Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ■ Morgunblaðið/RAX Hreppsnefndir Rangárvalla- og Djúpárhrepps um bréfin í Höfn-Þríhyrningi Kauptilboði SS hafnað HREPPSNEFND Rangárvalla- hrepps hefur hafnað tilboði Slátur- félags Suðurlands í hlut hreppsins í lqötvinnslunni Höfn-Þríhymingi hf. Hreppsnefndin tók þessa ákvörðun á fundi sl. miðvikudag. Að sögn Guðmundar Inga Gunn- laugssonar, sveitarstjóra Rangár- vallahrepps, var þessi ákvörðun tek- in þar sem framtíðaráform SS þóttu ekki samrýmast áætlunum hrepps- ins um fjölgun atvinnutækifæra sem hefði verið markmið með kaup- um á bréfunum á sínum tíma. Guðmundur segir að þó að þessu tilboði hafí verið hafnað komi fylli- lega til greina af hálfu hreppsins að selja hlut sinn í fyrirtækinu ef fýsilegt tilboð berst. Til viðræðu við alla Rangárvallahreppur á tæplega 20% hlut I Höfn-Þríhyrningi en Djúpárhreppur tæp 10%. Sláturfé- lagið gerði formlegt kauptilboð í hlut beggja hreppanna 2. júní sl. jafnframt því sern tilkynnt var að fyrirtækið væri til viðræðu við alla hluthafa um kaup. Iíreppsnefnd Djúpárhrepps hafnaði tilboði SS á fundi á þriðjudag, að sögn Heimis Hafsteinssonar, varaoddvita Djúp- árhrepps. Hugsanleg kaup skýrast síðar Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, segir þessa niðurstöðu valda sér vonbrigðum en hún komi sér þó ekki á óvart. Sláturfélagið hafi boðið öðrum hlut- höfum, sem eigi um 50% hlutfjár, að kaupa á sömu kjörum og svör við því tilboði séu þegar farin að berast. Þeim sé hins vegar tekið með fyrirvara um samþykki stjórn- ar Hafnar-Þríhyrnings og hún hafi tveggja. mánaða umþóttunartíma. Þá eigi eftir að reyna á það hvort forkaupsréttar verði neytt og því verði ekki ljóst fyrr en að einhverj- um tíma liðnum hvort SS fái ein- hverja hluti keypta. Loks sást til sólar SÓLIN skein loks á Reykvík- inga í gær, eftir votviðrasaman júnímánuð. Hitinn fór mest upp í 12,3 stig og margir höfuðborg- arbúar notuðu tækifærið og sleiktu sólina í sundlaugunum, eins og þessir glaðlegu krakkar sem brugðu á leik í Arbæj- arlauginni í Reykjavík. Búist er við ágætu veðri um allt land um helgina. Hæg norðvestanátt verður ríkjandi og víðast hvar verður léttskýjað. Slösuðum ferðamanni bjargað af Víðidalstunguafrétti Meirihluti bæjarráðs Hafnarfjarðar FÉLAGAR úr Hjálparsveit skáta á Blönduósi fóru aðfaranótt fimmtudags inn á Víðidalstungu- afrétt og sóttu slasaðan þýskan ferðamann. Tveir ferðafélagar hans gengu til byggða eftir hjálp. Allir vegir inn á afréttinn eru lokaðir umferð vegna bleytu. Farið var á snjóbíl enda talið ófært öðrum ökutækjum. Ferða- langarnir voru kærðir á Blöndu- ósi í gær fyrir að aka um lokaða vegi. Um hádegi á miðvikudag komu ástralskur karl og þýsk kona gangandi að bænum Haukagili í Vatnsdal og létu vita af því að eiginmaður konunnar væri óferðafær í Fellaskála inni á Víðidalstunguafrétti. Maðurinn hafði dottið á mótorhjóli og var meiddur á hné. Fóru um lokaða vegi Að sögn Þórs Gunnlaugssonar, lögregluvarðstjóra á Blönduósi, lögðu ferðalangarnir upp frá Þingvöllum 21. júní á þremur torfærumótorhjólum og óku um iokaðan Kaldadalsveg í Húsafell. Þaðan hélt fólkið ferð sinni áfram inn í Surtshelli og síðan norður um lokaða heiðarvegi. Mikil bleyta er á heiðunum og sukku hjólin í drulluna þannig að víða varð að ýta þeim áfram í forinni. Ferðin sóttist því seint. Nálægt Fellaskála datt Þjóðverj- inn af hjólinu, meiddi sig á hné og var óferðafær eftir það. Tryggingarnar borga Frá Fellaskála að Haukagili er um 35 km loftlína. „Þau lögðu af stað á þriðjudagsmorgun, gengu allan daginn, tjölduðu um nóttinij pg héldu syo áfrajn á „Hann var feginn að sjá okkur“ miðvikudagsmorgun þar til þau komu um hádegið niður í Haukagil," sagði Þór. „Hálendið er bara drullufor og alls ekkert fært,Þauypru drullugaipp að Ráðningarsamningi bæjarstjóra sagt upp hnjám, höfðu gengið í forar- drullu." Leitað var til lögreglunnar á Blönduósi um að bjarga mannin- um. Þór segir að hinn slasaði hafi verið tryggður hjá þýsku tryggingafélagi og var haft sam- band við það. Tryggingafélagið gekk síðan frá ábyrðartryggingu fyrir björgunarkostnaði. Hjálp- arsveit skáta á Blönduósi var fengin til að sækja hinn slasaða á snjóbil, enda útilokað að fara á fjallajeppa vegna færðarinnar. Ókræsileg færð Fjórir hjálparsveitarmenn lögðu upp á snjóbílnum frá Hrappsstöðum í Víðidal kl. 20.40 ■ á miðvikudagskvöld og komu þangað aftur rétt fyrir hádegi á fimmtudag. „Hann var feginn að sjá okkur,“ sagði Sigurður Ing- þórsson, ökumaður snjóbílsins, um það þegar þeir hittu ferða- manninn í skálanum. Þar var höfð stutt viðdvöl meðan búið var um manninn og mótorhjólin og aðrar föggur ferðafólksins settar i bilinn. Sigurður sagði ferðina hafa sóst hægt. Það var úrhellis- rigning og blindþoka á leiðinni inn á heiðina en heldur glaðnaði til undir morguninn. Færið var frekar ókræsilegt að sögn Sig- urðar og snjóbíllinn þunghlað- inn. Leiðin bæði blaut og grýtt, sem ekki er óskafæri fyrir gúmmíbelti snjóbílsins. Þrjú dekk sprungu og beltastífur bognuðu. - Hinn slasaði var fluttur til Akureyrar til læknisskoðunar. Lögreglan reiknaði með að hin tvö færu frá Blönduósi í dag. Fólkið var vel búið, hafði nóg eldsneyti og mat. MEIRIHLUTI bæjarráðs Hafnar- fjarðar samþykkti í gær að segja upp ráðningarsamningi við Magnús Jón Árnason bæjarstjóra. Ingvar Viktorsson, bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, lagði fram tillögu um uppsögn ráðningarsamnings frá 1. júlí nk. Tillagan var sam- þykkt með þremur atkvæðum þeirra Ingvars, Valgerðar Guð- mundsdóttur, bæjarfulltrúa Al- þýðuflokks, og Jóhanns G. Berg- þórssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæð- isflokks. Magnús Jón og Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðis- flokks, sátu hjá. Ráðinn af bæjarsljórn Magnús Jón bókaði að hann væri ráðinn af bæjarstjórn Hafnar- fjarðar og teldi því eðlilegt að tillög- unni yrði vísað til bæjarstjórnar. „Ég skil ekki hvað vaídr fyrir þeim,“ sagði Magnús Jón. „Ég hafði reiknað með að bæjarstjóm segði mér upp á fundinum sem verður á þriðjudag. Ingvar virðist ernnig líta svo á þar sem hann seg- ir mér ekki upp störfum heldur segir upp ráðningarsamningnum." Sagt upp fyrir mánaðamót Jóhann G. Bergþórsson segir að ráðningarsamningnum hafi fyrst og fremst verið sagt upp til að koma því á framfæri fyrir mánaða- mót vegna biðlauna. „Það er þá komið að þessu nýja yfirgnæfandi hugtaki um siðferði í stjórnmálum, hvernig hann hagar sér í því ljósi,“ sagði hann. Tillagan gæfi einnig til kynna að alþýðuflokksmenn ætluðu sér ekki að ganga til sam- starfs við Alþýðubandalagið. Þeir væru annars varla að segja samn- ingnum upp. ■ Oddvitinn hafnaði/10 Bæjarstjórn um Nesstofu Yegurinn að norðan BÆJARSTJÓRN Seltjarnar- ness samþykkti á fundi sínum í fyrradag, að vegur yrði lagður að norðanverðu að Nesstofu en ekki að sunnan. Jón Hákon Magnússon, ann- ar maður á lista Sjálfstæðis- flokks, studdi tillögu minnihlut- ans um að vegurinn að lækn- ingaminjasafninu í Nesstofu yrði lagður norðanvert að hús- inu. Meirihluti sjálfstæðis- manna hafði lagt til að vegurinn yrði að sunnan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.