Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Islendingar
í 7. sæti
Æsispenn-
andi loka-
umferðir
framundan
Vilamoura. Morgnnblaðið.
ÞÓTT íslenska liðið í opna flokkn-
um á Evrópumótinu í brids dytti
úr 5. í 7. sæti í gær hafa möguleik-
ar liðsins á að ná einu af efstu
sætunum frekar aukist.
Þegar eftir eru fjórar umferðir
á mótinu vantar liðið aðeins 6 stig
upp í 4. sætið, þar sem Frakkar
sitja. Staðan á toppnum er ótrúlega
jöfn og spennandi en efstir eru
ítalir með 488,5 stig. Næstir eru
Hollendingar með 479,5 stig, þá
Pólverjar með 470 stig. Frakkar
hafa 461 stig, Svíar 460,5, Portúg-
alir 457 og Islendingar 455 stig.
ísraelsmenn hafa 454 og Grikkir
453 stig.
íslendingar töpuðu fyrir Líban-
onbúum 7-23, í fyrri leik gærdags-
ins. Þetta voru eðlilega mikil von-
brigði, enda unnu flestar hinar þjóð-
imar í baráttusætunum leiki sína,
en í síðari leiknum unnu íslending-
ar sigur á Tyrkjum, 21-9, og á
sama tíma töpuðu allar efstu þjóð-
imar sínum leikjum nema Pólveijar
og Frakkar. Því breyttist staða
efstu þjóða lítið innbyrðis í gær.
Þrír leikir verða spilaðir í dag
en síðasti leikurinn á morgun,
laugardag. í dag spilar ísland við
Tékka, Austurríkismenn og Spán-
vetja en síðasti leikurinn er gegn
Svisslendingum. Það er íslending-
um hagstætt að efstu þjóðirnar
eiga nokkrar eftir að spila innbyrð-
is í lokaumferðunum.
Konur í 15. sæti
Kvennaliðið tapaði 8-22 fyrir
Þjóðveijum í fyrri leik gærdagsins
en í síðari leiknum vann kvennalið-
ið Hollendinga 18-12, í vel spiluð-
um leik. Kvennaliðið er nú í 15.
sæti með 268,5 stig og lýkur
keppni í dag. Síðustu tveir leikir
liðsins em gegn San Marino og
Austurríki.
Griðland á
golfvellinum
FUGLABÚSKAPURINN er með
blómlegra móti í Eyjum um
þessar mundir og hafa mófugl-
arnir, til dæmis tjaldurinn og
lóan, verið duglegir við að velja
sér hreiðurstæði nærri mann-
skepnunni. Segja kunnugir að
þannig hafi fuglinn meiri frið
fyrir skyldmennum sínum af ætt
varga sem leiti bæði uppi egg
og unga. Hvort smáfugiarnir
eru jafnskarpir skal ósagt látið
en hreiðri þúfutittlingsunganna
hefur verið haganlega fyrir
komið á golfvellinum inni i Herj-
ólfsdal, nánar tiltekið á miðri
fjórðu braut. Þar geta þeir ró-
legir glennt upp sex litla gogga
í von um eitthvert lítilræði frá
mömmu.
Fjármálaráðherra um fjárlagagerðina
Niðurskurður
verður verulegur
RÍKISSTJÓRNIN fjallaði á fundi sín- get ekkert frekar tjáð mig um það
um í gær um undirbúning fjáriaga
fyrir árið 1996, og að sögn Friðriks
Sophussonar, fjármálaráðherra,
skiptu ráðherrar þar á sig verkum
hvað varðar'vinnu við fjárlagagerð-
ina.
Friðrik sagði í samtali við Morg-
unblaðið að búið væri að skipta niður
á einstök ráðuneyti áætlunum um
niðurskurð, en á þessu stigi vildi
hann ekki nefna neinar tölur í því
sambandi.
„Það er alveg Ijóst að vöxtur er
mikill í útgjöldum og þarna er um
verulegan niðurskurð að ræða. Ég
því það sést ekkert fyrr en í ágúst-
mánuði hvert þetta stefnir," sagði
Friðrik.
Hann sagði að vinna við fjárlaga-
undirbúninginn færi fram í ráðuneyt-
unum í júlímánuði, en um miðjan
ágúst myndu ráðþerrar í ríkisstjórn-
inni hittast og bera saman bækur
sínar.
í fjárlögum ársins 1995 er gert
ráð fyrir að hallinn verði 7,5 milljarð-
ar króna og sagði Friðrik að horfur
væru á að það yrði niðurstaðan þrátt
fyrir útgjaldaauka, m.a. vegna kjara-
samninga.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Talsverður munur á gengi við útreikninga á kortafærslum
Getur valdið
miklum auka-
kostnaði
Að minnsta kosti 5% munur getur veríð
á milli greiðslukortafyrirtækj anna á
gengi því sem miðað er við þegar fjárhæðir
í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar
yfír í íslenskar krónur.
VIÐMIÐUNIN getur jafnvel verið
breytileg eftir mánuðum, og þannig
getur gengið verið lægra hjá Kredit-
kortum hf. en Visa ísland einn mán-
uð en hærra þann næsta, að sögn
Gunnars Bæringssonar, fram-
kvæmdastjóra Kreditkorta hf.
Nýlega hafði Morgunblaðið spurn-
ir af hjónum sem höfðu vérið á ferð
í Danmörku og Þýskalandi fyrri
helming júnímánuðar. Maðurinn _er
handhafi greiðslukorts frá Vísa ís-
landi en konan korts frá Kreditkort-
um hf.
Samanburður á greiðslukorta-
reikningum þeirra hjóna eftir heiin-
komuna leiddi í Ijós um 4% mun á
gengi því sem miðað var við þegar
fjárhæðir í dönskum og þýskum
gjaldmiðlum voru umreiknaðar yfir
í íslenskar krónur, og var viðmiðun-
argengi Kreditkorta hærra.
Greiðslukortareikningur eiginkon-
unnar, sem notaði Eurocard, hefði
verið um 6 þúsund krónum lægri
ef hún hefði notað Visa-kort eins
og eiginmaðurinn.
Ekki á valdi fyrirtækjanna
Gunnar Bæringsson segir ljóst að
þessi gengismunur geti haft í för
með sér verulegan kostnaðarmun
milli korta, sé keypt fyrir háar fjár-
hæðir. Ekki sé hins vegar á valdi
kortafyrirtækjanna að samræma
gengið eða leiðrétta þennan mun.
„Við þessu er því miður ekkert
að gera. Kreditkort hf. eiga við-
skipti við skiptimiðstöð Eurocard í
Brussel sem annast útreikninga í
þessu sambandi, en Visa ísland við
skiptimiðstöð f London. Skiptimið-
stöðvarnar deila síðan út greiðslum
og rukka öll fyrirtækin sem senda
færslur þangað. Þar er öllum við-
skiptum með greiðslukortum bland-
að saman í einn hrærigraut gjald-
miðla, þ.e. í nokkurs konar gengis-
körfu, og síðan er færslunum skipt
yfir í dollara og gengi hans þar
ræður hverjar upphæðirnar eru sem
við innheimtum. Fyrir kemur að
mismunur myndast á milli skipti-
stöðva og því stjórnar enginn, heldur
veltur þetta á hvaða gengiskarfa er
við lýði þegar þessum viðskiptum er
breytt yfir í viðkomandi gjaldmiðil.
Mikill munur
Ég get nefnt sem dæmi að ég er
bæði handhafi korta frá Eurocard
og Visa og í maí var 5% gengismun-
ur, Visa í óhag, en í þessum mánuði
snýst þetta við. Munurinn getur því
bæði verið hagstæður eða óhagstæð-
ur og því miður lentum við röngum
megin við strikið í þessum mánuði,"
segir Gunnar.
Leifur Steinn Elísson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Visa íslands,
kveðst þekkja til hlítar ástæður
umrædds gengismunar, en tilvik sem
þessi hafi áður komið til kasta fyrir-
tækisins. Helstu ástæður kunni að
vera þær að einhver munur sé á
þeim tíma sem tekur mismunandi
banka að meðhöndla færslur með
annars vegar Visa-korti og hins veg-
ar Eurocard, þótt þær séu gerðar
samdægurs.
Gengi gjaldmiðla geti breyst afar
hratt og vinni bankinn sem með-
höndlar Eurocard-færslu hraðar eða
hægar en bankinn sem meðhöndlar
Visa-færslu, kunni minnstu gengis-
sveiflur að hafa umtalsverð áhrif.
Einnig sé mögulegt að fyrirtæki ytra
séu ekki beintengd banka sínum og
skili inn greiðslukortanótum seint
og um síðir, með þeim afleiðingum
að dagsetning kaupanna segi ekki
allan sannleikann um á hvaða gengi
færslan er síðan reiknuð.
Gunnar segir að reglulega berist
fyrirspurnir frá korthöfum fyrirtæk-
isins vegna þessa gengismunar við
útreikninga, en þar sem greiðslu-
kortafyrirtækin notfæri sér mismun-
andi kerfi og gengi gjaldmiðla svei-
flist til fyrirvaralítið, sé vonlítið að
reyna að samræma viðmiðunina.
„Mér finnst þetta mikill munur en
kerfið er með þessum hætti og
stundum er þetta viðskiptavinum
okkar í óhag og stundum í hag,
þannig að við höfum sætt okkur við
þetta ástand."
Forseti Islands
Ráðgerð
opinber
heimsókn
tilKína
RÁÐGERT er að forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, fari í opinbera heim-
sókn til Kína
áður en
kvennaráð-
stefna Sam-
einuðu þjóð-
anna hefst í
Peking 4.
september
næstkomandi. í föruneyti for-
setans verður m.a. Halldór
Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra.
Frú Vigdís verður viðstödd
upphaf kvennaráðstefnunnar,
og mun hún flytja ræðu við
setningu hennar. Á ráðstefn-
unni verður jafnframt lögð
fram skýrsla sem hún flutti á
kvennaráðstefnu Evrópuráðs-
ins í febrúar síðastliðnum, og
verður hún framlag Evrópu-
ráðsins á ráðstefnunni.
Kiwanis-
hreyfingin
Eyjólfur
Sigurðsson
heimsforseti
EYJÓLFUR Sigurðsson var
kjörinn heimsforseti Kiwanis-
hreyfingarinnar á alheimsráð-
stefnu sam-
takanna í Las
Vegas 27.
júní sl.
Eyjólfur er
fyrsti Evr-
ópumaðurinn
sem gegnir
þessu embætti. Hann var
umdæmisstjóri íslensku Kiw-
anishreyfingarinnar á árunum
1974 og 1975, Evrópuforseti
1982-1983 og kjörinn fulltrúi
i heimsstjórn hreyfingarinnar
árið 1988.
Eyjólfur tekur við embætti
heimsforseta 1. október, en
sl. ár hefur hann starfað sem
verðandi-forseti.
í heiminum eru starfandi
8.600 Kiwanisklúbbar í 77
þjóðlöndum og meðlimir eru
samtals um 325 þúsund. Þess
má geta að ísland státar af
flestum meðlimum miðað við
íbúafjölda.
Varnarlið-
inu hótað
sprengju
SPRENGJUHÓTUN barst
herlögreglu varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli um klukk-
an 12 á hádegi í gær.
Að sögn Friðþórs Eydals,
upplýsingafulltrúa vamarliðs-
ins, gaf sá sem hringdi til
kynna að um fleiri en einn
stað, þar sem fólk safnast
saman í hádeginu, gæti verið
að ræða.
Að sögn Friðþórs eru svona
hótanir alltaf teknar alvarlega
og strax var gripið til þess
ráðs að rýma veitingastaði og
mötuneyti. Árangurslaus
sprengjuleit stóð til kl. 13.30.
Ekkert er vitað um hver var
að verki eða hvaðan hringing-
in barst.