Morgunblaðið - 25.06.1995, Side 19

Morgunblaðið - 25.06.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1995 19 bandi við allar vangaveltur um fram- tíð alheimsins.“ Horft aftur í tímann Hvaða tímaskala erum við að tala um? Einar skiptir þróuninni í tvennt, í fortíð og framtíð. „Við vitum sem- sagt ekkert hvað gerðist í sjálfum Miklahvelli fyrir 15 milljörðum ára. En fyrst í stað var efnið mjög heitt og þétt frumgas. Fyrstu 300 þúsund árin er það í plasmaástandi. Eftir það var orðið nógu kalt til að atóm gæti myndast. Þá kom fram efni í því formi sem við þekkjum í dag, venjuleg atóm með kjömum og rafeindum. Og úr þessu efni urðu til fyrstu stjömumar. Þar kviknaði á fyrstu stjömunni, svona milljarði ára eftir Miklahvell. Mér hefur alltaf þótt það ákaflega heillandi tilhugsun." Einar tekur fram að okkar sól varð ekki til fyrr en löngu seinna, þegar heimurinn var orðinn 10 sinn- um eldri. Sólin var ekki í hópi fyrstu stjarnanna. Það er vitað vegna þess að jarðfræðingar og jarðeðlisfræð- ingar hafa mælt aldur sólkerfísins. Síðan komu fyrstu lífverurnar, sem talið er að hafí verið fyrir um þrem- ur milljörðum ára eða 12 milljörðum ára eftir Miklahvell. Og hér erum við. Á þessum tímaskala kemur lífið fram tiltölulega seint. „Þetta er saga sem við teljum okkur hafa talsverða vissu fyrir að eitthvert vit sé í,“ seg- ir Einar.„En það skiptir vemlegu máli þegar talað er um svona stór- brotna hluti að hafa í huga hvemig þessi vitneskja er fengin. Öll vinna í stjamvísindum er í því fólgih áð afla með mælingum upplýs- inga um veröldina eins og hún er í dag og eins og hún var í fortíðinni. Það stórkostlega er að við getum horft aftur á bak í tímann, vegna þess að ljósið, sem berst til okkar frá íjarlægum stjömum og vetrarbraut- um, kemur ekki strax heldur tekur það tíma. Þannig að eftir því sem við horfum lengra út í geiminn emm við jafnframt að horfa lengra aftur á bak í tíma. Ljósið frá Síríusi, sem er að koma til okkar núna, hefur t.d. verið tæp 9 ár á leiðinni. Þannig að við sjáum hana í dag eins og hún var fyrir tæpum 9 ámm. Næstu vetrar- braut, Andromedustjömuþokuna, sjáum við eins og hún var fyrir rúm- um tveimur milljónum ára. Eftir því sem við horfum lengra út í geiminn sjáum við vetrarbrautir og stjömur á þróunarstigi sem er æ fyrr í tíma. Þannig sjáum við einnig að alheim- urinn var þéttari áður fyrr. Við getum séð næstum því allt aftur í sjálfan Miklahvell, alveg sama í hvaða átt horft er. Upphafið sjálft er þó auðvit- að hulið sjónum okkar, því út við sjón- deildarhring hins sýnilega heims er efnið í formi ógagnsæs plasma." Skeið kaldra hnatta Snúum okkur þá að framtíðinni, þessu erfiða viðfangsefni, eins og Einar orðar það. Framtíðin fer eftir því hvort við lifum í lokuðum heimi eða ótakmörkuðum heimi. Möguleik- amir em tveir, eins og sést á með- fylgjandi línuriti. Leggjum upp frá nútímanum og brátt verða ártölin stjamfræðilega há. „Frá sjónarhóli heimsfræðinnar er næsti mikilvægi atburður í veraldar- sögunni sá að sólkerfið í núverandi mynd líður undir lok. Sólin okkar fer að þenjast út eftir u.þ.b. 5 milljarða ára og verður að rauðum risa. Síðan losar hún sig við yfirborðslögin og eftir situr glóandi heitur hvítur dvergur, sem síðan kólnar á löngum tíma. Sólin hættir að verma um- hverfi sitt og er þá búin að eyða a.m.k. innri reikistjömunum. Þá yrði ólíft á yfirborði jarðar. í veröldinni í dag em nýjar stjöm- ur og ný sólkerfi sífellt að verða til í geimnum. En að því kemur að i heimi sem heldur áfram að þenjast út að þessi stjömumyndun hættir vegna efnisþurrðar. Þá myndast síð- asta sólstjarnan, hún lifir sína ævi og deyr. Þegar síðasta stjarnan deyr rennur upp nýtt skeið í veraldarsög- unni, sem ég kalla skeið kaldra hnatta. Það er eftir svo gífurlega langan tíma að varla er til orð yfir svo háa tölu. Sólin er lykillinn að öllu hér á jörð- inni. Hún heldur öllu gangandi, ekki bara okkur og öllu lífríkinu, heldur líka öllu vatnakerfinu, öllu vindakerf- inu, sólin knýr allt og gefur okkur lífið og ylinn. Þegar hún deyr, deyr allt. Allt verður kalt. Því tala ég um skeið kaldra hnatta. Það sem er eft- ir em þá kulnaðar sólir og kaldar reikistjömur. Þessar kulnuðu sólir hafa nöfn, því við vitum hvemig þær enda. Sumar þeirra, þar á meðal okkar sól, verða hvítir dvergar, sem verða að svörtum þegar þeir em orðnir kaldir. Aðrar enda sem nif- teindarstjömur eða svarthol. Eðlis- fræðin hefur sagt okkur að allar stjömur endi í einum af þessum þremur flokkum. Sú niðurstaða er eitt mesta afrek stjameðlisfræðinnar og er eitt af því sem menn hafa ver- ið að fá nóbelsverðlaun fyrir. Auk þessara kulstjarna og kaldra reiki- stjarna verða einnig til staðar smá- stirni, geimryk, gas og öreindir. Hvemig framtíðarþróun þessara fyrirbæra verður er háð óvissum þátt- um í eiginleikum öreinda. En án tillits til slíkra smáatriða verður ekki hjá því komist að eftiið þynnist stöðugt og kólni. Fjarlæg framtíð í slíkum heimi er því mjög köld. Því miður virðist heimsmynd vísindanna vera að segja okkur að lífið í þeirri mynd sem við þekkjum deyi væntanlega út í flar- lægri framtíð. Við vitum ekki meira. Þetta er nöturleg framtíð og rnyrk." Framtíð í lokuðum heimi Hin framtíðin, sem kemur til greina, er allt öðruvísi. Hún er heit og þétt. En hún er líka tortímandi. Það er hinn lokaði heimur, sem dregst saman í Miklahrun. Ef þessi samdráttur hefst meðan enn eru til stjömur kemur að því að vetrarbraut- imar renna saman. Nú eru milljónir ljósára milli vetrarbrauta. En við samdráttinn mundu þær snertast, sem þýðir að geimurinn yrði ein sam- felld stjömumergð. Áður en stjörnumar fara að rek- ast á, þá er kaldi örbylgjukliðurinn, sem við vomm að tala um áðan, orð- inn heitur. Hann er í dag mínus 270 gráður á Celcius, næstum því við alkul. Um það bil 100 þúsund ámm fyrir Miklahmn er þessi sakleysislegi örbylgjukliður orðinn jafnheitur og stjömumar. Þá er ástand alheimsins eins og inni í glóandi ofni og sólimar fara að gleypa í sig orku frá umhverf- inu, draga til sín ljós í stað þess að senda það frá sér. Þetta endar með því að þær springa. Síðustu 100 þúsund árin mundi því ríkja rosalegt ástand í veröldinni. Sjóðandi heitt plasmað verður sífellt heitara og heitara og æ þéttara og hrynur að lokum saman í einum punkti í Mikla- hmni. í vissum skilningi er þetta eins og viðsnúinn Miklihvellur. Við höfum nú farið í gegnum alla alheimssöguna og þessa tvo mögu- leika á framhaldi, samkvæmt heims- mynd nútímans. Þetta er sú þróunar- saga sem nútímavísindi gefa okkur. Fæðist nýr heimur? „Þessi kenning getur þó alls ekki sagt neitt um það hvað raunvemlega gerðist í Miklahvelli eða hvað muni gerast í Miklahmni, þvi þá em að- stæður svo rosalegar að nútímakenn- ingar eðlisfræðinga um eiginleika efn- isins ráða ekki við að skýra það ástand. Það hefur hins vegar ekki stöðvað menn í að vera með alls kon- ar vangaveltur. Þeirra frægastur er Stephen W. Hawking og fleiri koma einnig við sögu. Þessir menn em að reyna að búa til nýja kenningu, sem hefur hlotið nafnið þyngdarskammta- fræði þótt hún sé ekki ennþá til. Þeir em að sameina afstæðiskenningu Einsteins, sem fjallar um þyngdarafl- ið, og skammtafræðina, sem lýsir hegðun öreinda og kröftum milli þeirra. Hawking og fleiri hafa við þetta komið fram með mjög skemmti- legar hugmyndir. Þetta er það sem ég kalla villtar vangaveltur. En það em stórkostlegar hugmyndir. Ein af niðurstöðum skammtafræð- innar segir að í tómarúminu sé stöð- ugt að myndast efni og eyðast aft- ur. Viss líkindi em fyrir því að í mjög skamman tíma geti myndast mikið efnismagn. Þetta gerist ekki daglega, en í heimi sem verður mjög gamall gæti þetta gerst einstöku sinnum. Og ef þetta gerðist gæti hugsanlega myndast svarthol eða jafnvel ormagöng. Efnið sem mynd- aði slík ormagöng færi þá að lifa sjálfstæðu lífi og þenjast út. Og gæti jafnvel myndað nýjan heim, sem hefði tilvem fyrir utan okkar veröld. Þetta er það sem á ensku hefur kall- að Baby Universe, Nýfædd veröld. Þegar slíkur heimur hefur einu sinni orðið til fer hann í gegnum sína þró- unarsögu. Hann gæti svo kannski fætt af sér annan heim. Þá má ganga svo langt að hugsa sér að þetta sé eilíft ástand. Nýir heimar séu sífellt að verða til og eyðast, þannig að allt þetta tal um upphaf og endi heimsins snýst upp í það að okkar heimur sé bara bóla í alheiminum og svo séu einhveijir aðrir heimar þar fyrir utan, sem em að þenjast út eða dragast saman óháð hvað er að gerast í okkar heimi. Þessa sögu er auðvitað ekki hægt að selja dýrara en hún er keypt. Þetta sem ég kalla villtar vangaveld- ur er viðbót, þær byggjast ekki á afstæðiskenningunni, heldur á þess- um draumi um þyngdarskammta- fræðina. Reynslan ein á eftir að leiða í ljós hvort eitthvert vit er í þessu. En sé maður einu sinni farinn að hugsa svona, vaknar sú spuming hvort okkar eigin veröld hafi kannski orðið til með þessum hætti." Kennir stjarnvísindi við HÍ Viðmælandinn Einar H. Guð- mundsson er doktor í stjameðlisfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn. Hann varð sérfræðingur á eðlisfræði- stofu Raunvísindastofnunar 1982 og var skipaður dósent í stjameðlisfræði við eðlisfræðiskor HÍ 1991, fyrsti skipaði kennarinn í stjamvísindum við Háskólann. En stjömufræði er hluti af eðlisfræðinámi og almennu námi í raunvisindadeild. Einar kveðst líta á það sem sitt hlutverk að byggja þessa fræðigrein upp hér við Háskólann, en það gerist ekki með neinum látum. Það er varla ofmælt. Stefnt er að því að taka í notkun stjömusjónauka til kennslu og þjálfunar við Háskólann í haust. Hann er þó of lítill til vísindarann- sókna. En draumurinn er að fá að- gang að fullkomnum sjónauka úti í löndum og hafa íslenskir stjamvís- indamenn lagt gífurlega vinnu í að útvega fé til að ísland gerist aðili að Norræna sjónaukanum á La Palma. Það hefur reynst torvelt. Ekki vildi Einar neitt segja um horf- ur á þessu stigi, kvað þær væntan- lega skýrast með haustinu. Þótt stjömufræði sé elsta visinda- grein í heimi, er víst óhætt að segja að hún sé að slíta bamsskónum hér á landi. En áhugann vantar ekki. SUMARÚTSALAN HEFST Á MORQUA v/Laugalæk - SÍMI 553 3755

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.