Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 7 FRETTIR Skip vöktuð og snjóbílar notaðir Hvammstanga - Mikið óveður hef- ur gengið yfir í Vestur-Húnavatns- sýslu á liðnum sólarhringum alveg frá síðasta sunnudegi. A fimmtu- dagsmorguninn var veður að ganga niður. Á Hvammstanga fauk hluti þaks af húsi aðfaranótt mánudags. Mik- ill snjór er nú í kauptúninu og skóla- hald hefur legið niðri. Sjómenn vöktuðu skip sín í höfninni en mik- ill skafrenningur setti snjó í þau. Snjóbíll Björgunarsveitarinnar Káraborgar hefur flutt fólk til og frá vinnu eftir beiðni. Nú eru um 60 bæir rafmagns- lausir í sýslunni og í Bæjarhreppi, sem er á umsjónarsvæði rafmagns- veitnanna á Hvammstanga. Að sögn Sverris Hjaltasonar hjá RARIK er ekki vitað um ástæður bilananna, trúlega selta, en gæti verið slit og brot á staurum. Á þriðjudaginn var skaplegt veð- ur og náðist þá að sækja mjólk í Víðidal og Miðfjörð. Ófært er hins vegar á Vatnsnesi og í Vesturhópi. Að sögn Þorvalds Böðvarssonar hjá Clinton sendir kveðjur FORSETI Bandaríkjanna, Bill Clinton, hefur vottað stjórnvöldum fyrir hönd bandarisku þjóðarinnar hlut- tekningu sína með fjölskyld- um hinna látnu, þeim sem misst hafa heimili sín og með þjóðinni allri vegna snjóflóðs- ins í Súðavík. Jafnframt hafa bandarísk stjórnvöld kynnt áform um að bjóða fram fjárhagslega aðstoð að fjárhæð ein og hálf milljón króna, segir í frétt frá forsætisráðuneytinu. Ungt f ólk með minning- arathöfn NEMENDUR allra fram- haldsskóla á Stór - Reykja- víkursvæðinu hafa tekið höndum saman um minning- arathöfn í Háskólabíói á laugardagskvöldið. í fréttatilkynningu segir, að ungt fólk vilji nýta krafta sína í þágu þess fólks sem á um sárt að binda í Súðavík með athöfn í minningu þeirra, sem fórust í snjóflóð- inu. Minningarathöfnin ber heitið “Framlag ungs fólks“ og stendur frá klukkan 20 til 23 á laugardagskvöld. Stuðningur Akurnesinga Á FUNDI bæjarstjórnar Akraness, sem haldinn var 17. janúar sl., var m.a. gerð eftirfarandi samþykkt: „Bæj- arstjórn Akraness og íbúar á Akranesi senda íbúum Súða- víkur samúðarkveðjur vegna þeirra hörmunga sem gengið hafa yfir byggðarlagið og samhryggist öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Bæjar- stjórn Akraness býður hreppsnefnd Súðavíkur- hrepps aðstoð Akraneskaup- staðar ef hún með einhverj- um hætti getur liðsinnt íbú- um í Súðavík." Vegagerðinnl eru allir útvegir sýsl- unnar illfærir og sumir ófærir. Á þriðjudag kl. 18 var bænastund í Hvammstangakirkju vegna at- burðanna í Súðavík. Sr. Guðni Þór Ólafsson á Melstað flutti hugvekju og bæn og kirkjugestir, um 40 manns, sungu sálma. Sóknarprest- urinn sr. Kristján Björnsson var fjarverandi við björgunarstörf í Súðavík. Söfnuður Hvammstanga- kirkju vildi með athöfninni senda Súðvíkingum samúðarkveðjur. Morgunblaðið/Hafþór. MIKIÐ fannfergi er á Hvammstanga og hefur tæpast verið fært á milli húsa síðustu daga. Dagana bjóðum 18. til 22. janúar við notaða bíla með íxtalausu láni að hám ki 600.000 kr. til alltí 24 mánaða. mi NOTAÐIR BILAR SUÐURLANDSBRAUT 12 SÍMI: 568 1200 beínt 581 4060 Opíð laugardag kl. 10-16 og sunnudag kl 13-16. Fólksbílarnir eru afhentir á sóluðum og negldum vetrardekkjum frá Norðdekk. ■ • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BJLAR • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BILAR •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.