Morgunblaðið - 22.07.1995, Side 21

Morgunblaðið - 22.07.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT LAU GARDAGUR 22. JÚLÍ1995 21 Rannsókn Whitewater-málsins á Bandaríkjaþingi Almenningfur efast um heilindi repúblikana Washington. Reuter. Upplognar sakir ÍTALSKUR mafíumeðlimur, sem njósnaði fyrir lögregluna, veitti falskar upplýsingar sem leiddu til handtöku og fangels- unar fyrrum Evrópuþing- manns, Enzo Tortora. Haft er eftir mafíumeðlimnum að hann hafi gert sér grein fyrir að það sem hann sagði hefði komið sér vel fyrir dómarana sem rannsökuðu málið. Tort- ora var kunnur sjónvarpsmað- ur. Hann var handtekinn 19B3 í tengslum við herför gegn mafíunni í Napólí. Áður en réttað var í máli hans var hann kosinn á Evrópuþingið, og 1985 var hann fundinn sekur um aðild að fíkniefnasmygli. Hann lést úr krabbameini 1988. Bentsen ver lögreglu LLOYD Bentsen, fyrrum fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, varði í gær aðgerðir manna Áfengis-, tóbaks- og skot- vopnaeftirlitsins, sem réðust til atlögu við búgarð fylgis- manna Davids Koresh í Waco í Texas 1993. Bentsen viður- kenndi að mistök hefðu verið gerð. Hann kom í gær fyrir þingmannanefnd sem rann- sakar meintan þátt ríkisstjórn- ar Bills Clintons í aðgerðum lögreglu í Waco. Sjúkraskýrsl- ur Doles BOB Dole, Öldungardeildar- þingmaður í Bandaríkjunum, gerði í gær sjúkraskýrslur sín- ar opinberar til þess að taka af allan vafa um að hann sé nægilega heilsuhraustur til þess að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Dole þykir lík- legastur til þess að verða for- setaframbjóðandi Repúblikana á næsta ári. Hann verður 72 ára í dag. Hann fékk krabba- mein 1991 en hefur náð bata. Fari svo að Dole verði kjörinn forseti verður hann elsti maður sem tekið hefur við embætt- inu. Ronald Regan var tæplega sjötugur þegar hann hóf sitt fyrsta kjörtímabil 1981, Fjöldamorð- ingi gefur út FJÖLDAMORÐINGINN Charles Manson hefur gefið út hljómdisk í tilefni af 60. afmælisdegi sínum. Um 5000 eintök af hljómdiski Mansons hafa verið framleidd af fyrir- tæki í Seattle og verður dreift í Bandaríkjunum í næstu viku. Lögin voru tekin upp á laun þegar Manson var vistaður á sjúkrastofnun fangelsisins í Vacaville í Kaliforníu. „Pillaðu þig“ VOPNAÐUR maður sem rétti verslunareiganda í hollenska bænum Groningen miða með kröfu um að peningar yrðu látnir af hendi lagði á flótta þegar verslunareigandinn skrifaði til baka: „Pillaðu þig.“ Skömmu síðar var handtekinn maður vopnaður byssu og mið- um með kröfum um að pening- ar yrðu afhentir „i hvelli." NEFND öldungadeildar Banda- ríkjaþings hélt áfram yfirheyrslum vegna Whitewater-málsins í gær. Sjálfsvíg Vincents Foster, sem var aðstoðarráðgjafi Bills Clintons for- seta í lögfræðilegum efnum, fyrir tveim árum er mikilvægur þáttur í yfirheyrslunum en Foster er nú talinn hafa átt við andlega erfið- leika að stríða. Könnun í Bandaríkj- unum, sem birt var í gær, gefur til kynna að 67% landsmanna telji repúblikana fyrst og fremst vera að reyna að koma höggi á Clinton með yfirheyrslunum. Aðeins 28% álíta að öldungadeildin sé að sinna réttmætu eftirlitshlutverki sfnu. Að sögn International Herald Tribune var stækkuðum myndum af handskrifuðum athugasemdum Fosters, sem fundist hafa, varpað upp níu sjónvarpsskjái í salnum þar sem rannsóknarnefnd öldunga- Mito. The Daily Telegraph. HORFUR eru á að japanski Sósíali- staflokkurinn bíði afhroð í kosning- um til efri deildar þingsins á morg- un. Kosið verður um helminginn af 252 sætum í deildinni, og samkvæmt skoðanakönnunum munu rúmlega 30 af 43 þingmönnum Sósíalista missa sæti sín. Fari svo getur reynst erfitt fyrir Tomiichi Murayama, forsætisráð- herra Sósíalistaflokksins, að standa uppi í hárinu á samstarfsflokknum, Lýðræðislega demókrataflokknum. Sósíalistar áttu orðið erfitt uppdrátt- ar vegna marxísks orðspors, en í fyrra snéru þeir baki við gömlurn stefnumálum og gengu til stjórnar- samstarfs við demókratana. deildarinnar hefur aðsetur. Óljóst er hvernig á að túlka sum ummæli Fosters en honum virðist htjósa hugur við því að þurfa að hafa frek- ari afskipti af fjármálum forsetans. Clinton og Foster voru góðvinir frá unglingsárunum. Margt þótti á sínum tíma undar- legt við sjálfsvígið og aðstæður á staðnum þar sem líkið fannst og grunsemdir vöknuðu um að Foster hefði verið myrtur. Webster Hubbell, fyrrverandi aðstoðardómsmálaráðherra Clint- ons, sagði í gær að hann hefði ekki gert sér fulla grein fyrir því hve Foster væri illa haldinn andlega fyrr en eftir sjálfsvígið. „Hann var mjög tortrygginn, var hræddur við að nota símann til að ræða við mig,“ sagði Hubbell. Hann á yfir höfði sér fangelsisdóm vegna skatt- svika. Nú eiga kjósendur erfitt með að átta sig á því hver stefnumál Sósíal- istaflokksins eru. Þótt Murayama hafi haldið ræður víða nú í vikunni til stuðnings sósíalistum virðist flokkurinn ekki eiga sér viðreisnar von án skýrrar stefnu. Kjósendur kröfuharðir Efnahagur í Japan er nú bágari en nokkru sinni síðan á fjórða ára- tugnum. Neysluvörur eru helmingi dýrari en i Bandaríkjunum og banka- kerfið er að hruni komið. Af þessu leiðir að kjósendur gera nú auknar kröfur til yfirvalda. Þeir vilja að stjómmálaflokkar boði skýra stefnu. Sósíalistar hafa bæði lofað að veija Sjálfsvíg Fosters tengist Whitew- ater vegna þess að þáverandi aðalr- áðgjafi Clintons í lögfræðilegum efnum, Bernard Nussbaum, kannaði ásamt skrifstofustjóra Hillai-y Clin- ton forsetafrúar skjöl -á skrifstofu Fosters eftir að líkið fannst og áður en lögregla fékk tækifæri til að kanna aðstæður. Talið er að skjöl varðandi Whitewater kunni að hafa verið á skrifstofunni. Hubbell ver aðgerðir Nussbaums og segir að á skrifstofunni gætu hafa verið viðkvæm plögg, m.a. í tengslum við mat á væntanlegum hæstaréttardómurum en þá skipar Bandaríkjaforseti. Hins vegar sagði Hubbell nefndinni á fimmtudag að Nussbaum hefði ekki staðið við samning sem hann hefði gert við embættismenn dómsmálaráðuneyt- isins um að þeir fengju að fara yfir gögn Fosters síðar. hagsmuni neytenda og að koma í veg fyrir að ódýrar, erlendar matvörur berist til landsins. Hver skoðanakönn- unin á fætur annarri hefur sýnt að kjósendur ei-u fylgjandi ríkisafskipt- um til þess að örva efnahagslífið. Helsti stjómarandstöðuflokkurinn, Framvarðaflokkurinn, býður skýra, neytendasinnaða stefnu, sem margir kjósendur eru hrifnir af. Kosningastjóri sósíalista sagðist viðurkenna að fólk hefði orðið fyrir vonbrigðum. Það hefði ákveðnar skoðanir á því hvað skipti máli, en treysti ekki stjórnmálaflokkunum. Búist væri við að kosningaþátttaka á morgun yrði sú minnsta sem sögur færu af. Viðbrögð gagnrýnd Undarleg viðbrögð háttsettra embættismanna Clintons er lík Fosters fannst eru harðlega gagn- rýnd en talsmenn Hvíta hússins bera því við að fólk hafi gert mis- tök vegna þess hve áfallið hafi verið mikið og óvænt. Öryggisvörður í Hvíta húsinu segist hafa séð skrifstofustjóra Hillary Clinton, Margaret Williams, yfirgefa skrifstofu Fosters nótjtina er líkið fannst og hafi hún háldið á skjalakassa. Williams vísar því á bug, segir að um misminni hljóti að vera að ræða. Lögreglumenn sem borið hafa vitni fyrir þing- nefndinni telja að embættismenn Hvíta hússins hafi skipt sér með ótilhlýðilegum hætti af störfum þeirra við rannsókn sjálfsvígsins. Hvítur hnúfubakur Sydney. Reuter. ÁFAR fágætur hvítur hválur hefur sést í grennd við Byron-höfða sem er um 550 km norðan við Sydney í Ástralíu og er talið að hann hafi verið á leið frá Suðurskautslandinu til æxlunarstöðva við Ástralíu- strendur. Hefur hvalurinn, sem mun vera hnúfubakur, þegar verið nefndur Moby Dick eftir sam- nefndum hval í frægri skáldsögu Bandaríkjamannsins Hermans Melville. Það voru fiskimenn sem sáu hvalinn að þessu sinni en þeir voru að veiðum á sunnudaginn við austurströndina. Ástralskur emb- ættismaður sagði að þetta væri í fjórða sinn frá 1991 að hvítur hvalur sæist og væri talið að um sama dýrið væri að ræða. Reuter Breytingar í Hanoi VÍETNAMSKAR konur hvíla lúin bein fyrir framan röð af ný- um borgina, og bera þess glöggt vitni að höfuðborg Víetnam byggðum húsum í úthverfi Hanoi. Sum húsanna verða nýtt und- tekur nú örum breytingum, líkt og margar aðrar borgir í Asíu ir hótelrekstur. Byggingakranar gnæfa yfir götur og torg víða hafa gert. Líkur á að flokkur Murayamas bíði afhroð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.