Morgunblaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 5 FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson NOKKRIR af nemendum Langholtsskóla ásamt fulltrúum úr Foreldafélaginu með viðurkenningar sem vélttar voru í samkeppninni. MARGAR snjallar myndir voru gerðar og hugmyndaflugið greinilega frjótt. y 1 ycvftdX't /- ?&**.* . | Nemendur gegn reyk- ingum SAMKEPPNI um gerð mynda á veggspjöld, barmmerki og boli um óhollustu reykinga og hollustu heilbrigðs lífernis var haldin meðal nemenda í 1.-10. bekk Langholtsskóla. Það var Foreldrafélag skólans sem stóð fyrir samkeppninni í sam- vinnu við nemendur og kenn- ara og jafnframt henni var efnt til umræðu um sama mál- efni. Hundruðir mynda voru hengdar upp á vordegi for- eldrafélagsins 20. maí sl. Nokkur fyrirtæki í hverfinu styrktu félagið og gerðu því kleift að veita þrennar viður- kenningar til hvers hóps og gefa hverjum nemanda barm- merki með vinningsmynd á. Bolir hafa einnig verið prent- aðir og til stendur að útbúa veggspjöld. Markmiðið með samkeppninni var að virkja nemendur til þátttöku í um- ræðunni og leiða þeim fyrir sjónir að fráleitt hlýtur að telj- ast að byrja að reykja. ---» ♦ ♦ Aukafj árveiting vegna skólafólks 89 millj. tilsumar- i 3 starfa BORGARRÁÐ hefur samþykkt rúmlega 89 milljón króna auka- fjárveitingu vegna sumarstarfa skólafólks. í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir yfirstand- andi ár er gert ráð fyrir 2.000 sumarstörfum en um 3.500 um- sóknir um starf hafa borist Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar. í erindi borgarhagfræðings til borgarráðs er lagt til að íþrótta- og tómstundaráði verði veitt rúm- lega 39 millj. króna til 257 starfa. Til embættis gatnamálastjóra verði veitt 35 millj. króna til 140 starfa og til embættis garðyrkju- stjóra verði veitt 25 millj. króna til 100 starfa. Frekari aukafjárveitingar Vakin er athygli á að gera mætti ráð fyrir nauðsyn frekari aukafjárveitingum á næstunni. Minnt er á að um miðjan júní í fyrra hafi verið samþykkt að veita 150,6 millj. króna í aukafjárveit- ingu vegna sumarvinnu skóla- fólks. - '‘V>. Láttu það ekki vaxa þér í augum að eignast draumabílinn! SJóvá-Almennar geta lánað þér allt að 75% af kaupverðinu. Bílalán Sjóvá-Almennra er einfalt, fljótlegt og þœgilegt og til afgreiðslu strax hjá öllum bílaumboðunum. grewir gotu pina- Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692 STOFN-félagar hjá Sjóvd-Almcnnum greiða lœgri lántökukostnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.