Morgunblaðið - 24.05.1995, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU/A UGL YSINGAR
„Au pair“ í Englandi
íslenskfjölskylda óskar eftir„au pair“ í sumar
til að gæta þriggja ára stúlku.
Bílpróf er æskilegt.
Vinsamlegast hafið samband við Eirík í
síma 568 1187.
Heimilishjálp
Starfskraft vantar til umönnunar sjúklings.
Vinnutími frá kl. 17.00-09.00, 7 daga, síðan
7 daga frí.
Áhugasamir leggi inn umsóknir á afgreiðslu
Mbl., með almennum upplýsingum, merktar:
„E - 18098“, fyrir 30. maí.
Leikskólakennarar
Leikskólakennara vantar á leikskólann Leik-
hóla, Ólafsfirði. Um er að ræða 31/2 stöðu.
Leikhólar er tveggja deilda leikskóli fyrir börn
á aldrinum 1-6 ára.
Ráðningartími er frá 1. september 1995.
Umsóknarfrestur er til 2. júní 1995.
Allar nánari upplýsingar gefur Svandís Júlíus-
dóttir, leikskólastjóri, í síma 466-2397.
KENNSLA
Tónlistarskólinn íReykjavík
Sumarnámskeið
í tónfræði, tónheyrn, hljómfræði
og kontrapunkti
Námskeið í undirstöðuatriðum tónfræðinnar,
tónheyrn I og II, hljómfræði I, II og III og^
kontrapunkti I og II, verður haldið íTónlistar-
skólanum í Reykjavík, Skipholti 33, frá 13.
júní og stendur yfir í 10 vikur.
Námskeiðið er öllum opið, en er einkum
ætlað þeim, sem þegar hafa undirstöðu í
viðkomandi námsgreinum og hefja munu
nám við Tónlistarskólann í Reykjavík í haust
og geta þannig flýtt fyrir sér í námi.
Umsjón með námskeiðinu hefur Tryggvi M.
Baldvinsson, sem veitir nánari upplýsingar í
síma 568 4164.
Skólastjóri.
!!!!!!*l!!!!!**!**N**W*****il^^*N!^*****N**!*!!!*
FUNDIR — MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Látravíkur hf.
verður haldinn föstudaginn 10. júní kl. 15.00
ífundarsal SVFR, Háaleitisbraut 68, 2. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Hafnarfjarðarkirkja
Framhaldsaðalsafnaðarfundur Hafnarfjarð-
arkirkju verður haldinn í Strandbergi sunnu-
daginn 28. maí 1995, að lokinni messu sem
hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Tillaga um fjölgun fulltrúa í sóknarnefnd
úr 7 í 9 og sömu tölu í varastjórn.
2. Kosning 4 nýrra fulltrúa í sóknarnefnd ef
fjölgun verður samþykkt.
3. Samþykki aðalsafnaðarfundar um að óska
eftir að fá ríkislaunaðan aðstoðarprest í
fullt starf.
4. Tillaga um að stofnuð verði nefnd til að
huga að framtíðarskipulagi og skiptingu
sóknarinnar.
Sóknarnefnd.
„Au pair“ til Svíþjóðar
Tvær læknafjölskyldur, sem búa nálægt
miðbæ Lundar, óska eftir að ráða hvor sína
„au pair" stúlkuna í 10 mánuði, frá miðjum
ágúst. Vinnan felst í barnagæslu og léttum
húsverkum, ca. 20 tímar á viku. Bílpróf ekki
nauðsynlegt. Fríar ferðir fram og til baka ef
vistin er lengri en 6 mánuðir.
Upplýsingar veitir Márten Segelmark,
Möllevángsvágen 53, 22240 Lund, Sverige.
Sölumaður/
Sumarafleysingar
Öflugt og þekkt fyrirtæki óskar eftir harðdug-
legum og vönduðum sölumanni til sumar-
afleysinga.
Starfið fer fram í matvöruverslunum og
smærri sölustöðum á Reykjavíkursvæðinu
og á landsbyggðinni. Starfstími frá júní og
fram í byrjun september nk.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Morgun-
blaðsins fyrir 26. maí merktar:
„Topp sölumaður - 5741“.
Aðalfundur
Aðalfundur ALPAN hf. verður haldinn í
féíagsheimilinu Stað, Eyrarbakka, fimmtu-
daginn 7. júní 1995 kl. 16.30.
Sýnd verður ný rafbrynjunarsamstæða
félagsins viðTúngötu, Eyrarbakka kl. 16.00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til sam-
ræmis við lög nr. 2/1995 um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórn-
ar eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Reikningar félagsins ásamt dagskrá fundar-
ins og endanlegum tillögum, munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðal-
fund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Reykjavík, 11. maí 1995
Stjórn ALPAN hf.
Húseigendur - húsfélög
Þarf að gera við f sumar?
Vantar faglegan verktaka?
í viðgerðardeild Samtaka iðnaðarins eru að-
eins viðurkennd og sérhæfð fyrirtæki með
mikla reynslu.
Leitið upplýsinga í síma 16010 (511-5555
eftir 3. júnó og fáið sendan lista yfir trausta
viðgerðarverktaka.
LVJ SAMTÖK
íTI IÐNAÐARINS
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast til afleysinga í
eitt ár frá 1. sept. ’95 við Heilsugæslustöð-
ina í Mývatnssveit.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum
96-40500 og 96-41855.
Heilsugæslustöðin á Húsavík.
Framkvæmdarstjóri
Heilbrigðiseftirlits
Laus er staða framkvæmdastjóra við
Heilbrigðiseftirlit Akranessvæðis.
Staðan veitist frá 1. júlí nk.
Umsóknum skal skila til Svæðisnefndar
Heilbrigðiseftirlits Akranessvæðis, Stjórn-
sýsluhúsinu Akranesi, Stillholti 16-18, eigi
síðar en 7. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur Halldór Jónsson
héraðslæknir í síma 93-12311.
Akranesi, 22. maí 1995
Svæðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Akranes-
svæðis.
Samstarfsaðili óskast
Nokkur sveitarfélög í Austur-Húnavatnssýslu
ásamt Verkalýðsfélagi Austur-Húnvetninga
óska eftir áhugasömum aðilum til að hefja
rekstur fiskverkunar í nýju 500 fm fiskverkun-
arhúsi á Blönduósi á komandi hausti.
Þá getum við einnig boðið upp á 800 fm
iðnaðarhúsnæði sem tilbúið er til notkunar
strax.
Allar nánari upplýsingar veita eftitaldir til 1.
júní nk.
Valdimar Guðmannsson, símar 95-24331 og
95-24932,
Pétur Arnar Pétursson, sími 95-24200,
Björn Magnússon, sími 95-24473.
Atvinnuátaksnefnd.
Tré og runnar
Nátthagi, garðplöntustöð við
Hvammsveg í Olfusi
Tré og runnartil sölu. Alparósir, klifurplöntur
og berjarunnar í úrvali. Sérfræðiþjónusta á
staðnum. Opið til kl. 10.00 öll kvöld.
Upplýsingar í síma 98-34840.
Útboð
Óskað er eftir tilboðum í frágang íþróttahúss
á Raufarhöfn. Um er að ræða hlutafrágang
íþróttasalar og tengibyggingar við núverandi
sundlaugarhús.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Raufarhafnarhrepps. Upplýsingar veitir
sveitarstjóri í síma 96- 51151.
Tilboði skal skilað á skrifstofu Raufarhafnar-
hrepps, Aðalbraut 2, Raufarhöfn í lokuðu
umslagi merktu:
„Tilboð ífrágang íþróttahúss á Raufarhöfn.“
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Raufarhafn-
arhrepps, Aðalbraut 2, Raufarhöfn, þann
2. júní kl. 14.00 að þeim viðstöddum sem
þess óska.
Sveitarstjóri Raufarhafnarhrepps.
MtAWÞAUGL YSINGAR