Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 13
Óveður hefur hamlað
skólahaldi víða um land
Skólahald á Vest-
fjörðum að fær-
ast í eðlilegt horf
SKÓLAHALD hefur nánast alveg
legið niðri á Vestfjörðum í vik-
unni, vegna aftakaveðursins sem
þar hefur gengið yfir. Fyrstu tvo
daga vikunnar var kennsla að
hluta í grunnskóla Suðureyrar, en
af öðru skólahaldi fara engar sög-
ur, að sögn Péturs Bjarnasonar,
fræðslustjóra Vestfjarða.
Pétur sagði í gær að hann ætti
von á að kerinsla hæfist víðast
hvar í grunnskólum í dag. „Á
ísafirði hefst kennsla þó ekki þann
dag, því björgunarsveitarmenn
hafa aðsetur í skólanum, auk þess
sem mikil ófærð er á götum kaup-
staðarins. Víðast annars staðar
hefst þó kennsla á ný.“
Pétur sagði þó útilokað að allir
nemendur í dreifbýli kæmust í
skóla sína í dag, vegna gífurlegs
fannfergis. „Einhvers staðar kann
skólaakstur að komast í gang, en
það verður óvíða.“
Frekari röskun
verði hindruð
Pétur vildi taka fram að í gær
hefði hann sent bréf til fjármála-
ráðherra og Kennarasambands
íslands, þar sem hann beini þeim
tilmælum til þessara aðila að gera
allt sem unnt sé til að ná samning-
um hið fyrsta, svo ekki þurfi að
koma til röskunar á skólastarfi í
vetur, umfram það sem þegar sé
orðið af völdum náttúruaflanna.
„Víða um land er þegar mikið
fannfergi og er ljóst að samgöngur
geta orðið erfiðar í strjálbýli langt
fram eftir vetri. Svo mun verða á
Vestfjörðum og ætla má að langt
verkfall kennara ofan á það geti
valdið óbætanlegum skaða í skóla-
starfi hér, sem hefur átt í vök að
verjast af mörgum ástæðum öðr-
um á undanförnum árum,“ segir
í bréfi Péturs Bjamasonar
fræðslustjóra.
Stopult skólahald á
Vesturlandi
Skólahald hefur víða verið stop-
ult á Vesturlandi síðustu daga og
víða ekki kennt mánudag, þriðju-
dag og miðvikudag og í Stykkis-
hólmi voru skólar t.d. lokaðir í
gær. Þá hefur verið algengt að
yngri börnum hefur verið haldið
heima í versta veðrinu. í .gær var
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
SKOLAHALD á Isafirði hefur legið algerlega niðri í óveðrinu eins og á flestum stöðum á Vestfjörðum.
hins vegar búist við að skólahald
færðist að mestu í eðlilegt horf,
samkvæmt upplýsingum Snorra
Þorsteinssonar, fræðslustjóra.
„Vegir eru að opnast, en þó eru
enn vegir sem skólabílar þurfa að
aka, sem eru leiðinlegir. í þeim
tilfellum gæti skólahald legið niðri
fram yfir helgi, ef veður og færð
batnar ekki því meira,“ sagði
Snorri. „Þetta er metið hveiju
sinni, en helst Ieggst niður skóla-
hald þar sem börnin þurfa að fara
lengri leið í skólabíl."
Aftur skóli á
Norðurlandi vestra
Á Norðurlandi vestra féll skóla-
hald niður að mestu leyti frá
mánudegi til fimmtudags, en hjá
fræðsluskrifstofu umdæmisins
fengust þær upplýsingar að það
yrði að mestu með eðlilegum hætti
í dag. Aðalvegir hefðu verið rudd-
ir, en enn væri óvíst hvort skóla-
akstur gæti hafist fyrir helgina.
Á Norðurlandi eystra hefur
ástandið verið mun betra. Áhöld
voru um það í gær hvort hægt
yrði að koma börnum í skóla í
Mývatnssveit, en það tókst. Skóla-
hald féll niður tímabundið hér og
þar í verstu veðrum, til dæmis
eftir hádegi á Akureyri á miðviku-
dag.
Rafkerfið á Vestfjörðum í lamasessi eftir óveðrið
Staurarnir fuku
út í veður og vind
Snjóflóðahættu líklega aflýst á Flateyri í dag
„Öllum hefur létt
óskaplega mikið“
MIKLAR rafmagnstruflanir hafa
verið á Vestfjörðum allt frá því
síðastliðinn þriðjudag og dæmi eru
um að einstaka bæir hafi verið án
rafmagns í þijá sólarhringa. Krist-
ján Haraldsson orkubússtjóri
Orkubús Vestfjarða segir að kerfið
sé meira eða minna í lamasessi.
Öll atvinnustarfsemi sem bygg-
ist á mikilli rafmagnsnotkun lá
niðri á ísafirði í gær vegna ákvörð-
unar almannavarnanefndar stað-
arins um að láta heimili hafa for-
gang um rafmagn. Þar hefur raf-
magn verið skammtað í fjóra tíma
í senn. Kristján segir að heilu stau-
rastæðurnar við Tálknafjörð hafi
fokið út í veður og vind. „Við erum
rétt að byija að átta okkur á hlut-
unum og erum nú að hefja viðgerð-
ir,“ segir Kristján.
Á ísafirði er skömmtun í gangi
og hún er fyrirsjáanleg eitthvað
áfram. Skömmtun hefur staðið
yfir síðan á þriðjudagsmorgun.
í Reykhólasveit brotnuðu staur-
ar og fjarðarþverun fór í sundur.
Verið er að meta ástandið en raf-
magnslaust hefur verið þar á bæj-
um í nokkra sólarhringa. í Flatey
brotnuðu líka staurar en þar er
dísilrafstöð og hafa allir íbúarnir
rafmagn. í Barðastrandarhreppi
varð bilun á línunni og var verið
að leita að henni í gær. Á Patreks-
firði voru keyrðar díselvélar og
væg skömmtun í gangi. Þar hafa
verið rafmagnstruflanir frá því á
miðvikudag. Þar með þurfti að
skammta rafmagn einnig á Bíldu-
dal og Tálknafirði sem eru á sömu
línu. Búist var við að viðgerð lyki
í gærkvöld.
Von á dísilvél
Rafmagnslaust hefur verið í þijá
sólarhringa í sveitinni í Tálknafirði
og Arnarfirði, gamla Ketildala-
hreppi, þar sem eru sex býli. Þar
fuku 7-8 staurar í óveðrinu og
línan fór í sundur. Einhver bið
verður á því ?.ð sveitabæirnir fái
rafmagn á ný. í Dýrafirði eru
keyrðar dísilvélar en stefnt var að
því að ljúka viðgerð á línunni sem
þar fór í sundur í gærkvöldi. í
norðanverðum Dýrafirði féll snjó-
flóð og hreif með sér tvær línur
sem sjá norðanverðum Vestfjörð-
um fyrir raforku. „Það er helsta
vandamál okkar því að ekkert raf-
magn hefur verið þar í sveitinni
síðan á þriðjudagsmorgun. Hugs-
anlega kemst þar á rafmagn á ný
á laugardag," segir Kristján.
í sveitum Önundarfjarðar hefur
verið rafmagnslaust í allt að þijá
sólarhringa. Orkubúið á von á dísil-
vél með Reykjafossi. Verður hún
tengd við línuna þar sem hún er
heil og verður þá hægt að koma á
rafmagni á einhveija bæi. í
Strandasýslu eru viðgerðarmenn
að gera við línuna. Þar er töluverð-
ur fjöldi bæja og voru þeir allir án
rafmagns í gær.
Vesturland
Átta staurar brotnuðu í Staðar-
sveit í fyrradag vegna ísingar en
verið var að vinna að viðgerð {gær
og komið rafmagn á flesta bæi.
Þrír staurar brotnuðu í línunni
vestur í Breiðuvík og unnið var að
viðgerð í gær og vonir stóðu til
að rafmagn yrði komið á í gær-
kvöldi. Straumlaust var einnig í
Hnappadal og á nokkrum bæjum
í Eyjahrepp og einum bæ í Mikla-
holtshrepp. Mesta tjónið varð í
Staðarsveit og Breiðuvík. Gífurleg
ísing var á þessum slóðum í fyrra-
dag. Þegar verst lét var ailur
Stykkishólmur og Grundarfjörður
án rafmagns í nokkra tíma í gær-
kvöldi.
N orð vesturland
Verst var ástandið í Vestur-
Húnavatnssýslu í gær og um 30
sveitabæir rafmagnslausir. I Aust-
ur-Húnavatnssýslu voru um 15
bæir rafmagnslausir og annað eins
í Skagafirði. Haukur Ásgeirsson
umdæmisstjóri í svæðismiðstöð
Rafmagnsveitna ríkisins á Blöndu-
ósi sagði að allir línumenn væru
að þvo seltu af einangrurum. Utlit-
ið færi batnandi en þegar mest var
voru 115 sveitabæir rafmagnslaus-
ir og Skagaströnd einnig um tíma.
I gær var Skaginn, sem liggur
milli Austur-Húnavatnssýslu og
Skagafjarðar, rafmagnslaus, og
einstakar línur í Vestur-Húna-
vatnssýslu. „Það eru 50-60 bæir
ennþá úti en það er farið að stytt-
ast í að straumur komist á hjá
þeim,“ segir Haukur. Hann sagði
að seltan hefði verið mest fyrir
tveimur sólarhringum og hefði
haldist á einangrurum fram á há-
degi í gær. Þá hefði hlýnað í veðri
og seltan runnið af þeim og út-
leiðslur minnkað.
STEFNT er að því að aflýsa snjó-
flóðahættu á Flateyri í dag ef góð-
viðri helst, en þar var bjart og
fallegt veður í gær. Um 90 manns
voru enn fjarri heimilum sínum.
Snjóflóðahættu var aflýst á Bíldu-
dal um hádegi í gær. Vegurinn um
Óshlíð, milli Bolungai'víkur og Isa-
fjarðar, fór sundur vegna sjó-
gangs. Símasamband við bæinn
rofnaði.
Steinar Guðmundsson, hrepp-
stjóri á Flateyri, segir að snjóflóð-
ið, sem féll rétt fyrir klukkan 17
í fyrradag og skall á tveimur hús-
um, við Olafstún og Goðatún, hafi
aðeins unnið teljandi skaða á síðar-
nefnda staðnum. Allar rúður í hús-
inu brotnuðu og gaflinn sem snýr
að að fjallinu gekk inn, þannig að
skemmdir eru töluverðar.
Mikil ofankoma var á Flateyri í
fyrrinótt, en byggð var ekki talin
stafa hætta af snjóþunga í fjallinu
fyrir ofan byggðarlagið. „Við höf-
um góða fjallasýn og sjáum að
talsvert mikið hefur farið úr brún-
um, en miklar hengjur ógna ekki
byggð. Innan við Flateyri er hins
vegar mikill snjór í hlíðum og þar
er enn hætta,“ sagði Steinar. „Við
erum að vona að þessu ástandi sé
lokið og öllum hefur létt óskaplega
mikið." Litlar spýjur hafa fallið í
giljum fýrir ofan þorpið, án tjóns.
Flateyringar voru enn símasam-
bandslausir í gærkvöldi og sáu
ekki sjónvarp, en náðu útvarpi.
Vegurinn til Flateyrar var enn
lokaður í gær, en von var á varð-
skipi til hafnar um klukkan 20
með vörur sem eru uppurnar. Grét-
ar Arnbergsson sem var að moka
götur á Flateyri þegar rætt var
við hann í gær, sagði fannfergi
mikið. Snjórinn væri allt að þriggja
metra djúpur. Ekki væri unnt að
koma við snjóruðningstækjum,
nota þyrfti gröfu til að moka hon-
um á bíla.
Hættuástandi var aflýst á Bíldu-
dal um hádegi í gær, um svipað
leyti og vegurinn til Patreksfjarðar
var ruddur, og fengu íbúar á snjó-
flóðahættusvæðum að snúa til síns
heima. Örn Gíslason hjá stjórnstöð
almannavarnanefndar á Bíldudal,
sagði veður þar gott í gær.
Byggð ekki í hættu
Áfallalaust á Bíldudal