Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995 41
RADA UGL YSINGAR
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Iðnskólinn íReykjavík
Námskeið tii undirbúnings sveinsprófs í
rafeindavirkjun verður haldið 31. maí til
10. júní ef nægileg þátttaka fæst.
Frekari upplýsingar og innritun eru á
skrifstofu skólans í síma 26240.
a
KIPULAG RIKISINS
Breikkun Vesturlandsvegar
og Miklubrautar
Höfðabakki - Skeiðarvogur
Mat á umhverfisáhrifum - frummat
Skipulag ríkisins kynnir fyrirhugaða breikkun
Vesturlandsvegar og Miklubrautarfrá Höfða-
bakka að Skeiðarvogi. Um er að ræða að
breikka Vesturlandsveg og Miklubraut, úr 4
akreinum í 7 akreinar, frá Höfðabakka að
gatnamótum við Skeiðarvog. Framkvæmd-
inni fylgir gerð undirganga á Breiðhöfða,
gerð brúar yfir Elliðaár, framlenging á stokk
fyrir vestari ál Elliðaáa og gerð brúar yfir
Sæbraut. Gert er ráð fyrir breytingum á að-
og fráreinum, lokun Suðurlandsbrautar við
Steinahlíð, nýrri akstursleið að veiðihúsi við
Elliðaár og gerð göngustíga við Elliðaár.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum liggur
frammi til kynningar frá 17. maí til 22. júní
1995 á eftirtöldum stöðum: Skipulagi ríkis-
ins, Laugavegi 166, Reykjavík, kl. 8-16
mánudaga til föstudaga, Borgarskipulagi
Reykjavíkur, Borgartúni 3, Reykjavík, kl.
8.20-16.15 mánudaga til föstudaga og í sýn-
ingarsal Ingvars Helgasonar hf., Sævarhöfða
2, kl. 9-18 virka daga og kl. 14-17 um helgar.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Frestur til að
skila athugasemdum við ofangreinda fram-
kvæmd rennur út þann 22. júní 1995 og
skal skila þeim skriflega til Skipulags ríkis-
ins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást
ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
KENNSLA
Próf í fagáföngum
rafverktakanáms
verður haldið á Skipagötu 14, Akureyri, og
í Rafiðnaðarskólanum, Skeifunni 11 b,
Reykjavík, föstudaginn 19. maí 1995 kl.
16.00.
Upplýsingar og skráning í síma 91 -685010.
TONUSMRSKOU
KÓPPNOGS
Skólaslit
Skólanum verður slitið og skírteini afhent í
Digraneskirkjufimmtudaginn 18. maíkl. 17.00.
Skólastjóri.
Almennur fundur
um norrænt samstarf fámennra
iðn- og starfsgreina
Samtök iðnaðarins boða til almenns fundar
um samstarf fámennra iðn- og starfsgreina
á IMorðurlöndum á morgun, fimmtudaginn
18. maí, kl. 17.00-18.00.
Fundarstaður:
Hallveigarstígur 1, samkomusalur í kjallara.
Um er að ræða þriggja ára verkefni sem
hefur það að markmiði að auka veg fá-
mennra iðn- og starfsgreina með samstarfi
og upplýsingum milli stofnana, félaga og ein-
stakra fagmanna í ákveðnum greinum. Sér-
stök áhersla er lögð á samvinnu um mennta-
mál iðngreinanna.
í tengslum við þetta verkefni efnir Norræna
iðnráðið (Nordisk hándværksrád) til ráð-
stefnu um málefni fámennra iðn- og starfs-
greina við lýðháskólann í Leksand í Svíþjóð
17.-19. júní nk. Gera má ráð fyrir því að
ráðstefnan veki áhuga íslenskra iðnaðar-
manna og fagmanna því hér á landi teljast
margar iðn- og starfsgreinar vera fámennar
í samanburði við önnur lönd og því erfiðara
að halda uppi fagkunnáttu og kennslu í þeim.
Þetta verkefni er mjög mikilvægt fyrir þá sem
hafa áhuga á að efla nám í einstökum iðn-
og starfsgreinum hér á landi.
Á ráðstefnunni í Leksand verða m.a. þessar
greinar til umfjöllunar og fagmenn þeirra því
sérstaklega velkomnir á fundinn.
Bátasmiðir
Bókbindarar
Byssusmiðir
Feldskerar
Gifssteyparar
Glerblásarar
Gull- og silfursmiðir
Gyllarar
Hattagerðarfólk, búningahönnuðir og
klæðskerar.
Hljóðfærasmiðir (gítar- og fiðlusmiðir)
Málmsteyparar
Kökugerðarmenn
Lásasmiðir
Orgelsmiðir
Píanóstillar
Postulínsmálarar
Seglasaumarar
Skósmiðir
Steinsmiðir
Söðlasmiðir
Úrsmiðir
Útskurðarmenn
Þakklæðningarmenn
<2)
SAMTOK
IÐNAÐARINS
A TVINNUHÚSNÆÐI
Ármúli 18 - 425 fm
Til sölu er nálega 425 fm fullinnréttuð og
vönduð skrifstofuhæð (efri hæð) í Ármúla 18.
Skiptist hæðin m.a. í 14 skrifstofuherbergi,
afgreiðslu, lítinn sal, eitt geymsluherbergi,
eldhús, tvö salerni og sér stigahús. Hluti af
útgáfustarfsemi Fróða og starfsemi Frjáls
framtaks hafa verið í húsnæðinu í fjöldamörg
ár. Útborgun getur verið lítil ef um traustan
kaupanda er að ræða.
Allar nánari upplýsingar munu Halldóra eða
Magnús veita á staðnum á skrifstofutíma.
Frjálst framtak hf.,
fasteignastarfsemi - landvinnsla,
Ármúla 18, sími 581-2300.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Úrelding Mjólkurbúsins í Borgarnesi
Einokun?
Miðvikudaginn 17.
mai nk. heldur Sam-
band ungra sjálf-
stæðismanna fund
um úreldingu Mjólk-
urbúsins í Borgar-
nesi. Hverjar verða
afleiðingar úrelding-
arinnar? Verður ein-
okun Mjólkursam-
sölunnar á mark-
'aðnum algjör? Er úreldingin skynsamlegur sparnaður eða sóun?
Frummælendur verða þeir:
Páll Kr. Pálsson
Guðlaugur Björgvinsson
Óskar H. Gunnarsson
Guðmundur Bjarnason
Guðlaugur Þór Þórðarson
Fundurinn verður haldinn í Kornhlöðunni við veitingastaðinn Lækjar-
brekku í Bankastræti og hefst stundvíslega kl. 20.00.
Samband ungra sjálfstæðismanna.
lauglýsingar
Hörgshlíð12
Bænastund í kvöld ki. 20.00.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Þjóðhátíðardagur
Norðmanna
Hátíðarsamkoma kl. 20. Ofursti
Henny Driveklepp talar. Veiting-
ar. Hátíðin fer fram á norsku.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
í kvöld kl. 19.00 er aðalfundur
safnaðarins. Við vonum að sem
flestir sjái sér fært að koma.
Sálarrannsóknarfélagið
Geislinn
Diane Elliott er komin til starfa.
Er hún frábær sambandsmiðill,
verður hjá félaginu til 21. maí.
Tímapantanir og upplýsingar í
síma92-14121 ámillikl. 10og 17.
Stjórnin.
Æ
Hallveigarstíg 1 • sími 614330
Ferðakynning 18. maí
Kl. 20.00 á Haliveigarstfg 1.
Fararstjórar kynna ferðir
sumarsins og veita uppiýsingar
um ferðabúnað. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
Helgarferð 19.-21. maí
Kl. 20.00 Fimmvörðuháls.
Dagsferð sunnud. 21. maí
Kjalarnestangar. Valin leið úr
Fjörugöngunni 1992.
Útivist.
Aðalfundur
Húsmæðrafélags Reykjavikur
verður haldinn miðvikudaginn
24. maí kl. 17.00 í félagsheimil-
inu á Baldursgötu 9. Venjuleg
aðalfundarstörf. Önnur mál.
Stjórnin.
SAMBAND ISLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum. Ræðumenn:
Jóhannes Tómasson og Friðrik
Hilmarsson. Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
@> ÍSLANDS
Sunnudaginn 21. maí kl. 10.30
Hengiil, göngu- og skíðaferð.
Við frestum gönguferð á Hest-
fjall í Grímsnesi.
Hengilssvæðið er áhugavert til
gönguferða og ennfremur er þar
nægur skíðasnjór núna.
Kl. 13.00 Sunnudaginn 21. maf
verður gengið um Suðurferða-
götu niður í Ölfus. Ibúar í ofan-
verðri Hjallasókn (Ölfusi) fóru
Suðurferðagötu, þegar þeir fóru
til Reykjavíkur. Þvífékk hún nafn-
ið. En umferð um hana lagðist
niður begar vagnfær vegur var
lagður af þjóðvegi fyrir neðan
Kamba út í Hjallasókn. Fyrr á
öldum var leiðin nefnd Skógar-
vegur, því hún var farin áieiðis
upp í Hjaliatorfu vð Nesjavelli í
Grafningi til að sækja skógvið.
Þar átti Hjallakirkja skógarítak. [
báðum tilfellum var lagt upp á
fjalliðfrá Þurá eða Þóroddsstöð-
um. Leiöin liggur þvert yfir
Stóradal, sem er grunnur slakki
suðaustan í Skálafelli. Ágætt er
að fara niöur vestan við Háaleiti
á sama stað og þegar farið er
eftir Núpafjalli. Þá er komið í bil
við Þurá .
Miðvikudaglnn 24. maíkl. 20.00
verður gengið frá Gufunesi að
Blikastaðakró (kvöldferð).
Fimmtudaginn 25. mai kl. 13.00
Kaldársel - Hrútagjá (N-6).
Náttúruminjagangan 6. áfangi.
Þá verða eftir aðeins tveir áfang ■
ar, og göngunni lýkur 25. júní á
Selatöngum, en þá liggur að
baki löng leið þ.e. frá Seltjarnar-
nesi þar sem gangan hófst 23.
apríi.
Ferðafélag islands.