Morgunblaðið - 03.01.1995, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Framtíð til þroska
Athuga þarf hvort ekki
eigi að ákveða kjör heil-
brigðisstétta í kjara-
dómi, segir Olafur
Þekking eykst með ári hverju
Læknisfræðin hefur tekið mikl-
um breytingum og framundan eru
meiri breytingar. Kjarneðlisfræði,
erfðalækningar og háþróuð upp-
lýsingatækni hafa þar afgerandi
þýðingu. Framfarir við sjúkdóms-
greiningar og þekkingu á tilurð
sjúkdóma ásamt bættum með-
ferðarmöguleikum munu breyta
högum sjúklinga. Sem dæmi má
nefna smitsjúkdóma, alzheimer,
liðagigt og meðfædda sjúkdóma.
Tölvusamskipti munu auðvelda
mjög upplýsingaflæði og bæta
gæði heilbrigðisþjónustunnar.
Afleiðingar atvinnuleysis
I kjölfar atvinnuleysis fjölgar
þeim er starfa „réttindalausir“ á
gráum vinnumarkaði, tekjur heimil-
anna lækka, launamismunur vex og
stéttaskipting eykst. Þessu fylgja
eftirköst, því fólk í láglaunastéttum
t.d. á íslandi þjáist ennfrekar af
langvinnum sjúkdómum s.s. gigt,
hjarta- og æðasjúkdómum og
lungnasjúkdómum en aðrar þjóðfé-
lagsstéttir. Orsökin er m.a. erfíðara
starfsumhverfi, slítandi starf og
jafnframt reykja þessar stéttir
gjaman meira en aðrar, temja sér
óheppilegri matarvenjur og stunda
síður alhliða líkams-
þjálfun. Áfleiðingin er
að yngri og eldri styrk-
þegum hins opinbera
fjölgar og kostnaður
við félags- og heil-
brigðisþjónustu eykst
verulega.
Að lækna en ekki
fyrirbyggja
Forvömum hefur
verið nokkuð vel sinnt
á Islandi en þó má
margt betur gera.
Glasafijóvgun er nú
sinnt í auknum mæli
vegna vaxandi tíðni
ófijósemis. Mörg hundruð konur
fylla biðlista. Klamydíu-sýking er
algeng meðal kvenna og gefur lít-
il einkenni en veldur m.a. bólgum
í eggjaleiðurum. Örvefur sem
myndast eftir þessa sýkingu á
m.a. sök á utanlegsþungun en
þeim tilfellum hefur fjölgað mjög.
Jafnframt er þekkt að örvefs-
myndun eftir þessa sýkingu veldur
‘/4-73 af langvarandi ófijósemi.
Rétt væri að skima reglulega fyrir
þessar sýkingu því auðvelt er að
lækna þetta. Kostnaður við eina
til tvær glasafijóvgunaraðgerðir,
en hver þeirra kostar 250.000 kr.,
myndi fara langt með
að kosta reglulegar
skimanir á íslandi fyr-
ir klamydíu meðal
18-25 ára kvenna og
draga þannig veru-
lega úr tíðni ófijó-
semi.
Of ströng lög um
líffærabrottnám?
Árangur við líf-
færaflutninga er orð-
inn mjög góður.
Margir álíta t.d. að
jafna megi árangri
nýrnaflutninga fyrir
nýrnasjúklinga við
uppgötvun insúlíns, fyrir sykur-
sjúka, fyrir 70 árum. Erlendur
kollegi minn sem greindist með
sykursýki 1921, en þá hafði hann
nýlokið læknisnámi, tjáði mér að
honum var áetlað að lifa í tvö ár.
Ári síðar fékk hann skeyti frá vini,
sem vann hjá dr. Banting í Kanada
en sá hafði fundið insúlínið. Skeyt-
ið var stutt: „Komdu strax, insúlín-
ið fundið". 45 árum síðar rann
honum enn vatn milli skinns og
hörunds er hann minntist þessa
skeytis! Á Norðurlöndum er talið
að aðeins helmingur þeirra er
bjarga má með líffæragjöf eigi
Ólafur Ólafsson
ÍSLENSKT MÁL
Enn á ég Baldri Ingólfssyni
að þakka liðsinni við þáttinn og
móðurmálið:
„Kæri Gísli.
Mér blöskraði þegar ég las
þessa dagana frétt í Morgun-
blaðinu [nóv.] um menn sem fóru
í eftirleit austur á Mývatnsfjöll
og fundu þar útigengna ær. Ég
á bágt með að trúa að Mývetn-
ingur hafi komist svona að orði,
en hafi það verið blaðamaðurinn
sem samdi fréttina, þyrfti hann
að vanda sig betur.
Vegna þess að furðu margir
eiga í erfiðleikum með að beygja
orðin ær og kýr langar mig að
biðja þig að sýnæ beygingu
þeirra. Eintala
án greinis með greini
nf. ær nf. ærin
þf. á þf. ána
Þgf- á þgf- ánni
ef. ær ef. ærinnar
nf. kýr nf. kýrin
þf. kú nf. kúna
Þgf. kú þgf- kúnni
„ ef. kýr ef. kýrinnar
Fleirtala
án greinis með greini
nf. ær nf. æmar
þf. ær þf. æmar
þgf- ám Þgf. ánum
ef. áa ef. ánna
nf. kýr nf. kýmar
Þf- kýr þf. kýrnar
Þgf- kúm þgf- kúnum
ef. kúa ef. kúnna
Það er kannski að bera í
bakkafullan lækinn að fara að
ræða líka um kvenkynsorðið sýr
(= gylta) sem mun hafa beygst
eins og kýr meðan það var við
lýði. Það er enn varðveitt í bæja-
nöfnunum Sýrnes og Sýrlækur
og svo var einu sinni konungur
í Noregi sem var nefndur Sig-
urður sýr.“
Við þetta er því einu að bæta,
að viðumefni Sigurðar Hálfdan-
arsonar, sýr, var iðulega haft
óbeygt, t.d. í Ólafs sögu helga
eftir Snorra.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
777 þáttur
★
Leó er hrein latína og merkir
ljón. Snemma þótti við hæfi að
slíkt nafn bæru páfar, konungar
og kappar í sögum og rímum.
Nafnið virðist ekki bráð-
snemma hafa orðið skírnarheiti
hérlendis, elsta dæmi, sem ég
finn og er þá einsdæmi, er Leó
Halldórsson, fjögurra ára hús-
mannssonur í Saltvík á Kjalar-
nesi, fæddur í Norðuramtinu.
Þetta nafn fór vítt um lánd,
afar hægt í fyrstu, en nú bera
það um 150 íslendingar. Algeng-
ara er það sem síðara nafn en
fyrra.
★
Upprekur ofan kvað:
Að eiga tólf flöskur af Finlandía
er stórfenglegra en ég kann að
að ýja,
sagði herra Pétúr
og saup á meira og betur,
og symfónían stórlék Finlandía.
★
Ýmsir hafa verið forvitnir um
orðið kvarg, svo sem von er.
Þessi mjólkurafurð er ekki gömul
á landi hér, kannski nokkurra
ára. En hráefnisheitið kvarg
hefur verið lengur við lýði í ís-
lenskum mjólkuriðnaði. Það sem
_ umsjónarmaður skrifar um þetta
orð, byggist á upplýsingum frá
Mjólkursamsölunni, Mjólkur-
samlagi KEA og samtölum við
menn sem hafa snætt þessa fæðu
erlendis.
Kvarg er tökuorð, lítillega
breytt. Er þá fyrst að Ieita í
þýsku, því að viðmælandi minn
einn hafði etið „Kvark“ í Þýska-
landi. í orðabók Jóns Ófeigssonar
er nafn þessarar fæðu Quark.
Það er talið merkja mjólkurhlaup,
ystingur og sitthvað fleira. Mér
er tjáð að það sé skyldast skyri
af því sem við þekkjum best,
bæði að gerð og bragði.
í Nudansk ordbog stendur
kvark, orðið sagt komið í dönsku
úr þýsku og þangað úr serb-
nesku. Kvark er skilgreint á
dönsku „syrnet mælkeprodukt“
og tekið fram að orðið sé ekki til
í fleirtölu. íslendingum mun hafa
þótt eðlilegra að hafa orðmynd-
ina kvarg, enda er orðið þá
mýkra með g í stað k í endann.
★
Um jól og áramót er það seg-
in saga, að fólk spyr um heiti
áhalds þess sem sumir hafa til
að slökkva á kertum. Um það
hef ég heyrt eða séð þessi orð:
Skarklofi, skaraklofi, skar-
panna, skarhjálmur, ljósabani
og ljóskæfa.
Ég hef minnst á flest þessara
orða áður, svona dálítið á tvist
og bast, hér í pistlunum, en set
nú saman svolítið yfirlit:
1) Skarklofi kemur fyrir árið
1542 í Islensku fornbréfasafni
(Diplomatarium Islandicum).
2) Skaraklofi er í Guð-
brandsbiblíu (frumpr. 1589). Þar
sem menn hafa dregið í efa
merkingu orðsins, læt ég hér
fylgja hluta af Annarri Móse-
bók (Exodus), svo að sjáist að
merkingin er skýr: „Þú skalt og
gjöra sjö lampa þar á ofan, so
að þeir lýsi hver í gegn öðrum,
og ljósasöx og skaraklofa, ljósin
að slökkva.“
3) Skarpanna í sumum bibl-
íum síðar er í stað skaraklofa;
þetta hef ég ekki fullkannað.
4) Skarhjálmur. Þetta orð
kenndi mér Leifur Tómasson
verslunarmaður á Akureyri og
bar fyrir því austfirskar konur.
Skjótt er af því að segja, að ég
mæli hiklaust með þessu orði.
5) Ljósabani. Það kenndi mér
Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og
hafði það frá Arnfríði Jónatans-
dóttur skáldi.
6) Ljóskæfa. Það sagði Sverr-
ir Pálsson mér að Þórður Frið-
bjarnarson minjavörður á Akur-
eyri hefði notað.
★
Auk þess þakka ég kærlega
fyrir gamla árið og vona að hið
nýja verði sem flestum fremur
gjöfult heldur en „gefandi" upp
á dönsku.
kost á líffæri. Lög um brottnám
liffæra eru líklega of ströng en þar
segir að forsendur fyrir brottnámi
líffæra sé samþykki hins látna eða
fyrir liggi samþykki nánasta
vandamanns ef það er ekki talið
bijóta í bága við vilja hins látna.
Komið hefur í Ijós að allflestir
fallast á að gefa blóð. Blóð er
vefur líkt og hjarta, lifur og nýru.
Ef málið er kynnt nægilega vel
fyrir fólki er líklegt að það verði
jákvæðara varðandi líffæragjöf.
Vart eru þeir margirer ekki vilja
bjarga lífi náungans
Athugandi væri að breyta lög-
um um brottnám líffæra á þann
veg að aðgerðin sé heimil ef sam-
þykki hins látna liggur fyrir eða
að fyrir liggi samþykki nánasta
vandamanns og ekki liggi fyrir að
hinn -látni hafí verið líffæragjöf
mótfallinn.
„Harðstjórar" heilsunnar
Það má ekki troða sálinni í hvít-
an slopp. Sumir heilbrigðisstarfs-
menn ganga hart fram í kröfum
til sjúklinga um heilsusamlegt líf-
erni. Lífemi sem nálgast meinlæti
má ekki verða aðgangskort að
heilbrigðisþjónustunni. Sagt hefur
verið að þeir sem ganga harðast
fram í þessu efni séu háðari kenni-
setningum en aðrir. Hafa ber í
huga að margir kjósa heldur að
lifa hófsömu lífi en að stunda
“meinlætislifnað“ og telja því önn-
ur lífsgæði fýsilegri. Við sem
Þyggjum laun fyrir að ráðleggja
*
Olafsson. Fari svo
verða stjórnvöld, að
hans dómi, að ábyrgjast
að heilbrigðisstéttir
dragist ekki kjaralega
aftur úr sambærilegum
starfsstéttum.
fólki ættum að hugleiða þetta og
þá jafnframt að heilsurækt getur
snúist upp í sjálfselsku og and-
hverfu sína, s.s. vöðvadýrkun, sól-
dýrkun, lystarstol og ótímabæra
beinþynningu t.d. meðal ungra
maraþonhlaupara svo að eitthvað
sé nefnt. Iþróttamenn mega ekki
tapa áttum í auglýsinga- og pen-
ingaflóði.
Viðbrögð lækna við kvörtunum
- réttindi sjúklinga
Tímarnir breystast og sjúkling-
ar með en hafa viðhorf okkar
lækna breyst? Almenn þekking
sjúklingahópsins sem nú leitar til
okkar er meiri en áður. Þetta þýð-
ir að sjúklingar krefjast meiri upp-
lýsinga, samráðs og jafnframt
sannana um gæði og árangur
lækninga. Við verðum að bregðast
rétt við þessum kröfum og vænti
ég að kennarar læknanema hafí
frétt af þessari breytingu. Kvenna-
deild Landspítalans hefur riðið á
vaðið í þessu efni. Æskilegt væri
Menningar-
fulltrúinn
Jakob Frímann
ÞAÐ ER örugglega
erfítt að taka að sér
nýtt starf og vera
brautryðjandi í því.
Þetta hefur Jakob Frí-
mann reyndar gert og
erp allir sammála sem
til þekkja að hann hafi
staðið sig frábærlega
vel. Hann hefur lagt sig
allan fram um að gera
vel og verið heiðarlegur
í starfí og ósérhlífinn.
Það hlýtur að vera
erfítt að sitja undir
þeirri utnfjöllun sem
fram hefur farið und-
anfarið um menn-
ingarskrifstofuna í
London og finna þar hvergi jákvæð-
an punkt, jafnvel þó einhver mistök
hafí átt sér stað um framkvæmd
þessa brautryðjendastarfs. •
Skoðun fjölmiðla
Það er með ólíkindum hvað fjöl-
miðlar reyna að gera mikið úr „fjár-
hag“ menningarskrifstofunnar í
London sem Jakob Frímann Magn-
ússon stýrir. Það er reynt að láta
líta svo út, að um þvílíka fjárhags-
óreiðu og hreinlega „sukk“ í fjár-
málum sé að ræða. Að það sé spurn-
ing um hvort Jakob eigi eða muni
taka við sem sendiherra þó svo að
engin niðurstaða frá ríkisendur-
skoðun sé komin. Þeir tala meira
að segja um slæmt mál fyrir Jón
Baldvin og Alþýðuflokkinn. Það er
eins og enginn opinber starfsmaður
hafi gert mistök í starfi, en þeir eru
meira eða minna flestir ráðnir í
gegnum pólitík ogtengjast flokkum
á einhvern hátt. Allir sjá að það er
eitthvað að hjá fjölmiðlum sem setja
þetta svona upp gagn-
vart Jóni Baldvin og
Alþýðuflokknum svo
ég tali nú ekki um Jak-
ob Frímann.
Mín skoðun:
Af hveiju geta úöl-
miðlar ekki sett málið
öðruvísi upp? T.d.
svona: „Ríkisendur-
skoðun er í sinni árlegu
skoðun á sendiráðum
nú um þessar mundir.
Komið hefur í ljós að
menningarskrifstofan í
London hefur farið
töluvert fram úr fjár-
hagsáætlun og að ýms-
ar nótur og reikningar eru ekki
fullnægjandi. Það er greinilegt að
fjárhagsáætlun hefur verið mjög
lág eða um 9 milljónir króna og
hefði því heft starfsemi menningar-
skrifstofunnar ef staðið hefði verið
við þessa þröngu áætlun. Enda má
segja að mjög erfitt sé að gera
kostnaðaráætlanir þegar verið er
að setja upp sýningar og uppákom-
ur listamanna hvað þá á lýðveldis-
ári, þegar mikið er að gerast. En
Jakob er með duglegustu mönnum
og sat ekki aðgerðalaus og yppti
öxlum og sagði að engir peningar
væru til, hann varð að halda áfram,
annað væri ekki hægt. Jakob fór
þá að safna styrkjum frá hinum og
þessum aðilum sem hugsanlega
njóta góðs af íslandskynningu og
varð honum nokkuð ágengt og má
segja að hann hafi staðið sig frá-
bærlega í þessari þröngu stöðu og
að einungis vanti 1-2 milljónir upp
í 18 milljónirnar sem menningar-
skrifstofan kostaði þetta árið, geri
Hermann
Ragnarsson