Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D 16. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Snjóflóð úr Traðargili í gær • Fiskur undir skemmdum • Hluti Súðvíkinga vill snúa aftur með því skilyrði að byggt verði upp á Eyrardalssvæðinu STÓRT svæði í miðhluta Súðavíkur er rústir einar eftir snjóflóðið sem rann að fjölbýlishúsinu. Brak úr húsunum er dreift yfir svæðið. Morgunblaðið/RAX Rússar taka rústir forseta- bústaðarins 1 Grosní Tsjetsjenar verjast enn Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. FJÖRUTIU dögum eftir að rússneski herinn réðst inn í sjálfsstjórn- arlýðveldið Tsjetsjníju við rætur Kákasusfjalla tókst liðsmönnum hans loks í gær að ná á sitt vald níu hæða byggingu forsetaembætt- isins í höfuðstaðnum, Grosní. Húsið er að miklu leyti í rúst, aðeins útveggir standa enn uppi. Borís Jeltsín Rússlandsforseti segir að hemaðinum í héraðinu sé „í reynd“ lokið. 22 hús eru gjörónýt eða stórskemmd EYÐILEGGINGIN eftir snjóflóðin í Súðavík er gífurleg. Af um 70 húsum í bænum eru að minnsta kosti 22 gjörónýt eða stórskemmd. Síðasta húsið skemmdist í snjóflóði sem féll úr Traðargili á hádegi í Einn af liðsforingjum Tsjetsjena fullyrti að því færi fjarri að Tsjetsj- enar hefðu gefist upp. Suðurhluti borgarinnar mun enn vera að miklu leyti í höndum þeirra. Forseti Tsjúvassa-lýðveldisins, eins af sjálfsstjórnarhéruðum Rússlands, sagðist í gær myndu hundsa kröfu Jeltsíns um að dreg- in yrði til baka tilskipun þar sem hermönnum frá lýðveldinu er leyft að neita að gegna herþjónustu í innbyrðis átökum á rússneskri jörð. Jeltsín rekur ráðherra Jeltsín hefur svipt þijá hershöfð- ingja embætti aðstoðarvarnar- málaráðherra, þ. á m. Borís Gromov, en þeir hafa allir verið mjög gagnrýnir á hernaðinn í Tsjetsjníju. Virðist Jeltsín vilja með þessu og ýmsum öðrum ráðstöfun- Rcuter Fulltrúi mann- réttinda SERGEJ Kovaljov með dreifi- miða rússneska hersins. um sýna fram á að það sé hann sem standi við stjórnvölinn. Sergej Kovaljov, formaður mannréttindanefndar rússneska þingsins, hefur dvalist í Grosní og mótmælt harðlega hernaði Rússa. Hann sýndi fréttamönnum í Moskvu í gær dreifimiða sem hann segir innrásarherinn hafa notað til að hræða þorpsbúa í Tsjetsjníju. Þeim er hótað sprengjuárásum ef þeir hætti ekki að aðstoða upp- reisnarmenn. gær en það hús var í byggingu. Ekki hefur reynst unnt að koma rafmagni á frystivélar í hraðfrysti- húsinu F'rosta og liggur fiskur þar undir skemmdum. Rafmagn fór af Súðavík þegar seinna snjóflóðið féll á bæinn á mánudagskvöld en heima- menn komu rafmagni á hraðfrysti- húsið með tengingu við rækjuskipið Kofra og í gær tókst að koma raf- magni á til bráðabirgða með því að leggja kapal yfir sjóinn að dísilraf- stöð í útjaðri bæjarins. Sumir vilja byggja upp á Eyrardalssvæðinu Súðvíkingar eru að byrja að skipu- leggja framtíðina. Skrifstofa hrepps- ins hefur fengið aðsetur í stjórn- sýsluhúsinu á Isafírði. í gær talaði Sigríður Hrönn Elíasdóttir, sveitar- stjóri, við Súðvíkinga, hverja fjöl- skyldu fyrir sig, til að veita þeim upplýsingar og kanna viðhorf þeirra og áform. Súðvíkingar ætla að hitt- ast í dag á Isafirði og ræða saman. Sigríður Hrönn segir að enginn þeirra Súðvíkinga, sem vilji snúa aftur eftir snjóflóðin, geti hugsað sér að byggt verði upp að nýju á því svæði sem varð snjóflóðinu að bráð. Hluti fólksins vilji alls ekki snúa aftur en aðrir vilji fara heim með því skilyrði að uppbyggingin verði á svokölluðu Eyrardalssvæði. ■ Snjóflóð og óveður/2/4/7/8/ 10/11/12/13/15/26/27/29, leiðari og baksíða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.