Morgunblaðið - 25.06.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1995 17
LISTIR
Sönnustu myndirnar úr
íslenskum raunveruleika
BÓKMENNTIR
Kvikmy ndabók
„ICELANDIC FILMS“
eftir Peter Cowie. Kvikmyndasjóður Íslands
1995. G. Bcn.Edda hf. prentaði. 79 bls. Verð
2.500 kr.
EKKI ER til mikið af rituðu máli
um íslenskar kvikmyndir þ.e.a.s.
leiknar bíómyndir í fullri lengd enda
listgreinin ung að árum. Það er helst
að Kvikmyndasjóður íslands hafi
gefið út kynningarbæklinga með
snaggaralegum upplýsingum um
hveija mynd fyrir sig og um íslensku
leikstjórana. Nú hefur sjóðurinn
bætt um betur og fengið breska
kvikmyndafræðinginn Peter Cowie
til að skrifa lengri og ítarlegri kynn-
ingarbók fyrir safnið. Hún er á ensku
og því greinilega ætluð útlendingum
enda skiptir miklu að kynna þeim
íslenskar bíómyndir. Cowie er þekkt-
ur í kvikmyndaheiminum fyrir út-
gáfu „The International Film Gu-
ide“, sem „Yariety" útgáfan hefur
nú keypt, og sem sérstakur áhuga-
maður um norræna kvikmyndagerð
og mun nafn hans eitt gefa bókinni
ákveðinn gæðastimpil.
„Icelandic Films“ er prýðilega
unnið kynningarrit og fyrir landann
er gaman að kynnast sjónarhomi
og skoðunum Cowies. Hann virðist
mjög vel inni í málum og hefur kynnt
sér gjörla íslenska kvikmyndagerð
bæði sögu hennar og þá sem standa
í kvikmyndagerð. Hann skiptir bíó-
myndunum efnislega í flokka og
spyrðir saman út frá því og inniheld-
ur hver kafli eina ákveðna bíótegund
eins og gamanmyndir, sögulegar
myndir, barnamyndir o.s.frv. Hver
kafli er síðan byggður upp á blöndu
af sögulegri samantekt, viðtölum við
leikstjóra, gengi mynd-
anna í miðasölunni og
gagnrýni Cowies á
myndirnar. „Icelandic
Films“ minnir á upplýs-
andi bók hans um
sænskar kvikmyndir
sem sarnska kvik-
myndastofnunin gaf út
fyrir réttum tíu árum.
Cowie byijar á inn-
gangskafla þar sem
hann rekur söguna frá
1906 þegar Gamla Bíó
var opnað og til þess
er Kvikmyndasjóðurinn
var stofnaður. Upphaf
kvikmyndavorsins er
rakið með Landi og
sonum og Óðali feðranna, sem feng-
ust við svipuð viðfangefni og voru
frumsýndar á sama árinu. Þar kem-
ur fram að við eigum Jóni Her-
mannssyni að þakka hækkað miða-
verð á íslenskar myndir. Cowie rekur
hinnar ólíku aðferðir Ágústs Guð-
mundssonar og Hrafns Gunnlaugs-
sonar við að vinna úr íslendingasög-
unum í kaflanum um sögulegar
myndir og fjallar um Atómstöðina.
Tveir næstu kaflar fjalla um
myndir sem takast á við yfimáttúru-
leg efni eða náttúruna sjálfa og seg-
ir Cowie íslendinga líta á hið yfím-
áttúralega sem part af tilveranni.
Skýrir það kannski þróunina á tíma-
bilinu úr raunsæjum sveitalífsmynd-
um yfir í töfraraunsæi Friðriks Þórs.
Saga gamanmyndanna ar rakin frá
Lífsmyndum Þráins Bertelssonar til
Stutts Frakka og barnamynda frá
Punktur, punktur, komma strik til
Bíódaga en Veiðiferðinni er alfarið
sleppt. Rokk í Reykjavík er eina
heimildarmyndin sem flýtur með bíó-
myndunum og er í kafla með tónlist-
armyndum eins og Með
allt á hreinu og Hvítum
máfum ásamt Karla-
kórnum Heklu og
Veggfóðri, þótt sú síð-
astnefnda eigi kannski
frekar heima í kaflan-
um um gamanmyndir.
Og loks tekur hann fyr-
ir glæpamyndimar
Morðsögu, sem Cowie
líkir við verk' Claude
Chabrol, Ryð og Fox-
trot. Það er alltaf erfitt
að draga myndir ná-
kvæmlega í dilka en
flokkun Cowies virðist
nokkumveginn ganga
upp.
Hættan sem steðjar að íslenskri
kvikmyndagerð í framtíðinni að
mati höfundarins er að hin sérís-
lenska menning týnist í samvinnu-
verkefnum sem íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn verða að efna til vegna
fjárskorts hér heima. Þess hefur
ekki gætt í miklum mæli ennþá en
eins og Cowie segir í niðurlagsorðum
þá staðfesta bestu verk leikstjóranna
okkar að sönnustu myndirnar eru
þær sem spretta úr íslenskum raun-
veruleika og fjalla um hversdagsleg
tilvik og sérstakar persónugerðir.
Það má ekki gerast að við töpum
þjóðareinkennunum í bíómyndagerð-
inni.
Fjöldi mynda er í bókinni og frá:
gangur allur er til fyrirmyndar. í
lokin era birt æviágrip íslensku leik-
stjóranna. Bók Cowies vekur upp
þá spumingu hvort ekki sé kominn
tími á íslenska bók eftir íslenskan
höfund um íslenskar bíómyndir á
íslensku fyrir íslendinga.
Arnaldur Indriðason
Peter Cowie
Djass frá
Noregi
STÓRHLJÓMSVEITIN Soknbe-
dals Storband frá Þrándheimi er
stödd hér á landi. Hún mun leika
í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
sunnudag kl. 16 og í boði Tónlist-
arskóla Akraness á mánudag kl.
9. Aðgangur að báðum hljómleik-
unúm er ókeypis.
Hljóinsveitin hefur starfað
lengi. Sljómendur sveitarinnar
era Torstein Kubban trompet-
leikari og Inge Solem sem leikur
á altosaxófón.
VELORF
FYRIR.
VANDLATA
TANAKA 422 vélorf fyrir
bæjarfélög- og verktaka 2,3 hö.
kr. 41.61 0 stgr.
TANAKA 355 vélorf fyrir
sumarbústaði 2,0 hö.
kr 39.710 stgr.
TANAKA 4000 vélorf fyrir
heimili og sumar-
bústaði 0,8 hö.
kr.17.955 stgr.
TANAKA 2800
heimilisvélorf
0,9 hö.
kr. 16.055 stgr.
'úrk'
VETRARS0L
Hamraborg 1-3, norðanmegin
Kópavogi. 564 18 64
BMW 316i árg. 1992, blásanseraöur, ekinn 40.000 km.
Reyklaus. Sumar og vetrardekk, álfelgur, geislaspilari o.fl.
Upplýsingar í síma 553-9373.
Gigtarfólk athugið!
Ný símanúmer Gigtarfélags íslands eru:
Skrifstofa 553 0760
löjuþjálfun 568 7652
Sjúkraþjálfun 553 5310
Læknir:
Júlíus Valsson, gigtarsérf. 553 0760
Gigtarfélag íslands.
USA
Golfsett með TRUE TEMPER stálsköftum
Heilsett (8 járn og 3 tré) kr. 18.990
Heilsett m/ poka/pútter & kylfu-hlífum kr. 26.990
Golfsett með PARAGON grafít-sköftum
Heilsett (8 járn og 3 tré) kr. 38.990
Heilsett m/ poka/pútter & kylfu-hlífum kr. 47.990
Tour Excess 90
Lithium Surlyn (Oover
1 19 kr/stk
RAM TOUR BALATA
249 kr/ stk
GOLF verslun, Strandgötu 28, Hafnarf., S: 565 1402
Ég hef hafið störf á Hár~ og
snyrtistofunni Hrönn,
Suðurlandsbraut 4 (Skeljungsftúsinu),
símar 553 7145 og 581 1750.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Guðrún Skúladóttir.
Márgreiðshi- og snyrtistofan
ttrönn
Trjáplöntur - runnar - túnþökur
Á meðan birgðir endast eru eftirtaldar
tegundir á sérstöku tilboðsverði:
Runnamura kr. 290, blátoppur kr. 280, hansarós kr. 320,
alparifs kr. 310, hafþyrnir kr. 310, gljámispill kr. 110-130,
gljávíðir kr. 75-80, alaskavíðir brúnn kr. 60, birkikvistur
kr. 280, birki kr. 290, snjóber kr. 290, sunnukvistur kr.
340, skripmispill kr 310.
Að auki blágreni, fura, einir, sitkagreni og birki með mikl-
um afslætti.
Ennfremur túnþökur heimkeyrðar kr. 95 á fm.
Sóttar á staðinn kr. 70 á fm.
Verið velkomin.
Trjáplöntu- og túnþökusalan Núpum, Ölfusi,
beygt til hægri við Hveragerði.
Opið alla daga frá kl. 11 -21,
símar 483 4995, 892 0388 og 483 4388.
TILBOÐSVERÐ
165 Itr. Kr. 6.300.-stgr.
420 Itr. Kr. 9.900.-stgr.
| Ivöföldu plasti, með holrúmi á milli,
sem hitaeinangrar líkt og hitabrúsi.
Afar hátt hitastig, allt að 70“ sér um
að lífrænn úrgangur rotnar fljótt og
vel.
NEUDORF kassarnir eru vandaðir og
þægilegir í samsetningu.
Tvær stærðir fáanlegar.
NEUDORF í Þýskalandi framleiði.r
einnig efnið "Radivit". Það inniheldur
lífræna gerla sem fiýta rotnun lífræns
úrgangs til muna.
áákl ,
VETRARSOL
Hamraborg 1-3, Kópavogi. S. 5641864