Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 19
ERLENT
Reuter
O.J. SIMPSON ráðfærir sig við einn lögfræðinga sinna, Robert
Shapiro, en í gær var tveimur mönnum vikið úr kviðdómnum,
karlmanni, sem hefur skipt við Simpson, og konu, sem sjálf
sætti misþyrmingum í hjónabandi.
Réttarhöld í máli O.J. Simpsons hefjast á mánudag
Gögn um ofbeldi gagn-
vart eiginkonunni leyfð
Los Angeles. Reuter.
RETTARHOLD yfir bandarísku
íþrótta- og sjónvarpsstjörnunni O.J.
Simpson, sem sakaður er um að
hafa myrt fyrrverandi eiginkonu
sína og vin hennar, hefjast í Los
Angeles á mánudag. í fyrradag
úrskurðaði dómarinn í málinu, að
sækjendur mættu leggja fram
gögn, sem sýndu, að Simpson hefði
misþyrmt konu sinni, lagt hana í
einelti eftir að þau skildu og hótað
öllu illu. Er úrskurðurinn mikið áfall
fyrir Simpson og vetjendur hans.
Réttarhöldin áttu að heíjast í gær
en dómarinn, Lance Ito, frestaði
þeim til mánudags vegna þess hve
seinlega hefur gengið að dómtaka
málið. Þótt hann leyfði sækjendum
að leggja fram gögnin um ofbeldi
Simpsons gegn konu sinni, Nicole
Brown Simpson, í 17 ára hjóna-
bandi þeirra og lengur, þá leyfði
hann ekki, að dagbók hennar sjálfr-
ar væri lögð fram. Sagði hann lög
í Kaliforníu banna það „þótt ekki
væri nema eðlilegt, að vitnisburður
fórnarlambsins sjálfs fengi að koma
fram“.
Myndin af góða
drengnum ónýt
Simpson segist saklaus af því að
hafa myrt Nicole og vin hennar,
Ron Goldman, í júní á síðasta ári
og veijendur hans leggja áherslu á
að lýsa honum sem íþróttastjömu
og góðum dreng, sem aðrir gætu
tekið sér til fyrirmyndar. Prásagnir
studdar vitnum og lögregluskýrsl-
um um ofbeldi hans og misþyrming-
ar á Nicole myndu eyðileggja þá
mynd alveg og vegna þess er efast
um, að veijendur hans treysti sér
til að láta hann sjálfan vitna í máli
sínu.
Alvarlegasta atriðið í þessum
gögnum er upptaka á símtali er
Nicole hringdi í neyðarnúmerið 911
árið 1993. Þar biður hún um hjálp
og segir, að maðurinn sinn fyrrver-
andi sé að bijóta í sundur útihurð-
ina og ætli að ráðast á sig.
Lögfræðingar semja sátt
Sækjendur segja, að framferði
Simpsons sýni, að hann hafí reynt
að ráða yfir konu sinni í einu og
öllu og í því sé að leita ástæðunnar
fyrir morðunum en veijendur hans
hafa hingað til vísað þessum sögum
á bug sem óhróðri.
Grunnt hefur verið á því góða
milli tveggja helstu lögfræðinga
Simpsons, F. Lee Baileys og Ro-
berts Shapiros, og hefur sá fyrr-
nefndi opinberlega efast um hæfi-
leika hins. Þeir komu þó fram sam-
an í gær og sögðust vera búnir að
ná fullum sáttum.
Dauðarefsingar
krafist yfir Smith
SAKSÓKNARI í
Suður-Karólínu
hefur tekið ákvörð-
un um að krefjast
dauðarefsingar yfir
ungri móður sem
er ákærð fyrir að
hafa drekkt tveim-
ur sonum sínum í
fyrrahaust. Konan,
Susan Smith, full-
yrti í fyrstu að blökkumaður hefði
rænt bíl hennar sem drengirnir voru
í en viðurkenndi síðar að hafa ýtt
bílnum með börnunum sofandi í út
í stöðuvatn.
Lögmaður Smith sagði í samtali
við San Fransisco Chronicle að sak-
sóknari hefði sagst myndu krefjast
dauðarefsingar, yrði móðirin fundin
sek um morð á sonunum Michael 3
ára og Alexander 14 mánaða. Sam-
kvæmt lögum í Suður-Karólínu er
dauðardómi framfylgt í rafmagns-
stól.
„Enginn, sem þekkti hugsanir
hennar [Smith], myndi efast um að
henni yrði nægilega refsað," sagði
lögmaðurinn en hann en harður
andstæðingur dauðarefsingar.
Hann gaf ekki upp hvort að Smith
myndi segjast sek eða saklaus við
réttarhöldin. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær þau fara fram.
Susan Smith er nú haldið í ein-
angrun í kvennafangelsi í Columbíu.
Heimildarmaður sem ekki vildi láta
nafns sfns getið, sagði hana sitja
lungann úr deginum með myndir
af sonum sínum, tala til þeirra og
skrifa þeim bréf. Talið er að hún sé
í sjálfsmorðshugleiðingum.
Camilla fær skiln-
að með hraði
London. Reuter.
CAMILLA Parker Bowles fékk í
gær skilnað frá eiginmanni sínum
Andrew með hraði hjá dómstóli í
London. Er hún fijáls að ganga að
nýju í hjónaband eftir sex vikur og
einn dag.
Dómari batt enda á hjónaband
Andrews og Camillu Parker Bowles
og 31 annarra hjóna á þremur mín-
útum. Skilnaður af þessu tagi kost-
ar 60 pund eða 6.500 krónur.
í dómsskjölum kom fram, að það
var Camilla sem fór fram á skilnað.
Hún og maður hennar gáfu nýlega
út þá yfirlýsingu að þau ætluðu að
skilja og það í fullri vinsemd.
Camilla Parker Bowles hefur
verið „hin konan“ í lífi Karls Breta-
prins og hermt er að Díana prins-
essa skelli skuldihni á hana fyrir
því hvernig fór fyrir hjónabandi
þeirra Karls.
Samband enn við lýði?
Fréttinn um skilnaðinn hleypti
af stað vangaveltum fjölmiðla sem
töldu, að fljótlega yrði gengið frá
lögskilnaði Karls og Díönu og í kjöl-
farið mætti jafnvel búast við nýju
hjónabandi sem myndi á endanum
leiða til þess að Camilla yrði næsta
drottning Breta.
Flestir fréttamenn í Bretlandi,
sem hafa þann starfa að fylgjast
með fjölskyldu Elísabetar drottn-
ingar, eru sannfærðir um að ástar-
samband Karls og Camillu sé enn
við lýði.
Sæði rennur á lykt
London. Reuter.
SÆÐI hefur lyktarskyn og þefar
því egg, sem það hyggst fijóvga,
uppi. Sérfræðingar við Johns Hopk-
ins háskólann í Marylandríki i
Bandaríkjunum hafa komist að
þessu.
Enska vísindaritið New Scientist
skýrir frá þessari uppgötvun í gær
og vitnar til greinar í riti um sam-
eindalíffræði, Molecular Medicine.
Fram kemur, að tvær gerðir
mólekúla í sæði er einnig að finna
í frumum sem þekja nefið að innan.
Reuter
UNGIR íbúar í Sydney í Astralíu heilsa Jóhannesi Páli páfi öðrum við Maríukirkjuna í gær.
Páfi segir samfélagið misskilja afstöðu kirkjunnar til kvenna
„Móðurhlutverkið
Sydney. Reuter, Thc Daily Tclcgraph.
JÓHANNES Páll II. páfi sagði í
mikilvægast“
gær að samfelagið misskildi af-
stöðu kaþólsku kirkjunnar til
kvenna og að móðurhlutverkið
væri mikilvægasta ætlunarverk
þeirra.
Tæp 200.000 manns voru við-
staddir athöfn í Sydney í Ástralíu
þar sem páfi lýsti því yfir að
Móðir Mary MacKillop, áströlsk
nunna sem lést árið 1909, væri
meðal hinna blessuðu á himnum.
Slík yfirlýsing er næstsiðasta
skrefið áður en kaþólskir menn
eru formlega teknir í dýrlinga-
tölu.
Mary MacKillop stofnaði reglu
nunna til að reka skóla fyrir fá-
tæk börn í Ástralíu. Leiðtogar
kirkjunnar bannfærðu hana um
tíma vegna óhlýðni og hún var
sökuð um ofdrykkju. Kvennrétt-
indahópar innan kirkjunnar hafa
beitt sér fyrir því að hún verði
tekin í dýrlingatölu.
Á meðal viðstaddra var áströlsk
kona sem sögð er hafa læknast
af hvítblæði eftir bænir til MacK-
illop. Meðan athöfnin fór frain
mátti sjá mótmælaborða sem 30
blöðrur héldu uppi með áletrun-
inni: „TIME Maður ársins. BIBL-
ÍAN Syndugur maður." Mótmælin
þykja til marks um ágreininginn
sem ríkir innan kirkjunnar um
íhaldssamar skoðanir páfa.
Misskilin mannfræði
Páfi notaði tækifærið til að
gagnrýna fóstureyðingar og vara
við hættum sem steðjuðu að fjöl-
skyldunni. Áður hafði hann
ávarpað nunnur í dómkirkjunni í
Sydney þar sem hann sagði að
samfélagið misskildi afstöðu ka-
þólsku kirkjunnar til kvenna.
„Það verður að koma skýrt fram
að kirkjan berst staðfastlega
gegn hvers kyns misrétti sem
gengur í berhögg við jafna virð-
ingu karla og kvenna."
Páfi kvaðst sannfærður um að
misskilin mannfræði væri „ein af
orsökum þess að samfélagið skil-
ur ekki kenningar kirkjunnar um
hlutverk kvenna“.
Páfi sagði mannfræðilegar
kenningar kirkjunnar byggjast á
því að konur og karlar ættu að
njóta sömu virðingar þótt hlut-
verk þeirra væru ólík í samfélag-
inu, einkum innan fjölskyldunnar.
Ætlunarverk konunnar vægi
þungt þar sem það „tengdist á
sérstakan hátt móðurhlutverkinu
- uppsprettu nýs lífs - bæði lík-
amlega og andlega". Brýnt væri
að fólk skildi að hlutverk konunn-
ar i fjölskyldunni, samfélaginu og
kirkjunni væri að vera „trú sann-
leika fagnaðarerindisins".
Með orðum sínum var páfi tal-
inn vilja árétta að ekki kæmi til
greina að afnema bann kirkjunn-
ar við prestvígslu kvenna, en sú
afstaða hefur valdið ágreiningi
meðal kaþólskra manna.