Morgunblaðið - 22.07.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995 17
IMEYTEIMDUR
Ýmsar tegundir dönsku
ostanna uppseldar
ÞAÐ var örtröð við kæliborðið þar
sem dönsku ostarnir voru í Hag-
kaup í Kringlunni í gær og þeir sem
stöldruðu við til að skoða virtust
almennt kaupa nokkra osta til að
smakka. Viðskiptavinir veltu einnig
töluvert fyrir sér verði miðað við
íslensku ostana.
Um 40 mismunandi tegundir
voru fluttar til landsins, engir
brauðostar heldur einungis rjóma-
ostar, gráðostar og aðrir sælkera-
ostar. I gærmorgun voru til 26
mismunandi danskar ostategundir
í Kringlunni og því nokkrar tegund-
ir þegar uppseldar.
Sölutölur liggja enn ekki fyrir á
einstökum tegundum en svo virðist
sem danski kastalaosturinn og
gráðostarnir séu mjög vinsælir.
Suma ostana má kaupa í stórum
einingum og þá eru þeir ódýrari en
kemur fram í töflunni sem er birt
hér á síðunni.
Örn Kjartansson, rekstrarstjóri
hjá Hagkaup, segir viðbrögðin hafa
verið vonum framar og hann segist
hafa orðið var við að fólk þekki
þessa osta. Búist er við að birgðir
endist fram yfir helgi. Örn telur
víst að framhald verði á þessum
innflutningi og í athugun er einnig
innflutningur á öðrum ostategund-
um.
Hvað kosta
./
, i'
i
Kastali, hvitur
Kastali, blár
Rjómaostur m. ananas & hnetusp.
Rjómaostur m. ananas & krókant
Rjómaostur m. pipar
Camilla, rjómaosturm. hvítlauk
Ostarúlia m. hvítlauk
Ostarúlla m. bl. pipar
Marquis, mjúkurostur
Saga, mjúkur osturm. hvíttauk & basil
Lúxus yrja
Bónda brie
Gráðostur
Islenskir ostar
1.304 kr/kg
727 kr/kg
-n Z
1.264 kr/kg
1.008 kr/kg
1.467 kr/kg
1.240 kr/kg
1.065 kr/kg
Danskir ostar
1.793 kr/kg
1.793 kr/kg
2.072 kr/kg
2.072 kr/kg
1.727 kr/kg
1.793 kr/kg
1.640 kr/kg
J
\__
Morgunblaðið/Golli
BLÁR danskur kastalaostur, íslenskur kast-
ali, íslenskur gráðostur, danskur rjómaostur
með ananas og krókant og danskur kastali
Verðmunurinn mjög mikill á
rjómaostum
Við lauslega verðkönnun sem
gerð var í gær kom í ljós að verð-
munurinn er einna mestur á íslensk-
um og dönskum ijómaostum. Til
dæmis kostar eitt kíló af dönskum
ijómaosti með ananas og hnetu-
spæni 2.072 krónur en íslenskur
ijómaostur með ananas og krókant
727'krónur kílóið.
Lesendum til
glöggvunar þá
kostar ein 110 g
dós af íslenska
ijómaostinum 80
krónur á meðan
125 gramma dós
af þeim danska
kostar 259 krónur.
Að vísu er lagt
meira í útlit danska
ostsins, um er að
ræða ostahring
með möndíuspæni
sem hægt er að
bera fram þannig,
en sá íslenski er
borinn fram í plast-
íláti.
Erfitt er að full-
yrða að um sambærilegan ost sé
að ræða hvað varðar bragð og
gæði enda alltaf smekksatriði. Sá
danski er 31% feitur en sá íslenski
22% feitur. Innihaldslýsingin er
ekki alveg eins. '
í íslenska ijómaostinum er
undanrennukvarg, sýrt smjör,
bragðefnin krókant og ananas,
mjólkurprótein, bindiefni og rot-
varnarefni. í þeim danska er geril-
sneidd mjólk, ijómi, möndlur, an-
anas, , appelsínulíkjör, matarlím,
sykur, salt og mjólkursýrubasi.
Örn segir að ijómaostarnir séu
flokkaðir sem sérstakir sælkera-
ostar og þeir séu greinilega dýrir
í Danmörku líka.
Grillsneiðar
ekki á 4.999
kr. heldur
499 kr.
MEINLEG prentvilla læddist í
tilboð Nóatúns á þurrkrydduð-
um framhryggjarsneiðum sl.
fimmtudag. Sagt var að kílóið
af þeim væri á 4.999 kr. Hið
rétta er að grillsneiðarnar kosta
499 krónur kílóið.
Appelsína og nýtt tríó
vinsælustu Trópí-safarnir
NÝIR Trópí-ávaxtasafar hafa kom-
ið í hillur verslana í sumar og Tróp-
ítríó í litlum fernum er nú næstvin-
sælasti safinn frá Sól á eftir appels-
ínusafanum sem hér hefur fengist
í 23 ár. Sól hf hrærði upp í ávaxta-
söfunum í vor; breytti umbúðum,
setti á markað trió og rautt greip
og skipti út ananassafanum.
Jón Scheving verksmiðjustjóri
segir að hætt hafi verið með evr-
ópskan ananas og farið að flytja inn
frosinn safa frá Hawai.
Hann sé mun ferskari og margir
hafa sagst vera ánægðir með breyt-
inguna.
Appelsínu- og greipsafarnir frá
Sól eru keyptir af samlagi 19 bænda
skammt frá Orlando í Flórída. Þar
eru ávextirnir tíndir, kreistir og
þykkni flutt hingað frosið eftir að
vatn hefur gufað af safanum.
Þykknið er svo blandað með ís-
lensku vatni í hlutföllunum 1 á
móti 5.
Trópí appelsínusafi í lítra- og
hálfslítrafernum er með ávaxtakjöti
og endist í 5 vikur óopnaður í kæli.
Sami safi fæst líka í litlum fernum,
fjórðungs úr lítra, en á þær er sett
án þess að loft komist að, endingin
verður 3 mánuðir og ekki nauðsyn-
legt að geyma í kæli. Ávaxtakjötið
kemst á móti ekki með.
Nýju safarnir
Sömu sögu og af appelsínunum
er að segja um greipsafann, nema
hvað hvíta greipið sem lengi fékkst
er horfið og rauður greipsafi kom-
inn í staðinn. Hann er örlítið sæt-
ari og ólíkt fallegri á litinn. Þessi
safi fæst í 'A og 'A lítra umbúðum.
Hin nýjungin, ávaxtatríó með
appelsínusafa, guava og passíu-
ávexti, fæst einungis í 1/4 lítra
fernum. Appelsínan er unninn úr
sama þykkni og hreini appelsínu-
safinn, en tveir tíundu hlutar tríós-
ins eru safar óvenjulegri ávaxta,
sem fluttir er inn með flugi, þar sem
þeir henta illa til frystingar.
í heildina segir Jón Scheving að
sala Trópí-appelsínusafa jafngildi
því að hver Islendingur drekki ríf-
lega eina litla fernu á mánuði. Þetta
sé langvinsælasti safinn til margra
ára. Nú sé tríóið næst, svo epla-
safi, rautt greip, ananas og loks
sveskjusafi.
Pans
í ágúst frá
kr. 21.900
Við höfum fengið nokkur viðbótarsæti til Parísar á lága
•verðinu í brottfarimar 2. og 9. ágúst í beina leigufluginu
okkar. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti á meðan enn er
laust. Nokkur viðbótarherbergi á Edouard hótelinu á hreint
frábæru verði.
Flugsæti
kr. 21.900*
Skattarkr. 2.100.
Verð samtals kr. 24.000.
Flug og hótel í viku
2. og 9 .ágúst
kr. 29.900
Skattarkr. 2.100.
\ferð samtals kr. 32.000.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562-4600.
ilmandi gott RIO kaffi í hlýíegu ög notafegu umhverfi
í garnla Árbænum. Eitinig þarftu að prófafrægu
lummu-uppskriftina hennar Sigurlaugar.
DAGSKRA HELGARINNAR
SYNINGAR A VEGUM SAFNSINS
Sýningin MiX 5 á Ingólfstorgi er farandsýning á vegum borgarminjasafn-
anna á Norðurlöndum. Sýningin fjallar um unglinga í dag og verður opin
til 23. júlí. Aðgangur er ókeypis.
"Reykjavík '44 - Fjölskyldan á lýðveldisári" á Árbæjarsafni sýnir daglegt líf
Reykjavíkurfjölskyldunnar á stríðsárunum. Sýningin er fyrirtaks leiö
til aö fræöast um tímabilið þegar afi og amma voru ung.
Sunnudagur 23. júlí
Hópreiö hestamanna úr Fáki á safniö kl. 15:00. Áö verður á túninu við
Árbæinn og þar verður boröað nesti og slegiö upp dansiballi ef vel viðrar.
Karl Jónatansson þenur nikkuna.
Reiðtúr við aöaltorgiö. Krakkar fá að bregða sér á bak einum af Fáks-
gæöingunum frá kl. 15:00 - 16:00.
Skeifnasmíöi í smiðjunni við Árbæ.
Pétur Þórarinsson söðlasmiður sýnir í gömlu skemmunni í Árbæ frá
kl. 14:00 - 17:00 og gömul reiðtygi veröaþartil sýnis.
Einnig venjulegir dagskrárliðir og veitingar á svæöinu
J Leitið ekki langt yfir skammt! Komið í Árbæjarsafnið um
■ helgina og upplifið skemmtilegan og fróðlegan eftirmiðdag.
ÁRBÆJARSAFN • REYKJAVIK MUSEUM
' SIMI 5771111
FAX 5771122