Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C
145. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Major virðist vera að sækja í sig veðrið
Hafnar kappræð-
um við Redwood
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, kvaðst í gær fullviss um að
sigra í leiðtogakjöri íhaldsflokksins
í næstu viku og vísaði á bug áskorun
keppinautarins Johns Redwoods,
fyrrverandi ráðherra, um kappræður
um ágreiningsefnið innan íhalds-
flokksins, Evrópumálin, áður en kjör-
ið færi fram nk. þriðjudag. Talið er
að Major hafi bætt mjög stöðu sína
innan flokksins með góðri frammi-
stöðu á þingi í gær.
„Eg ætla mér að vinna með góðum
meirihluta,“ sagði Major í viðtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, í gær en
til að komist verði hjá annarri um-
ferð í leiðtogakjörinu þarf hann að
fá helming atkvæða og að auki 15%
fleiri atkvæði en Redwood. Hann
hafnaði einnig áskorun Redwoods
um kappræður og sagði hana gam-
alt bragð hjá þeim, sem sæju sér
ósigur búinn.
Fór á kostum í þinginu
Major þótti standa sig einstaklega
vel í umræðum á þingi í gær og kom
oft fyrir að allur þingheimur skellti
upp úr yfir hnyttnum tilsvörum hans.
Var hann mjög öruggur með sig og
eru stuðningsmenn hans í sjöunda
himni yfir frammistöðunni. Þá þykir
það ekki verra að þótt Verkamanna-
flokkurinn hafi 27 prósentustiga for-
skot í nýrri skoðanakönnun, hefur
íhaldsflokkurinn bætt við sig sjö pró-
sentustigum frá því Major tók af
skarið og krafðist leiðtogakjörs.
Jeltsín hirtir æðstu menn varnar- og öryggismála á fundi
Ráðherrar bjóðast
til að segja af sér
Moskvu. Reuter.
Schengen-ríki
Island og
Noregur
fái aðild
Brussel. Reuter.
SCHENGEN-ríkin, 10 Evrópusam-
bandsríki, sem ætla að fella niður
landamæraeftirlit sín á milli, sam-
þykktu í gær að hefja aðildarvið-
ræður við Islendinga og Norðmenn.
Strangt tiltekið geta Noregur
og ísland ekki fengið aðild að
Schengen vegna þess að ríkin eru
ekki í Evrópusambandinu, en samt
er stefnt að viðræðum um hana í
september nk. Hún er forsenda
þess, að Danmörk, Svíþjóð og Finn-
land geti tengst Schengen og stað-
ið við vegabréfasamninga milli
Norðurlandanna iBmm.
Johan Vande_ Lanotte, innanrík-
isráðherra Belgíu og núverandi
forseti Schengen, sagði í gær að
yrðu Norðmenn og íslendingar
aðilar, yrðu þeir að lúta reglunum
án þess að hafa neitt um þær að
segja.
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti
átti fund með öryggisráði sínu í
gærmorgun en í því sitja m.a. ráð-
herrar varnar-, öryggis- og innan-
ríkismála. Forsetinn gagnrýndi
harkalega frammistöðu þeirra í
tengslum við gíslatökuna í Búd-
ennovsk. „Rússland hefur orðið fyr-
ir miklu pólitísku og siðferðilegu
tjóni. Grípa verður til ráðstafana
vegna lykta málsins og ekki má
beita neinum vettlingatökum í þeim
efnum,“ sagði Jeltsín.
Að sögn forseta neðri deildar
þingsins, ívans Rybkíns, buðust
þeir Pavel Gratsjov varnarmálaráð-
herra og Víktor Jerín innanríkisráð-
herra til að segja af sér embætti.
Rybkín sagði að Oleg Lobov, ritari
öryggisráðsinsj starfandi saksókn-
ari, Alexej Iljúsjenko, ráðherra
þjóðernisminnihluta, Níkolaj Jeg-
orov og yfirmaður öryggismála,
Sergej Stepasín, hefðu einnig tekið
til máls.
Jeltsín tekur sér
tíma fram til 10. júlí
„Þetta var harkaleg og erfið
umræða," sagði Rybkín. „Allir þeir
sem ég nefndi gera sér grein fyrir
sekt sinni.“ Hann sagðist telja að
Jeltsín myndi taka sér tíma fram
til 10. júlí og íhuga stöðu allra þess-
ara manna.
Jeltsín hefur ávallt varið sína
menn, hversu hart sem sótt hefur
verið að þeim enda eiga þeir marg-
ir hönk upp í bakið á honum.
Gratsjov, Jerín og Stepasín stóðu
allir með Jeltsín er þingið gerði
uppreisn gegn forsetanum haustið
1993.
Ljóst er að forsetinn á úr vöndu
að ráða en stjórnmálaskýrendur
benda á að afsagnartilboðið geti
verið brella sem ætlað sé að friða
þingmenn í bili en þeir munu á
morgun greiða á ný atkvæði um
vantraust á ríkisstjórn Víktors
Tsjernomýrdíns forsætisráðherra.
■ Svæði kósakka vilja heyra
undir Moskvu/20
Reuter
Stórslys
í Seoul
TUGIR manna létust og mörg
hundruð slösuðust þegar helm-
ingur fimm hæða verslunarhúss
í Seoul í Suður-Kóreu hrundi
skyndilega í gær. Féllu hæðirnar
niður í kjallara hússins þannig
að tilsýndar virtist sem það hefði
horfið af yfirborði jarðar. í gær-
kvöld höfðu fundist Iík 44 manna
og vitað var um meira en 700
slasaða en sumir óttuðust, að um
1.000 manns væri undir rústun-
um. Nokkru áður höfðu komið í
ljós brestir í burðarvirki á efstu
hæðinni, sem virtist vera að slig-
ast, en samt var ekkert aðhafst
og verslunin höfð opin. Eru þess-
ir atburðir alvarlegt áfall fyrir
ríkisstjórn landsins en þar hefur
orðið hvert stórslysið öðru meira
á undanförnum mánuðum og
árum.
■ Verslunarhús hrynur/19
Reuter
Skæruliða leitað
SÉRS VEITIR ísraelska hersins felldu í gærmorgun
Taher Qafisheh, einn leiðtoga Hamas-skæruliða-
hreyfingarinnar, í Hebron á Vesturbakkanum. Var
hann eftirlýstur vegna morðs á sex ísraelum. í leit
að öðrum skæruliðum létu ísraelsku hermennirnir
risastóra jarðýtu brjóríi niður tvö íbúðarhús með
húsgögnum og öllu saman og eyðileggja einnig
nálægar vínekrur. Fleiri skæruliðar fundustþó ekki,
Hlerunarhneykslið á Spáni
Gonzaiez sakast við
leyniþjónustuna
Madrid. Reuter.
FELIPE Gonzalez, forsætisráðherra
Spánar, sagði í gær að ríkisstjórnin
hefði ekki haft hugmynd um, að
leyniþjónustan hefði hlerað síma
konungsins og helstu stjórnmála- og
kaupsýsluleiðtoga landsins og væri
þvi við hana eina að sakast.
Á aukafundi á þinginu sagði for-
sætisráðherrann að ríkisstjórninni
hefði verið ókunnugj; um hleranirnar
og rannsókn hefði leitt í ljós að
hvorki aðstoðarforsætisráðherrann,
Narcis Serra, né varnarmálaráðherr-
ann, Julian Garcia Vargas, hefðu
átt hlut að máli. Báðir buðust þeir
til þess að segja af sér þegar upp
komst um hleranirnar fyrir tæpum
hálfum mánuði.
Jose Maria Aznar, leiðtogi stjórn-
arandstöðu hægri manna, sagði við
þingheim að Gonzalez hefði sýnt að
hann væri ófær um að stjórna land-
inu, þvi honum hefði ekki tekist að
ná tökum á málinu og ekki brugðist
við óstöðugleikanum í ríkisstjórninni.
Krafðist Aznar þess að boðað yrði til
kosninga.
Upp komst að leyniþjónusta
spænska hersins hafði um árabil hler-
að farsíma stjórnmálamanna, kaup-
sýslumanna og jafnvel síma Jóhanns
Karls Spánarkonungs. Hefur mál
þetta valdið stjórn Sósíalistaflokks
Gonzalez einhveijum mestu vandræð-
um sem hún hefur ratað í á þrettán
ára stjórnarferli.