Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 2

Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 2
2 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Rúnar Þór IDAG, sunnudaginn 22. janúar, les Arnar Jónsson leikari úr verkum Davíðs í Davíðshúsi á Akureyri og hefst dagskráin kl. 15.30. Arnar las líka úr verkum Davíðs á Akureyri í gær og var myndin tekin þá. Aldarafmælis Davíðs minnzt Akureyri. Morgunblaðið. ÆTTINGJAR Davíðs Stefánssonar ásamt full- trúum úr bæjarstjórn Akureyrar komu saman í Davíðshúsi í gærmorgun, laugardag, til að heiðra minningu skáldsins frá Fagraskógi en í gær voru liðin hundrað ár frá fæðingu hans. Þess var minnst með margvíslegum hætti á heirnaslóðum hans, Akureyri og Eyjafirði. Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöld nýtt verk eftir Erling Sigúrðarson sem byggt er á Ijóðum Davíðs; A svörtum fjöðrum. Davíð var um árabil bókavörður á Amtsbókasafninu á Akureyri og þar var í gær opnuð sýning á verkum hans, þar var einnig lesið úr ljóðum hans og sungið. Sveitungar Daviðs í Arnarnes- hreppi komu saman í Möðruvallakirkju og minntust skáldsins, verk hans voru kynnt, les- ið úr Ijóðum hans og Tjarnarkvartettinn söng. Þá var lagður blómsveigur á leiði Davíðs að lokinni athöfninni. Við athöfn í Davíðshúsi í gærmorgun flutti Sigfríður Þorsteinsdóttir forseti bæjarstjórnar ávarp og minntist Davíðs Stefánssonar sem gerður var að heiðursborgara Akureyrarbæjar fyrir 40 árum, á sextugsafmæli sínu. Arnar Jónsson leikari las úr nokkrum ljóðum skálds- ins og Óskar Pétursson söngvari söng nokkur lög. I Reykjavík var sérstök dagskrá í Þjóðleik- húsinu og tónleikar í Gerðubergi. Vinnuhópur ráðuneyta vegna snjóflóðanna skiptir með sér verkum Tryggja á að aðstoðin nýtist sem best vestra VINNUHÓPUR ráðuneytisstjóra, sem ríkisstjómin skipaði vegna snjóflóðanna í Súðavík, hefur skipt verkum milli ráðuneyta. Mun einn hópur undirbúa þá aðstoð sem stjórnvöld ætla að veita vegna flóðanna. Annar hópur fjallar um ráðstafanir til lengri tíma, t.d. breytingar á lögum um snjóflóðavamir og endurskoðun á hættumati. Ekki haft afskipti af uppstillingunni HJÖRLEIFUR Guttormsson alþing- ismaður kveðst ekki vilja munn- höggvast við fyrrum félaga sína, Einar Má Sigúrðsson og Snorra Styrkársson sem hafa gagnrýnt hann og vinnubrögð sem viðhöfð voru við uppröðun á lista Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi. Hjörleifur segist ekki hafa skipt sér af uppstill- ingunni, en rætt við nokkra einstakl- inga að ósk uppstillingarnefndar. Einar Már hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á listann og Snorri hefur sagt sig úr Alþýðubandalaginu og gengið til liðs við Þjóðvaka. „Eg tek ekki afstöðu til gagnrýni Einars í minn garð en vel mætti hann minnast aðdraganda framboðs til Alþingiskosninga 1991 þegar hann fór fram í prófkjöri gegn mér í fyrsta sæti listans. Ég hef reynt að hafa sem best samstarf við Einar sem varaþingmann og hann hefur tekið sæti mitt á Alþingi nokkrum sinnum. Ég átta mig því ekki á því hvað hann á við þegar hann talar um skort á heilindum," sagði Hjör- leifur. Kantmaður „Um ummæli Snorra hef ég ekk- ert að segja. Hann hefur kvatt Al- þýðubandalagið. Það hefur verið ljóst lengi að hann var þar kantmaður með aðrar áherslur varðandi lands- málin en meginstraumurinn. Hann væntir greinilega að fá betri frið til starfa í nýjum samtökum þó ég efist reyndar að hann hafí hitt naglann á höfuðið með því að ganga til liðs við Þjóðvakann. Annars óska ég honum alls hins besta á nýjum vettvangi." „Við leggjum höfuðáherslu á það nú að vera í sambandi við heimamenn og vera til viðtals fyr- ir þá um hvaðeina sem upp kann að koma,“ sagði Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri forsætisráðuneyt- is. Hann sagði að bæjarstjóranum á Isafirði hefði verið tilkynnt að það fé sem bærinn hefur greitt út til Súðvíkinga yrði greitt úr rík- issjóði. Viðbrögð samhæfð Skipaðir hafa verið tveir hópar ráðuneyta. Annar er skipaður full- trúum forsætisráðuneytis, félags- málaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis, dóms- og kirkjumálaráðuneytis og fjármála- ráðuneytis og hefur það hlutverk að undirbúa og samhæfa viðbrögð opinberra aðila gagnvart þeim sem hafa orðið fyrir tjóni í flóðunum. Tjón á húsum 180 milljónir Ólafur sagði að hópurinn hefði meðal annars fengið í hendur ýmsar úttektir á tryggingamálum. Fimmtán hús hefðu eyðilagst í stærsta flóðinu og brunabótamat þeirra húsa væri um 142 milljónir. Að auki hefðu a.m.k. þijú hús til viðbótar skemmst að meira eða minna leyti þannig að þetta tjón gæti numið alls um 180 milljónum. Hinn hópurinn er skipaður full- trúum frá félagsmálaráðuneyti, umhverfísráðuneyti, samgöngu- ráðuneyti, fjármálaráðuneyti og dóms- og kirkjumálaráðuneyti og á að undirbúa afgreiðslu á frum- varpi um vamir gegn snjóflóðum. Eins verða reglur um hættumat teknar þar til athugunar. Aðstoð nýtist sem best Rætt hefur verið um að flytja byggðina í Súðavík á öruggari stað. Um þetta sagði Ólafur að vinnuhópurinn myndi fjalla um alla þætti málsins en á þessu stigi hefði hann ekki mótað afstöðu til þessa. Vinnuhópurinn mun ekki koma að ráðstöfun þess fjár sem safnast í landssöfnuninni sem nú steridur yfír, en Ólafur sagði að fylgst yrði með hvemig fénu yrði ráðstafað. Sveitarfélögin hefðu einnig lýst því yfír að þau myndu aðstoða Súðvíkinga og fulltrúar sveitarfé- laganna myndu taka þátt í starfi ráðuneytahópsins með einhveijum hætti. „Við erum þannig að reyna að hafa yfirlit yfir það sem verið er að gera þannig að það nýtist sem best,“ sagði Ólafur Davíðsson. ►Streita er farsótt 20. aldarinnar og orsök margra sjúkdóma að mati sérfræðinga. /10 Balladur sækirinn á miðjuna ►Fátt virðist geta komið í veg fyrir að forsætisráðherrann verði næsti forseti Frakklands. /12 Olíustríð í uppsiglingu ► Stofnunun nýja olíudreifmgar- fyrirtækisins Orkunnar og verð- lækkun Olíufélagsins nýverið be.ndirtil að áratugagamalt jafn- vægi á íslenskum olíumarkaði geti brostið hvað úr hveiju. /16 Markaðurinn er harð- ur húsbóndi ►BirgirísleifurGunnarsson, seðlabankastjóri og formaður bankastjórnar ræðir um gjörbreytt starfsumhverfí bankans, m.a. vegna frelsis í gjaldeyrismálum. 18 Hunangsmarineruð spregja ►Þórarinn Guðlaugsson mat- reiðslumeistari er hvort tveggja í senn forkólfur í kjötiðnaðarmaður í Meistaranum og í kokkalandslið- inu íslenska sem farið hefur frækn- ar keppnisferðir til útlanda undan- farið. /20 B ► 1-28 Leikurinn oglífið ►Leikaramir og hjónin Helga Bachman og Helgi Skúlason eiga fjörutíu ára leikafmæli um þessar mundir. Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við þau um viðburðaríkan feril þeirra á leiksviðinu. /1,2,3,4 í fremstu röð ►Eftir að hafa heyrt f Philip Cath- arin í tríói Niels-Hennings var eng- in leið til baka fyrir Bjöm Thorodd- sen og hann varð einn fremsti jassgítarleikari landsins. /5 Miðaldra höfundar of- arlega á afrekaskrá ►Jóhann Hjálmarsson metur höf- undanna á hinum Norðurlöndun- um sem tilnefndir eri til bók- menntaverðlauna Norðurlanda- ráðs 199577 Ég er bítnikk ► Bítkynslóðin dró í efa sjálfbirg- ingsleg og íhaidssöm gildi þjóðar sinnar. Hér er stiklað á stóru um kynslóð sem gat af sér hippa, krappa vinstribeygju á 7. áratugn- um og loks neðanjarðarmenningu pönksins. /10 Danaveldi sameinað ►Með brúm og göngum sem tengja saman Sjáland og Fjón í Danmörku verður landið allt end- anlega komið í vegasamband . /14 BÍLAR ► 1-4 IMýjung hjá Ford ►Boðar komu gjörbreytts Escorts 1 Reynsluakstur ►Kia sportjeppinn frá Kóreu lofar góðu./4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/8/bak Leiðari 24 Helgispjall 24 Reykjavíkurbréf 24 Minningar 26 Myndasögur 34 Brids 34 Stjömuspá 34 Skák 34 Bréftilblaðsins 34 fdag 36 Fólk í fréttum 38 Bíó/dans 40 Iþróttir 44 Útvarp/sjónvarp 45 Dagbók/veður 47 Mannlifsstr. 6b Kvikmyndir 8b Dægurtónlist 9b INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-6-12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.