Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 27
26 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ1995
illwgtinMafetfe
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÁTAKÍ
ENDURVINN SLU
*
ATAK sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Sorpu
til að safna saman gömlum dagblöðum til endurvinnslu
er lofsvert. A sjötta tug gáma verður komið fyrir, einkum
við verzlunarmiðstöðvar, þar sem almenningur getur skilað
gömlum blöðum og tímaritum. í Sorpu verður pappírinn bagg-
aður og fluttur út til endurvinnslu í Svíþjóð.
Eins og fram kemur í grein í Morgunblaðinu í gær er talið
að hlutfall þess sorps á höfuðborgarsvæðinu, sem er endurunn-
ið, hækki með þessu móti úr um 30% í 40%. Jafnframt mun
útflutningur pappírs til endurvinnslu fimmfaldast. Pappírs-
söfnunin er tilraunaverkefni, en gangi það vel er ætlunin að
halda áfram á sömu braut og taka jafnvel upp endurvinnslu
á plasti úr heimilissorpi.
Ekki þarf að fjölyrða um gildi endurvinnslu heimilissorps.
„Endurvinnslan sparar urðunarstaði, verndar skógana og er
orkusparandi," segir Ásmundur Reykdal, stöðvarstjóri Sorpu,
í blaðinu í gær. Endurvinnsla dagblaðapappírs er þáttur í við-
leitni til að ganga betur um auðlindir jarðar en gert hefur verið.
Viðhorf almennings ræður úrslitum um það hvort framhald
verður á tilraunaverkefninu, sem kallað er „endurtekið efni“.
Flestir ættu að átta sig á mikiivægi verkefnisins. Samanborið
við langtímaáhrif endurvinnslu — orkusparnað, minni mengun
og varðveizlu skóganna — er fyrirhöfnin lítil við að flokka
dagblöð og annað prentmál frá öðru sorpi og taka með í gám-
inn, um leið og keypt er inn til heimilisins.
Morgunbiaðið er efnismesta blaðið, sem berst inn á heimili
landsmanna. Morgunblaðsbunki hvers mánaðar er æði þykk-
ur. Blaðið vill vekja athygli lesenda sinna á gildi þess-fyrir
umhverfisvernd og auðlindanýtingu að farið sé með gömlu
Morgunblöðin til endurvinnslu og mun kappkosta að sjá þeim
fyrir upplýsingum og leiðbeiningum um þátttöku í átaki Sorpu
og sveitarfélaganna.
Aukinheldur hefur Morgunblaðið, líkt og fjölmörg önnur
fyrirtæki, leitazt við að ganga á undan með góðu fordæmi.
Þannig er allur afgangspappír Prentsmiðju Morgunblaðsins
nýttur við endurvinnslu. Starfsmenn blaðsins eru jafnframt
hvattir til að sjá til þess að hið mikla pappírsflóð, sem fer
um skrifborð þeirra, sé flokkað og endurnýtt, auk þess sem
spilliefni, vökvar og rafhlöður sem notaðar eru á blaðinu fara
til eyðingar og endurvinnslu.
Þannig vill Morgunblaðið stuðla að samstilltu átaki með
lesendum sínum, í þágu umhverfisins.
ENGINN SIGUR
FRÍVERZLUNAR
SAMKOMULAG Japans og Bandaríkjanna um bílavið-
skipti, sem náðist á síðustu stundu í Genf, kemur í veg
fyrir upplausn á peninga- og gjaldeyrismörkuðum og ýmiss
konar óæskilegar afleiðingar refsiaðgerða Bandaríkjamanna
gagnvart japanska bílaiðnaðinum. Samkomulagið er hins veg-
ar ekki sá sigur fríverzlunar í heiminum, sem til dæmis Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hefur viljað vera Iáta.
Þannig náðist ekki samkomulag um almennar reglur um
aukið frelsi á hinum alþjóðlega bílamarkaði, heldur beittu
Bandaríkin efnahagsafli sínu til þess að kúga japönsk stjórn-
völd og bílaframleiðendur til samkomulags. Talsmenn Evrópu-
sambandsins hafa kvartað undan því að einvörðungu Banda-
ríkjunum skuli hafa verið veittar ívilnanir á japanska markaðn-
um.
Evrópusambandið hefur að sjálfsögðu ekki hreinan skjöld
í fríverzlunarmálum, frekar en hin efnahagsstórveldin tvö,
Japan og Bandaríkin. Öll hafa þau beitt innflutningskvótum
og viðskiptahindrunum í formi staðla og sértækra skilgrein-
inga til að vernda eigin framleiðendur.
Þótt athyglin hafi beinzt að viðskiptadeilum risanna, er
staðreyndin sú að hömlur þeirra á fríverzlun koma verst niður
á smærri ríkjum, sem eiga mikið undir útflutningi, ekki sízt
þróunarríkjum þriðja heimsins. Þessum ríkjum er lífsnauðsyn
að víðtækar reglur um sem frjálsasta verzlun gildi og að al-
þjóðastofnunum sé fengið vald til að framfylgja þeim.
Bíladeila Japans og Bandaríkjanna kom aldrei formlega til
kasta hinnar nýju Alþjóðaviðskiptastofnunar (WTO) og Japan-
ir hafa nú dregið kvörtun sína vegna fyrirhugaðra refsiað-
gerða Bandaríkjamanna til baka. Hins vegar má segja að það
sé jákvætt að viðræður deiluaðilanna fóru fram í Genf, sam-
kvæmt reglum WTO um lausn deilumála. Hin nýja stofnun
mun vonandi styrkjast á næstu árum og áratugum og stuðla
að víðtækri og raunverulegri fríverzlun um allan heim.
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995 27
Kínverskur læknir mun gera taugaflutningsaðgerð á Landspítalanum á íslenskri stúlku
LEIÐTOGAKJÖR BRESKA ÍHALDSFLOKKSINS
HLUSTUÐUM ALDREI
Á ÚRTÖLURADDIR
Auður Guðjónsdóttir hefur í fjögur ár leitað
að skurðlækni sem gæti hjálpað dóttur
hennar, Hrafnhildi, sem lenti í alvarlegu slysi
árið 1989. Áslaug Ásgeirsdóttir ræddi
við mæðgurnar um leitina sem lá um hálfan
hnöttinn og lauk í Kína.
Reuter
JOHN Redwood þykir skarpur en heldur kuldalegur. Að baki
honum er Norman Lamont, fyrrum fj'ármálaráðherra, sem
þótti líklegur frambjóðandi til leiðtoga, en hefur síðan lýst
stuðningi við Redwood.
Ihaldsmenn
standi við
gefin loforð
John Redwood segir m.a. í viðtali við The
Daily Telegraph að hann njóti ekki einungis
stuðnings þröngs hóps innan Ihaldsflokksins
og sé ekki forsprakki flokksbrots heldur
framtíðarleiðtogi flokksins
Reuter
MARGARET Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra, segist
álíta að það eigi fyrir Redwood að liggja að verða
forsætisráðherra Bretlands.
VIÐ ERUM komnar þetta
langt því við hlustuðum
aldrei á úrtöluraddir,“ seg-
ir Auður Guðjónsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, en eftir fjögurra
ára erfiða leit hefur Auður loksins
fundið mann sem hún vonast til þess
að geti með skurðaðgerð komið
Hrafnhildi Thoroddsen, dóttur henn-
ar, til hjálpar. Hrafnhildur slasaðist
alvarlega í bílslysi árið 1989 og hefur
verið að mestu bundin við hjólastól
síðan. Maðurinn er dr. Shaocheng
Zhang, kínverskur prófessor í skurð-
lækningum, sem kemur hingað til
lands á þriðjudag, ef allt fer að ósk-
um, og mun hann framkvæma tauga-
flutningsaðgerð í neðri hluta baks
Hrafnhildar. Slík aðgerð hefur ekki
verið framkvæmd svo vitað sé til á
Vesturlöndum, segir Auður, en Zhang
hefur gert slíkar aðgerðin í um 10 ár
í Kína.
I bílsiysinu þríbrotnaði fjórði lend-
arliður Hrafnhildar og færðist til um
1 cm. Auður tekur fram að Hrafnhild-
ur sé einungis taugasködduð en ekki
mænusködduð og því sé þessi aðgerð
möguleg. Taugar eru ekki slitnar frá
mænunni heldur er svokallað mænu-
tagl slitið í sundur að hluta eða öllu
leyti.
Hrafnhildur getur hreyft vinstri
legg örlítið en í þeim hægri hefur hún
engan mátt. Vonast mæðgurnar til
að árangur aðgerðarinnar verði sá að
Hrafnhildur geti notað a.m.k. vinstri
fótinn meira en nú er. Dr. Zhang seg-
ir þó nær engar líkur á að aðgerðin
breyti neinu, of langt sé um liðið frá
slysinu.
Bið eftir að árangur sjáist
Dr. Zhang mun fá aðstoð íslenskra
lækna, aðallega dr. Halldórs Jónsson-
ar, yfirlæknis á bæklunardeild Land-
spítalans, en hann gerði aðgerð á
baki Hrafnhildar eftir slysið. Auður
segir að aðgerðin sé framkvæmd á
þann hátt að opnað verði inn að
mænutagli og skoðað hvaða taugar
eru í sundur og hvaða ekki. Vonast
Auður til að einhveijar taugar sem
liggja niður vinstri legg séu ekki slitn-
ar, heldur séu þær einungis undir
þrýstingi örvefs. Nóg verði því að
klippa á örvefinn og létta þrýstinginn
og þannig geti Hrafnhildur fengið
meiri not af vinstra fæti.
Líkur eru á að allar taugar séu í
sundur hægra megin. Með því að setja
skyntaug við mænutaglið þar sem það
er slitið er vonast til að hreyfitaugarn-
ar fari að vaxa meðfram skyntauginni
niður fótlegginn. Taugavefur vex um
1 mm á dag og því getur árangur
látið bíða eftir sér. Kveðst Auður ekki
búast við öðru en að það taki a.m.k.
tvö ár að sjá hver árangurinn verði.
segir Auður. „Markmiðið var að finna
einhvern sem gæti gert taugaflutn-
ingsaðgerð á dóttur minni.“
Hún hófst handa fyrir fjórum árum
og hefur það komið sér mjög vel að
Auður er skurðhjúkrunarfræðingur á
Landspítalanum og hefur starfað við
það í 25 ár. Við leitina naut hún að-
stoðar tveggja bókasafnsfræðinga,
sérstaklega Steinunnar Stefánsdóttur
í Verslunarskólanum en einnig Sól-
veigar Þorsteinsdóttur á bókasafni
Landspítalans. Reyndu þær stöllur að
finna rannsóknir í sambandi við taug-
ar í neðri hluta baks og einnig því sem
er að gerast á sviði rannsókna á
taugavef. Hófst leitin í Bandaríkjun-
um og reyndi hún aðallega að komast
í samband við ýmsar rannsóknar-
stofnanir. Oft var fátt um svör.
Síðan gerðist það að -Sólveig sendi
Auði skrá um öll skurðlæknaþing sem
halda átti í Bandarikjunum á síðasta
ári. Úr þeim valdi Auður fjögur þing
sem hún ætlaði að athuga betur og
skrifaði ábyrgðarmönnum þeirra bréf
með erindi sínu. Henni leist best á
þing slysaskurðlækna í Las Vegas í
september sl. og kom á daginn að það
var eina þingið þar sem erindi hennar
var svarað. Ábyrgðarmaður þingsins
var læknir að nafni dr. Sinatra, en
hann er fyrrum skurðlæknir sem
hætti störfum eftir að hann lamaðist
eftir bifreiðaslys. „Hann skildi þetta
því hann var í hjólastjól sjálfur," segir
Auður.
Hópur sérvitringa að
sinna áhugamáli sínu
Dr. Sinatra sagði Auði að á þingið
virtist vera hópur sérvitringa frá víðri
veröld og þetta voru læknar af lífi og
sál. Flestir þeirra voru eldri menn sem
áttu nóga peninga og voru þarna til
að sinna áhugamáli sínu.“
I Las Vegas hitti Auður dr. Zhang
og sýndi honum niðurstöður rann-
sókna sem Hrafnhildur hafði gengist
undir til að móðir hennar hefði sem
nákvæmasta upplýsingar um ástand
hennar. Fyrsti úrskurður dr. Zhangs
var neikvæður. Hann sagði að of lang-
ur tími væri liðinn frá slysinu, Hrafn-
hildur hefði þurft að koma til hans
þremur árum fyrr. Þegar hún fékk
útskurðinn segist Auður hafa haft í
huga tilvitnun í Biblíuna: „Knýið á
og fyrir yður mun upplokið verða.“
Hún útskýrði fyrir dr. Zhang að
Hrafnhildur hefði engu að tapa.
Eftir smá umhugsun ákvað hann
að bjóða þeim til Kína þar sem hann
gæti rannsakað Hrafnhildi sjálfur,
„Ég skal ekki segja nei fyrr en ég
er öruggur um að ekkert sé hægt að
gera,“ segir Auður að dr. Zhang hafi
sagt. Einnig vildi hann athuga hvort
tæknilega mögulegt væri að gera
aðgerðina því svo langt væri liðið frá
slysinu.
Lagt á brattann
í mars í ár fóru Hrafnhildur, Auð-
ur, Bjarni Halldórsson, eiginmaður
Auðar, og dóttir þeirra, Guðrún Dóra
Bjarnadóttir, til Kína. Dr. Zhang vinn-
ur á spítala sem starfrækir meðal
annars lækningastofu fyrir útlendinga
i úthverfi Sjanghæ sem rekin er af
kínverska hernum og segir Auður að
spítalinn hafi verið mjög vel búinn.
Að vísu hafi verið minni
munaður á legudeildum
sjúkrahússins í Sjanghæ en
hér.
Það var margt óljóst
þegar ferðin hófst. Til stóð
að Hrafnhildur yrði skorin upp í Kína
ef Zhang teldi að aðgerðin væri mögu-
leg og hefðu þau þá þurft að dvelja
í Kína í þrjá mánuði. „Þegar við lögð-
um af stað vissum við ekkert hvað
læknirinn myndi segja,“ segir Auður.
„En nokkrum dögum áður en við fór-
um fékk Hrafnhildur sýkingu í set-
beinið, en við ákváðum samt að leggja
á brattann.“ Að loknum rannsóknum
ákvað dr. Zhang að hægt væri að
skera Hrafnhildi upp, en vildi ekki
gera það svo fljótt eftir sýkingu. Eft-
ir tvær vikur var svo haldið til íslands
á ný.
Tíminn í Kína var einnig nýttur til
skoðurnarferða og til að tryggja að
Zhang væri rétti maðurinn og ekki
væri um neinn fúskara að ræða. Auð-
ur fylgdist því með lækninum gera
I Sjanghæ
Dr. ZHANG ásamt Auði,
Hrafnhildi og Guðrúnu Dóru
í Sjanghæ í mars síðastliðnum.
Þar endaði leitin að lækni sem
gæti framkvæmt taugaflutn-
ingsaðgerð á mænutagli
Hrafnhildar.
samskonar aðgerð og gera á við
Hrafnhildi á baki kínversks drengs
sem lenti í slysi. „Hann kann að nota
hníf,“ segir hún.
Ljómaði eins og jólatré
Dr. Zhang bauð Hrafnhildi að koma
aftur á sjúkrahúsið en Auður útskýrði
að ferðalög væru Hrafnhildi mjög erf-
ið. Því bauð Auður honum að koma
til íslands og skera upp þar. „Það var
eins og ég hefði stungið jólatré í sam-
band,“ segir hún. „Dr. Zhang varð
svo ofboðslega glaður.“ Hann spurði
hvort hann mætti virkilega skera upp
hér á landi og segist Auður hafa út-
skýrt fyrir honum að ísland væri fá-
mennt land og því kæmu hingað um
3-4 erlendir gestaskurðlæknar á ári.
Þegar heim kom tók svo skrif-
finnskan við. Til þess að dr. Zhang
fengi brottfararleyfi þurfti heilbrigðis-
ráðuneytið að bjóða honum hingað til
lands, sem það og gerði. Ráðuneytið
sendi svo bréf þess efnis til utanríkis-
ráðuneytis Kína. Einnig hefur utan-
ríkisráðuneytið hér á landi haft milli-
göngu í málinu. Segir Auð-
ur að starfsmenn beggja
íslensku ráðuneytanna sem
að málinu komu hafi gert
allt til að aðstoða hana í
því að fá Zhang hingað og
kann hún þeim þakkir fyrir.
Eftirvænting ríkir
Eftir viku leggst Hrafnhildur undir
hnífinn og segir Auður að samstarfs-
fólk hennar bíði með eftirvæntingu
eftir komu læknisins. Auður segi að
þrátt fyrir að dr. Zhang sé svartsýnn
á árangur aðgerðarinnar á Hrafn-
hildi, þá vilji hann ekki taka möguleik-
ann frá henni.
Sjálf segist Hrafnhildur ekki kvíða
aðgerðinni, þó að aðdragandinn hafi
oft reynt á taugarnar. Hún segir að
henni hafi litist vel á Zhang þegar
hún hitti hann. „Eg verð að fara því
þetta er eina tækifærið sem ég hef,“
segir hún. „Ég hef svolitla von þótt
hún sé ekki mikil. Ég vil bara fara
að gera út um þessi mál.“
RAMBOÐSFRESTUR í
leiðtogakjöri breska
íhaldsflokksins rann út á
hádegi í gær. Fyrsta um-
ferð fer fram næstkomandi þriðju-
dag. Einungis kom fram eitt mót-
framboð við John Major, sitjandi
forsætisráðherra, og stendur valið
því milli hans og Johns Redwoods,
sem á hugmyndafræðilegar rætur
sínar að rekja til fyrrverandi for-
sætisráðherra, Margaretar Thatc-
her. Eftirfarandi viðtal blaðamanns
The Daily Telegraph við Redwood
er nokkuð stytt.
Skiljanlegri stjórn
Hvers vegna skyldi íhalds-
flokkurinn treysta þér til þess að
sigra í næstu þingkosningum?
„Ég boða stefnu sem ég held að
almenningur vilji að við veitum
möguleika á og að okkur gangi vel
að fylgja. Fólk vill borga lægri
skatta. Það vill aukna hagkvæmni
í ríkisrekstri. Það vill að ríkiskerfið
sé skiljanlegra. Það vill að þjónusta
sé auðsóttari fyrir það sjálft og fjöl-
skyldur þess. Þetta býð ég upp á.“
Hvers vegna getur John Major
ekkigert þetta?
„Ég vil hraða málunum, mér
finnst við þurfa að gera mun betur
en við höfum gert að undanförnu.
Urslitin [í sveitarstjórnarkosn-
ingunum] 4. maí sýndu að margir
íhaldsmenn eru ekki reiðubúnir að
greiða okkur atkvæði sín, og sumir
eru jafnvel reiðubúnir að veita öðr-
um flokkum atkvæði sín. Ég varð
ekki var við, hjá fólki, mikinn áhuga
á áætlun [Tony] Blairs [formanns
Verkamannaflokksins] eða áætlun
[Paddy] Ashdowns [formanns
Fijálslynda demókrataflokksins].
Ég varð var við einlægan vilja til
þess að segja við íhaldsmenn: Þið
þurfið að standa ykkur betur og
standa við gefin loforð. Það er það
sem ég vil að við gerum.“
Einungis
þeir óánægðu?
í herbúðum Majors gáfu menn í
skyn, þegar þú skýrðir frá stefnu
þinni, að margar hugmyndanna
væra nú þegar til umræðu í ríkis-
stjórninni og þú hefðir einungis
orðið fyrstur til þess að tala um
þær opinberlega. Er þetta satt?
„Ég yrði afskaplega ánægður ef
allar þessar hugmyndir yrðu rædd-
ar í ríkisstjórninni, en ég held að
það sé ekki mitt hlutverk að ljóstra
því upp hvað er rætt í stjórninni.
Ef maður býður sig fram til leið-
toga verður maður að útlista sínar
eigin hugmyndir og bestu stefnu-
mál.“
Það var nefnt, þegar þú fórst af
stað í kosningabaráttuna, að þér
hefði einungis tekist að afla þér
stuðnings þeirra óánægðu. Skamm-
astu þín fyrir að hafa, á fyrsta
degi, verið nefndur í tengslum við
Teresu Gorman og Norman Lam-
ont?
„Nei, ég skammaðist mín ekki.
Þegar maður hefst handa við kosn-
ingabaráttu í leiðtogakjöri, og kem-
ur eins og þruma úr heiðskíru lofti,
þá er maður þakklátur fyrir allan
stuðning. Ég vil þakka öllu því sam-
starfsfólki mínu sem var frá upp-
hafi reiðubúið til þess að lýsa yfir
stuðningi við John Redwood. Síðan
þá hafa fleiri og fleiri lýst stuðn-
ingi við mig og það sýnir að ég nýt
ekki einungis stuðnings í afmörkuð-
um hópi innan flokksins. Ég vil
byggja á víðtækum stuðningi. Þetta
er ekki sannfæring leiðtoga flokks-
brots. Þetta er sannfæring framtíð-
arleiðtoga íhaldsflokksins."
V elf erðarkerfið
Þú hefur talað um mikilvægi
stórfjölskyldunnar og um að hafa
þurfi hemil á fjárveitingum til vel-
ferðarmála. Hvaða áætlanir hef-
urðu uppi um hvernig draga megi
úr velferðarkostnaði?
„Besta leiðin til þess að draga
úr kostnaði við velferðarmál er að
halda áfram þeirri stefnu okkar,
sem hefur gefist vel, að bæta og
endurreisa efnahaginn. Kostnaður
við bótagreiðslur jókst vegna efna-
hagslægðarinnar, en þegar atvinnu-
leysi minnkar dregur einnig úr
kostnaði við veiferðarmál. Ég er
hlynntur þeim endurbótum sem við
höfum unnið að með því að búa til
láglaunastörf svo að fleira fólk geti
greitt hluta af útgjöldum sínum
með launum sínum og komist aftur
út á vinnumarkaðinn. Ég held enn-
fremur að hlutverk stórfjölskyld-
unnar geti orðið stærra. í sumum
tilvikum, held ég, gætu afar og
ömmur tekið mikilvægan þátt í
uppeldi barna, í stað þess að treyst
sé á ummönnun á stofnunum."
[Margaret] Thatcher hefur sagt
að stjórnvöld þurfi að gera greinar-
mun á fátæku fólki sem er hjálpar
vert og fátæklingum sem eiga ekki
skilið hjálp. Sýnist þér að þetta sé
mikilvæg skilgreining?
„Ég myndi ekki orða þetta svona.
Ég geri ráð fyrir að það sem
Margáret Thatcher á við sé að ef
fólk er í þeirri aðstöðu að geta feng-
ið vinnu þá beri því að gera það.
Ég er eindregið fylgjandi því. Slíkt
væri gott fýrir fólkið sjálft og lands-
menn alla. Það er því stefna okkar
að hvetja fólk til vinnu, og setja
reglur um bótarétt ef maður er í
aðstöðu til þess að taka vinnu sem
býðst.“
Ríkið er
vont foreldri
Því er haldið fram að þú hafir
látið þig varða málefni einstæðra
mæðra. Myndirðu vilja breyta vel-
ferðarkerfinu og hvetja til þess að
stórfjölskyldan tæki við umönn-
unarhlutverkinu af ríkinu? Mynd-
irðu, í stórum dráttum, vilja auka
áhersluna á siðferði sem grundvall-
aratriði í velferðarkerfinu?
„Ég myndi hiklaust vilja að fólk
beri ábyrgð á ummönnun í samfé-
laginu, og það ætti ekki að koma
börnum fyrir á uppeldisstofnunum
nema að kyrfilega athuguðu máli.
Ég held að ríkið sé ekki gott for-
eldri. Ég held að yfirleitt sé betra
að foreldrar, eða afar og ömmur
eða aðrir fjölskyldumeðlimir sjái að
mestu leyti um uppeldi barna.
Þannig er ég ekki að tala um að
skylda fólk. Það þyrfti að leggja
meiri áherslu á að hjálpa fjölskyld-
um til þess að hjálpa sér sjálfar.
Myndirðu taka undir með ýmsum
öðrum á hægri væng flokksins sem
sjá tengsl milli þess hversu yfir-
þyrmandi velferðarríkið er og auk-
innar glæpamennsku?
„Ég held að ástæðurnar fyrir því
að glæpum fjölgar séu margar og
flóknar. Að hluta til er það vegna
skorts á fjölskylduaga og líka vegna
skorts á aga í skólum; en kannski
er það vegna skorts á ást eða
ákveðni. Maður verður að huga að
hveiju einstöku tilviki og þess
vegna tel ég óráðlegt að alhæfa
um ástæðurnar. Við þurfum að ná
athygli fleira ungs fólks meðan það
er enn í skóla, áður en það missir
áhuga og fer að hanga á götuhorn-
um.“
Val milli
tveggja manna
I augnablikinu virðist helst sem
töluverður fjöldi fólks vilji að [Mich-
ael] Portillo bjóði sig fram ef kem-
ur til annarrar umferðar, og það
virðist á báðum áttum hvort besta
leiðin til þess að tryggja að svo
fari sé sú að kjósa þig. Hvað viltu
segja við þetta fólk?
„Valið stendur milli mín og Johns
Majors. Það verður að gera upp við
sig hvort honum eða mér sé betur ,
treystandi sem leiðtoga til þess að
við sigrum í næstu kosningum. Það
verður að gera upp við sig hvort
hans tillögur eða mínar eru betri.
[...] Ég á ákaflega erfitt með að
henda reiður á öllum þessum skipu-
lagsvangaveltum um hvað geti
gerst „ef“, þar eð valið stendur ein-
faldlega milli tveggja manna sem
hafa sínar hugmyndir um framtíð
íhaldsstefnunnar. Ef fólk vill skipu-
leggja þá er svarið augljóst, vilji
menn fá aðra umferð verða þeir
að kjósa mig. Valið stendur unr.
hvort John Major eða ég skuli vera
leiðtogi flokksins."
Ef Major verður endurkjörinn,
munt þú veigra þér við að styðja
hann heils hugar?
„Alls ekki. Ég mun sætta mig
við dóm jafningja minna. Ef þeir
telja það rétta ákvörðun mun ég
styðja þá af heilum hug.“
Löng leit að réttum manni
Þó að aðgerðin sé um margt merki- kæmi kínverskur skurðlæknir sem
leg, þá er leitin að dr. --------:---------- hefði mikla reynslu á tauga-
Zhang ekki síður óvenjuleg KjÖrorðÍé VST' skurðlækningum á því
og lýsir vel baráttuanda Á...» __ . svæði sem Hrafnhildur
mæðgnanna. „Ég ákvað að e 9 ■* skaddaðist á og bauð hann
hafa sem einkunnarorð: munuo Tinna Auði að koma til Las Veg-
Leitið og þér munið finna," *™”““““ as. „Þetta var svolítið
merkilegt þing,“ segir hún. „Þetta
Hef svolitla
von þó að hún
sé lítil