Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 39

Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1995 39 FÓLK í FRÉTTUM Magurt ár leik- kvenna í Hollywood ► ÁRIÐ1993 var með betra móti fyrir leikkonur í Hollywood og endurspeglaðist það í spenn- andi keppni um tilnefningar til JESSICA Lange hefur margsinnis hreppt Ósk- arsverðlaun- in. Óskarsverðlauna. Á endanum féllu verðlaunin í hlut Holly Hunter fyrir leik hennar í Píanó- inu, en leikkonurnar Stockard Channing, Emma Thompson, Debra Winger og Angela Bassett sem líka fengu tilnefningu þóttu ekki síður hafa staðið sig vel. Fyrir næstu Óskarsverðlauna- afhendingu þykir hinsvegar vera hallæri í Hollywood. Leikkonur í Hollywood voru á liðnu ári mestan part í hlutverki eigin- kvenna aðalleikarans og því ekki um auðugan garð að gresja þeg- ar kvikmyndaakademían þarf að tilnefna fimm leikkonur fyrir bestan leik. Jodie Foster fór með hlutverk Nell í samnefndri kvikmynd og er það dálítið í anda Forrests Gumps. Hún þykir koma sterk- lega til greina. Einnig fór Jessica Lange með kjarkað hlutverk í myndinni „Blue Sky“, en myndin fékk litla aðsókn í Bandaríkjun- um og það gæti sett strik í reikn- inginn. Kvikmyndaakademían kann best að meta það ef konur eru í óhefðbundnu hlutverki og því getur verið að Meryl Streep verði tilnefnd fyrir þróttmikinn leik sinn í Cgnarfljótinu eða „Ri- ver Wild“. Jennifer Jason Leigh hefur leikið í mörgum úrvalskvik- myndum, þrátt fyrir ungan ald- ur. Hún hefur fengið mikið lof frá gagnrýnendum fyrir leik sinn í „Mrs. Parker and the Vicious Circle" og gæti fengið tilnefn- ingu fyrir vikið. JODIE Foster eftir að hún hafði fengið Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni „The Accused" árið 1989. Hún fékk siðan aftur Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni Lömbin þagna . Sigourney Weaver þykir eiga góða möguleika fyrir frammi- stöðu sína í pólitíska spennu tryllinum „Death and the Maid- en“. Þá hafa nöfn Miröndu Ric- hardson fyrir frammistöðu sína í myndinni „Tom & Viv“, Meg Ryan fyrir hlutverk sitt í „When a Man Loves a Woman" og Susan Sarandon fyrir leik sinn í mynd- inni „The Client" einnig komið upp. Linda Fiorentino sýnir „frá- bæra frammistöðu" að mati gagnrýnenda í kvikmyndinni „The Last Seduction", en þar sem myndin var sýnd í sjónvarpi áður en hún fór í kvik- myndahús á hún ekki möguleika á tilnefn- ingu. Dreifingaraðili myndarinnar, October Films, hefur höfðað mál gegn kvikmyndaaka- demíunni, þar sem þess er krafist að hún fái að takaþátt í kapphlaupinu um Óskarinn. Niðurstöður hafa enn ekki fengist, en dreif- ingaraðilarnir benda á það að kvikmyndir séu oftast fyrst sýndar í kvikmyndahúsum og svo í sjónvarpi. Af hveiju sé þá ekki hægt að sýna þær fyrst í sjónvarpi og svo í kvikmyndahúsum? LINDA Fiorentino hefur slegið ærlega í gegn fyrir frammi- stöðu sína í „Last Seduction“. r- og konfektkökur 90 kr. ins - salat-diskar alltaf ó lóga verðinu hjáMTcl í DAG SUNNUDAG HEFST / VERSLUN OKKAR A LAUGAVEGIN Café 17 Kaffi - kakó - gosdrykkir 50 kr. í dag. Snyrtivörudeild 25-50% afsláttur af náttfötum 20-40% afsláttur af undirfatnaði og sundfatnaði. __ 20% afsláttur af öllum snyrtivörum. ghkartgripum. 15-25% afsláttur aTsoCkal OP/Ð 12 18 ,*.* vó* • » % d no Herradeild 1. hæð Frakkar, jakkaföt, stakir jakkar, skyrtur, stakar buxur, leðurjakkar, gallabuxur, bindi, bolir, skór og sokkar Oömudeild 2. Iiæð 30-70% afsláttur Dragtir, kápur, jakkar, kjálar, Herrailmir 20% afsláttur. stakar buxur, peysur, bolir, galla- buxur, blússur, skór, stígvél 30-70% afsláttur. Ath. ídag sunnudag byrjar útsalan á Laugaveginum en verður í bóðum verslunum frá mánudeginum 23. jan. frákl. 10. Verið velkomin S Sautján, 9imar17440/29290

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.