-
ir og afgreiðslu sem allir gátu unað
sáttir við. Árið 1988 tók Sveinn sig
til, við annan stjórnarmann, og fór
á dómaranámskeið til að nema
fræðin okkar. Hann sagðist sjálfur
vita að starf knattspyrnudómarans
ætti ekki vel við sig. Hins vegar
vildi hann kynnast starfssviði okkar
sem best og taldi réttilega að dóm-
aranámskeið væri góð leið til þess.
Þetta segir meira en mörg orð um
hve duglegur og réttsýnn félagi
Sveinn var.
Sveinn var fastur fyrir og gagn-
rýninn á störf okkar dómaranna.
Þar talaði hann af þekkingu og
innsæi og vildi ávallt vel. Til marks
um það má nefna að hann var
ákafur talsmaður þess að sem flest-
ir leikmenn sæktu dómaranám-
skeið til að kynnast knattspyrnu-
lögunum sem best og öðlast aukinn
skilning á starfi dómarans. Með
þeim hætti taldi Sveinn að draga
mætti úr togstreitu milli dómara
og leikmanna, sem aftur kæmi
leiknum sjálfum til góða. Sveinn lét
ekki sitja við orðin tóm í þessum
efnum í formennskutíð sinni. Fjórt-
án leikmenn 2. flokks KA luku
dómaraprófi árið 1991 og níu árið
eftir og er mér nær að halda að
það íslandsmet verði seint slegið.
En Sveini fannst ekki nóg að
gert að hvetja sem flesta knatt-
spyrnumenn til að kynna sér starf
dómarans. Hann tók einnig ljúflega
í það að greiða götu okkar í bún-
ingamálum og með tilstilli hans
tókst farsælt samstarf milli Knatt-
spyrnudómarafélags Akureyrar og
KA í þeim efnum. Við nutum sömu
kjara og KA í búningakaupum og
stjórn knattspyrnudeildarinnar sá
til þess að ávallt væri til dómara-
búningur í KA-húsinu svo enginn
þyrfti að sinna störfum dómara í
óviðeigandi klæðnaði.
Fyrir allt þetta og ótal margt
annað vil ég þakka Sveini nú, á
þessari þungbæru kveðjustund.
Hans er sárt saknað.
Ég laut þar yfir rósina, svo enginn annar sá,
að öllum sóttu lífsins þungu gátur.
Svo kynt var þama inni að klukkan hætti að slá
en klökkvans þögn er innibyrgður grátur.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Ég sendi Sigrúnu, eiginkonu
Sveins, börnum þeirra og öðrum
aðstandendum hugheilar samúðar-
kveðjur. Megi góður Guð veita þeim
styrk í þungri raun.
Fari góður drengur í friði.
Fyrir hönd Knattspyrnudómara-
félags Akureyrar,
Valdimar Freysson.
Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að.
Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur.
Og nú er allt um seinan að sýna þér allt
það traust
sem samferðafólki þínu hingað til láðist
að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust
að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist.
(Tómas Guðmundsson).
Hvar er Sveinn? Þessi spurning
kom upp í huga okkar KA-manna
þar sem við vorum við keppni þenn-
an örlagaríka dag. Sveinn sem
ætíð mætti fyrstur og fór síðastur
var ekki kominn þegar fyrsti leikur-
inn hófst. Okkur fannst sem eitt-
hvað mikið vantaði. Þegar reiðar-
slagið kom, að Sveinn væri dáinn,
þá fannst okkur sem tíminn hefði
stöðvast: Maðurinn sem hefur fylgt
okkur gegnum súrt og sætt er ekki
lengur á meðal okkar. Maðurinn
sem við leituðum til með okkar
vandamál, tengd knattspyrnu og
daglegu lífi, er látinn.
Sveinn var til fjölda ára í stjórn
knattspyrnudeildar KA. Skipti
engu hvort hann var formaður eða
gegndi öðrum störfum, fórnfýsin
var ætíð söm. Sveinn var sá stjórn-
armaður sem hafði mest samskipti
við leikmenn, hann fylgdi okkur á
alla leiki og hnýtti þá lausu enda
sem þurfti. Hann var okkur sá fé-
lagi og bakhjarl sem hveiju liði er
ómetanlegur. Nú hefur Sveinn lok-
ið sínu dagsverki í okkar þágu og
verið kallaður til annarra og mikil-
vægari starfa á öðrum vettvangi.
Við KA-strákarnir erum
þakklátir fyrir að hafa fengið að
starfa með þér, Sveinn, og eiga þig
að sem félaga. Við hefðum óskað
að þau kynni hefðu varað lengur,
en nú verður þú að hlýða kalli hins
æðsta dómara.
Missir okkar er mikill og sár, en
meiri er missir fjölskyldunnar sem
nú sér á eftir ástkærum föður og
eiginmanni.
Við vottum ykkur, Sigrún, Binni,
Sandra og Birkir, okkar innilegustu
samúð.
Megi Guð veita ykkur styrk.
„Hinn vitri safnar ekki auði. Því
meiru sem hann ver öðrum til
gagns, -því meira á hann sjálfur.
Því meira sem hann gefur öðrum,
því ríkari er hann sjálfur.“
(Lao-Tse.)
Þjálfarar og leikmenn
mfl. KA í knattspyrnu.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓIMAGUÐRÚN
FINNBOGADÓTTIR KJELD,
sem lést mánudaginn 14. nóvemer,
verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkur-
kirkju í dag, föstudaginn 25. nóvember,
kl. 15.00.
María Kjeld,
Hanna Kjeld,
Kristbjörg Kjeld, Guðmundur Steinsson,
Matthías Kjeld, Marcella Kjeld,
Anna Jóna Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu,, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
SVEINS GUÐMUNDSSONAR,
Bjarkarhlíð 2,
Egilsstöðum.
Sérstakar þakkir til björgunar- og hjálparsveita á Héraði og nær-
sveitum.
Sæunn Stefánsdóttir,
Malen Sveinsdóttir, Hafsteinn Pétursson,
Valborg Sveinsdóttir, Steinþór Þórðarson,
Veigur Sveinsson,
Stefán Bogi Sveinsson
og barnabörn.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
GUNNARS GÍSLASONAR
vélstjóra,
Gnoðarvogi 64,
og heiðruðu minningu hans.
Sérstakar þakkir eru færðar séra Braga
Skúlasyni, læknum og hjúkrunarfólki á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Guð blessi ykkur öll.
Kristin B. Waage,
Helga Erla Gunnarsdóttir, Ólafur Friðriksson,
Benedikt Einar Gunnarsson, Erla Magnúsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
INGIBJARGAR FRÍMANNSDÓTTUR
og
SIGURÐAR ÁGÚSTSSONAR.
Ágúst Karl Sigmundsson, Ágústína Ólafsdóttir,
Frfmann Kristinn Sigmundsson, Herdís Ragna Þorgeirsdóttir,
Margrét Bára Sigmundsdóttir, Ingvi Th. Agnarsson,
Hilmar Sigurðsson, Kristín Guðmundsdóttir,
Esther Sigurðardóttir, Örn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. verður
lokuð í dag, 25. nóvember 1994, frá kl. 13.00,
vegna jarðarfarar INGA S. ÁSMUNDSSONAR.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf.