Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
GOTT KVÖLP, HERJ2AI?m!nI IR. OG ERÚe1. VELKOMIN TILj %Ssy^ Hfl í cX 06 Kv'ÖLDVETR.Ða ' " 0U Y ARSýNiNG - >
1 'l' 1 1 1 1 1 1 "i tt i n i i 111
Tommi og Jenni
Smáfólk
YOU 5H0ULP BRIN6 YOUR.
FOOTBALL TEAM OVER, CHUCK,
ANP U)E COULP HAVE A 6AME..
I PONT HAVE A fOOTBALL
TEAM.. I ONLV HAVE A
BA5EBALL TEAM...
Þú ættir að koma með fótboltalið-
ið þitt hingað yfir, og við gætum
farið í fótbolta ...
YOU ONLVTHINK
VOU HAVE A BASE0ALL
TEAM, CHUCK.. ý
Eg er ekki með fótboltaliðið ...
ég er bara með körfuboltaliðið . ..
Þú HELDUR bara
körfuboltalið, Kalli.
að þú hafir
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Er þetta sæmandi
Jóni Steinari?
Frá Jóni Magnússyni:
RÓMVERJAR tignuðu Júpíter
sem æðsta guð. Máltæki hjá þeim
var, það sem leyfist Júpíter leyfist
ekki nautinu. Eins má snúa þessu
við og segja það sem nautinu leyf-
ist, getur Júpíter
ekki gert.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
hæstaréttarlög-
maður er með
virtustu lög-
mönnum og hef-
ur m.a. verið
formaður Lög-
mannafélags Is-
lands og tekið
að sér ráðgjafaverkefni fyrir ríkis-
stjórn og einstaka ráðherra eftir
því sem ég best veit. Munurinn í
slíkum manni og nauti er því sá
sami þegar kemur að umfjöllun
um lögfræði og löggjafarmál og
munurinn á Júpíter og nautinu.
Þessvegna leyfist Jóni Steinari
Gunnlaugssyni hrl. ekki að bera
dómsmálaráðherra og annan þing-
mann þeim sökum, að fjölskyldu-
tengsl hafi ráðið afstöðu þeirra og
þessi fjölskyldutengsl hafi orðið til
þess, að hagsmunum almennings
hafi verið fórnað nema finna þeim
orðum stað. Geri hann það ekki
er málflutningur hans ómerkur að
þessu leyti.
Ég er í flestu efnislega sam-
mála Jóni Steinari Gunnlaugssyni
hrl. í umfjöllun hans um hin nýju
skaðabótalög. Ég tel líka þá um-
ræðu sem hann hefur staðið fyrir
að öðru leyti til góðs, Það er einn-
ig hægt að taka undir gagnrýni
á það hvernig stjórnvöld völdu
ráðgjafa til aðstoðar við þessa
lagasetningu. Hvað sem því líður
getur Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður ekki borið
þær alvarlegu sakir á dómsmála-
ráðherra og alþingismann, sem
með málið hafði að gera nema
sýna fram á það með óyggjandi
hætti að staðhæfingar hans séu
réttar. Takist honum það, þá er
eðlilegt að spyjja til hvaða úrræða
_ á að grípa. A alþingismaðurinn
og ráðherrann að segja af sér og
á að kalla saman Landsdóm til
að fjalla um brot dómsmálaráð-
herra í starfi? Það er eðlilegt að
Jón Steinar Gunnlaugsson svari
því. Spurningin er líka. Hvaða
ábyrgð á Jón Steinar Gunnlaugs-
son hrl. að bera geti hann ekki
réttlætt þessi ummæli sín?
JÓN MAGNÚSSON HRL.
Jón Magnússon
Lágkúruleg umfjöll-
un um hestamenn
Frá Páli Dagbjaitssyni:
AÐ undanförnu hafa öðru hvoru
birst í fjöjmiðlum frásagnir af
sundurlyndi hestamanna og
hrossaræktenda í Skagafirði. Hef-
ur umfjöllunin verið fremur í æsi-
fréttastíl og að því er virðist til
þess fallin að koma því inn hjá
fólki að hér í Skagafirði liggi allt
í ófriði meðal hestamanna. Þá
hefur þess og gætt að hnútum
hefur verið kastað persónulega að
Sveini Guðmundssyni á Sauðár-
króki. Nú var alls ekki ætlun mín
að blanda mér í þessa umfjöllun
en ég sé þó ástæðu til þess að
koma því á framfæri, að langflest-
ir hestamenn í Skagafirði harma
það mjög að skoðanamunur sá er
upp kom vegna sölu á stóðhesti í
eigu Hrossaræktarsambands
Skagfirðinga, hefur orðið til þess
að Sveinn hefur séð sig knúinn
til að segja af sér trúnaðarstörfum
í félagsskap skagfirskra hesta-
manna.
Ég hefi þekkt Svein í tvo ára-
tugi og átt náið samstarf með hon-
um að málefnum mestamanna hér
í héraði þennan tíma, m.a. starfað
með honum að Undirbúningi og
framkvæmd tveggja landsmóta á
Vindheimamelum. Ég þekki fáa
sem eru traustari og áreiðanlegri
en Sveinn. Dugnaður, festa og orð-
heldni hafa ætíð sett svip sinn á
störf hans, fyrir utan það að hann
er bráðskemmtiiegur og hrífur
menn með sér í verkefnum.
Lágkúrulegt
I umfjöliun um þetta mál, sem
fyrr er vitnað til, er endurtekið
vitnað í ónafngreinda menn. Einn
sagði þetta og hinn sagði hitt. Slík
framsetning er fremur lágkúruleg.
Betra væri að menn kæmu þá fram
mað sína skoðun undir nafni og
stæðu við orð sín. Sveinn Guð-
mundsson ber höfuð yfir aðra
hrossaræktendur á íslandi að mínu
mati, og vil ég þó ekki gera lítið
úr öðrum á þessu sviði. Ég veit
að ég mæli hér fyrir munn megin-
þorra skagfirskra hestamanna,
þegar ég segi það mikinn skaða
fyrir okkar fagra hérað og skagf-
irska hestamennsku, að S.veinn
skuli ekki sjá sér fært að starfa
áfram í framvarðasveitinni. Hann,
hefur átt sinn þátt í því, og hann
ekki lítinn, að skapa skagfirska
hestinum þá ímynd sem hann hef-
ur hér á landi og þótt miklu víðar
sé farið. Almennt skulum við láta
af þeim ósið að koma fram undir
nafnleynd og ófrægja persónur að
ósekju.
PÁLL DAGBJARTSSON,
Varmahlíð, Skagafirði.
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.