Morgunblaðið - 20.01.1995, Síða 21

Morgunblaðið - 20.01.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 21 LISTIR Sýnishorn af lettnesk- um skáld- skap í Norræna húsinu HRAFN Harðarson bókasafns- fræðingur mun kynna sýnishom af lettneskum skáldskap sunnu- daginn 22. janúar kl. 16 í Nor- ræna húsinu. Sagt verður frá lettneskum dænum og lesin nokkur sýnis- hom, en dænur eru lettneskar þjóðvísur, sem lýsa mannlífinu frá vöggu til grafar. Þá verða lesnar þýðingar á ljóðum lettneskra skálda og sagt frá þeim, m.a. Vizma Belsevica, Knuts Skujenics, Alexander Caks og fleirum. Einnig ljóð eftir Líflendinginn Valts Ern- streis, sem yrkir á líflensku. En Líflendingar em 300 manna smáþjóð í Lettlandi. Norræni kórinn mun syngja nokkur lettnesk þjóðlög. Að lokum verður sýnd heim- ildamyndin „Lífiska veislan". Myndin er 15 mín. að lengd og er með enskum texta. Allir eru velkomnir og að- gangur er ókeypis. Gallerí Sævars Karls Lágmyndir o g málverk KRISTINN Már Pálmason opnar sína fyrstu einka- sýningu i Gall- eríi Sævars Karls í dag, föstudag, kl. 16. Kristinn Már er fæddur 1967 í Kefla- vík. Hann út- skrifaðist frá málunardeild Myndlista- og handíðaskóla ís- lands á liðnu vori. Hann tók þátt í samsýning- unni „Karlímyndin" í Gerðu- bergi, í febrúar 1994. Verkin á sýningunni eru lágmyndir/mál- verk gerð úr steypu, blönduðu rými, litum, draumum o.fl. Verkin eru unnin á síðari helm- ingi liðins árs. Sýningin er opin á verslunar- tíma til 2. febrúar. Mjallhvít og dvergarnir sjö LEIKFÉLAG Mosfellssveitar sýnir fjölskylduleikritið Mjall- hvíti og dvergana sjö í nýrri leik- gerð Guðrúnar Þ. Stephensen, laugardaginn 21. og sunnudag- inn 22. janúar kl. 15 í Bæjarleik- húsinu í Mosfellsbæ. Leikstjóri er Guðrún Þ. Steph- ensen, Jens Hansson samdi tón- listina, Jón Sævar Baldvinsson gerði leikmynd, Auður Ragnars- dóttir og Svafa Harðardóttir hönnuðu búninga og Alfreð Sturla Böðvarsson lýsti sýning- una. Með hlutverk Mjallhvítar fer Dagbjört Eiríksson, Gunnhildur Sigurðardóttir fer með hlutverk drottningarinnar, en alls taka 24 ieikarar þátt í sýningunni. Samhiiða hefur verið gefin út hljóðsnælda með lögum og textum úr sýningunni. EITT verka Einars Garibalda. Síðasta sýn- ingarhelgi á „Flekum“ NÚ UM helgina lýkur mál- verkasýningu Einars Garibalda Eiríkssonar, „Flekar“, í Lista- safni Kópavogs - Gerðarsafni. A sýningunni eru átta stórir „flekar“ auk fjölda smámynda sem unnin voru á síðastliðnu ári. Yfirskrift sýningarinnar vís- ar bæði til stærðar verkanna, auk ákveðinnar tegundar björg- unar- og farartækja. Titlar verkanna mynda síðan ákveðna heild er lýsa ágætlega inntaki sýningarinnar; þeir eru Bygging, Nokkrar súlur, Spegilmynd, Sáðmaðurinn, Nekt gengur niður stiga, Kross+orð, Kjarni málsins, þú ert hér. Safnið og kaffistofan eru opin frá kl. 12-18 alla daga nema mánudaga og aðgangur er ókeypis. Opið hús í Lista- skólanum HELGINA 20.-21. janúar frá kl. 14-18 verður opið hús í Listaskólanum við Hamarinn, Strandgötu 50, nýstofnuðum myndlistarskóla í Hafnarfirði. Sýning verður á verkum nem- enda og kennara. Einnig gefst fólki kostur á að skoða salar- kynni skólans og fá nánari upp- lýsingar hjá kennurum skólans um námskeið þau sem í boði eru. Innritun í skólann stendur yfír til 25. janúar frá kl. 16-19. Sýningu Davíðs að ljúka á Sóloni UÓSMYNDASÝNINGU Dav- íðs Þorsteinssonar í Galleríi Sól- oni íslandus lýkur næstkomandi þriðjudag, 24. janúar. Á sýning- unni eru mannlífsmyndir teknar á götum Reykjavíkurborgar. „Lad isbjorn- ene danse“ í Norræna húsinu DANSKA kvikmyndin „Lad isbjornene danse“ verður sýnd í Norræna húsinu sunnudaginn 22. janúar kl. 14. í kynningu segir: „Hvað ger- ir maður þegar maður er 12 ára og mamma heldur upp á ára- mótin með nýja kærastanum á meðan pabbi, sem maður vill mikið frekar vera með, er úti í kuldanum. Eða þegar kennarinn rekur mann út úr tíma fyrir ekki neitt? Þá tekur maður til sinna ráða. Þetta er kvikmynd sem sér lífið á broslegan hátt og leyfir okkur að líta á lífíð bjartari augum. „Lad isbjarnene danse“ er frá árinu 1989 og er byggð á sögu eftir Ulf Stark. Myndin er 90 mín. að lengd. Allir eru velkomnir og að- gangur er ókeypis. NOATUN Gerið bóndanum glaðan dag með ÞORRAMAT! Pr.kg. ., Sviö °hreinsuð 199. Gulrófur 29; Ljúffengur Þorramatur Pizzur 600gr. 279.- ^gils Pilsner 1/2 Itr. 57.- ICEFOOÐ ÍSLENSK MATVÆLI Lundabaggar • Hrútspungar • Bringukollar • Magáll • Vestfirskur gæðahákarl • Nýtt slátur Blóðmör Lifrapylsa • Marineruð síld • Kryddsíld • Reykt síld • Graflax • Reyktur lax • Taðreyktur silungur • Harðfiskur í úrvali • Rófustappa • Kartöflusalat • Flatkökur • Rúgbrauð • Ný sviðasulta • Súr sviðasulta • Súr sundmagi • Pressað og súrsað heilafiski • Soðíð hangikjöt • Sviðakjammar • Smjör • Kartöflumús • Hverabrauð Gómsætur þorrabakki fyrir 2 Tilbúinn á boröið. Þorrasíldin vinsæla bætt með Grand Mariner eða ísl. brennivíni. bakkinn Kynnum þorramat og hákarl 335. pr.krukka Karrýsíld Hvítlaukssíld Sinnepssíld AÐEINS M pr.krukka 1492«"-' Konfektsíld Portvínssíld AÐEINS 1 A pr.krukka 149«orai Lambaframpartar niðursagaöir Lamba Folalda saltkjöt saltkjöt 397:" 348 399 pr.kg. pr.kg. Frá Húsavík frábæra hangikjötiö NOATUN NÓATÚN 17 - S. 561 7000, ROFABÆ 39 - S. 567 1200, LAUGAVEGI 166 - S. 552 3456, HAMRABORG 14, KÓP. - 554 3888, FURUGRUND 3, KÓP. - S. 552 2062, ÞVERHOLTI 6, MOS. - S. 566 6656, JL-HÚSINU VESTUR í BÆ - S. 552 8511, KLEIFARSELI 18 - S. 567 0900. /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.