Morgunblaðið - 22.07.1995, Side 52
MICROSOFT. einarj.
WlNDOWS. SKÚLASONHF
TVÖFALDUR1. vinningur
MORGUNBLADW, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bandarískir
fjölmiðlar áhuga-
samir um Island
í SUMAR munu níu bandarískar
sjónvarpsstöðvar taka upp efni af
ýmsu tagi á íslandi og miðað við
reynslu síðustu ára má búast við að
á þessu ári birtist í bandarískum
blöðum 50-60 greinar sem íjalla um
landið. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum
sýna Islandi mun meiri áhuga nú en
fyrir nokkrum árum. Þá birtust að
jafnaði 5-6 greinar um ísland á
hveiju ári í bandarískum blöðum.
Þetta kemur fram í viðtali við Einar
Gústavsson forstöðumann Land-
kynningarskrifstofu íslands í New
York í Morgunblaðinu í dag.
Skrifstofan hefur undanfarin fjög-
ur ár staðið fyrir átaki til að vekja
athygli bandarískra fjölmiðla á Is-
landi. Umfjöllun í blöðum og sjón-
varpi skilar sér í auknum ferða-
mannastraumi. Sumir þeirra sem
koma til Islands frá Bandaríkjunum
eru sérstaklega að leita að ákveðnum
kostum landsins sem þeir hafa lesið
eða heyrt um.
Bandarískir ferðamenn eru íslend-
ingum verðmætir bæði vegna þess
að margir þeirra eru vel efnaðir og
vegna þess að þeir koma að stórum
hluta utan háannatímans í júní, júlí
og ágúst. Tveir þriðju þeirra 25 þús-
und bandarísku ferðamanna sem
hingað koma árlega eru á ferðinni á
öðrum tíma.
■ Efnaðir eftirlaunaþegar/8
Lögreglan elti ölvaðan og réttindalausan ökumann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjaldgæf-
ur prins
í Eyjum
Erfitt getur verið að ná mynd
af sjaldgæfum fuglaafbrigð-
um í návígi en hér getur að
líta lundaprins sem tekinn var
í Alsey, vestur af Stórhöfða,
í Vestmanneyjum. Það kostaði
hvorki meira né minna en
fjögurra daga yfirlegu að ná
myndinni en hún mun vera sú
fyrsta sinnar tegundar þar
sem sjá má venjulegan lunda
og lundaprins hlið við hlið.
Prinsar eru mishvítir að lit.
Ymis sjaldséð afbrigði eru í
lundastofninum. Sem dæmi
má nefna er lundakonungur
alhvítur en lundadrottning er
móbrún að lit. Kolapiltur er
annað sjaldgæft afbrigði með
þunnt nef og nærri aldökkan
haus.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Ok á lögreglubifreið
og veitti mótspymu
ÖLVAÐUR og réttindalaus öku-
maður var handtekinn í gærkvöldi
eftir að lögreglan hafði veitt hon-
um eftirför frá myndbandaleigu
við Höfðabakka að Fífurima í
Grafarvogi.
Maðurinn, sem er á fertugs-
aldri, sinnti engum stöðvunar-
merkjum lögreglunnar, en eftir-
förinni lauk þegar hvit Mazda
mannsins lenti á lögreglubilnum.
Reyndi maðurinn þá að komast
undan á hlaupum. Veitti hann lög-
reglu mótspyrnu þegar átti að
handtaka hann.
Við leit í bílnum, sem reyndist
óskoðaður, fannst lítið magn fíkni-
efna. Engan sakaði við árekstur-
inn og bifreiðarnar eru lítið
skemmdar. Var Mazdan tekin í
geymslu lögreglunnar og númerin
klippt af henni.
Þyrla sótti slasaðan mann
Pallur vörubíls skall
mður með
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
seinni partinn í gær mann austur
í Hrunamannaafrétt. Maðurinn
slasaðist þegar pallur vörubíls sem
hann var að vinna í skall niður
þegar verið var að hella möl úr
pallinum. Eitthvað gaf sig í lyftu-
búnaði pallsins, sem skall niður
með fullfermi af möl.
fullfermi
Við höggið kastaðist maðurinn
upp í loft bílhýsisins og var talið
í fyrstu að hann væri alvarlega
slasaður og ekki þorandi annað en
að senda eftir þyrlunni. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er
maðurinn ekki alvarlega slasaður
en hann þarf að dvelja á Borgar-
spítalanum í allavega sólarhring.
Tollasamningar við Evrópusambandið að komast á skrið
Beðið lim betri samning
en Norðmenn fengu
EFTA-NEFND Evrópusambandsins mun á
mánudag íjalla um kröfur íslands um tollfrjálsan
innflutningskvóta af síldarafurðum. íslenzk
stjórnvöld sætta sig ekki við tilboð Evrópusam-
bandsins um 4.000 tonna kvóta, sem er meðal-
tal síldarinnflutnings íslenzkra aðila til Svíþjóðar
og Finnlands síðastliðin þijú ár. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er gerð krafa um
talsvert hærri kvóta.
Kröfur íslands um tollfijálsan kvóta eru til-
komnar vegna inngöngu Svíþjóðar og Finnlands
í ESB um síðustu áramót, en við það lagðist
ytri tollur sambandsins á síld, sem áður var
seld tollfijálst á þessa mikilvægu síldarmarkaði.
Norsk stjórnvöld hafa gert svipaðar kröfur
og sömdu síðastliðið vor við ESB um tollfijálsan
kvóta fyrir nokkrar norskar sjávarafurðir. Svíar
hafa loks látið af andstöðu við samninginn og
var hann undirritaður í síðustu viku. Búizt er
við að hann hljóti staðfestingu ráðherraráðs ESB
á mánudag.
íslendingar hafa beðið átekta á meðan samn-
ingur Norðmanna hefur velkzt í kerfinu hjá
ESB. Nú þegar hann er í höfn, kemst aftur
skriður á samningamál íslands og Evrópusam-
bandsins. íslendingar fara hins vegar fram á
betri samning en Norðmenn fengu. Innflutn-
ingskvóti norskra sjávarafurða var miðaður við
meðaltal síðustu þriggja ára, eins og tilboð ESB
til Islands.
Röksemdir íslenzkra stjórnvalda eru þær að
ísland sé háðara sjávarútvegi en Noregur. Þá
hafi EFTA-samningarnir, sem tryggðu tollfrjálsa
sölu á síld til Svíþjóðar og Noregs, boðið upp á
framtíðarmöguleika og ESB verði að bæta fyrir
missi þeirra. Þá sé útlit fyrir vaxandi síldarafla
og þar af leiðandi aukinn útflutning.
Skilyrðum um afléttingu
löndunarbanns hafnað
Fyrr í mánuðinum reyndu dönsk stjórnvöld
að fá því framgengt að ekki yrði lokið við tolla-
samninga við Noreg og Island nema með því
skilyrði að síðarnefndu ríkin afléttu löndunar-
banni á síldveiðiskip frá ESB, sem veiða í Síldar-
smugunni. Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins féllust önnur ESB-ríki ekki á þetta.
Búnaðarbankinn
Peninga-
vinningar
BÚNAÐARBANKINN veitir þremur
til fjórum sparifjáreigendum pen-
ingavinninga á þriggja mánaða
fresti næstu tólf mánuði. Þessir vinn-
ingar, sem eru þeir fyrstu sinnar
tegundar, eru liður í sérstöku átaki
til að hvetja til sparnaðar og kynna
fjölbreyttari ávöxtunarmöguleika en
áður hafa verið í boði hjá bankanum.
Sparivinningarnir svokölluðu
verða á bilinu 50-150 þúsund krónur
og verður fyrsti útdrátturinn í sept-
ember. Til að vera gjaldgengur þarf
að spara þijú þúsund krónur á mán-
uði að lágmarki og til a.m.k. tólf
mánaða í senn.
Bankinn hefur fjölgað svokölluð-
um sparnaðarreikningum og býður
nú almenningi að stunda reglulegan
sparnað með gjaldeyrisreikningum
og verðbréfareikningum auk eldri
reikninga.
■ Reglulegur sparnaður/14