Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
íbúar við utanverðan Eyjafjörð sjá fá merki um vorkomu
JÓAKIM Guðlaugsson á gangi í Túngötu á Grenivík í gærmorgun.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
„ÞAÐ hætti að minnsta kosti að
snjóa þegar við fengum nýja rík-
isstjórn," sagði Sveinn Sigur-
björnsson, bóndi í Artúni í Höfða-
hverfi, nokkuð bjartsýnn á köldu
vori, en hann spáir því að ekki
verði umtalsverðar breytingar á
veðri fyrr en eftir 29. maí, þegar
nýtt tungl kviknar. „Það er ekk-
ert hægt að gera annað en dunda
við rolluskjáturnar," sagði
Sveinn og var ekki hrifinn af
þeim töfum sem verða á vorverk-
unum, kartöflugarðar hans
liggja enn undir snjó.
Stórhríðarspá
Ólafur G. Vagnsson, ráðunaut-
ur hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar, sagði nánast alla kart-
öflugarða við utanverðan Eyja-
fjörð enn vera undir snjó og tölu-
vert í að bændur gætu farið að
setja niður, en í vanalegu árferði
væru hinir fyrstu að setja niður
frá 15. til 20. maí. „Það kemur
alltaf af og til afbrigðilegt vor
og þá hafa menn verið að setja
niður allt fram undir miðjan
júní,“ sagði Ólafur sem í ljósi
stórhríðarspár um komandi helgi
var ekki bjartsýnn á að hægt
yrði að huga að kartöflugörðum
á næstu dögum.
Verulega góðan hlýindakafla
þyrfti til að breyting yrði á, en
þó væri ekki loku fyrir það skot-
ið að uppskeran yrði í meðallagi
þó vorið væri kalt, en þá yrði
sumarið vitanlega að vera gott.
Ekki væri frost í jörðu og því
Myndarlegir
snjóskaflar yfir
kartöflugörðunum
KLAKADRÖNGLAR við
Fnjóská.
DJÚPIR skaflar á Grenivík
og tæplega reiðhjólafæri.
myndu garðar þorna fljótt ef
fannir tæki upp.
„Þetta ástand er óneitanlega
afskaplega þreytandi fyrir bænd-
ur og einkum kemur þetta illa
niður þar sem sauðburður er að
fara í fullan gang og víða er allt
fé enn inni þar sem ekki finnast
auðir blettir að hleypa því út á,“
sagði hann en slíkt ástand mega
bændur á snjóþyngstu svæðum
fjarðarins búa við, á Árskógs-
strönd, Svarfaðardal og Höfða-
hverfi. „Það er erfitt að kúldrast
með lambfé inni um þetta leyti,
langar innistöður og hreyfingar-
leysi valda oft alls kyns sjúkdóm-
um sem koma upp við þannig
aðstæður,“ sagði Ólafur en benti
á það lán í óláni að vegna skerð-
inga á framleiðslurétti væru
bændur með færra fé en á árum
áður og húspláss því ríflegt.
Býsna þreytandi
„Ég man ekki eftir öðrum eins
snjó hérna,“ sagði Jóakim Guð-
laugsson sem var á gangi í Tún-
götu á Grenivík í gærmorgun en
þangað flutti hann árið 1972.
Elstu menn við Eyjafjörð muna
heldur ekki eftir svo miklum
siyó á þessum árstíma, oft hafa
vorin verið í kaldara lagi en þeim
ekki fylgt svo mikið fannfergi.
„Það er meiri snjór bæði hér í
þorpinu og eins í Grenivíkur-
fjalli og Kaldbak en ég man eftir
áður,“ sagði Jóakim.
Hann sagði veturinn hafa verið
óvenju harðan, ófærðin mikil og
iðulega hefðu menn vart komist
út. „Eg myndi gjaman vilja að
spjórinn færi að hverfa, þetta er
orðið býsna þreytandi. Það þýðir
samt ekki annað en taka þessu
með jafnaðargeði, útlitið er ekki
bjart, þeir spá norðanátt og
kulda um helgina,“ sagði Jóakim.
Svarfaðardalur
Riða komið
upp á fjór-
um bæjum
á rúmu ári
BÆNDUR í Svarfaðardal
munu væntanlega efna til
fundar nú fljótlega eftir sauð-
burð þar sem rætt verður um
viðbrögð við riðuveiki sem
komið hefur upp á fjórum
bæjum í dalnum á rúmu ári.
Olafur G. Vagnsson ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar sagði það mikið
áfall að riða skyldi koma upp
að nýju í Svarfaðardal, en
allt fé var skorið niður þar
haustið 1988. Á nokkrum
bæjum, þar sem skorið var
niður árinu á undan, var fé
tekið aftur haustið 1989.
Öllu fé fargað
Á rúmu ári hefur riðuveiki
komið upp á fjórum bæjum í
dalnum, fyrst á Ingvörum,
skammt utan Dalvíkur. Síð-
asta haust greindist kind með
riðuveiki á Þverá, sem er um
miðjan vestanverðan dalinn,
þá kom upp riða á Dæli í
Skíðadal seinnipart síðasta
vetrar og nú nýlega kom veik-
in upp á Hofsá, sem er fyrir
miðjum dal að austanverðu.
Ollu fé á þessum bæjum hefur
verið fargað, samtals milli
400 og 500 fjár.
Ólafur sagði að ekki væri
um að ræða samgang fjár á
þessum bæjum, þannig að
skýringanna væri að leita
annars staðar. Þá hefði í öll-
um tilvikum greinst riða í
kindum sem fæddust á bæjun-
um, engin þeirra kinda sem
keyptar voru ýmist frá Árnes-
hreppi á Ströndum eða úr
Þistilfirði hefði veikst.
„Bændur og fulltrúar frá
Sauðfjárveikivörnum munu
hittast einhvern tíma á næstu
dögum til að fara yfir málin,
skoða ítarlega hvernig staðið
var að fjárskiptum og sótt-
hreinsun og ræða viðbrögð
við þessari stöðu sem upp er
komin,“ sagði Ólafur.
Dalvík
Hjólreiða-
dagur
HJÓLREIÐADAGUR verður
haldinn á Dalvík í dag, mið-
vikudaginn 17. maí.
Kiwanisklúbburinn Hrólfur
afhendir af því tilefni nem-
endum í 1. bekk reiðhjóla-
hjálma og veifur að gjöf. Far-
ið verður yfir helstu atriði í
umferðinni og mun lögregla
skoða reiðhjól nemenda.
Umferðarkennsluvöllur við
skólann verður opinn og efnt
verður til hjólreiðakeppni 7.
bekkjar við Gamla skóla en
að henni lokinni verður öllum
viðstöddum boðið upp á kakó
og kringlur. Síðdegis eða kl.
17.30 verður hópreið hjól-
hestamanna um bæinn og er
lagt af stað frá Víkurröst með
lögreglu í broddi fylkingar.
Lörgreglan á Dalvík beinir
þeim tilmælum til foreldra og
forráðamenna að þeir fjalli
um öryggismál við börn sín,
mikill snjór er enn í bænum
og víða nær ekkert útsýni við
gatnamót þannig að mikil
hætta er fyrir unga hjólreiða-
menn að vera á ferðinni.