Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995 17
ERLEIMT
Reuter Reuter
JAPANSKIR lögreglumenn beita hjólsög á stáldyr í höfuðstöðvum japanska sértrúarsafn- SHOKO Asahara ásamt eiginkonu sinni.
aðarins til að handtaka leiðtoga hans, Shoko Asahara. Myndin var tekin fyrir nokkrum mánuðum.
Japanska lögreglan handtekur leiðtoga safnaðarins „Æðsta sannleiks“
Fannst einn síns liðs við
hugleiðslu í leyniherbergi
JAPANSKA lögreglan handtók í fyrrinótt leiðtoga
sértrúarsafnaðarins Aum Shinri Kyo (Æðsti
Sannleikur), sem talinn er hafa staðið fyrir
mannskæðasta hermdarverkinu í Japan eftir síð-
ari heimsstyijöidina. Leiðtoginn, Shoko Asahara,
var einn síns liðs við hugleiðslu í litlu leyniher-
bergi í höfuðstöðvum safnaðarins þegar hann var
handtekinn í einu umfangsmesta lögregluáhlaupi
í sögu landsins.
Asahara fannst í höfuðstöðvum safnaðarins í
þorpinu Kamiku Isshiki við rætur Fuji-fjalls, um
100 km vestur af Tókýó. Lögreglan hafði leitað
hans án árangurs í þijár klukkustundir þegar hún
fann hann í leyniherbergi, en til þess þurfti hún
að beita hjólsögum á nokkrar stáldyr.
Leyniherbergið er aðeins metri á hæð, á milli
annarrar og þriðju hæðar húss sem nefnist Sjötta
Satían, en það merkir „sannleikur" á sanskrít.
Asahara hafði falið sig á bak við planka og lög-
reglan fjarlægði þá. Hann sagði við lögreglumenn-
ina, sem handtóku hann, að hann hefði beðið
þeirra þarna og hugleitt i tvo daga.
„Gæti blindur maður gert slíkt?“
Asahara var með hvíta hettu og klæddur purp-
uralitum víðum buxum, sem eru orðnar einkenn-
andi fyrir hann. Hann er fertugur, alskeggjaður
og hálfblindur.
„Gæti blindur maður eins og ég hafa gert siíkt?"
spurði Asahara þegar lögreglumennirnir lásu upp
handtökuheimild vegna gruns um að hann hefði
fyrirskipað fjöldamorð. „Allt í lagi. Ég skal fara,“
sagði hann og stóð upp.
Þegar lögreglumennirnir ætluðu að færa Asa-
hara til læknisskoðunar tók hann það ekki í
mál. „Ég er heill heilsu. Ekki snerta mig. Jafnvel
fylgismenn mínir fá ekki að snerta mig.“
Asahara veitti ekki mótspyrnu þegar hann var
leiddur inn í lögreglubíl, sem ekið var í fylgd fjölda
bíla til Tókýó. Fréttamenn fylgdust með bílalest-
inni á þyrlum.
Lögreglan handsamaði einnig 16 af 40 eftirlýst-
um fylgismönnum Asahara. Þúsundir lögreglu-
manna tóku þátt í áhlaupum á 130 byggingar
víðs vegar um Japan. Aður höfðu um 200 fylgis-
menn Asahara verið handteknir vegna ýmissa
mála eftir gasárásina.
Fylkisstjóra sýnt banatilræði
Asahara er talinn hafa fyrirskipað taugagas-
árás í neðanjarðarlest í Tókýó 20. mars. Tólf
manns biðu þá bana og meira en 5.000 veiktust
af völdum sarin-gass. Síðan hafa verið gerðar
að minnsta kosti fjórar gasárárásir í Japan, auk
þess em reynt hefur verið að myrða lögreglu-
stjóra landsins.
Nokkrum klukkustundum eftir handtöku Asa-
hara sprakk bréfsprengja á skrifstofu Yukio Aos-
hima, fylkisstjóra Tókýó. Aoshima varð ekki
meint af en aðstoðarmaður hans missti vinstri
höndina og þumalfingur hægri handar.
Skömmu áður hafði fylkisstjórinn lýst því yfir
að sértrúarsöfnuðurinn yrði leystur upp, en lög-
reglan sagði að ekki væri víst að sprengjutilræð-
ið tengdist handtöku Asahara.
Löng málaferli framundan
Saksóknarar fá nú þriggja vikna frest til að
ákæra Asahara formlega. Japanska dómskerfið
er mjög þungt í vöfum og nokkur ár gætu liðið
þar til dómur verður kveðinn upp í málinu. Emb-
ættismenn dómsmálaráðuneytisins sögðu mjög
ólíklegt að Asahara yrði látinn laus gegn trygg-
ingu.
Söfnuðurinn hefur alltaf neitað sakargiftunum
og svarað þeim með ásökunum um að bandaríski
herinn, aðrir sértrúarsöfnuðir og Japansstjórn
hafi gert taugagasárásir á félaga í söfnuðinum.
„Handtaka hins heilaga læriföður okkar, Asa-
hara, er ekkert annað en óréttlæti," sagði talsmað-
ur safnaðarins. „Fylgismennirnir taka þessu með
ró,“ bætti hann við og kvað þá hafa búist við því
í nokkurn tíma að leiðtogi þeirra yrði handtekinn.
Asahara hefur haldið því fram að hann hafi
ferðast inn í framtíðina og rætt við fólk sem hafi
lifað af kjarnorkustríð árið 1997. Fylgismenn hans
segja að þeim sé ætlað að lifa stríðið af.
Líflátinn í
Louisiana
THOMAS Lee Ward, 59 ára
morðingi, var tekinn af lífi í
ríkisfangelsinu í Angóla í
Louisiana í gærmorgun með
eitursprautu. Aftöku hans
hafði verið frestað níu sinnum
á 12 árum. Ward var dæmdur
til dauða fyrir morð á konu
sinni, stjúpföður og morðtil-
raun við tengdamóður sína.
Morðin framdi hann er hann
var nýsloppinn úr fangelsi
fyrir kynferðisafbrot gegn
dóttur sinni.
Ung*verjar
reiðast um-
fjöllun
UNGVERSKA utanríkis-
ráðuneytið vísaði í gær á bug
fullyrðingu ferðamálarits
bresku neytendasamtakanna
þess efnis að Ungveijaland
væri meðal hættulegustu
landa heims heim að sækja.
Þar kom fram að 5,9% ferða-
manna yrðu líklega fyrir
þjófnaðarárás. Það sögðu
Ungveijar þvætting þar sem
21 milljón ferðamanna hefði
komið til landsins í fyrra og
ráðist hefði verið á eða stolið
af 14.000 þeirra, eða aðeins
0,035%. Því væri land þeirra
eitt það öruggasta heim að
sækja.
Árásir í
Tsjetsjníju
HERLIÐ Rússa I Tsjetsjníju
hóf á ný stórskotaliðs- og eld-
flaugaárásir á stöðvar upp-
reisnarmanna í suðaustur-
hluta héraðsins í gær til að
reyna að hindra andstæðing-
ana í að koma sér upp traust-
um stöðvum í fjöllunum.
Reykjarmökkur steig upp frá
bænum Serzhen-Júrt, sem
liggur við rætur fjalllendis,
eftir árásina.
Spilling í frönskum sljórnmálum
Emmanuelli, Médecin og
Tapie fá fangelsisdóma
París, Lyon. Reuter.
JACQUES Medecin, fyrrum borgar-
stjóri Nice í Frakklandi, var í gær
dæmdur í tveggja ára fangelsi og
að auki gert að greiða 200 þúsund
franka sekt. Var Medecin, sem
gegndi borgarstjóraembættinu í 24
ár, fundinn sekur um að hafa svik-
ið stórfé úr óperu borgarinnar á
síðasta áratug. Hann er þriðji
franski stjórnmálamaðurinn á
tveimur dögum, sem lilýtur dóm
vegna spillingarmála.
Ilenri Emmanuelli, formaður
franska Sósíalistaflokksins, var á
mánudag dæmdur skilorðsbundið í
eips árs fangelsi fyrir að hafa tekið
á móti ólöglegum framlögum í
kosningasjóð flokksins. Að auki var
honum gert að greiða 30 þúsund
franka sekt.
Rannsókn á fjármálum flokksins
leiddi í Ijós að Emmanuelli, sem sá
um fjármál flokksins, hefði tekið
við ólöglegum framlögum, sem m.a.
voru notuð til að ijármagna kosn-
ingabaráttu Francois Mitterrands
forseta er hann barðist fyrir endur-
kjöri árið 1988.
Dómur féll einnig á mánudag í
máli Bernards Tapies, sem gegndi
ráðherraembætti í ríkisstjórn sósíal-
ista. Tapie var dæmur í eins árs
fangelsi, óskilorðsbundið og ár í
viðbót skilorðsbundið, af dómstól í
borginni Valenciennes, fyrir að hafa
mútað leikmönnum knattspyrnu-
liðsins Valenciennes til að tapa leik
gegn liði sem Tapie átti, Olympique
Marseille árið 1993.
Iðrast einskis
Tapie var lengi umsvifamikill í
frönskum stjórnmálum og við-
skiptalífi og um tíma eigandi Adid-
as-fyrirtækisins. Fyrir nokkrum
mánuðum var hann hins vegar úr-
skurðaður gjaldþrota og hefur verið
útilokaður frá stjórnmálaþátttöku í
fimm ár.
Tapie sagði í viðtali við dagblað-
ið Libération í gær að hann iðraðist
einskis og sagði að um væri að
'•æða allsheijar samsæri dómara og
, ’ ,'ískra andstæðinga gegn hon-
um. „Þessi úrskurður þýðir að dóm-
skerfið í heild sinni hefur tekið að
sér það verkefni að útrýma mér,“
sagði Tapie.
Þá hófust í Lyon á mánudag rétt-
arhöld í máli Alains Carignons, fyrr-
um samgönguráðherra í ríkisstjórn
Edouards Balladurs. Carignon, sem
jafnframt er borgarstjóri Grenoble,
er sakaður um spillingu og um-
fangsmikið fjármálamisferli. Á
hann yfir höfði sér allt að tíu ára
fangelsi.
Carignon er m.a. sakaður um að
hafa þegið gjafir að andvirði 21
milljón franka frá vatnsfyrirtækinu
Lyonnaise des Eaux gegn því að
umbuna fyrirtækinu er vatnsveita
Grenoble var einkavædd.
Carignon, sem var látinn laus
gegn tryggingu fyrir tveimur vik-
um, kveðst vera saklaus. Lögfræð-
ingar hans krefjast þess að beðið
verði með að rétta í máli hans þar
til að hæstiréttur kemur saman
enda sé það eini dómstóll landsins,
er geti úrskurðað um irieint brot
ráðherra í starfi.
í gær ákvað dómarinn í málinu
að fresta réttarhöldum í máli Ca-
rignons um fjóra mánuði og eiga
þau að hefjast á ný þann 25. sept-
ember.
Ramses í nýju ljósi
GRAFHVELFING mikil hefur
fundist við uppgröft í Konunga-
dalnum í Egyptalandi. Talið er
að þar sé um að ræða grafhvelf-
ingu faraósins Ramsesar ann-
ars sem grafinn var fyrir uin
3.000 árum. Hann var einn lit-
ríkasti og valdamesti ráðamað-
ur fyrri tíma og er talið að
fundurinn verði til þess að
varpa nýju ljósi á líf hans og
annarra faraóa.