Morgunblaðið - 25.06.1995, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C
141. TBL. 83. ÁRG.
Rússneskir glæpamenn
Hugðust kúga
Norðmenn
RÚSSNESKIR glæpamenn voru afhjúp-
aðir áður en áætlanir þeirra um hryðju-
verk í Noregi og öðrum Norðurlöndum
urðu að veruleika, segir í norska blaðinu
VG í gær.
Blaðið hefur eftir Robert A. Sutton,
rannsóknarlögreglumanni hjá FBI, að
glæpamennirnir hafi haft í hyggju að
hóta yfirvöldum í Noregi að menga
drykkjarvatn Oslóarbúa, ef ríkisstjórnin
léti ekki fé af hendi rakna til glæpa-
mannanna.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
höfðu rússarnir í fórum sinum geislavirk
efni sem þeir hafi að likindum ætlað að
nota til þess að menga drykkjarvatnið.
VG hefur eftir Finn Johansen, vatns-
veitustjóra í Osló, að þar á bæ hafi ekki
verið gerðar sérstakar ráðstafanir til
þess að bregðast við ógn sem þessari.
Eftirlýstur
líkur Major
LÖGREGL A í Bretlandi er nú á hælunum
á innbrotsþjófi sem kemur kunnuglega
fyrir sjónir. Mynd teiknara af hinum
grunaða minnir sterklega á John Major,
forsætisráðherra
Bretlands. Lög-
reglumenn í
Cambridgeskíri
vijja ræða við
manninn vegna
fjölda þjófnaða
sem framdir hafa
verið í grennd við
heimili forsætis-
ráðherrans í
Huntingdon-kjördæmi. Maðurinn á
myndinni er grunaður um að hafa haft
reiðufé og verðmæti af öldruðu fólki í
bænum Warboys. Talsmaður lögreglunn-
ar sagði allir sem sæju myndina héldu
umyrðalaust að hún væri af forsætisráð-
herranum.
Háaldraður
prófarkalesari
ÞEGAR félagsmálafulltrúar rituðu Au-
drey Stubbart bréf og báðu hana að
koma til viðtals við þá neyddist hún til
að valda þeim vonbrigðum. „Ég komst
ekki þá um daginn," sagði Stubbart, sem
nýlega varð 100 ára gömul, „vegna þess
að ég þurfti að vera í vinnunni." Hún
er líklega heimsins elsti prófarkalesari
og dálkahöfundur, vinnur 40 tíma á viku
hjá blaðinu The Examiner.Hún hóf störf
til bráðabirgða fyrir 33 árum, eftir að
hafa þurft að hætta vinnu hjá útgáfufé-
lagi vegna aldurs.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ÁSTA Maria Gunnarsdóttir, 6 ára,
hefur eins og aðrir Seyðfirðingar
tekið þátt í að undirbúa bæinn fyrir
afmælishátíð í tilefni 100 ára afmælis
Afmælisblóm
fyrir bæinn
Morgunblaðið/RAX
kaupstaðarins. Afmælishátíðin hefst
á fimmtudaginn.
■ Afmælisbarnið sparibýst/B 10
Vangaveltur breskra fjölmiðla um hugsanlega arftaka Hurds
Segja að með Hurd
hverfi „alþjóðleg sljama“
London. The Daily Telegraph, Reuter.
YFIRLYSING Douglas Hurds, utanríkisráð-
herra Bretlands, um að hann hygðist láta
af embætti í næsta mánuði hefur kynt mjög
undir vangaveltum um hver muni taka við
utanríkisráðuneytinu í næsta mánuði.
Flestir hafa veðjað á Malcolm Rifkind,
varnarmálaráðherra, en í gær lét The Daily
Telegraph í ijósi í leiðara þá skoðun að Rif-
kind gæti ekki talist rétti maðurinn í starfið.
Douglas Hurd er 65 ára gamall og hefur
verið ráðherra í 16 ár, þar af 6 ár sem utan-
ríkisráðherra. Hann hefur sýnt að hann er
hallur undir tengsl við Evrópusambandið, og
það hefur aflað honum óvinsælda meðal
margra flokksfélaga.
Þótt hann hafi verið umdeildur heima fyr-
ir hefur hann notið virðingar meðal ráðherra
í Evrópu, og fullyrða breskir fjölmiðlar að
þegar hann lætur af embætti hafi Bretar
ekki einungis orðið af verðugum fulltrúa,
heldur einnig af alþjóðlegri stjömu.
Auk Rifkinds hafa Ian Lang, ráðherra
Skotlandsmála, og Michael Portillo, atvinnu-
málaráðherra, verið nefndir sem hugsanlegir
eftirmenn Hurds. íhaldsmenn á hægri
vængnum eru heldur fylgjandi þeim síðar-
nefnda, sem hefur verið harður andstæðing-
ur Evrópusambandisins.
Leiðarahöfundur The Daily Telegraph seg-
ir að Rifkind hafí það helst sér til ágætis
að hann hafi staðið sig vel sem varnarmála-
ráðherra,og að hann sé hollur Major forsætis-
ráðherra.
Hins vegar hafi hann fyrst látið í það
skína að hann væri Evrópusinni, en hafi síð-
an breytt um skoðun og sé nú fullur efa-
semda um ágæti Evrópusamstarfs. Með slíka
afstöðu geti Rifkind varla talist heppilegur
eftirmaður Hurds, ef Major ætlar sér að friða
þá flokksmenn sem eru óánægðir með Evr-
ópustefnu flokksins.
Otryggur stuðningur
Ef marka má viðtöl við rúmlega hundrað
þingmenn íhaldsflokksins, eða tæpan þriðj-
ung þingflokksins, eru flestir á bandi Majors
í komandi leiðtogakjöri. Af þeim 87 þing-
mönnum sem létu afstöðu sína uppi sögðust
75 myndu styðja forsætisráðherrann.
Tölurnar kunna þó að vera villandi, því
margir af þeim sem sögðust styðja Major
hafa að undanförnu gagnrýnt hann mjög,
bæði opinberlega og í samtölum við frétta-
menn.
EINS OG LOGANDI
KVEIKIÞRÁÐUR 12
21 Við erum
b grjótkarlar
GAMLIR MUNIR
MEÐ SÁL l