Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Viðhorf Súðvíkinga til
iippbyggingar þorpsins
Uppbygging á
Eyrardal skilyrði
fyrir búsetu
ísafirði. Morgunblaðið.
SIGRÍÐUR Krönn Elíasdóttir,
sveitarstjóri í Súðavík, segir að
enginn þeirra Súðvíkinga sem vilja
snúa aftur eftir snjóflóðin geti
hugsað sér að byggt verði upp að
nýju á því svæði sem varð snjóflóð-
inu að bráð. Hluti fólksins vilji
alls ekki snúa aftur en aðrir vilji
fara heim með því skilyrði að upp-
byggingin verði á svokölluðu Eyr-
ardalssvæði, en þar sé talið full-
víst að snjóflóðahætta geti ekki
skapast.
Sigríður sagði að sveitarfélagið
hefði eignast land á svokölluðu
Eyrardalssvæði, allt frá Eyrar-
landsá og út fyrir Langeyri fyrir
nokkrum árum og á því svæði
væri m.a. kirkja og skóli bæjarins.
Sigríður sagði að á þeim tíma
sem byggð hefði risið á því svæði
sem varð snjóflóðinu að bráð, og
sveitarfélagið átti, hefði verið lög-
býli á Eyrardal og því hefði ekki
komið til álita að byggja þar fyrr
en sveitarfélagið eignaðist landið
fyrir nokkru. Ljóst væri að svæðið
dygði sem landrými undir mun
stærra byggðarlag en verið hefði
á Súðavík. Það væri komið á aðal-
skipulag en eftir væri að gera þar
deiliskipulag.
Sveitarstjóri með skrifstofu í
stj órnsýsluhúsinu
Sigríður sagðist að svo stöddu
ekki geta sagt um hve stór hluti
Súðvíkinga væri reiðubúinn að
flytja til staðarins að nýju og hve
margir þeir væru sem flytja vildu
burt frá staðnum án tillits til þess
hvar byggt yrði upp að nýju.
Sigríður Hrönn hefur fengið
aðstöðu fyrir skrifstofu Súðavíkur-
hrepps í stjórnsýsluhúsinu á
ísafirði. Þar ræddi hún við Súðvík-
inga í gær, hveija fjölskyldu fyrir
sig, og kvaðst ætla að veita þeim
þær upplýsingar sem hún hefði
og kanna viðhorf þeirra og fram-
tíðaráform og síðan vinna úr þeim
upplýsingum. Forgangsmál væri
að leysa þann mikla vanda sem
menn stæðu frammi fyrir varðandi
FRÉTTIR
400
30q
hu7
SÚÐAVÍK
R Ð U R
húsnæðismál Súðvíkinga.
íbúar Súðavíkur dvöldust enn
allir í gær á ísafirði, margir á
hóteli bæjarins en aðrir á heimilum
ættingja og vina. Fólkið er alls-
laust en Sigríður Hrönn sagði að
þegar hefðu allir fengið ákveðna
peningaupphæð til að geta keypt
sér föt og aðrar nauðsynjar. Þá
hafa Súðvíkingum borist ýmsar
gjafir frá aðilum á ísafirði og Sig-
ríður Hrönn hafði haft spurnir en
ekki staðfestar upplýsingar um að
fatnaður og e.t.v. annar varningur
hefði verið væntanlegur með
fyrstu vélum Flugleiða til ísafjarð-
ar í gær og fleiri gjafir myndu
væntanlega berast fljótlega víðs
vegar af landinu.
Miðstöð þessa hjálparstarfs er
á 4. hæð Stjórnsýsluhússins þar
sem Rauði kross íslands er með
skrifstofu undir stjórn Hólmfríðar
Gísladóttur.
Morgunblaðið/RAX
SIGRIÐUR Hrönn Elíasdóttir sveitarstjóri. Myndin var tekin
þegar snjóflóð féll á þorpið í desember sl.
Samband íslenskra
sveitarfélaga
Súðavíkur-
hreppi heit-
ið aðstoð
STJÓRN Sambands íslenskra
sveitarfélaga sendi hreppsnefnd
Súðavíkur og öllum íbúum sveitar-
félagsins innilegar samúðarkveðj-
ur í gær, vegna hinna átakanlegu
atburða sem orðið hafa þar.
Samvinna allra
„Samband íslenskra sveitarfé-
laga mun nú þegar hefja undirbún-
ing að samvinnu allra sveitarfé-
laga í landinu um aðstoð þeirra
við Súðavíkurhrepp í þeim miklum
erfiðleikum sem hann stendur nú
frammi fyrir,“ segir í bréfi sam-
bandsins. „Umfang og skipulag
aðstoðarinnar verður undirbúið í
nánu ' samráði við hreppsnefnd
Súðavíkurhrepps, og bjóðast und-
irritaðir til að koma vestur til fund-
ar við hreppsnefndina til frekari
umfjöllunar um málið, eftir nánari
ákvörðun hreppsnefndarmanna.“
----♦ ♦ ♦----
Hjálparstöð fyr-
ir Súðvíkinga í
Reykjavík
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar
opnaði í gær móttökustöð í safnað-
arheimili Dómkirkjunnar, Lækjar-
götu 14a, fyrir aðstandendur Súð-
víkinga og Súðvíkinga í Reykjavík.
Þar gefst þeim tækifæri til að hitt-
ast og ræða við prest eða aðra þá,
sem til hjálpar kunna að verða.
Hjálparstöðin verður fyrst um
sinn opin frá kl. 13 til kl. 18 alla
daga vikunnar.
Börnum frá Súðavík
kennt á Isafirði
Ahersla á
að vinna úr
sorginni
HAFIN verður kennsla fyrir
börn á leikskóla- og grunn-
skólaaldri frá Súðavík í hús-
mæðraskólanum á Isafirði á
mánudag. Bergljót V. Jónsdótt-
ir, skólastjóri grunnskólans á
Súðavík, sagði að áhersla yrði
lögð á að vinna úr sorginni.
Hún sagði að framhald skóla-
starfsins yrði að ráðast af að-
stæðum.
Bergljót sagði að foreldrar
og nemendur myndu hittast á
sal grunnskólans á ísafirði kl.
14 á sunnudag. Samverustund-
in hæfist með helgistund. Á
eftir yrðu áætlanir um skóla-
hald kynntar. Hún sagði að
skólinn hefði fengið tvær rúm-
góðar skólastofur og íbúð á
annarri hæð húsmæðraskólans
á Isafirði til afnota. Aðstaða
hefði fengist til sundkennslu,
íþróttakennslu og annarra
greina. Með því móti yrði hægt
að halda uppi eðlilegu skóla-
haldi. Hins vegar yrði í fyrstu
Iögð áhersla á að vinna úr sorg-
inni, m.a. í gegnum íþróttir,
tónlist og samræður. Bóklegar
greinar kæmu smám saman inn
í kennsluna.
Notið aðstoðar fag-fólks
Bergljót sagði að 49 börn
hefðu verið í grunnskólanum á
Súðavík og hún hefði heyrt að
11 hefðu verið í leikskólanum.
Nú hefði verið höggvið skarð í
hópinn og hún væri ekki alveg
viss um hversu mörg börn
myndu sækja námið í húsmæð-
raskólanum en þau yrðu að
minnsta kosti 30 á leikskóla-
, Morgunblaoið/Ingibjor
BÖRN frá Súðavík leika sér í Stúdíói Dan á Isafirði síðdegis í gær. Þau hafa fengið ýmsar gjafir
m.a. íþróttaföt. Byijað er að kenna þeim í húsmæðraskólanum.
og grunnskólaaldri.
Bergljót sagði að starfsfólk
skólans myndi fyrst um sinn
ly'óta aðstoðar Ingþórs Bjarna-
sonar, skólasálfræðings,
tveggja sálfræðinga til viðbótar
og prests. Súðvíkingar koma
saman í sjúkrahúsinu á ísafirði
íkvöld kl. 20.